Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Keppendur ungfrú Reykjavík í ræktinni Fegurðardrottning Reykjavíkur 2011 verður krýnd með mikilli viðhöfn 25. febrúar næstkomandi á veitingahúsinu Broadway þar sem fegurstu fljóð höfuðborgarsvæðisins keppa um þessa eftirsóttu nafnbót. Eins og meðfylgjandi myndir sýna tóku keppendur ærlega á því í World Class í Laugum í dag. Frábær stemning ríkir í hópnum sem er áberandi hraustlegur og fagur á að líta. Þá má einnig sjá þegar stúlkurnar teygðu vel úr sér og dönsuðu við taktfasta tónlist í Zumba tíma. 6.2.2011 18:02
James Cameron launahæstur Leikstjórinn James Cameron var langlaunahæstur í Hollywood á síðasta ári með tæpa þrjátíu milljarða króna í tekjur. Ástæðan er fyrst og fremst gríðarlegar vinsældir ævintýramyndarinnar Avatar sem hann leikstýrði og framleiddi. 6.2.2011 13:00
Félagar með nýja plötu Tónlistarmennirnir Epic Rain og Beatmakin Troopa gefa á þriðjudaginn út sína fyrstu plötu saman. Hún nefnist Campfire Rumors og kemur út á vegum útgáfufyrirtækisins 3angle Productions sem er í þeirra eigu. Þeir félagar hafa um árin unnið saman að ýmsum verkefnum, bæði staðið fyrir tónleikum og gefið út tónlist. 6.2.2011 12:00
Sóknarprestur hissa á hamingjuþætti „Ég er ekki sár og ekki reiður, þetta er bara skrýtið. Það er svo langt síðan ég byrjaði með þetta,“ segir séra Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju. 6.2.2011 12:00
Feta í fótspor Jimi Hendrix Fjórir Skagamenn spila uppáhaldslög sín með Jimi Hendrix á tónleikum á Sódómu næsta fimmtudagskvöld. Þetta eru fyrstu stóru tónleikar drengjanna. 6.2.2011 11:00
Mikið rétt þetta var samkoma fallega fólksins Meðfylgjandi myndir voru teknar á Fordkepnninni sem fram fór í Hafnarhúsinu í gærkvöldi. Það var Kolbrún Ýr Sturludóttir sem sigraði, Kolfinna Kristófersdóttir landaði öðru sæti og Hildur Holgersdóttir því þriðja. Sóley Kristjánsdóttir sá um að kynna keppnina og hljómsveitirnar Feldberg, Sykur og Kiriyama Family spiluðu tónlistina. 5.2.2011 22:12
Hefur áhuga á illmenninu Spænski leikarinn Javier Bardem hefur átt í viðræðum um að leika vonda karlinn í næstu James Bond mynd. Bardem hitti leikstjórann Sam Mendes á dögunum og heillaðist af hlutverkinu. „Ég er mikill aðdáandi James Bond myndanna,“ sagði hinn 41 árs gamli Bardem. „Þegar ég var lítill horfði ég á Sean Connery leika James Bond. Hver hefði trúað því að ég yrði í einni slíkri mynd?“ 23. Bond-myndin er væntanleg í bíó 9. nóvember á næsta ári. Þar verður Daniel Craig á sínum stað í hlutverki 007. 5.2.2011 15:00
Upphandleggurinn er 42 sentimetrar að ummáli Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson undirbýr sig nú af krafti fyrir hlutverk sitt sem hrottinn Tóti úr bókinni Svartur á leik en tökur á myndinni hefjast 1. mars. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Stefáns Mána sem kom út fyrir sex árum en hitt aðalhlutverkið verður í höndum Þorvaldar Davíðs Kristjánssonar. Hann mun leika Stebba sækó. 5.2.2011 13:00
Stjórnaði í gegnum Skype Hljómsveitin Thin Jim notaði Skype við strengjaupptökur á sinni fyrstu plötu sem er væntanleg í mars. Ég er ekki viss um að þetta hafi verið gert áður, allavega ekki á Íslandi,“ segir Jökull Jörgensen úr kántrípoppsveitinni Thin Jim. Hún lauk upptökum á sinni fyrstu stóru plötu um síðustu helgi hjá Benzin-bræðrum í Sýrlandi. 5.2.2011 12:00
