Hætt við tökur á Algjörum Sveppa 4 Freyr Bjarnason skrifar 15. maí 2013 07:00 Sveppi glaður í bragði á frumsýningu þriðju myndarinnar fyrir tveimur árum. Anna Svava Knútsdóttir átti að leika í nýju myndinni. fréttablaðið/valli „
Þetta er pínu leiðinlegt. Við vitum að það eru margir krakkar að bíða eftir þessu og maður hafði heyrt út undan sér að Kvikmyndasjóður ætti að einblína svolítið á barnamyndir,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, Sveppi. Hætt hefur verið við framleiðslu á kvikmyndinni Algjör Sveppi og Gói bjarga málunum vegna þess að hún fékk ekki styrk frá Kvikmyndasjóði Íslands. Ákvörðunin kom Sveppa og félögum í opna skjöldu því síðustu þrjár myndir í seríunni hafa allar fengi styrki frá sjóðnum. Þær hafa einnig notið mikilla vinsælda hjá ungu kynslóðinni og seldust um þrjátíu þúsund miðar á síðustu mynd. Fréttablaðið greindi frá því fyrir mánuði að undirbúningur fjórðu myndarinnar væri í fullum gangi, tökur ættu að hefjast í lok maí og frumsýning væri fyrirhuguð í september. Leikkonan Anna Svava Knútsdóttir hafði einnig ákveðið að leika í myndinni en núna verður ekkert af tökunum. „Maður lærir vonandi af þessu að fara ekki af stað fyrr en svarið er komið,“ segir Sveppi og á við svarið frá Kvikmyndasjóði. Skipulagning Sveppa-myndanna, í leikstjórn Braga Hinrikssonar, hefur verið í föstum skorðum undanfarin ár og þess vegna hefur stefnan verið sett á að gera aðra tilraun á næsta ári. „Við viljum taka upp í maí og júní og eiga möguleika á að frumsýna þegar skólaárið er að byrja í september. Við erum líka með suma leikara sem eru í leikhúsum og þess vegna hefur verið ágætt að gera þetta þegar þau eru að klárast.“ Aðspurður segist Sveppi ekki vita nákvæmlega hvað sótt var um mikinn styrk. „Við höfum alltaf fengið eitthvað smá, alla vega nóg til þess að fara af stað. Þetta er alltaf svolítið dýrt og við viljum vera með fleiri tæknibrellur en í myndinni á undan.“
Mest lesið „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Patrick Muldoon er látinn Bíó og sjónvarp Ari Edwald selur í Garðabænum Lífið Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Lífið „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Lífið Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Lífið Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Lífið samstarf Fleiri fréttir „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Sjá meira