Fleiri fréttir

„Konan sem fær útgefið af því að afi hennar hét Halldór Laxness“
Rithöfundurinn Auður Jónsdóttir segist hafa fengið nóg af umræðu innan bókmenntasamfélagsins, um að hún hafi fengið bækur útgefnar og þær tilnefndar til verðlauna, vegna þess að hún sé barnabarn nóbelskáldsins Halldórs Laxness.

KÚNST: Kúrekar og leyndarmál í Ásmundarsal
Síðastliðin fimm ár hefur Ásmundarsalur staðið fyrir jólasýningu þar sem fjölbreyttur hópur myndlistarfólks kemur saman með ólík listaverk til sölu. Í dag, á Þorláksmessu, er síðasti dagur sýningarinnar en KÚNST leit við á sýninguna um daginn og fékk innsýn í hugarheim nokkurra listamanna á svæðinu.

Matargerð og myndlist í eina sæng
Listakonurnar Antonía Bergþórsdóttir og Íris María Leifsdóttir opna sýninguna „Leiðarvísir augnablika“ á veitingastaðnum Sumac í dag. Verkin verða varanlegur hluti af veitingastaðnum og eru unnin undir áhrifum matargerðar Þráins Freys Vigfússonar, yfirkokks á Sumac og ÓX.

„Hræðileg kvöð að þurfa að gera eitthvað magnað“
„Það gefur mér mest að lesa, þaðan sæki ég gjarnan innblástur,“ segir rithöfundurinn og sviðslistakonan Ragnheiður Harpa Leifsdóttir sem var að senda frá sér ljóðabókina Urðarflétta. Blaðamaður tók púlsinn á henni og fékk að heyra nánar frá listsköpun hennar.

Síðasti Bóksölulistinn fyrir jól
Nú æsast heldur betur leikar í bóksölunni. Hér getur að líta síðasta Bóksölulistann sem birtist fyrir þessi jólin en jólabókaflóðið er nú að nálgast hápunkt sinn. Að mati sérfræðings Vísis í bóksölu, Bryndísar Loftsdóttur hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda, liggur fyrir að hinn svokallaði Svarti foli þetta árið, sá sem kemur helst á óvart, er sjálfur forsætisráðherra þjóðarinnar, Katrín Jakobsdóttir.

KÚNST: Jólasýningin í Ásmundarsal
„Það sem skiptir svo miklu máli er að kafa aðeins dýpra og skilja hvað það er sem myndlistarmaðurinn er að fást við. Af hverju er hann að fást við það og hver er sagan? Oft er sagan miklu meira en helmingurinn af verkinu,“ segir Olga Lilja Ólafsdóttir, sýningarstjóri Jólasýningarinnar 2022 í Ásmundarsal.

„Jafnvel við stjórnmálamenn getum verið skapandi“
Í seinasta mánuði kom út glæpasagan Reykjavík en Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skrifaði bókina Ragnari Jónassyni rithöfundi. Bókin hefur hlotið verðskuldaða athygli enda ekki á hverjum degi sem stjórnmálamaður sendir frá skáldsögu á meðan setið er í embætti.

Einar Kárason segist núll og nix í augum Rannís-fólks
Einar Kárason rithöfundur fékk við síðustu úthlutun listamannalauna, fyrir árið 2023, sex mánuði eða hálft ár. Einar telur það skítt fyrir mann sem hefur gert ritstörf að ævistarfi sínu. Og hann liggur ekki á þeirri skoðun sinni heldur lætur þá sem standa að úthlutuninni heyra það.

Gefur út bók sem hann skrifaði tíu ára gamall
Fyrrverandi upplýsingafulltrúi Strætó gefur nú út bók sem hann skrifaði fyrir tuttugu og fjórum árum - þegar hann var tíu ára. Sagan lá í rykföllnum pappakassa allt þar til nú og er fyrsta bók höfundarins.

