Fleiri fréttir

Átakið Á allra vörum formlega hafið

Meðfylgjandi myndir voru teknar á hótel Marina við Mýrargötu í dag í tilefni af því að söfnunarátakið Á allra vörum leggur nú af stað í sína fimmtu landssöfnun...

Inga komin á Íslenska barinn

Inga á Nasa eins og við þekkjum hana er hvergi nær hætt í bransanum þrátt fyrir að hafa kvatt Nasa fyrir stuttu.

Koss sem rokkar

Leikkonan Kate Hudson og rokkarinn Matt Bellamy kysstust remingskossi á rauða dreglinum á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum á Ítalíu í gær. Eins og sjá má er parið ástfangið og rokkarinn má eiga það að hann heldur Kate við efnið með svona líka góðum rembingskossi fyrir framan her af ljósmyndurum sem smelltu af. Meðfylgjandi má skoða kossinn betur og að ekki sé minnst á Atelier Versace kjólinn sem Kate klæddist umrætt kvöld.

Linda P einlæg í forsíðuviðtali Lífsins

Linda Pétursdóttir framkvæmdastjóri hefur í nægu að snúast þegar kemur að rekstri Baðhússins samhliða því að hugsa um Ísabellu dóttur sína. Linda rifjar upp hættulega páskaferð þeirra mæðgna ásamt gjör­breyttum lífsstíl.

Ben Stiller og frægir á djamminu

Það vantaði ekki þekktu andlitin þegar litið var inn á Hótel Marina síðastliðna helgi. Má þar fyrst nefna Hollywood-stjörnuna Ben Stiller sem var umvafinn íslenskum félögum...

Hvetjandi foreldrar

Eva Longoria úr sjónvarpsþáttunum Desperate Housewives segist ávallt hafa haft mikla trú á sjálfri sér og trúað því að hún gæti gert hvað sem er. Hún þakkar foreldrum sínum fyrir að hafa hvatt sig áfram frá unga aldri.

Britney brosandi í bikiní

"Skemmti mér í sólinni… vil ekki að sumarið endi," skrifaði Britney Spears söngkona og X-Factor dómari á Twitter síðuna sína í gær ásamt því að pósta meðfylgjandi mynd af sér þar sem hún stendur skælbrosandi klædd í bikiní með gleraugu á nefinu...

Stuð á Skuggabar

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Skuggabarnum síðustu helgi þar sem fögur fljóð kvöddu sumarið með bros á vör....

Dad Rocks! á tónleikaferð

Dad Rocks! er á leiðinni í tónleikaferð um England og Skotland í október. Þar mun hann hita upp fyrir hina tilraunakenndu ensku hljómsveit Tall Ships.

Leikur repúblikana

Óskarsverðlaunaleikarinn Michael Douglas er í samningaviðræðum um að leika Ronald Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseta, í væntanlegri mynd um leiðtogafundinn í Höfða. Þessar viðræður hafa komið sumum á óvart því sjálfur er Douglas harður stuðningsmaður Demókrataflokksins í Bandaríkjunum en Reagan var repúblikani.

Rúnar snýr aftur

Það gleður landann eflaust að heyra að hinn vinsæli þáttur Loga Bergmanns Eiðssonar, Spurningabomban, er væntanlegur aftur á Stöð 2 í vetur. Ekki nóg með að þátturinn vinsæli snúi aftur heldur hefur endurkoma leikarans Rúnars Freys Gíslasonar í þættina verið staðfest. Rúnar Freyr annaðist liðinn Dansleikurinn í þáttunum síðasta vetur þar sem hann túlkaði lagatexta með frábærum tilþrifum og þurftu þátttakendur að giska á um hvaða lag væri að ræða. Rúnar hvarf þó úr þáttunum undir lokin og tók ekki þátt í þáttaröðinni sem hófst síðasta vor og stóð yfir fram á sumar.

Ótrúlega góðhjörtuð sál

„Humar kom inn í líf okkar fyrir þremur árum og á einmitt afmæli á morgun. Við fundum hann inni í skáp en þangað hafði hann flækst í flutningum og mátti dúsa þar einn og yfirgefinn í nokkurn tíma. Þegar við svo fundum hann var það ást við fyrstu sýn og hann hefur búið hjá okkur síðan þá og er mikill gleðigjafi,“ segja Linda Guðrún Karlsdóttir og Ari Eldjárn um Humar Linduson Eldjárn, sem varð landsþekktur á skömmum tíma fyrir skemmtilegar færslur á Facebook.

Frægir fundu skjálftann

Það er ljóst að íslenskar stjörnur hafa báða fætur á jörðunni því svo virðist sem flestar þeirra hafi fundið jarðskjálftann sem reið yfir suðvesturhornið í hádeginu í gær.

Rúnar snýr aftur

Rúnar snýr aftur Það gleður landann eflaust að heyra að hinn vinsæli þáttur Loga Bergmanns Eiðssonar, Spurningabomban, er væntanlegur aftur á Stöð 2 í vetur.

Snýr aftur í sjónvarpið

Michael J. Fox ætlar að snúa aftur í sjónvarpið í nýjum sjónvarpsþáttum sem verða lauslega byggðir á ævi hans. 22 þættir verða framleiddir fyrir sjónvarpsstöðina NBC.

