Fleiri fréttir

Rannsókn á Reykjaseli væri draumur

"Allir gripir sem við tökum upp úr jörðinni á sumrin þarfnast frágangs yfir veturinn. Það verður að forverja, pakka niður, lýsa og ljósmynda. Svo þarf að skrifa og teikna. Í það fer veturinn. Hreinteikna allar teikningar, setja þær saman, skýra þær og túlka.  

Slátrun, bleikjuvinnsla og bruggun

Íbúar á Kirkjubæjarklaustri vilja halda sláturhúsi á staðnum í rekstri með einhverjum hætti, annað hvort endurbæta það hús sem fyrir er eða byggja nýtt. Þetta kom fram á borgarafundi sem sveitarstjórnin í Skaftárhreppi efndi til nýlega.

Launaskrið í raun lítið

Á sama tíma hækkaði verðlag um fjögur prósent og kaupmáttur jókst um 2,5 prósent samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands. Eins og kemur fram á heimasíðu Alþýðusambands Íslands, asi.is, gefa þessar tölur ekki rétta mynd af launaþróun.

Dómurinn fól í sér stefnubreytingu

"Jafnréttislögin hafa verið afgreidd frá Alþingi fjórum sinnum og alltaf er talað um að sömu laun eigi að fást fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf en aldrei útskýrt nánar hvernig beri að skilja það orðalag," segir Ása. Tekur hún þó fram að við síðustu afgreiðslu laganna,  

Flakkar um með vatnsliti og striga

Þorlákur "Tolli" Morthens myndlistarmaður keyrir um á fjórhjóladrifnum Dodge Durango-jeppa og finnst lítið til venjulegra framhjóladrifinna bíla koma. Hann á þó einn þannig bíl, sem hann notar til að spara Dodge-inn.

Ford Freestyle er bíll sem að mörgu leyti hefur eiginleika jepplings en er þó stærri. Bíllinn hefur mikinn staðalbúnað, svo sem spólvörn og hemlajöfnun. Miðstöðin er með loftkælingu, bílstjórasætið er rafstillt og í bílnum er hraðastillir, svo eitthvað sé nefnt.

Listahátíð helguð samtímamyndlist

Listahátíð í Reykjavík árið 2005 verður að mestu helguð samtímamyndlist og verður þungamiðja hátíðarinnar umfangsmikil sýning á verkum svissnesk-þýska listamannsins, Dieters Roth.

Esjan er góður mælikvarði

"Ég byrjaði að ganga fyrir rúmum áratug og hef verið með algjöra göngudellu æ síðan. Ég var fertug og formið var ekki upp á sitt besta. Ég hætti að reykja, byrjaði að fara í göngutúra sem urðu með tímanum lengri og lengri," segir Hjördís Harðardóttir, göngukona með meiru.

Esjan er góður mælikvarði

"Ég byrjaði að ganga fyrir rúmum áratug og hef verið með algjöra göngudellu æ síðan. Ég var fertug og formið var ekki upp á sitt besta. Ég hætti að reykja, byrjaði að fara í göngutúra sem urðu með tímanum lengri og lengri," segir Hjördís Harðardóttir, göngukona með meiru.

Saxófónskonungar með Sinfóníunni

Ókrýndir konungar saxófónsins koma fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í kvöld. Sagt hefur verið að Raschèr-kvartettinn myndi vinna gullið ef hljóðfærablástur væri ólympíugrein. Kvartettinn er þekktur fyrir einstaklega fallegan og samstilltan hljóm, tæknilega fágun og kraftmikla túlkun á nútíma- og sígildri tónlist. Hljómsveitarstjóri á tónleikunum verður Bernharður Wilkinson.

Hundar í leikskóla

Leikskólinn Voffaborg starfar í húsi gamla dýraspítalans í Víðidal. Nú þurfa hundaeigendur ekki lengur að skilja bestu vinina eftir eina heima á daginn þegar aðrir fjölskyldumeðlimir halda til vinnu.