Smíðuðu plexi kassa sem flaug óvart á vörubíl
Ljósmyndarinn, leikstjórinn og listakonan Anna Maggý hefur leikstýrt ýmsum myndböndum í gegnum tíðina og má þar nefna tónlistarmyndband fyrir tónlistarkonuna Eydísi Evensen við lagið Brotin. Anna Maggý er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst en þar deildi hún meðal annars vægast sagt eftirminnilegri reynslusögu.

Bein útsending: Fréttamenn og höfundar lesa upp úr sínum uppáhaldsbókum á aðventunni
Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar er, líkt og landsmenn flestir, komin í mikið jólaskap og hefur tekið höndum saman með Eymundsson en saman blásum við til upplestrar í dag því fátt er jólalegra en bóklestur og allra helst við kertaljós.

Þessi fá listamannalaunin 2023
Tilkynningar hafa verið sendar út til þeirra listamanna sem sóttu um starfslaun fyrir árið 2023 og hafa beðið milli vonar og ótta. Nú liggur fyrir hverjir fá listamannalaun og hverjir ekki.

Sigurjón Sighvats stelur frá þjófi og skammast sín ekkert
Klukkan 13.30 bæði laugardag og sunnudag um þessa helgi mun Jón Proppé listheimspekingur taka Sigurjón Sighvatsson í listamannaspjall um hliðarsjálf sitt CozyBoy en sýning á verkum hans stendur nú yfir við Hafnartorg.

Fyrsta sýnishornið úr sýningunni Mátulegir
Mikil eftirvænting virðist vera fyrir leikritinu Mátulegir. Leikstjóri verksins er Brynhildur Guðjónsdóttir en frumsýningin verður 30. desember í Borgarleikhúsinu.

Snorri Ásmundsson segist tilbúinn í hlutverkið besti málari Evrópu
Snorri Ásmundsson er nýkominn heim úr ævintýralegri og vel heppnaðri gestavinnustofudvöl í Vínarborg þar sem hann hélt frægan píanó gjörning og einkasýningu. Blaðamaður tók púlsinn á Snorra sem hefur nú gefið út yfirlýsingu um það sem koma skal.

Forsætisráðherra steypir glæpasagnakóngi af stóli
Stórtíðindi þessa næst síðasta Bóksölulista fyrir jól eru þau að Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir hafa rutt Arnaldi Indriðasyni úr fyrsta sæti listans.

„Eina sem maður kemst ekki hjá er að fæðast og deyja“
„Móðir mín fór til spákonu og spákonan sagði að dóttir hennar yrði listakona. Þannig að mamma sendi mig strax í myndlist, sem er dálítið fyndið,“ segir listakonan, ljósmyndarinn og leikstjórinn Anna Maggý en hún er viðmælandi í þessum nýjasta þætti af Kúnst.

RAX Augnablik: „Maður þarf að klípa sig til að átta sig á því hvort að maður sé dauður“
Ragnar Axelsson fylgdi fjallmönnunum Þórði og Olgeiri um árabil að smala fé af fjöllum á Landmannaafrétti. Hann óttast að það sé hefð sem sé að líða undir lok.

Glæpamenn geta líka verið „woke“
Jón Atli Jónasson var að senda frá sér hörkukrimma sem heitir Brotin. Þetta er harðsoðin glæpasaga og ef að er gáð er umfjöllunarefnið ef til vill ekki svo ýkja fjarri þeim íslenska veruleika sem við blasir. Höfundurinn er í það minnsta á því að þetta sé raunsæi.

Íslensk listakona á Art Basel í Miami
„Ég er alltaf jafn hissa þegar ég fæ þessi tækifæri, það er algjör heiður að fá að taka þátt á þessari hátíð,“ segir listakonan María Guðjohnsen í samtali við blaðamann en María tók á dögunum þátt í listahátíðinni Art Basel í Miami. Hátíðin er ein stærsta sinnar tegundar í listheiminum en María er búsett í New York þar sem hún sinnir listsköpuninni af fullum krafti.

