Fleiri fréttir

Britney Spears í fylgd unnustans

Söngkonan Britney Spears sem einnig er nýr dómari geysivinsælu sjónvarpsþáttanna The X Factor undir stjórn hins skoðanaglaða Simon Cowells var stödd í New York í gær.

Konungborin og óaðfinnanleg

Vilhjálmur prins og eiginkona hans Kate Middleton voru óaðfinnanleg á tónleikum í Royal Albert Hall í London um helgina.

Brosmild Mariah

Söngkonan Mariah Carey og eiginmaður hennar Nick Cannon voru mynduð á góðgerðarviðburði í Hollywood um helgina. Eins og sjá má voru hjónin brosmild...

Djörf Rihanna bak við tjöldin

Rihanna var við tökur á nýju tónlistarmyndbandi í vikunni sem ber heitið, Where Have You Been og er óhætt að segja að öllu hafi verið til tjaldað við gerð myndbandsins.

Kýs London frekar en LA

Írski leikarinn Michael Fassbender hefur búið í London undanfarin ár og vill síður flytjast búferlum til Los Angeles þrátt fyrir velgengni sína. Fassbender er fæddur í Þýskalandi og uppalinn á Írlandi en hefur búið sér heimili í London síðustu ár og vill ekki flytja þaðan burt.

Selur fatnað í Dubai Mall

Leikkonan Mischa Barton hefur snúið sér að öðru en leiklist og hefur sent frá sér sína fyrstu fatalínu. Flíkurnar munu fást í versluninni Rivaage Boutique í Dubai Mall, stærstu verslunarmiðstöð heims.

Sundbolir taka yfir sundlaugabakkana

Það er ávísun á að sumarið er á næsta leiti þegar sundlaugar landsins fara að fyllast af sólþyrstum landsmönnum. Því er vert að renna yfir baðfatatískuna en bikiníin ættu að fá verðskuldaða hvíld í sumar.

Skálmaldardagur haldinn á leikskóla

„Þau eru miklir Skálmaldaraðdáendur," segir María Sigurðardóttir yfirmaður á leikskólanum Bárðargili í Bárðardal í Suður-Þingeyjarsýslu. Sjö krakkar eru á leikskólanum og klæddust þeir allir Skálmaldarbolum á sérstökum Skálmaldardegi sem var haldinn hátíðlegur fyrir skömmu. Krakkarnir hlustuðu á lög með þungarokksveitinni hressu og sungu mest með einu lagi hennar, Kvaðningu.

Barnshafandi Sienna Miller

Breska leikkonan Sienna Miller, 30 ára, var mynduð á götum Lundúna í gær klædd í gráan stuttan kjól og svartan jakka....

Flutt inn með Smart

Söngkonan Jennifer Lopez og kærasti hennar, dansarinn Casper Smart, deila nú heimili Lopez við Hidden Hill í Los Angeles. Parið hefur verið saman í sex mánuði og virðist afskaplega hamingjusamt.

Gretu og Jónsa gengur vel

Fyrsta æfing Gretu Salóme og Jónsa fyrir Eurovision-keppnina var haldin í Bakú í gær. Blaðamaður á vefsíðu Eurovision-keppninnar hreifst af söng þeirra og fannst þau ná vel saman, bæði baksviðs og á sviðinu sjálfu. Þá leggja fjölmargir lesendur síðunnar orð í belg og er greinilegt að íslenska framlagið mælist vel fyrir.

Forsetahjón á Facebook

Kosningabarátta Ólafs Ragnars Grímssonar, sitjandi forseta, hófst í gær. Opnuð var kosningaskrifstofa, vefurinn olafurogdorrit.is og teknar í notkun Facebook-síður bæði fyrir Ólaf og konu hans Dorrit Moussaieff.

Dýrmætt samband

Leikkonan Eva Mendes var gestur í spjallþætti Ellen Degeneres fyrr í vikunni og talaði þar í fyrsta sinn um samband sitt og Ryans Gosling.

