Fleiri fréttir

Svefnleysi og algjör klikkun á Íslandi

Deep Purple stígur á svið í Nýju Laugardalshöllinni 12. júlí. Þetta verður í fjórða sinn sem þessi heimsfræga enska rokkhljómsveit kemur til Íslands. Fyrst spilaði hún árið 1971 í Laugardalshöllinni og svo aftur 2004 og 2007, bæði skiptin í Höllinni. Samanlagt hefur sveitin selt um þrjátíu þúsund miða hér á landi, sem mun vera met í miðasölu hérlendis þegar um erlenda sveit er að ræða. Árið 2007 hélt Deep Purple tvenna tónleika í Höllinni og seldist upp á þá á örskömmum tíma.

Leikur ráðgjafa

Austurríski leikarinn Christoph Waltz fer með hlutverk í spennumyndinni Candy Store eftir leikstjórann Stephen Gaghan. Með önnur hlutverk fara Robert De Niro og Jason Clarke, en íslenskir áhorfendur ættu að þekkja Clarke úr kvikmyndum á borð við Lawless og Zero Dark Thirty.

Baðst af- sökunar

Beyonce er miður sín yfir því að hafa þurft að fresta tónleikum sínum í Antwerpen í byrjun vikunnar. Hún handskrifaði afsökunarbeiðni til vonsvikinna aðdáenda sinna, en hún kveðst aldrei hafa þurft að fresta tónleikum áður á ferlinum.

Allir stoltir af Angelinu Jolie

Unnusti Angelinu Jolie, leikarinn Brad Pitt, gaf í gær frá sér yfirlýsingu þess efnis að hann væri mjög stoltur af Jolie og kallaði hana mikla hetju. Jolie lét fjarlægja bæði brjóst sín í byrjun árs til að fyrirbyggja brjóstakrabbamein og mun Pitt hafa staðið eins og klettur við hlið Jolie gegnum allt ferlið. „Allt sem ég vill er að hún eigi langt líf með mér og börnunum.

Chris Rock á plötu Eminem?

Gamanleikarinn Chris Rock hefur gefið til kynna að svo gæti verið að honum bregði fyrir á nýrri stúdíóplötu Eminem, sem rapparinn er kominn vel á leið með að klára. Grínarinn birti í vikunni ljósmynd af sér og Eminem saman í hljóðveri. „Ég má ekkert segja um þetta,“ sagði hann í viðtali við Fuse. „Ég var með á plötunni hans Kanye West, kannski verð ég á Eminem-plötunni,“ bætti hann við, en Rock var í gestahlutverki í laginu Blame Game á hinni margrómuðu plötu Kanye West, My Beautiful Dark Twisted Fantasy frá 2011.

Aniston valin kynþokkafyllst

Jennifer Aniston er kynþokkafyllsta kona allra tíma, ef marka má bandaríska tímaritið Men‘s Health. Á lista tímaritsins er Aniston talin kynþokkafyllri en margar af frægustu og vinsælustu leikkonum sögunnar eins og Raquel Welch, Marilyn Monroe og Angelina Jolie. Sú síðastnefnda keppti einmitt við Aniston um ást og athygli leikarans Brads Pitt svo eftir var tekið um allan heim fyrir nokkrum árum.

Bálskotin í Eyþóri Inga

Zlata frá Úkraínu er greinilega bálskotin í Eyþóri en hún fer hjá sér þegar hún er spurð út í íslenska lagið og Eyþór Inga. Hún þekkir íslenska tónlist ágætlega eins og sjá má. Okkar maður í Malmö, Davíð Lúther Sigurðarson, ræddi við söngkonuna.

Eyþór Ingi: Ég táraðist bara

"Ég táraðist bara. Það var bara ekkert flóknara en það," svarar Eyþór Ingi sem syngur framlag Íslands í undankeppni Eurovision annað kvöld aðspurður hvort hann hafi séð stuðningsmyndbandið frá Dalvíkingum. Meðfylgjandi viðtal tók okkar maður í Malmö, Davíð Lúther Sigurðarson, við söngvarann í dag.

