Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eiga von á fyrsta barni Leikaraparið Evan Rachel Wood og Jamie Bell giftu sig í laumi á síðasta ári og ætla enn og aftur að koma á óvart á því nýja. Þau eiga nefnilega von á sínu fyrsta barni. 12.1.2013 09:00
Ostwald Helgason þótti best Tískuljósmyndarinn Tommy Ton fór yfir tískuárið 2012 á vefsíðunni Style.com. Honum þótti ýmislegt bera af á árinu og nefndi meðal annars hálfíslenska tískumerkið Ostwald Helgason til nýliða ársins. 12.1.2013 09:00
Þakklát fyrir að vera leikkona Tökur eru nýhafnar á nýrri þáttaröð sem nefnist Ástríður. Það er sería númer tvö með því nafni. Ilmur Kristjánsdóttir leikur titilhlutverkið eins og í fyrri seríunni. Hún var tilnefnd til Edduverðlauna 2010 sem leikkona ársins í aðalhlutverki fyrir frammistöðu sína þá. Því er fyrsta spurning sem leikkonan fær þessi: 12.1.2013 06:00
Árni tilnefndur til Brit Árni Hjörvar Árnason og félagar tilnefndir sem besta breska tónleikasveitin ásamt The Rolling Stones, Coldplay, Muse og Mumford and Sons. Brit-verðlaunin verða afhent í London 20. febrúar. 12.1.2013 06:00
Hættu að finna upp nýjar afsakanir Ekki reyna að finna endalaust upp nýjar afsakanir fyrir því að komast ekki í ræktina. Ég hef heyrt þær allar og þær virka bara ekki, segir Guðmundur Hafþórsson íþróttafræðingur... 11.1.2013 16:30
Heitustu afarnir á Íslandi "Við getum verið sammála um að hæfileikar eru kynþokkafullir burtséð frá aldri," segir í tímaritinu Vikan sem velur heitustu afana á Íslandi. Þeir sem eru á listanum góða yfir heitustu afana eru tónlistarmaðurinn Daníel Ágúst Haraldsson, leikarinn Pálmi Gestsson, söngvarinn Bergþór Pálsson, fjömiðlamaðurinn Þórhallur Gunnarsson, söngvarinn Egill Ólafsson, söngvarinn Björgvin Halldórsson, söngvarinn Garðar Cortes, stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon, leikarinn Arnar Jónsson, umboðsmaður Arnór Guðjóhnsen, söngvarinn Bjartmar Gunnlaugsson, athafnamaðurinn Magnús Scheving, leikarinn Þórhallur Sigurðsson (Laddi) og Guðmundur Týr Þórarinsson (Mummi) í Götusmiðjunni. 11.1.2013 16:00
Íslenskur íþróttafræðingur meikar það í Dubai "Helga Marín hefur verið áberandi i Austurlöndum síðastliðið ár og hefur heldur betur haslað sér völl í Dubai sem heilsu og íþróttafræðingur," segir á vefnum Tíska.is sem Helga leyfði að fylgjast með sér í einn dag. Helga hefur komið víða fram í fjölmiðlum í Austurlöndum auk þess hefur hún verið með námskeið fyrir stór fyrirtæki og þekkta einstaklinga í Dubai. 11.1.2013 15:30
Skosk hátíð á Kexinu Burns-nótt er haldin ár hvert á afmælisdegi þjóðskáldsins Robert Burns og er fagnað með skoskum mat, drykk, tónlist og að sjálfsögðu ljóðlist Roberts Burns. 11.1.2013 14:30
Þeim leiddist ekki að vera boðið í börger Meðfylgjandi myndir voru teknar á Lebowski bar í gærkvöldi þar sem gestum var boðið upp á börger og bjór á frumsýningu á fyrsta þætti HA? í nýrri þáttaröð á Skjá einum sem sýndur er á föstudagskvöldum. Eins og sjá má lá vel á þáttastjórnendunum Jóa, Sóla, Gunna og Stefáni og gestunum. 11.1.2013 14:15
