Fastir pennar

Stækkun álversins, ræða útvarpsstjóra, aftaka Saddams

Ég á von á því að stækkun álversins í Straumsvík verði samþykkt. Nálægðin við álverið hefur náttúrlega verið mikilvæg fyrir Hafnarfjörð í gegnum tíðina. Þarna hafa mörg hundruð manns haft nokkuð vel launaða vinnu, ef fjölskyldur þeirra eru taldar með og margföldunaráhrifin má fullyrða að álverið hafi að nokkru leyti haldið uppi lífinu í Hafnarfirði. Þarna hefur verið áberandi lítil starfsmannavelta - sem bendir til þess að þeir sem vinna þarna séu nokkuð ánægðir.

En kosningabaráttan á sjálfsagt eftir að verða heit. Nú er sjálfur Ögmundur kominn í framboð í Kraganum. Þar hafa Vinstri grænir haft afar lítið fylgi. Flestir bæirnir í Kraganum eru íhaldsbæli, fyrir utan Hafnarfjörð sem er kratabæli. Vinstri grænir munu reyna að gera sér eins mikinn mat úr álverskosningunni og mögulegt er. Það hentar þeim vel að atkvæðagreiðslan sé á miðjum kosningavetri. Á sama tíma verður erfitt fyrir Samfylkinguna með Gunnar Svavarsson, forseta bæjarstjórnar í Hafnarfirði í fararbroddi, að reka það af sér að hún sé í aðra röndina stóriðjuflokkur.

Í því sambandi má minna á að það voru ekki síst kratar sem á sinni tíð véluðu um að álverið yrði byggt. Gylfi Þ. var þá viðskiptaráðherra í stjórn með Sjálfstæðisflokknum en Hafnarfjarðargoðinn Emil Jónsson utanríkisráðherra. Í Alþýðubandalaginu voru hins vegar öfl sem litu á þetta sem hrein landráð, létu öllum illum látum, hömuðust, gott ef ekki voru reistar níðstangir af þessu tilefni. Sósíalistar trúðu að með þessum gjörningi yrði Ísland bókstaflega afhent útlendum kapítalistum - það kom náttúruvernd minnst við.

Annars er hætt við að kosningabaráttan snúist upp í vitleysu ef Alcan ætlar að halda áfram að gefa bæjarbúum í Hafnarfirði geisladiska og bjóða þeim á íþróttakappleiki - eða hverju finna þeir upp á næst? Sjónvarpsauglýsingin sem þeir eru að sýna er líka hálf vemmó. Fólk er ekki svona mikil fífl.

Loks bendi ég í þessu sambandi á bloggfærslu eftir framkvæmdastjóra þingflokks Samfylkingarinnar, ég veit ekki - en kann að vera að hann sé í röngum flokki?

--- --- ---

Páll Magnússon vill ekki flytja ávarp útvarpsstjóra. Það var líklega barn síns tíma. Eitt sinn var talið nauðsynlegt að útvarpsstjóri væri gamaldags menningarmaður, helst norrænufræðingur, sem stæði föstum fótum í arfleifð þjóðarinnar, kallaðist helst á við þjóðskáldin í starfi sínu. Vilhjálmur Þ. Gíslason, Andrés Björnsson og Heimir Steinsson voru dæmigerðir svona menn, Kristján Eldjárn var það raunar líka en hann var gerður að forseta.

Á þessum tíma var ekki talið nauðsynlegt að útvarpsstjóri hefði vit á rekstri, hins vegar átti hann að geta sagt eitthvað þjóðlegt, gott og sæmilega viturlegt á stórhátíðum.

Páll les Njálu á hverju ári - gæti sjálfsagt flutt hinar dægilegustu Njáluskýringar - en ætlar að hlífa þjóðinni við því. Við því er ekkert að segja. Ég vil hins vegar beina því til hans að hann gerist enn róttækari og leggi líka niður áramótaskaupið frá og með þarnæstu áramótum.

Ég nenni ekki að rökstyðja þetta núna - læt kannski verða af því seinna en geri svosem ekki ráð fyrir að mikil eftirspurn sé eftir því.

--- --- ---

Nú eru taldar horfur á að Saddam Hussein verði hengdur í fyrramálið. Írak sekkur enn lengra niður í hreinan barbarisma. Dauðarefsingar eru ógeð hver sem á í hlut. Réttarhöldin yfir Saddam voru misheppnaður skrípaleikur. Blair og Bush hafa ekki það móralska vald sem þarf til að lífláta einræðisherrann gamla. Hversu margir munu líka bíða bana vegna aftökunnar - er ekki líklegt að átökin magnist enn í landinu í kjölfar hennar? Hvað verða saklaus fórnarlömbin mörg í þetta skiptið?



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×