Elskar að henda sér út í djúpu laugina
„Allt frá því ég var krakki hef ég haft áhuga á tölvum og listsköpun,“ segir listamaðurinn og tölvunarfræðingurinn Halldór Eldjárn sem opnar sýninguna „flora inorganica“ á morgun þar sem tækni, plöntur og myndlist blandast saman. Sýningin fer fram í STAK að Hverfisgötu 32 og hefur verið opin gestum alla vikuna þar sem hægt er að fylgjast með verkum í vinnslu og uppsetningu sýningarinnar.

Bókaþjóðin elskar Birgittu
Salan á barnabókum söngkonunnar Birgittu Haukdal er nú þegar orðin 20 þúsund eintök. Í stefnir að hún muni selja 30 þúsund eintök áður en þessi vertíð er á enda, sem er fáheyrt. Sjálf bókaþjóðin elskar Birgittu.

Glænýr bóksölulisti Fibut: Ólafur Jóhann og Stefán Máni á mikilli siglingu
Eins og svo oft áður er helsta spurningin þessa jólabókaflóðs: Tekst einhverjum að velgja konungi bóksölunnar, Arnaldi Indriðasyni, undir uggum?

Hildigunnur fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2024
Hildigunnur Birgisdóttir hefur verið valin fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 2024 en það verður í sextugasta sinn sem hann er haldinn. Þá slæst hún í hóp með mörgum af fremstu listamönnum þjóðarinnar og má þar nefna Jóhannes Kjarval, Ragnar Kjartansson, Hrafnhildi Arnardóttur, Rúrí og Egil Sæbjörnsson. Blaðamaður tók púlsinn á Hildigunni.

Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna 2023 afhjúpaðar
Mikið var um dýrðir á Borgarbókasafninu í miðbæ Reykjavíkur í dag þegar níu bækur voru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi.

Fólk ætti að vera sent til Færeyja í stað heilsuhælis
„Þetta er eins og að fara aftur í tímann.“ Svona lýsir Ragnar Axelsson ljósmyndari litlu þorpi í Færeyjum í nýjasta þættinum af RAX Augnablik.

Hundrað listamenn saman á sýningu
Næstkomandi laugardag opnar jólasýning Listvals í Hörpu. Á sýningunni má finna yfir 300 verk eftir um 100 listamenn sem njóta vinsælda hérlendis. Þær Helga Björg Kjerúlf og Elísabet Alma Svendsen eru stofnendur og eigendur Listvals og hafa saman staðið að fjöldanum öllum af sýningum með ólíku listafólki.

Lóu krossbrá þegar hún sá Gunnar Helgason á Kjarvalsstöðum
Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna voru kynntar á Kjarvalsstöðum með pompi og pragt í gær. Á þessum tíma árs ríkir mikil spenna meðal rithöfunda sem mega alls ekki við miklu óvæntu.

Katrín tilnefnd til bókmenntaverðlauna
Einskonar samruni Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans og Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2022 varð þegar tilnefningar voru kynntar nú rétt í þessu á Kjarvalsstöðum. Athygli vekur að meðal hinna tilnefndu er Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fyrir frumraun sína sviði glæpasagnagerðar.

Fullveldisbækur afhentar forseta Alþingis
Útgáfu tveggja bóka var fagnað við hátíðlega athöfn í Skála Alþingis í gær en samið var um útgáfu þeirra árið 2018 í tilefni 100 ára afmælis fullveldis Íslands. Um er að ræða samstarfsverkefni Alþingis og Hins íslenska bókmenntafélags.

„Listin alltaf verið mín leið til að takast á við lífið“
Listakonan Sara Oskarsson opnar vinnustofu sína fyrir almenningi næstkomandi laugardag á sama tíma og hún opnar listasýninguna GLÓÐ. Hún byrjaði að mála af alvöru fyrir tuttugu árum síðan en hefur þó verið skapandi síðan hún man fyrst eftir sér. Blaðamaður heyrði í Söru og ræddi við hana um það sem er á döfinni.

Eiríkur í óleysanlegri klemmu um það hvar hann á að kaupa eigin bók
Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur lýsti á bloggi sínu nýverið flókinni stöðu sem hann stóð frammi fyrir þegar hann vildi útvega kunningjum eintök af jólabók hans þetta árið, Frankensleiki.