Ómáluð og óþekkjanleg Kántrísöngkonan LeAnn Rimes skottaðist um Los Angeles í vikunni í íþróttafötum og algjörlega ómáluð. Er það skemmtileg tilbreyting því almenningur er vanur því að sjá stjörnurnar uppstrílaðar daginn út og daginn inn. 11.1.2013 14:00
Tom Cruise neitaði að dansa Gangnam Style Suður-Kóreubúar bjuggust margir við því að hann myndi dansa dansinn en þeir urðu fyrir vonbrigðum. 11.1.2013 14:00
Dóttir Magnúsar Scheving keppir við lærimeistarann Dóttir Magnúsar Scheving flytur lag í Söngvakeppninni í ár. Hún tók sín fyrstu skref í söngnámi hjá Birgittu Haukdal og keppir nú á sama sviði. 11.1.2013 13:30
Á nærbuxunum – aftur Fótboltastjarnan David Beckham er greinilega orðinn heitasta undirfatafyrirsætan í bransanum – þó knattspyrnukappi sé. Myndir náðust af folanum taka upp nýja auglýsingu fyrir undirföt H&M á götum Beverly Hills. 11.1.2013 13:00
Sleppir áfengi og umgengst jákvætt fólk Ása Ottesen eigandi Lakkalakk.is hefur í nægu að snúast. Lífið heyrði stuttlega í Ásu og spurði hana hvernig hún heldur sér í líkamlegu og andlegu formi. Ég er nú ekki mikil heilsufrík en það sem ég geri er: 1. Sund og gufa. 2. Engifer skot og safara á Lifandi markaði. 3. Drekk ekki áfengi. 4. Tabata og spinning í World Class. 5. Umkringja mig jákvæðu fólki sem fær mig til þess að hlæja. 11.1.2013 12:00
Hin fullkomna eggjakaka Fjórði þáttur af MasterChef Ísland fer í loftið í kvöld á Stöð 2. Sjö keppendur standa nú eftir og eiga möguleika á því að næla sér í nafnbótina Meistarakokkur Íslands. 11.1.2013 11:30
Þetta kallar maður kjól! Ofurfyrirsætan Miranda Kerr stal aldeilis senunni í kokteilpartíi á vegum flugfélagsins Qantas í Beverly Hills í vikunni. 11.1.2013 11:00
Bieber riðar til falls Ungstirnið Justin Bieber er duglegt við að koma sér í vandræði þessa dagana. Moshe Benabou, fyrrverandi lífvörður Bieber er búinn að kæra söngvarann fyrir líkamsárás. 11.1.2013 10:00
Sýnir bossann á Twitter Suður-afríska fyrirsætan Candice Swanepoel er í fríi í Brasilíu sem stendur en hún keypti sér hús þar fyrir stuttu. Þessi Victoria's Secret-engill skellti sér í bikiní í fríinu og stóðst ekki mátið að deila mynd af sér í því á Twitter. 11.1.2013 09:00
Heldur áfram í Borgias Björn Hlynur Haraldsson er nýkominn til landsins eftir fimm mánaða dvöl erlendis. Þar lék hann í sjónvarpsþáttunum Borgias og mexíkóskri bíómynd. 11.1.2013 13:00
Bloggar um 52 bækur á einu ári Kennarinn Trausti Þorgeirsson setti sér óvenjulegt áramótaheit fyrir árið 2013. 11.1.2013 10:00
Anita skemmti sér á Íslandi um jólin Leikkonan Anita Briem var stödd hér á landi um jólin til að heimsækja vini og vandamenn. Hún nýtti tækifærið og brá sér út á lífið og sást um síðustu helgi í hópi vinkvenna sinna á skemmtistaðnum B5 við Bankastræti. 10.1.2013 18:30
Vill ekki vera með sér yngri manni Fyrirsætan Heidi Klum segist ekki geta hugsað sér að eiga í ástarsambandi við yngri mann. Klum skildi við eiginmann sinn, tónlistarmanninn Seal, í janúar á síðasta ári. 10.1.2013 18:00