Sjón fær verðlaun Norðurlandaráðs

Skáldið Sjón hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár fyrir bók sína Skugga-Baldur. Í dómi dómnefndar segir að Skugga-Baldur dansi á línunni milli bundins og óbundins máls. Í skáldsögunni séu íslenskar þjóðsögur, rómantísk frásagnarlist og töfrandi saga tvinnuð saman og tekist á við siðferðileg vandamál samtímans.

Skrifstofuhótel opnað á Selfossi

Fyrsta skriftstofuhótelið hér á landi verður opnað á Selfossi á morgun. Markmiðið með uppbyggingu þess er að koma til móts við þarfir íbúa svæðisins sem starfa á höfuðborgarsvæðinu en vilja vinna 2-3 daga í viku í heimabyggð.

Ferðavenjur að breytast

Forráðamenn ferðaskrifstofunnar Úrvals-Útsýnar ætla að bjóða upp á beint flug frá Akureyri til Tyrklands í ágústmánuði. Þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á slíka ferð. Uppselt er í ferðina sem verður ein af mörgum beinum flugferðum félagsins frá Akureyri í sumar.

Gaman að rölta um og skoða borgina

"Ég var algjört íþróttafrík þegar ég var yngri. Ég var í gjörsamlega öllum íþróttum; sundi, körfubolta, fótbolta, glímu og svo framvegis. Síðan fékk ég einfaldlega nóg þegar ég fór í menntaskóla og hætti í öllu saman.

Latexhanskar geta vakið ofnæmi

"Okkur hafa borist fregnir um að fólk með latexofnæmi fái viðbrögð þegar það borðar mat sem hefur verið snertur með latexhönskum," segir Jóhanna E. Torfadóttir, sérfræðingur á matvælasviði Umhverfisstofnunar. Jóhanna sat fyrir svörum á fjölmennu málþingi Náttúrulækningafélags Íslands ..

Blýmengun hættuleg börnum

"Blýmengun getur gert börn að glæpamönnum," segir í nýjum niðurstöðum vísindamanna í Bandaríkjunum. "Jafnvel lítið magn af blýi getur valdið árásargirni og hegðunarvandamálum hjá börnum."

Dansar gegnum sagnfræðina

Ingibjörg er í mastersnámi í sagnfræðinni. Vinnudagurinn er stundum langur hjá henni því eftir fyrirlestrana í Háskólanum hendist hún suður í Hafnarfjörð að kenna dans í sviðslistabraut hjá námsflokkunum.

Kenna fólki að virkja eigin hugsun

"Við viljum að fólk geti notið óformlegs listnáms og einnig opna augu þess fyrir því sem það hefur sjálft til brunns að bera," segir Þorvaldur, inntur frétta af þessari nýju starfsemi.  

Gullsmíðanámið lengist

Meðalnámstími verðandi gull- og silfursmiða í skóla eykst úr þremur önnum í fimm samkvæmt nýju drögunum. Þar kemur einkum til þörf fyrir aukið nám á sviði hönnunar og tölvutækni og einnig verða fleiri þættir starfsnámsins teknir inn í skólann. Heildarnámstíminn eykst því ekki. 

Ný pólitísk satíra

"Ég var á ríkisstjórnarfundinum 18. mars 2003 en ég man ekkert hvað gerðist,“ segir ekki-forsætisráðherrann Hjálmar Hjálmarsson sem leikur aðalhlutverkið í nýrri pólitískri satíru. Stöð 2 leit inn á æfingu í Borgarleikhúsinu í dag.

Drekkum jafnmikið gos og mjólk

Fyrir 40 árum drukku Íslendingar 15 sinnum meira af mjólk en gosdrykkjum. Nú drekka þeir jafnmikið gos og mjólk. Við borðum orðið meira af kjöti og grænmeti en minna af fiski og smjöri. 