Líkleg skýring á hvítum lit Kópavogslækjar fundin

Samkvæmt Heilbrigðiseftirlitinu er komin fram líkleg skýring á stóra Kópavogslækjarmálinu. Lækurinn hefur verið áberandi mengaður og hvítur að lit síðan á sunnudag. Mengunin er að öllum líkindum afleiðing viðhaldsframkæmda á þaki bílageymslu í Seljahverfi.

Eyþór á leiðinni á sviðið

Eyþór Ingi stígur á svið fyrir Íslands hönd í Malmö í kvöld, en um er að ræða sérstaka dómaraútsendingu. Rennslið verður nákvæmlega eins og í undankeppninni á morgun og verður sent út beint til dómnefnda þeirra landa sem taka þátt.

Íslenskur forfallinn Eurovisionaðdáandi í Malmö

Heiður Maríudóttir blaðamaður er stödd í Malmö í Svíþjóð þar sem hún fylgist grannt með framgöngu mála eins og sést í meðfylgjandi myndskeiði sem ber yfirskriftina „Eurovision 2013 í Malmö - Dagur 9" en Heiður heldur úti þessu skemmtilega og einlæga videobloggi fyrir vini og vandamenn.

Ungfrú Bandaríkin vill giftast Harry prins

Nana Meriwerther, sem er ungfrú Bandaríkin, lét hafa eftir sér í viðtali á dögunum að hana langaði til að giftast Harry prins. "Hann er sá eini rétti fyrir mig“, segir hún við The Telegraph.

Bieber losar sig við apann

Poppprinsinn Justin Bieber lenti í vandræðum í mars þegar tollverðir í Þýskalandi stoppuðu hann og settu apann hans Mally í sóttkví.

Loksins í aðalhlutverki

Leikkonan Allison Williams er ekki aðalstjarnan í gamanþáttum Girls en hún var það svo sannarlega þegar hún mætti í galaveislu á vegum Robin Hood-stofnunarinnar í New York á dögunum.

Við erum tilbúnir í slaginn

"Við erum tilbúnir í slaginn og vel æfðir. Ætlum að gera okkar allra besta og vera landi og þjóð til sóma," sagði Pétur Örn.

Kaupir hús á milljarð

Ofurstjarnan Jennifer Lopez hefur í hyggju að fjárfesta í húsi á Long Island sem mun kosta hana tíu milljónir dollara, rúman milljarð króna.

Útilokar ekki lesbískt samband

Leikkonan Zoe Saldana hefur svo sannarlega ekkert að fela. Hún situr fyrir ber að ofan í nýjasta hefti tímaritsins Allure og talar mikið um ástina á opinskáan hátt.

Dalvíkingar senda Eyþóri kveðjur fyrir Eurovision

Aðeins er rúmur sólarhringur þangað til Eyþór Ingi Gunnlaugsson, okkar maður, stígur á svið í Malmö og flytur framlag Íslendinga til Eurovision 2013. Af því tilefni bjuggu hans nánustu vinir og ættingjar til stuðningskveðju sem þeir birtu síðan á myndskeiðavefnum YouTube.

Hætt við tökur á Algjörum Sveppa 4

"Þetta er pínu leiðinlegt. Við vitum að það eru margir krakkar að bíða eftir þessu og maður hafði heyrt út undan sér að Kvikmyndasjóður ætti að einblína svolítið á barnamyndir,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, Sveppi.

Þúsundasti viðburðurinn

Í tilefni af þúsundasta viðburði tónleika- og skemmtistaðarins Faktorý verður boðið til stórveislu hvítasunnudaginn 19. maí.

Fékk sér tattú í Malmö

Einar, einn meðlimur Eurovision hópsins, skellti sér á tattú-stofu á meðan aðrir voru í samneyti með stjörnunum og fékk sér húðflúr sem sjá má á myndunum hans Örlygs.