Best klædda bisnessfólkið Framkvæmdastjórinn Arnar Gauti Sverrisson valdi best klædda bisnessfólkið á Íslandi fyrir Viðskiptablaðið á dögunum. Listinn hefur að skipa fimm einstaklinga sem eru best klæddir í viðskiptalífinu á Íslandi að mati Arnars. Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka trónir á toppnum, þá landaði Skúli Mogensen forstjóri Wow air öðru sætinu. Í þriðja sæti er eina konan á listanum, Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova. Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins er í fjórða sæti og í fimmta sæti er Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone. 10.1.2013 16:15
Þetta borðar ofurkroppurinn Margrét Gnarr "Ég borða þessa próteinpönnslu aðallega af því mér finnst hún svo ótrúlega góð og hún er mjög holl," segir Margrét Edda Gnarr fitnessdrottning með meiru spurð... 10.1.2013 15:45
Gordon-Levitt bætist við leikarahópinn Joseph Gordon-Levitt leikur í framhaldi Sin City. 10.1.2013 15:00
Þung lóð virka vel Fyrir tveimur árum var ég komin með nóg af þessu dúlleríi, ég var í engu formi þrátt fyrir að fara í ræktina á hverjum degi. Hljómar mótsagnakennt en ég er fullviss um að mörg ykkar hafa upplifað þetta. 10.1.2013 14:30
Eignaðist aðra stúlku Breska söngkonan Lily Allen, 27 ára, og eiginmaður hennar Sam Cooper eignuðust stúlku sem hefur verið nefnd Marni Rose Cooper. Þau áttu eina stúlku, Ethel, fyrir en hún fæddist í nóvember árið 2011. Meðfylgjandi myndir voru teknar af Lily þegar hún gekk að eiga Sam. 10.1.2013 14:00
Lesbíur eignast dóttur Grínistinn Rosie O'Donnell ættleiddi stúlkubarn með eiginkonu sinni Michelle Rounds. Litla hnátan fæddist á laugardaginn var og mæðrum og barni heilsast vel. 10.1.2013 13:00
Kynlíf er einstök reynsla Liam Neeson kveðst ekki mundu vilja vera unglingur í dag. Hann telur að samfélagið sé gegnsýrt af klámi og kynlífi og að það hljóti að vera erfitt fyrir unglinga að takast á við þetta áreiti. 10.1.2013 11:30
Barnið fer ekki í sjónvarpið Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian og kærasti hennar Kanye West ætla ekki að leyfa myndavélum að fylgjast með fyrstu mánuðum í lífi ófædds barns þeirra. Þau ætla ekki heldur að selja myndir af því. 10.1.2013 11:00
Borðaði bara brauð með osti í öll mál Hildur Halldórsdóttir opnaði síðuna Heilsudrykkir Hildar á Facebook fyrir tæpu ári. Hún gefur okkur einfalda uppskrift af heilsusafa sem er kjörinn í byrjun dags. "Ég var heima í fæðingarorlofi og var komin með leið á mjög svo tilbreytingarlausu og einhæfu fæði. Borðaði bara að mestu brauð með osti í öll mál," svarar Hildur spurð af hverju hún byrjaði með heilsudrykkjasíðuna sem er vinsæl á Facebook. "Ég fór svo að leita að upplýsingum um holla og góða smoothie á íslensku en fann lítið af uppskriftum og líka fannst vanta næringarinnihald í þær sem ég fann en einn smoothie getur verið mjög hitaeiningaríkur. Upphaflega setti ég því síðuna upp fyrir mig til þess að halda utan um uppskriftirnar mínar. Mig óraði aldrei fyrir því að þetta yrði svona vinsæl síða," segir Hildur. Grænn og vænn (304 Kcal) 11,88 gr prótein, 5,8 gr kolvetni, 4,9 gr fita Mjög bragðgóður og mjög grænn drykkur sem hentar vel sem fyrsti drykkur dagsins, um að gera að setja sem mest af spínati, það breytir hitaeiningafjöldanum lítið þar sem að spínat er svo hitaeiningasnautt. 1 frosinn, þroskaður banani 2 dl (40 gr) frosinn ananas 2 dl (40 gr) frosinn mangó 1/2 pakki af Frutein próteini, Revitalizing Green Foods Fullt af spínati, 2-3 góðar lúkur, má vera minna má vera meira. 1 msk (10 gr) hörfræ Smá ferskt, rifið engifer. Vatn eftir þörfum, ca. 3-4 dl. Allt sett í blandarann og blandað þar til silkimjúkt og fallegt. Sjá síðuna hennar Hildar hér. 10.1.2013 10:30
