Fleiri fréttir

Kreppan með krónuna

Landsmenn hafa nú heilsað nýju ári. Eitt viðfangsefni blasir við í upphafi þess sem ætla má að sé mikilvægara en flest önnur þegar til lengri tíma er litið. Það er kreppan með krónuna. Við þurfum bærilega stöðugan gjaldmiðil rétt eins og aðrar þjóðir. Krónan hefur ekki staðist þær kröfur sem rétt er að gera í þeim efnum.

Áróður álmanna

Katrín Jakobsdóttir skrifar

Hafnfirðingar fengu allir gjöf frá Alcan nú fyrir jólin. Í ljósvakamiðlum mátti sjá auglýsingar frá álfyrirtækjum og í prentmiðlum myndir af brosandi fólki við störf sín í álverum. Áróður álfyrirtækjanna er kominn á fullt enda átta forsvarsmenn þeirra sig á því að í kosningunum hér á landi í vor verður kosið um umhverfismál.

Glansmynd eða guðsmynd

Í Fréttablaðinu 11.12. svarar Jón Valur Jensson guðfræðingur grein minni í Fréttablaðinu 21.11. síðastliðinn er bar heitið Trú, trúarbrögð og vísindi. Ég var farinn að halda að enginn af öllum þessum „guðfræðingum“ þessa lands vildi tjá sig um þær fullyrðingar er ég sagðist hafa aflað mér og setti þarna fram. Jón Valur segir Guð lifandi og „persónulegan“.

Fátæktaraðskilnaður

Ég var að velta fátækt fyrir mér og af hverju svona margir þurfa að vera fátækir, eigum við sem þjóð að hugsa um okkar minnstu syni og dætur, sem einhverra hluta vegna búa við fátækt. Eða á lögmálið um hinn sterkasta sem ríkir og að hinir veiku megi deyja drottni sínum, hvort viljum við? Er það nokkur spurning? Við viljum öll hjálpa hinum veikari, það er bara spurning hversu mikið við viljum leggja til?

Þjóðkirkja hæðist að jafnræði trúfélaga

Í byrjun aðventu ritaði ríkislaunaður talsmaður þjóðkirkjunnar Steinunn Arnþrúður grein hér í blaðið undir fyrirsögninni „Jafnræði trúfélaga og staða þjóðkirkjunnar“.

Ekki meiri Cleese, plís!

Okurvextirnir hérna eru þjóðarböl. Það er ekki hægt að láta eins og bankarnir beri ekki þar sök á, að þeir séu bara að starfa innan ramma þess sem er leyfilegt og löglegt. Eitt sinn var talað um það sem er löglegt en siðlaust – þannig er einmitt farið um starfsemi bankanna á Íslandi...

Ekki blogg – gleðilegt ár

Nú þegar árið er að renna sitt skeið langar mig að taka fram að ég hef aldrei skrifað blogg. Sögu mína á internetinu má rekja til 1. febrúar árið 2000, sem er sirka fimm árum áður en bloggið var fundið upp...

Til móts við nýja tíma

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifar

Árið 2007 ber með sér vonir og væntingar um nýja tíma. Það liggur í loftinu að nú sé kominn tími til að breyta. Þessi áramót marka upphaf kosningaárs og síðasta kjörtímabil ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er senn á enda. Sú stjórn hefur lokið hlutverki sínu. Eftir kosningarnar í vor er tækifæri til að mynda nýja ríkisstjórn. Ég er sannfærð um að flestir vilja frjálslynda jafnaðarstjórn. Hún verður ekki til án Samfylkingarinnar.

„Hika ei við það mark sem vel er sett“

Það ár sem sem við dagslok hverfur í rás aldanna geymir eins og önnur sína sögu. Það hefur bæði verið tími framfara og margvíslegra breytinga. Sumt af því sem gerðist mun lifa og hafa áhrif langt fram á veg. Annað verður skammlíf minning eins og gerist og gengur.

Velferðin – áratugabarátta

Í áratugi hafa launþegar, samtök þeirra og stjórnmálaflokkar haft uppi áherslur um velferðarþjóðfélag í bestu merkingu þess. Hér ættu allir að geta lifað af við þau kjör og réttindi sem okkur væru tryggð.