Brad Pitt lítur á Angelinu sem hetju

"Þetta er mikill gleðidagur fyrir fjölskylduna. Það eina sem ég vil er að hún lifi löngu og heilbrigðu lífi með mér og börnunum okkar.“

Alveg tryllt í Eurovision-tístinu

"Þetta er líka liður í því að ég fái kannski einhvern tímann að fara sem lýsandi á Eurovision. Þetta er allt saman hluti af stóra planinu."

Hverjir komast áfram í kvöld?

Fyrri undankeppnin í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fer fram í Malmö í kvöld. Aðeins tíu lög af sextán komast áfram og eftirvæntingin því mikil.

Við trúum ekki á refsingu

Leikarahjónin Will Smith og Jada Pinkett Smith vilja kenna börnum sínum Jaden, fjórtán ára, og Willow, tólf ára, muninn á réttu og röngu með því að leyfa þeim að gera sín eigin mistök.

Hvetur menn til að mæta í hlýrabol

"Fátt gleður meira en góðverk. Eitt góðverk á dag er mottóið mitt. Þess vegna mun ég halda partí næsta föstudag þegar ég held í fyrsta skipti á Íslandi Stuðlagaball og í þokkabót ætlar rithöfundur fólksins að gefa öllum gestum eintak af Heilræði Gillz. Ekki slæmt, þar sem virtir gagnrýnendur telja þetta mitt besta en um leið framsæknasta bókmenntaverk," segir Egill Einarsson þegar við spyrjum hann út í ballið sem hann heldur á Spot á föstudaginn.

Sagan á bak við pilsið hans Einars

"Ég bara nei engar töflur engin lyf þetta verður bara tekið," segir Einar Ágúst Euorvisionfari þegar hann segir frá þátttöku sinni í Eurovision árið 2000 þegar hann söng ásamt Telmu lagið "Tell me" klæddur í pils. Þá er einnig rætt við Regínu Ósk Eurovisionfara sem spáir líka í keppnina. Sjáið skemmtilegt spjall við Einar og Regínu Ósk í meðfylgjandi myndskeiði.

Stefnan tekin á Íslandsmet í tísti

Stefnan er tekin á að slá Íslandsmet í tísti á samskiptamiðlinum Twitter í vikunni. Tilefnið er Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva, en óopinmert merki Íslendinga sem vilja ræða Eurovision á Twitter er #12stig.

Piparsveinaíbúð í lagi

Hjartaknúsarinn Chris Pine hefur heillað heiminn upp úr skónum í nýjustu Star Trek-myndinni, Into Darkness. Hann fer létt með að heilla stelpurnar upp úr skónum á fallegu heimili sínu í Los Angeles.

Hvað segir (Eurovision) þjóðin?

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá hvernig framlag Íslands, Ég á Líf, sem keppir í seinni undanriðlinum sem fer fram þann 16. maí leggst í þjóðina.

Undirbýr ágústbrúðkaup

Glamúrpían Holly Madison og unnusti hennar Pasquale Rotella eru búin að ákveða brúðkaupsdaginn. Þau ætla að ganga upp að altarinu þann 14. ágúst næstkomandi.

Heldur upp á daginn með sínum nánustu

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fagnar sjötugsafmæli sínu í dag. Hann hefur setið í forsetastóli frá árinu 1996, lengst allra í sögu lýðveldisins, og hefur verið endurkjörinn fjórum sinnum.

Besti fyrrverandi í heimi

Ærslabelgurinn Charlie Sheen kom fyrrverandi eiginkonu sinni, Denise Richards, rækilega á óvart á mæðradaginn.

Óviðeigandi hamingjuóskir

Fréttamaður færði leikaranum Matthew Perry hamingjuóskir eftir að þáttaröð hans var tekin af dagskrá.

Sjá næstu 50 fréttir