Vinkonur með nákvæmlega eins tattú Það vakti athygli okkar á Lífinu að vinkonurnar Kolbrún Gígja og Bryndís Jóhannesdóttir eru með nákvæmlega eins húðflúr á líkamanum skrifað á vinstri öxlina með tengiskrift: "You'll never walk alone" . Við höfðum samband við vinkonurnar og spurðum út í gjörninginn. 10.1.2013 08:35
Haim líkleg til að slá í gegn 2013 Systratríóið frá Kaliforníu efst í vali BBC. Hefur verið líkt við Fleetwood Mac. 10.1.2013 15:00
Einhleyp á ný? Kántrísöngkonan Taylor Swift og söngvarinn Harry Styles úr strákabandinu One Direction virðast vera hætt saman ef marka má nýjustu fregnir slúðurmiðla. Parið hefur ekki farið leynt með ást sína síðan þau byrjuðu að slá sér upp fyrir tveimur mánuðum. Meðal annars fögnuðu þau nýju ári saman á Times Square í New York og kysstust fyrir framan myndavélarnar. 10.1.2013 11:00
Dreymir um Óskarinn Söngkonan Katy Perry gæti unnið til Óskarsverðlaunanna í ár. Lag hennar, Wide Awake, sem hún samdi fyrir tónleikamyndina Katy Perry: Part of Me gæti keppt til verðlaunanna í flokknum besta kvikmyndatónlistin. Alls eru sjötíu og fimm lög sem koma til greina. Þeim verður síðar fækkað niður í fimm. 10.1.2013 09:00
Er andlitið eitthvað öðruvísi en vanalega? Nú eru getgátur um að Jennifer Aniston sé pottþétt ólétt því hún á að vera með meiri fyllingu í andlitinu en vanalega. Lífið á erfitt með að sjá að Jennifer sé eitthvað öðruvísi en vanalega í andliti - nema hvað að hún er glöð og greinilega í dúndur formi. Myndir af henni sem teknar voru í desember og í gær má skoða í myndaalbúminu hér að ofan. Sérð þú mun? Skoðaðu myndasafnið og sjáðu hvort eitthvað sé að marka þessa pælingu. 9.1.2013 21:45
Tilvonandi foreldrar kaupa milljarðahús Kærustuparið Kim Kardashian og Kanye West eru búin að festa kaup á glæsihýsi í Bel Air í Kaliforníu. Húsið kostaði þau ellefu milljónir dollara, tæpan einn og hálfan milljarð króna. 9.1.2013 18:00
Á að losna við aukakílóin eftir allar jólakræsingarnar? "Jákvætt viðhorf á okkur sjálf og raunhæf markmið er allt sem þarf," er það fyrsta sem Freyja Sigurðardóttir þriggja barna móðir og fitnessdrottning með meiru þegar við spyrjum um markmið og ráð hennar til þeirra sem vilja huga vel að líkama og sál en hún starfar sem einkaþjálfari hjá Hreyfingu og Sporthúsinu í Reykjanesbæ. "Æfingastöðvarnar eru að fyllast og flest allir eru með sömu markmið sem eru að losna við "aukakílóin" eftir allar jólakræsingarnar. Þú ætlar að taka laugardaginn og sunnudaginn alveg í átveislu því þú ætlar svoleiðis að byrja í "átaki" á mánudaginn. Kannastu við þetta?" spyr Freyja jafnframt áður en hún þylur upp eftirfarandi ráð: 1. Morgunmatur Það er algjört lykilatriði að byrja daginn á hollum og næringarríkum mat ef þú vilt ná tökum á líkamsþyngdinni og borða svo litlar máltíðir allan daginn á 2-3 tíma fresti til að viðahalda "brennslunni" í líkamanum og að blóðsykurinn haldist í jafnvægi. 