Vel að verki staðið við Hvalsnes

Strand flutningaskipsins Wilson Muuga við Hvalsnes á Reykjanesi hefur vakið menn til umhugsunar um hættuna á verulegri olíumengun sem orðið getur hér við land. Siglingar við landið eru ekki hættulausar og sagan segir frá fjölmörgu skipsstrandinu og óhugnanlegu manntjóni við strendur landsins. Það er því nauðsynlegt að læra af fenginni reynslu svo forða megi slysum í framtíðinni.

Breytum í vor

Sveitarstjórnarkosningar í maí gáfu nokkurn forsmekk að því sem nú er í vændum. Þar urðu fyrirferðarmikil mál sem að líkindum mun einnig bera hátt í alþingiskosningunum. Má nefna málefni aldraðra og velferðarmál almennt og síðan umhverfismálin.

Róttækar umbætur

Jón Sigurðsson skrifar

Ágætu landsmenn. Enn nálgast áramót og þá er tími til að skyggnast yfir árið sem er að hverfa og reyna að sjá inn í næstu framtíð. Það sem blasir við á Íslandi um þessar mundir er ótrúleg gróska í menningarlífi, listsköpun, hönnun, rannsóknum og menntun. Þessi gróska sýnir kraft og þor þjóðarinnar og um leið heilbrigðan og sterkan þjóðarmetnað.

Einbeitt áfram til árangurs

Viðburðarríkt ár er að baki. Glæstir sigrar, vonbrigði, tækifæri, gleði og sorg – allt þetta hafa landsmenn upplifað með einhverjum hætti á árinu 2006. Þannig er lífið í öllum sínum fjölbreytileika og enginn stöðvar tímans þunga nið. Árið 2007 heilsar brátt með öllum þeim viðfangsefnum og áskorunum sem fylgja nýju ári.

Útrás og menntun

Undanfarið ár hefur meðal annars einkennst af áframhaldandi sókn íslenskra fyrirtækja á markaði erlendis. Er nú svo komið að varla er opnuð skóbúð á Laugaveginum án þess að verslunarstjórinn láti hafa eftir sér í fjölmiðlum að hér sé einungis um fyrsta skrefið að ræða, framundan sé Skandinavíumarkaður og Stóra-Bretland, þekkt sé að íbúar þessara landa hafi aldrei kunnað að selja skó og því séu tækifærin óendanleg.

Saddam hengdur, dapurt líf pólitíkusa, góður tími, Kryddsíld

Hér er fjallað um heimskuna sem virðist allsráðandi í stríðinu í Írak, beiska og fátæka stjórnmálamenn, tímann milli jóla og nýárs sem er alveg furðulega þægilegur, en loks er minnt á Kryddsíldina á morgun og áramótagrein í Ísafold...

Stækkun álversins, ræða útvarpsstjóra, aftaka Saddams

Hér er fjallað um kosningar vegna stækkunar álversins í Straumsvík og líkurnar á að þær komi Vinstri grænum til góða, áramótaávarp útvarpsstjóra sem Páll Magnússon hefur lagt af og aftöku Saddams sem verður kannski í fyrramálið...

Dansað kringum gullálfinn

Í útvarpinu á dögunum var rætt við kaupmann á landsbyggðinni um veðrið. Tilefni viðtalsins var að veðrið var hagstætt fyrir verslun. Í íþróttafréttum er West Ham orðið áhugavert vegna þess að íslenskir kaupsýslumenn hafa keypt félagið.

Andstaða við stéttarfélög

Ögmundur Jónasson skrifar

Einkavæðing hefur sjaldnast gengið áfallalaust. Þó er misjafnt hve klaufsk yfirvöldin eru við markaðsvæðingu opinberrar starfsemi. Nýjasta dæmið er fyrirtæ kið Matís ohf. Það er stofnað upp úr Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins, Matvælarannsóknum á Keldnaholti og rannsóknarstofu Umhverfisstofnunar.

Jöfnuður hefur aukist!

Þegar jólin nálgast, fara jólasveinarnir á kreik. Þegar kosningar nálgast, birtast þeir Stefán Ólafsson og Þorvaldur Gylfason. Fyrir þingkosningarnar 2003 héldu þeir því fram, að fátækt hefði aukist á Íslandi.

Flugstjórnarmál enn í uppnámi

Enn á ný er flugstjórnarmálum á Íslandi stefnt í óefni af völdum flugumferðarstjóra. Þeir hafa oft á undanförnum árum haft uppi miklar kjarakröfur, og virðist hafa orðið töluvert ágengt í krafti stöðu sinnar við að sinna mikilvægum störfum við flugumferðarstjórn á mjög stóru svæði á hafinu í kringum Ísland.