Fjölmenni á Ávaxtakörfunni

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem teknar voru í Smárabíó í kvöld var fjölmenni á forsýningu kvikmyndarinnar Ávaxtakarfan eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur...

Ófeimin við að sýna íturvaxin líkama sinn

Leikkonan, Kelly Brook vakti mikla athygli þegar hún mætti með unnusta sínum, Thom Evans í partý í gær íklædd nýþröngum bleikum kjól sem sýndi vægast sagt línurnar.

Lögð inn vegna streitu

Söngkonan LeAnn Rimes hélt upp á 30 ára afmælið sitt með vinum og fjölskyldu og allt virtist vera í góðu lagi en viti menn í sömu viku var hún lögð inn á sjúkrahús því kvíði og áhyggjur heltóku huga hennar. "Þetta er tími fyrir mig að hlúa að andlegu hliðinni og hugsa vel um sjálfa mig. Ég kem aftur eftir 30 daga sem besta útgáfan af 30 ára konu sem ég get mögulega verið," skrifaði hún á Twitter síðuna sína.

Grínistinn heimsótti Kryddpíuna

Spennan magnast í slúðurheiminum því grínistinn Russell Brand og Kryddpían Geri Halliwell hittast á hverjum degi. Sagan segir að ástin hafi kviknað á lokakvöldi Ólympíuleikanna í London á dögunum. Ljósmyndarar sitja nú um heimili söngkonunnar og viti menn - Russell birtist í gær með fullan poka af pókum. Dyravörður hleypti Russell inn í húsið og hleypti honum nokkrum klukkustundum síðar út.

Bauðst starf eftir danskeppni

Linda Ósk Valdimarsdóttir dansari kom fram í hæfileikakeppninni Rampljuset sem sýnd var í sænska ríkissjónvarpinu í maí. Þættirnir njóta mikilla vinsælda og í kjölfar þeirra var Lindu Ósk boðið starf yfirkennara hjá Dansakademíunni í Malmö.

Gordjöss Zumba hátíð

„Við eigum von á mörg hundruð manns í þetta partý en við erum með það mikla aðsókn á námskeiðin okkar að slíkar væntingar eru vel raunhæfar,“ segir Jóhann Örn Ólafsson Zumba kennari hjá Dans og Jóga.

Mömmumatur, sultur og sparnaðarráð

Eygló Guðjónsdóttir á svo sannarlega ráð undir rifi hverju en hún er forstöðumaður Leiðbeiningastöðvar heimilanna og aðstoðar fólk með ýmis vandamál í gegnum síma eða Internetið.

Börnin í teiknimynd

Teiknimyndirnar, sem hafa notið mikilla vinsælda í asísku sjónvarpi, verða sýndar í Bandaríkjunum í framhaldinu.

Prinsalæti

Hann Harry Bretaprins kann svo sannarlega að valda usla. Ekki nóg með að nektarmyndir af honum hafi lekið í fjölmiðla og eru nú helsta áhugamál netverja um heim allan, heldur gerðist ýmislegt fleira á hótelherberginu í Las Vegas þar sem hann var í fríi.

Rosalega sátt með formið mitt í dag

"Þetta var alveg svakalega upplifun. Og að keppa í annað sinn á svona stóru og sterku móti er alveg risastórt skref fyrir mig og ekkert smá mikill heiður...

Áheyrnarprufur í Hörpu

Áheyrnarprufur í Hörpu Dansæðið grípur þjóðina á ný í vetur er Dans Dans Dans fer aftur á dagskrá Ríkissjónvarpsins. Áheyrnarprufurnar fara fram dagana 28.-30.

Stranglega bannað að tjá sig um tökur

Þagmælska er lykilatriði ef fólk ætlar að starfa við erlendar stórmyndir hér á landi. Skrifa þarf undir samning þess efnis og ströng viðurlög eru við brotum á honum.

Vel heppnaður hjónaskilnaður

Sambönd Rosalind Sedacca, höfundur bókarinnar How Do I Tell the Kids About the Divorce?, segir mikilvægt að hafa fimm atriði í huga þegar hjón með börn skilja.

Yfir sig ástfangin

Leikkonan farsæla Anne Hathaway eyddi langþráðum frídegi með unnusta sínum, Adam Shulman í Hollywood í gær.

Steindi gefur nýja lagið á netinu

Fyrsta lagið úr Steindanum okkar 3 á Stöð 2, Dansa það af mér, hefur slegið rækilega í gegn. Steindi samdi það með upptökuhópnum StopWaitGo og hafa þeir félagar nú ákveðið að gefa lagið hér á slóðinni StopWaitgo.is/steindi.

Allt lítur vel út með barnið

Leikkonan Reese Witherspoon, 36 ára, var geislandi þegar hún rölti um götur Kaliforníu í gær klædd í fallega mussu og gallabuxur. Hún var brosandi og létt á fæti þrátt fyrir að hafa verið rúmlögð samkvæmt læknisráði í síðustu viku en allt leit út fyrir að barnið myndi fæðast fyrir tímann. Reese á von á barninu, sem verður hennar þriðja, í næsta mánuði með eiginmanni sínum, Jim Toth. Fyrir á hún tvö börn, 12 og 8 ára, með leikaranum Ryan Phillippe.

Sjá næstu 50 fréttir