2. Raunhæf markmið Ég ætla að vera búin að missa 5-7 kg.og 7% í fitu á einum mánuði. Þetta fæ ég að heyra alltof oft. Fitan rennur ekki af þér frá fyrsta degi á nýju æfingaplani og breyttu mataræði. Það getur tekið líkamann nokkra daga jafnvel vikur að komast í jafnvægi til að brenna fitu. Líkaminn streitist á móti og reynir að halda í allt sem hann getur, og því minna sem þú borðar því þrjóskari verður hann. Raunhæft markmið er allt sem þarf og við þurfum að hætta öllum skyndikúrum og skyndi hitt og þetta. Allt tekur sinn tíma og maður uppsker eins og maður sáir.. Að breyta lífsstíl sínum og skrokk tekur tíma og mörg lítil skref verða að einu stóru skrefi sem verður hið raunverulega markmið. Breytingar eru að eiga sér stað í líkamanum þó við sjáum þær ekki frá degi til dags. 3. Jákæðni Gerðu lífsstílsbreytingu á jákvæðan hátt. Þú einn getur tekið ákvörðun um hvað þú vilt gera og hvernig þú vilt taka þig á. Enginn getur gert þetta fyrir þig þannig að ef ákvörðunin er að breyta lífsstílnum og koma sér í betra líkamlegt og andlegt form þarftu að hefja "átakið" á jákvæðni og þolinmæði. Einfalda leiðin er EKKI að sleppa hinu og þessu heldur að gæta hófs. Borðaðu einn ávöxt og grænmeti sem millimál og vatnsglas er góður ávani. 4. Gættu hófs Þú byrjar af krafti í ræktinni og tekur hrikalega vel á því, svitinn lekur af þér og þú ert afskaplega ánægður með þig. Eftir æfinguna finnst þér þú heldur betur hafa unnið fyrir því að fá þér væna próteinstöng eða álíka hressingu. En ef slík "verðlaun" koma sem viðbót við aðra fæðu sem þú neytir að jafnaði, eru litlar líkur á minnkandi ummáli. Árangursríkasta leiðin til að leggja af er að að auka hreyfinguna jafnhliða því að fækka hitaeiningum að einhverju leyti. 5-6 litlar máltíðir á dag í réttum hlutföllum í öllum fæðutegundum ásamt hreyfingu er lykillinn að bættri heilsu og minni ummáli. 5. Þú ert að gera þetta fyrir þig Til að ná varanlegum árangri í líkamsrækt þarf þú að taka ábyrgð á sjálfum þér. Ef þú ætlar að treysta á vin eða vinkonu til að draga þig alltaf með sér á æfingu og þú situr heima ef hann/hún mætir ekki til að sækja þig, þá er hætt við því að málið falli fljótt um sjálft sig. Það er vissulega besta mál að hafa æfingafélaga. En ekki treysta á að hann í blindni, og ekki ætlast til að maki þinn eða aðrir í kringum þig stoppi þig af ef þú ert að "svindla" í mataræðinu eða líkamsrækt þinni. Þú ert þinn eigin gæfu smiður. Treystu á sjálfan þig. 6. Hófsemi Það er mun auðveldra að komast í kjörþyngd með því að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl smám saman í stað þess að rjúka af stað með reglulegu millibili í strangan megrunarkúr. Ef þú heldur þig við hollt fæði flesta daga er í fínu lagi að láta eftir sér að smakka á uppáhalds óhollustunni öðru hvoru. Það er nauðsynlegt að njóta þess að borða það sem þig langar í en kunna að gæta hófs. Það gefast allir upp ef þeir neita sér um allt sem þá langar í. Besta lausnin er að finna skemmtilega tegund þjálfunar sem kemur þér í gott form og borða holla og fjölbreytta fæðu sem þú nýtur þess að borða, í hóflegu magni. 