Plöturnar rokseljast Rokkdúettinn The White Stripes hefur flogið upp vinsældalista eftir að hann tilkynnti að hann væri hættur störfum. Samkvæmt vefsíðunni Amazon hefur salan á tónleikaplötunni og heimildarmyndinni Under Great White Northern Lights aukist um 2.644 prósent. Platan er í öðru sæti á lista vefsíðunnar Movers & Shakers sem tekur saman hæstu sölutölurnar. Aðrar plötur sveitarinnar sem komast á topp tíu á sama lista eru White Blood Cells og Elephant, sem hefur að geyma hið vinsæla Seven Nation Army. 5.2.2011 16:00
Vitnisburður um þrautseigju íslenskra listamanna Ráðgert er að fimm binda yfirlitsrit um íslenska listasögu komi út með haustinu. Fjórtán höfundar taka þátt í ritun verksins, sem Forlagið gefur út í samvinnu við Listasafn Íslands. Yfirlitsritið Íslensk listasaga, sem væntanlegt er í haust, spannar tímabilið frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar og verður um 1.500 síður í stóru broti. Fjögurra ára vinna liggur að baki útgáfunni. 5.2.2011 11:00
Nafn Torres plokkað í burtu Liverpool-treyjur með númeri og nafni Fernando Torres hafa undanfarin ár verið þær vinsælustu á meðal fótboltaaðdáenda bæði hér heima og erlendis. Snögg breyting hefur orðið á því eftir að framherjinn gekk til liðs við Chelsea. 5.2.2011 11:00
Nýtt efni frá Fleet Foxes Önnur plata hljómsveitarinnar Fleet Foxes nefnist Helplessness Blues og kemur út 29. apríl hjá Sub Pop útgáfunni í Seattle. Upptökustjóri var Phil Ek sem hefur unnið með sveitum á borð við Band of Horses, The Shins og Les Savy Fav. Fyrsta plata Fleet Foxes sem kom út fyrir þremur árum hlaut mjög góðar viðtökur og lenti ofarlega á mörgum árslistum. Hægt er að hlusta á fyrsta smáskífulag nýju plötunnar, titillagið Helplessness Blues, á heimasíðu Fleet Foxes. 5.2.2011 11:00
Gillz gladdist á English Pub Egill „Gillzenegger“ Einarsson bauð vinum og samstarfsmönnum til veislu á English Pub. Þar var nýjum sjónvarpsþáttum hans, Mannasiðum Gillz, fagnað með stæl. 5.2.2011 11:00
Danir hrifnir af Ofsa Einars Kára Einar Kárason fær lofsamlega dóma í Weekendavisen í Danmörku fyrir bók sína Ofsa. Víkingar fornaldar þjáðust víst af aðskilnaðarkvíða og ástleysi. „Þetta er mjög skemmtilegt og hann sér alls konar hluti sem mér hafði ekki dottið í hug, eins og að það hafi verið eitthvað freudískt við það að skríða ofan í sýrukar og vera bjargað af konu,“ segir Einar Kárason rithöfundur. 5.2.2011 10:00
Þóra Einarsdóttir syngur í Garðabæ Þóra Einarsdóttir sópran er í aðalhlutverki á fyrstu tónleikum menningar- og safnanefndar Garðabæjar á þessu ári. Hún kemur fram ásamt Gerrit Schuil píanóleikara sem einnig er listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar sem hófst síðastliðið haust. Á efnisskránni eru verk eftir Gabriel Fauré, Jón Ásgeirsson, Tsjaíkovskí, Nikolaí Rimskí-Korsakov og Rakhmaninov. 5.2.2011 08:00
Ofviðrið blæs út Borgarleikhúsinu hefur verið boðið að sýna Ofviðrið í Þjóðleikhúsi Litháens á alþjóðlegri leiklistarhátíð í Vilníus í september næstkomandi. Þjóðleikhús Litháens er stærsta leikhús landsins. Leikstjóri Ofviðrisins, Oskaras Koršunovas, er Lithái en á dögunum fékk sýningin góða dóma í Lietuvos rytas, stærsta dagblaði Litháens. 5.2.2011 06:00
Þessu liði leiddist greinilega ekki Meðfylgjandi myndir voru teknar í upptökuveri Stöðvar 2 í kvöld þar sem fjöldi fólks kom saman og fagnaði eftir vægast sagt vel heppnaðar HM útsendingar þar sem öll þjóðin fylgdist grannt með framgöngu íslenska handboltalandsliðsins. Gestir voru í dúndur stuði eins og myndirnar bera greinilega með sér. 4.2.2011 20:05