Sendir lyfin heim

Pillurnar heim að dyrum. Það er markaðshugmynd heimsendingarapóteks sem tekur til starfa á morgun. Apótekið ætlar að bjóða öllum landsmönnum lyf á sama verði og að þau verði afhent innan sólarhrings.

Bíllinn er algjör ljúflingur

"Ég hef alltaf verið á Subaru, Hondu og Audi," segir Þóra. "Það voru trúarbrögð hjá mér að vera á Hondu þangað til ég datt niður á Audi-inn. Þetta er langskemmtilegasti bíll sem ég hef átt. Það er gott að keyra hann, hann er stöðugur, öruggur, þéttur og gefur manni trausta tilfinningu."

Ford Focus með ýmsum nýjungum

Ford Focus hefur notið mikilla vinsælda frá því hann kom fyrst á markað fyrir um sex árum. Það er ekki að ástæðulausu því hér er á ferðinni einstaklega aðgengilegur og nýtilegur bíll, ekki síst fyrir fjölskyldufólk.

Eykur verðmæti sjávarafurða

Sjöfn tók við forstjórastarfinu í maí 2002 svo það er komið vel á þriðja ár síðan. Hún situr uppi á annarri hæð í Sjávarútvegshúsinu við Skúlagötu og af skrifstofunni sér hún til skipaferða um Faxaflóann

Þægilegra að öskra Bex en Rebekka

Ég ákvað að stofna fyrirtækið Bex. ltd. Það sér um viðburði fyrir önnur fyrirtæki, ráðstefnur, sýningar, galakvöld o.s.frv. Ég er eini starfsmaðurinn og fyrsta verkefnið er eins dags ráðstefna og kynning á vörum og þjónustu fyrir óléttar konur í Hong Kong sem verður haldin 5. mars

Hnykkir hross uppi á kassa

Hvernig fer létt manneskja að því að hnykkja hross sem er margfalt sterkara en hún? Það vefst ekki fyrir dýralækninum og hnykkjaranum Susanne Brown sem stendur uppi á kassa við verkið.

Hollt að rífast við eiginmanninn

Konur, rífist sem mest við karlana ykkar. Það er bráðgott fyrir heilsuna. Rannsóknir sýna nefnilega að að þær konur sem þegja þegar karlar þeirrra rífast eru allt að fjórum sinnum líklegri til að látast úr hjartasjúkdómum en þær sem láta í sér heyra.

Þrír endar hjá Verzlingum!

Það verður seint sagt um sýninguna Welcome to the Jungle að hún sé dæmigerð eða fyrirsjáanleg og oft er dansað á línunni hvað ýmsa hluti varðar, án þess þó að farið sé yfir hana.  Eitt af því sem ekki samræmist almennum leikhúsvenjum er að á söngleiknum eru þrír endar, góður, slæmur og pólitískur endir.

Til atlögu við heimilisofbeldi

Hjálparsími Rauða krossins leggur í þessari viku sérstaka áherslu á að aðstoða þá sem búa við heimilisofbeldi. Þolendur þess eru hvattir til að hringja í 1717. </font /></b />

Grátandi börn fara hjalandi heim

Cranio, höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun, nýtur vaxandi vinsælda hér á landi, en meðferðin gagnast við öllum kvillum, hvort sem er líkamlegum eða andlegum </font /></b />

Ung börn fái ekki ávaxtasafa

Foreldrar eiga ekki að gefa ungum börnum ávaxtasafa að drekka. Næringarfræðingar í Bandaríkjunum segja sífellt fleiri vísbendingar um að ávaxtasafi eigi þátt í stórfelldum tannskemmdum og offitu meðal ungra barna.

Gangan besta heilsubótin

"Ég bjó í mörg ár í Kópavogi en gekk til Reykjavíkur í vinnu í Háaleitishverfinu og verð að segja að það er einhver sú besta heilsurækt sem ég hef stundað á ævinni," segir Unnur. Hún kveðst um svipað leyti hafa farið að stunda fjallgöngur í fyrsta skipti og nánast ekkert fundið fyrir þeim. 