7. Geðheilsan Líkamsrækt minnkar streitu og kvíða og getur haft fyrirbyggjandi áhrif á þunglyndi. 8. Hreinsaðu til í mataræðinu Hreinsaðu burt allt konfekt, snakk og allt sem ögrar þér í mataræðinu. Það er ósköp einfalt, ef freistingarnar eru til staðar er mjög líklegt að þær muni tefja fyrir því að þú náir settu markmiði. Hugsaðu sem svo; ruslfæði og sætindi henta ekki lengur markmiðum mínum, svo út með þau! Fylltu svo skápana og ísskápinn af fjölbreyttri hollustu. 9. Þú stjórnar ferðinni Þú átt aðeins þennan eina líkama og heilsa þín er dýrmæt. Ekki vanmeta mikilvægi þess að rækta líkamann, hreyfa hann reglulega og velja vandlega næringuna þína. Mundu að þitt er valið, það er ljóst að enginn annar en þú sjálf/ur velur hvað þú borðar og hvort og hve oft þú hreyfir þig. Þitt val, þínar ákvarðanir, þinn árangur! 9.1.2013 15:30
Í náttslopp á rauða dreglinum Stórleikarinn Nick Nolte er eilífðartöffari. Það sást best þegar nýjasta mynd hans Gangster Squad var frumsýnd í Hollywood á mánudagskvöldið. 9.1.2013 14:00
Selur nærfötin á eBay Khloe Kardashian stofnaði verslun á eBay með eiginmanni sínum Lamar Odom síðasta sumar. Khloe er greinilega orðin söluóð og er meira að segja farin að selja nærfötin sín og sexí undirfatnað. 9.1.2013 13:15
Með hríðar í 27 tíma Skrautlega raunveruleikastjarnan Snooki eignaðist soninn Lorenzo í ágúst á síðasta ári og er afar stolt móðir. Fæðingin gekk vel fyrir sig þó aðdragandinn væri langur. 9.1.2013 12:15
Stokkbólginn ritstjóri Björk Eiðsdóttir ritstjóri Séð og heyrt fékk aldeilis að finna fyrir því á síðasta ári. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd bólgnuðu varir ritstjórans á örfáum sekúndum en ástæðan var heiftarlegt birkiofnæmi. Atvikið átti sér stað í fyrra sumar en þá er birkifrjóin mjög virk í loftinu hér á landi. Þá verður krossverkun sem leiðir til þess að eplið sem Björk borðaði aðeins nokkrum sekúndum áður en varir hennar bólgnuðu svona mikið framkölluðu þessi viðbrögð sem sjá má á myndinni. Það gengur mikið á hjá Björk þessa dagana. Hún og dóttir hennar Blær berjast eins og hetjur fyrir nafni stúlkunnar. Málið hefur vakið athygli út um allan heim og fjölmiðlar sýnt því gríðarlega mikla athygli. 9.1.2013 10:30
Forsetinn með afabarnið í Zöru Viðskiptavinum í versluninni Zöru fannst eflaust vinalegt að standa við hliðina á forseta Íslands við afgreiðslukassann í gær. Þar var Ólafur Ragnar Grímsson með einu af barnabarni sínu í verslunarleiðangri. 9.1.2013 10:00
Hún er sextug! Trúiði því? Leikkonan Jane Seymour var stórglæsileg á rauða dreglinum þegar nýjasta mynd hennar Freeloaders var frumsýnd í Los Angeles á mánudagskvöldið. 9.1.2013 09:45
Barnalukka hjá Hrafni Gunnlaugssyni Kvikmyndagerðamaðurinn þekkti Hrafn Gunnlaugsson á von á barni með vorinu. Barnsmóðir Hrafns ku vera af erlendu bergi brotin. 9.1.2013 14:00