Davíð í pólitík, okurvextir, Dómínós

Hér er fjallað um afskipti Davíðs Oddssonar af pólitíkinni sem virðast fremur færast í vöxt, hið hryllilega vaxtaokur sem virðist þykja sjálfsagt á Íslandi og þrífst í skjóli fákeppni og viðskiptahindrana, en að lokum er vikið að Dómínós pítsum og hinu ógurlega sms-máli...

Sogdæla fjármunanna

Ég var að hlusta á hagfræðing í útvarpinu um daginn. Hann sagði að húsnæðisverð væri orðið allt of hátt og að það mætti lækka það með því að hækka vexti. Einnig mætti lækna ýmsa aðra hagfræðilega skavanka á Íslandi með því að hækka vexti.

Hugleiðing um ástundun pólitísks hórdóms

Verði þingmaðurinn hins vegar ekki fær um það til frambúðar að sinna kjósendum sínum (með eðlilegum frávikum) á þeim forsendum sem þeir kusu hann til, þá segi hann af sér, og varamaður kemur inn, við þær aðstæður er enginn svikinn.

Reyklaus í tíu ár

Ég skrifa þessa stuttu grein til þess að þakka öllum þeim sem hafa treyst mér til að hjálpa sér að hætta að reykja á síðustu tíu árum.

Flugeldar gleðja augað...

Nú styttist óðum í áramótin. Flugeldasölustaðir hafa verið opnaðir og einstaklingar farnir að huga að flugeldum, sérstaklega karlpeningurinn og skiptir litlu á hvaða aldri þeir eru. En þessi tími er ekki hættulaus. Ef ekki er farið eftir leiðbeiningum um meðferð flugelda geta orðið slys og því miður höfum við séð nokkur slík hver áramót.

Hjálparstarf og trúboð

Í viðtali við Önnu M. Þ. Ólafsdóttur, fræðslu- og upplýsingafulltrúa Hjálparstarfs kirkjunnar, í sunnudagsblaði Fréttablaðsins 17. des. er haft eftir henni: „Mér finnst kærleiksboðskapur kristinnar trúar ekki geta verið nema til góðs þótt kirkjan hafi gert ýmislegt misviturt í gegnum aldirnar. En kristniboðið er ekki á okkar könnu.“

Gunguháttur sjávarútvegsráðherra

Ég hef það eftir samtali við starfsmann hjá HAFRÓ að ekki hafi verið veittir peningar til hafrannsókna á Skagafirði í langan tíma svo að þá hljóta að þurrkast fiskifræðilegu rökin í viðtalinu við ráðherrann. Þá beinast spjótin að stjórn HAFRÓ en hana skipa forystuklíka sægreifa veldisins og þótt þeir séu ekki allir eyrnamerktir henni þá hafa þeir margsagt það í ræðu og riti að þeir fylgi þeirri stefnu í fiskveiðimálum sem er mesti glæpur Íslandssögunnar.

Að minnsta kosti 600 milljónum hent

Nú um hátíðarnar er rétt að velta fyrir sér gríðarlegri sóun sem stjórnvöld standa fyrir á sama tíma og fjöldi fólks stendur í biðröðum eftir mat og glaðningi, s.s. hjá Fjölskylduhjálp Íslands.

Er fullveldisafsal frágangssök?

Hjónabönd eru að sönnu misjöfn að gæðum, eins og Guðmundur Ólafsson lektor sagði einhverju sinni um símtöl að gefnu tilefni. Samt er hjónabandið efalaust eitthvert allra dásamlegasta uppátæki mannskepnunnar frá öndverðu og jafnast á við eldinn og hjólið, lýðræði og markaðsbúskap.

Fátækt er raunveruleiki á Íslandi

Aðventan er liðin og jólahátíðin sjálf komin og farin. Eitt af föstum fréttaefnum jólaföstunnar eru tíðindi af fjárstuðningi og matargjöfum Mæðrastyrksnefndar, Hjálparstarfs kirkjunnar og Fjölskylduhjálpar Íslands til fátækra Íslendinga. Vissulega er hér um fréttaefni að ræða, að hér á landi hagsældar og velmegunar skuli vera allstór hópur fólks sem ekki á annars úrkosta en að þiggja matargjafir fyrir jólin.