Sjóðheitt sýnishorn úr Okkar eigin Osló Vísir frumsýnir hér sjóðheitt sýnishorn úr rómantísku gamanmyndinni Okkar eigin Osló sem verður frumsýnd 4. mars. 4.2.2011 15:51
Stjarna Stundarinnar okkar flytur til Bandaríkjanna „Ég er bara einfaldlega að fara að snúa mér að öðru og framtíð mín mun væntanlega skýrast á næstu mánuðum,“ segir Björgvin Franz Gíslason leikari. Björgvin hefur síðustu þrjú ár stjórnað Stundinni okkar á RÚV en hefur ákveðið að láta af störfum eftir þennan vetur. 4.2.2011 12:00
Gaurinn neitar að flytja út Jordan Bratman fyrrum eiginmaður söngkonunnar Christinu Aguilera neitar að flytja út úr 11,5 milljón dollara húsinu þeirra samkvæmt slúðurtímaritinu Us Weekly. Jordan og Christina eiga soninn Max saman en feðgana má sjá á meðfylgjandi myndum. Þá má einnig sjá Christinu ásamt nýja kærastanum hennar, Matt Rutler, í myndasafni. Söngkonan kynntist Matt við tökur, stuttu eftir að hún skildi við barnsföður sinn, á kvikmyndinni Burlesque, þar sem hann vann sem aðstoðarmaður sviðsmanns en Christina hefur nú þegar kynnt Matt fyrir foreldrum sínum sem segir að hún er ástfangin af manninum. „Það ríkir mikil ást á milli okkar. Ég skemmti mér vel með honum og það er nokkuð sem ég hef ekki gert lengi," sagði Christina. 4.2.2011 11:00
White Stripes hætta Rokkdúettinn The White Stripes hefur lagt upp laupana eftir þrettán ára samstarf. Á heimasíðu sinni þökkuðu þau Jack og Meg White aðdáendum sínum fyrir stuðninginn. Þau sögðu margar ástæður fyrir endalokunum en stærst væri sú að þau vildu varðveita það sem væri fallegt og sérstakt við hljómsveitina. 4.2.2011 10:00
Jón Gnarr talar inn á Múmínálfamynd „Ég mátti velja hlutverkið sjálfur,“ segir Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur. Jón talar fyrir eina aðalpersónuna í þrívíddarteiknimyndinni Múmíndalurinn og halastjarnan sem verður frumsýnd hér á landi um helgina. „Ég fór til Finnlands fyrir nokkru og hitti þá framleiðendur myndarinnar og aðstandendur hennar. Þeir höfðu heyrt að ég hefði talað vel um Múmínálfana og Múmíndalinn og buðu mér í kjölfarið hlutverk í íslensku talsetningunni,“ segir borgarstjórinn. 4.2.2011 10:00
Bob Dylan heiðraður í Hörpu „Það verður haldið upp á sjötugsafmæli meistarans með myndarbrag,“ segir Óttar Felix Hauksson, útgefandi og tónlistarmaður. Óttar Felix hefur bókað Hörpuna 24. maí í tilefni af sjötugsafmæli Bobs Dylan. Þar munu margir af fremstu tónlistarmönnum landsins koma fram og heiðra þennan merka tónlistarmann. Dylan-mafían á Íslandi, 4.2.2011 11:00
Colin Farrell ástfanginn af Keiru Knightley Keira Knightley og Colin Farrell leika aðalhlutverkin í harðsoðna krimmanum London Boulevard. Hann ræður sig sem lífvörð hennar og verður ástfanginn af henni. 3.2.2011 21:00
Einari Ágústi eignaður FM-hnakkinn Einari Ágústi Víðissyni er eignað orðið FM-hnakki en Henrik Björnsson og Barði Jóhannsson hafa áður gert tilkall til þess heiðurs. 3.2.2011 19:00
250. tónleikarnir í Chicago Tónleikar Ólafs Arnalds í Chicago um síðustu helgi voru hans 250. á ferlinum. Af þessum 250 tónleikum hafa um 200 verið haldnir síðustu tvö ár, sem kemur ekki á óvart því Ólafur verið óþreytandi við að kynna tónlist sína víða um heim undanfarin misseri. 3.2.2011 18:00