Bretar heilluðust af hundakúnstum Pudsey

Tvíeykið Ashleigh og Pudsey vann hæfileikakeppnina Britain"s Got Talent og fékk í sigurlaun eitt hundrað milljónir króna. Tvíeykið Ashleigh og Pudsey bar sigur úr býtum í hæfileikakeppninni Britain"s Got Talent og tryggði sér þar með hálfa milljón punda í sigurlaun, eða um hundrað milljónir íslenskra króna. Hin sautján ára Ashleigh Butler þjálfaði hundinn sinn Pudsey til að stökkva og dansa með henni í úrslitaþættinum í atriði við tónlistina úr Mission Impossible-myndunum.

Íslenski hópurinn lofsamaður eftir fyrstu æfingu

Jónsi og Gréta Salóme ná vel saman baksviðs og á sviðinu í Baku, eftir því sem segir á vefsíðu Eurovision keppninnar. Þá segir jafnframt að bakraddasöngvararnir, sem allir eru svartklæddir, gefi íslenska laginu mikinn kraft. Fyrstu æfingu íslenska hópsins er lokið en hópurinn fór út í gær. Hér getur þú séð myndskeið sem aðstandendur keppninnar birtu á YouTube.

Pitt í fótspor Monroe

Leikarinn Brad Pitt er nýtt andlit ilmvatnsins fræga No. 5 eftir Chanel. Pitt er fyrsti karlmaðurinn í 90 ára sögu ilmvatnsins til að auglýsa vöruna og fetar í fótspor frægra kvenna á borð við Catherine Deneuve, Lauren Hutton og Nicole Kidman. Það var hins vegar Marilyn Monroe sem gerði ilmvatnið það frægasta í heimi er hún sat fyrir í auglýsingarherferð nánast nakin á sjötta áratugnum. Ilmvatnið hefur hingað til verið markaðssett fyrir konur en ekki er vitað hvort verið sé að breyta um stefnu með því að velja Pitt.

Safarík Kóteletta í ár

Páll Óskar og Sálin hans Jóns míns eru á meðal þeirra sem fram koma á fjölskyldu- og tónlistarhátíðinni Kótelettunni á Selfossi dagana 8.-10.júní næstkomandi.

Norðmenn taka misjafnlega í Þór

Íslenska teiknimyndin Þór heldur áfram flakki sínu um heiminn og var á dögunum frumsýnd hjá nágrönnum okkar í Noregi. Gagnrýnendur þar í landi eru ekki á einu máli um myndina þó að flestir gefa henni jákvæða dóma. Leikstjórar Þór eru Óskar Jónasson, Gunnar Karlsson og Toby Genkel en myndin er framleidd af CAOZ. Norðmenn hafa beðið með nokkurri eftirvæntingu eftir myndinni enda er söguþráður hennar skírskotun í norræna goðafræði sem er þeim vel kunn.

Hanks á Broadway

Leikarinn Tom Hanks gæti farið með hlutverk Mike McAlary í leikverkinu Lucky Guy sem setja á upp á Broadway. Gangi það eftir verður þetta í fyrsta sinn sem leikarinn stígur á svið síðan árið 1979. Talsmaður Hanks staðfesti fréttirnar við New York Times í gær.

Fær ráð hjá mömmu

Rapparinn Jay-Z óttast að dóttir hans muni einn dag skammast sín fyrir foreldra sína. Hann gerir þó sitt besta til að ala stúlkuna upp til að verða góð manneskja.

Draga sig út úr Django

Sacha Baron Cohen er hættur við að leika feluhlutverk í Django Unchained, nýjustu mynd Quentins Tarantinos. Cohen átti að leika Scotty Harmony, fjárhættuspilara sem borgar fyrir félagsskap eiginkonu aðalpersónunnar sem Jamie Foxx leikur. Hann varð að hætta við hlutverkið vegna kynningarherferðar myndar hans The Dictator.

Brjóstagjöf á forsíðu Time

Heilsa Forsíða tímaritsins Time Magazine þessa vikuna hefur vakið athygli út um allan heim. Forsíðuna prýðir móðirin Jamie Lynne Grumet frá Los Angeles og sýnir myndin hana gefa þriggja ára syni sínum brjóst en hann stendur á kolli við hlið hennar.