Nýr lögreglustjóri, Gerald Ford, skattar

Hér er fjallað um nýjan lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, Gerald Ford Bandaríkjaforseta sem sagt var að gæti ekki tuggið og gengið á sama tíma og það fyrirkomulag að þeir sem hafa millitekjur og þar undir skuli borga skatta en ríkt fólk sé undanþegið...

Kaldastríðs-skipting Evrópu á enda

Þessi efnahagslega og stjórnarfarslega vanþróun, spilling og glæpir valda því að þær þjóðir álfunnar sem voru svo lánsamar að lenda vestan megin járntjaldsins á sínum tíma óttast um sinn hag þegar þessi nýjasta lota stækkunar ESB kemst til framkvæmda.

„Hinn tregi bandamaður“

Stundum er eins og það gleymist að utanríkisstefna Íslands á fyrstu áratugum lýðveldisins snerist ekki eingöngu um mismunandi afstöðu til Bandaríkjanna og hollustu við þau og málstað þeirra í kalda stríðinu.

Jólahátíðin

Engin hátíð kristinna manna setur eins mikinn svip á þjóðlífið og jólahátíðin. Gildir þar einu hvort um er að ræða hér á Íslandi eða annars staðar í hinum kristna heimi. Jafnvel utan hinna hefðbundnu kristnu landa fer jólahátíðin ekki fram hjá fólki, og allra síst nú á dögum alþjóðlegrar og mikillar fjölmiðlunar.

Gleðileg jól

Ég óska lesendum þessarar síðu gleðilegra jóla. Myndin sem fylgir með er ekki af gestum í Silfri Egils heldur jólasveinum og er teiknuð af Kára fjögurra ára. Hafið það gott yfir hátíðarnar.

Útrásarvíkingar, Manuela, Dunkleosteus

Hér er enn fjallað um þá ákvörðun Straums-Burðaráss að skipta yfir í evrur, afskipti Davíðs af efnahagsstjórninni og viðbrögð KB-banka, en einnig er fjallað um flautuleikarann góða Manuelu Wiesler og hræðilegt skrímsli sem eitt sinn synti um höfin...

Flutum sofandi að feigðarósi

Það er ekki ofmælt að tala um lausatök í stjórn efnahagsmála þegar ekkert er gert til að mæta augljósri og skynsamlegri gagnrýni á efnahagsstjórnina.

Trúin hennar ömmu

Fegurð kristinnar trúar felst einmitt í þeim styrk sem hún veitir, að því leyti að hún byggir brýr milli lífs og dauða, milli syndanna og fyrirgefningarinnar, milli skins og skúra.

Jólin eru ekki ókeypis

Eflaust er þeim kjarabótum eitthvað misskipt, en aðalatriðið er það, að allir búa við bættan hag. Íslendingar hafa því ekki aðeins efni á jólunum, heldur líka á því að búa vel að þeim, sem eiga undir högg að sækja.

Mikilvægir sjálfboðaliðar

Efling Landhelgisgæslunnar og samstarf þessara aðila tryggir áframhaldandi uppbyggingu björgunarstarfs á Íslandi. Það þarf ekki veðurofsa, skipsskaða eða stórslys til að Íslendingar átti sig á mikilvægi björgunarsveita. Þær hafa löngum sannað gildi sitt.

Dauðaþoka, síðasti geirfuglinn, evrupælingar

Hér er fjallað um gömlu Lundúnaþokuna, náttúrugripasafn sem hefur verið á hrakhólum síðan á þarsíðustu öld, og loks er vikið að síðustu vaxtahækkun Seðlabankans og ummælum Davíðs um evruna og íslensk fyrirtæki...

Sammál og sérmál

Evrópusambandið hét í fyrstu Kola- og stálbandalag Evrópu. Nafngiftin lýsti markmiðinu, sem var að setja náttúruauðlindir Frakklands og Þýzkalands undir einn hatt til að girða fyrir frekari átök um yfirráð yfir þessum auðlindum og fleiri stríð.

Þegar græðgin verður stjórnlaus

Nú er sá tími framundan að fólk sleppir gjarnan fram af sér beislinu þegar kemur að mat og drykk. Af því tilefni er við hæfi að minna á að aldrei koma fleiri á neyðarmóttökur spítalanna vegna hjarta- og æðasjúkdóma en einmitt á þessum árstíma þegar græðgin verður stjórnlaus.

Sjá næstu 50 greinar