Mataræði mikilvægt á meðgöngu

Rannsóknir sýna sífellt betur hve mataræði kvenna á meðgöngu skiptir gríðarlega miklu máli fyrir börnin og heilsu þeirra alla ævi.

Þungum nýburum hættara við krabba

Fólki sem er þungt við fæðingu er hættara við ákveðnum tegundum af krabbameini en þeim sem fæðast léttir. Í niðurstöðum nýrrar rannsóknar lækna í Bretlandi og Svíþjóð kemur fram að líkur á krabbameini í eitlum aukist um 17% við hverja tveggja marka þyngdaraukningu við fæðingu.

Hræðist ekki gagnrýnendur

Ekki skal vanmeta konuna er boðskapur leikverksins Mýrarljóss, sem verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Ekki skal heldur vanmeta konuna sem leikstýrir þessu verki, Eddu Heiðrúnu Backman, en hún er bjartsýn á viðtökurnar og hræðist ekki gagnrýnendur.

Kolbrún Pálína með lítinn gullmola

"Ég er enn heima og nýt þess," segir Kolbrún Pálína Helgadóttir fyrrverandi fegurðardrottning sem eignaðist soninn Sigurð Viðar þann 27. ágúst. Tímaritið <strong>Magasín</strong> fylgir <strong>DV</strong> á fimmtudögum.

Vinnan oft ágætis líkamsrækt

Aino Freyja Järvelä er önnum kafin kona með mörg járn í eldinum. Hún er sjálfstætt starfandi leikkona, dansari, leikstjóri og leiðsögumaður. Eins og þetta sé ekki nóg þá tók hún nýverið við starfi ritstjóra tímaritsins Í formi. Svo það liggur beint við að spyrja hvernig hún heldur sér í formi." Það fer eftir veðri og vindum.

Konur með fulla poka af fræjum

Í gömlum húsakynnum Rósakrossreglunnar og síðar heilunarskóla Erlu Stefánsdóttur, Lífssýnar, í Bolholti 4, hefur verið opnuð ný stöð fyrir óhefðbundnar lækningar. Húsnæðið hefur verið endurnýjað í hólf og gólf og hlotið nafnið Rósin og nú hafa þar aðstöðu sjö konur sem sérhæfa sig í ýmsum greinum óhefðbundinna lækninga.

Starfið gefandi og skemmtilegt

"Við erum með rétt tæplega 200 nemendur á sjúkraliðabraut í vetur. Þetta nám nýtur mikilla vinsælda enda afar hagnýtt og starfsmöguleikar að loknu námi eru almennt mjög góðir," segir Þorbjörg Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og kennslustjóri sjúkraliðabrautar Fjölbrautaskólans í Breiðholti. 

Námsefnið búið til jafnóðum

"Þetta nám gefur réttindi til kennslu í Waldorf-skóla eða leikskóla á Íslandi, en hingað til hefur fólk þurft að fara utan í þetta nám," segir Sigrún. "Námið er helgarnám, níu helgar á ári og tveir miðvikudagar í mánuði og mjög krefjandi vika einu sinni á sumri þar sem nemendur koma saman í skólanum í Lækjarbotnum.  

Góð afslöppun frá daglegu amstri

"Það er skemmtilegt áhugamál og góð afslöppun frá öllu stressi og daglegu amstri að fást við liti og form," segir Rúna þegar farið er að ræða um listina við hana og efnið sem hún kennir í skólanum. "

Athyglisbrestur og ofvirkni.

 Les.is nefnist ný námsþjónusta sem nýlega tók til starfa við Ármúla í Reykjavík. Les.is býður upp á almenna sálfræðiþjónustu, -ráðgjöf og meðferð. Námsþjónustan leggur megináherslu á að aðstoða þá sem glíma við sértæka námserfiðleika svo sem athyglisbrest, ofvirkni og lesblindu. 

Sjá næstu 50 fréttir