Lífið

Allir stoltir af Angelinu Jolie

Brad Pitt og móðir hans, Jane Pitt, hafa bæði gefið út yfirlýsingar þess efnis að þau séu mjög stolt af Angelinu Jolie ,sem fór í brjóstnám í byrjun árs til að fyrirbyggja brjóstakrabbamein. 
Nordicphotos/getty
Brad Pitt og móðir hans, Jane Pitt, hafa bæði gefið út yfirlýsingar þess efnis að þau séu mjög stolt af Angelinu Jolie ,sem fór í brjóstnám í byrjun árs til að fyrirbyggja brjóstakrabbamein. Nordicphotos/getty

Unnusti Angelinu Jolie, leikarinn Brad Pitt, gaf í gær frá sér yfirlýsingu þess efnis að hann væri mjög stoltur af Jolie og kallaði hana mikla hetju. Jolie lét fjarlægja bæði brjóst sín í byrjun árs til að fyrirbyggja brjóstakrabbamein og mun Pitt hafa staðið eins og klettur við hlið Jolie gegnum allt ferlið. „Allt sem ég vill er að hún eigi langt líf með mér og börnunum.

Þetta er gleðidagur fyrir fjölskylduna.“ Tengdamóðir Jolie, Jane Pitt, hefur einnig gefið frá sér yfirlýsingu þar sem hún segist mjög stolt af leikkonunni. „Við erum mjög stolt af Angie, þetta skiptir okkur miklu máli og er sérstaklega mikilvægt fyrir barnabörnin okkar,“ segir í yfirlýsingunni.

Tímaritið People greinir frá því að aðgerðir Jolie hafi gert það að verkum að hún og Pitt vilji flýta brúðkaupsáformum sínum sem átti að fara fram síðsumars. Hvorugt þeirra hefur þó viljað tjá sig um þau mál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×