Björk biðst afsökunar

Björk Guðmundsdóttir hefur beðist afsökunar á því að hafa þurft af aflýsa tónleikum sínum á fjórum tónlistarhátíðum á Spáni, í Portúgal, Ungverjalandi og Rússlandi. Hún segir að læknir hennar hafi fyrirskipað sex vikna hvíld til viðbótar vegna hnúðs sem hún er með á raddböndunum.

Inga á Nasa verður friðuð og stoppuð upp

Inga á Nasa eins og hún er kölluð er í ítalegu viðtalið í Lífinu, aukablaði Fréttablaðsins í dag um endalok skemmtistaðarins Nasa sem hún hefur rekið í yfir áratug. Aðspurð um hvað verði um hana sjálfa þegar ballinu lýkur segir hún, "Inga á Nasa verður friðuð, stoppuð upp og sett út á Austurvöll með Jóni Sigurðssyni þegar ballinu lýkur. En svona í fullri alvöru þá veit ég ekki hvað verður um mig, en eitt veit ég og það er að mig langar til að taka mér smá frí. Annars borgar sig að segja sem minnst, ætli ég verði ekki farin að gera eitthvað annað spennandi og skemmtilegt fljótlega.“

Bakraddirnar í Eurovision

Þau Alma Rut Kristjánsdóttir, Gísli Magna, Guðrún Árný Karlsdóttir og Pétur Örn Guðundsson fara til Bakú í fyrramálið. Þau eru raddirnar sem syngja með Gretu Salóme og Jónsa í laginu Never forget, sem keppir fyrir hönd Íslands í Eurovision...

Nýtt sýnishorn úr Evrópska draumnum frumsýnt

Það er greinilegt að ekkert er gefið eftir í þáttunum Evrópski draumurinn. Vísir frumsýnir hér fyrsta sýnishornið úr þáttunum sem verða sýndir á Stöð 2 í sumar. Liðin sem keppa eru að þessu sinni skipuð þeim Sveppa og Pétri Jóhanni annarsvegar og þeim Audda og Steinda Jr. hinsvegar.

Rómantískur Ryan Gosling

Leikaraparið Ryan Gosling, 31 árs, og Eva Mendes, 38 ára, leiddust í New York í gærdag...

Bak við búðarborðið

Það lifnaði svo sannarlega yfir miðbæ Reykjavíkur þegar sólin hækkaði á lofti.

Barnshafandi Barrymore

Leikkonan Drew Barrymore, 37 ára, og unnustin hennar Will Kopelman mættu prúðbúin á galadansleik í New York í vikunni...

Á söluhæstu smáskífuna

Lagið Evergreen/Anything Is Possible með popparanum Will Young er söluhæsta smáskífulag 21. aldarinnar í Bretlandi. Skífan kom út árið 2002 og hafa selst af henni 1,8 milljón eintök. Í öðru sæti er Someone Like You með Adele sem hefur selst í 1,35 milljónum eintaka. Þetta kemur fram í tölum frá Official Chart Company í Bretlandi.

Tökur á Walter Mitty hafnar

Tökur á gamanmynd Bens Stiller, The Secret Life of Walter Mitty, eru nýhafnar í New York. Stiller skoðaði ýmsa tökustaði hér á landi í fyrra vegna myndarinnar, þar á meðal á Seltjarnarnesi, Djúpavogi og í Stykkishólmi, og heillaðist mjög af því sem fyrir augu bar.

Samningur undirritaður

Talið er að Britney Spears hafi samþykkt að vera dómari í hæfileikaþáttunum X-Factor næsta vetur og að hún fái í sinn hlut hátt í tvo milljarða króna.

Finlands Next Top Model á Íslandi

"Það er okkur sönn ánægja að fá að taka þátt í þessu verkefni,“ segir Lilja Konráðsdóttir hjá Max Factor um samstarf snyrtivörumerkisins og sjónvarpsþáttaseríunnar Finlands Next Top Model.

Geislandi Lopez

American Idol dómarinn, söngkonan og leikkonan Jennifer Lopez, 42 ára, kynnti nýtt ilmvant, Glowing by JLo, á Bel Air hótelinu í Los Angeles í gær....

Sjá næstu 50 fréttir