Lífið

Borðaði bara brauð með osti í öll mál

Hildur ásamt dætrum sínum.
Hildur ásamt dætrum sínum.
Hildur Halldórsdóttir opnaði síðuna Heilsudrykkir Hildar á Facebook fyrir tæpu ári. Hún gefur okkur einfalda uppskrift af heilsusafa sem er kjörinn í byrjun dags.

"Ég var heima í fæðingarorlofi og var komin með leið á mjög svo tilbreytingarlausu og einhæfu fæði. Borðaði bara að mestu brauð með osti í öll mál," svarar Hildur spurð af hverju hún byrjaði með heilsudrykkjasíðuna sem er vinsæl á Facebook.

"Ég fór svo að leita að upplýsingum um holla og góða smoothie á íslensku en fann lítið af uppskriftum og líka fannst vanta næringarinnihald í þær sem ég fann en einn smoothie getur verið mjög hitaeiningaríkur. Upphaflega setti ég því síðuna upp fyrir mig til þess að halda utan um uppskriftirnar mínar. Mig óraði aldrei fyrir því að þetta yrði svona vinsæl síða," segir Hildur.



Grænn og vænn (304 Kcal)

11,88 gr prótein,

5,8 gr kolvetni,

4,9 gr fita

Mjög bragðgóður og mjög grænn drykkur sem hentar vel sem fyrsti drykkur dagsins, um að gera að setja sem mest af spínati, það breytir hitaeiningafjöldanum lítið þar sem að spínat er svo hitaeiningasnautt.

1 frosinn, þroskaður banani

2 dl (40 gr) frosinn ananas

2 dl (40 gr) frosinn mangó

1/2 pakki af Frutein próteini, Revitalizing Green Foods

Fullt af spínati, 2-3 góðar lúkur, má vera minna má vera meira.

1 msk (10 gr) hörfræ

Smá ferskt, rifið engifer.

Vatn eftir þörfum, ca. 3-4 dl.

Allt sett í blandarann og blandað þar til silkimjúkt og fallegt.

Sjá síðuna hennar Hildar hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×