Kiriyama Family sigurvegari Kiriyama Family bar sigur úr býtum í hljómsveitakeppni sem fyrirsætuskrifstofan Eskimo og upptökuteymið Benzin Music/Sýrland stóðu fyrir í tilefni af Ford-keppninni sem verður haldin í Listasafni Reykjavíkur á föstudaginn. 3.2.2011 15:00
Bjóða vodka beint af sviðinu Hin danskættaða hljómsveit Croisztans spilar á Bakkusi á föstudaginn. Þetta verða fyrstu tónleikar sveitarinnar hér á landi síðan í nóvember 2008 er hún steig á svið á gamla Grand Rokki við góðar undirtektir. 3.2.2011 11:30
Myrkari og rafrænni tónar Breska tríóið White Lies er komið aftur á stjá tveimur árum eftir að platan To Lose My Life kom út. Myrkur danstaktur í anda Depeche Mode er orðinn meira áberandi en áður. 3.2.2011 17:00
Sigursveit Músíktilrauna semur við Record Records Hljómsveitin Of Monsters and Men hefur gert útgáfusamning við Records Records. Upptökur á fyrstu plötunni hefjast í lok mars. 3.2.2011 16:00
Jæja ertu ekki aðeins að fara yfir strikið hérna Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá nýtt tónlistarmyndband söngkonunnar Rihönnu sem ber heitið S&M en það er bannað áhorfendum sem eru 18 ára og yngri. Það fer fyrir brjóstið á mörgum að Rihanna er bundin á höndum og fótum, klædd í latex og teipar mann og annan í umræddu myndbandi. 2.2.2011 17:34
Anita Briem í rúminu með Superman Anita Briem leikur í rómantískri ástarsenu með bandaríska leikaranum Brandon Routh, best þekktum sem Ofurmennið úr samnefndri mynd frá árinu 2006, í myndasögu-kvikmyndinni Dylan Dog: Dead of Night. 2.2.2011 11:30
Íslenskur framleiðandi sópar til sín stjörnum Eva Maria Daniels, íslenskur kvikmyndaframleiðandi í Hollywood, hefur fengið Veru Farmiga til að leika aðalhlutverkið í kvikmynd sinni, Goats. Farmiga var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir tveimur árum en hún þótti fara á kostum í Jason Reitman myndinni Up in the Air. Hún hefur þar að auki leikið í kvikmyndum á borð við The Departed. 2.2.2011 09:45
Kærastan á mig ein Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór syngur fyrir land og þjóð ásamt því að þjálfa fótboltalið FH um helgar. 2.2.2011 07:00
Dallas þættirnir endurgerðir Ákveðið hefur að endurgera hina sívinsælu Dallas þætti og mun hinn 79 ára Larry Hagman fá að leika olíubaróninn JR Ewing á ný. 2.2.2011 12:01
Rifja upp Sædýrasafnið í París Leikritið Sædýrasafnið, sem var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2008, verður sýnt í París á næstu dögum. Leikarahópurinn er nýkominn til Parísar og ætlar að dvelja þar í tíu daga. Stefnt er á sex til sjö sýningar á þeim tíma. 2.2.2011 06:00
Ásgeir Kolbeins segir frá uppruna FM-hnakkans Sveitaball með Skímó á Sjallanum í kringum 1997. Þar fæddist FM-hnakkinn að sögn Ásgeirs Kolbeins. Hann sviptir hér hulunni af leyndardómi sem margir hafa spurt um en færri svarað. Úr Loga í beinni á Stöð 2. 1.2.2011 21:00
Vandræðalegt vægast sagt Þegar leikarahjónin Ashton Kutcher og Demi Moore mættu þremur klukkustundum of seint en áætlað var á sérstakt svæði þar sem ljósmyndarar fengu að mynda þau á rauða dreglinum í Sao Paolo í Brasilíu voru þau púuð niður eins og heyra má í meðfylgjandi myndskeiði. Hjónin stilltu sér brosandi upp og létu öskrin ekki koma sér úr jafnvægi eins og greinilega má sjá á myndbandinu. Hjónin boðuðu komu sína í myndatökuna eftir að Ashton tók þátt í tískusýningu á vegum Colcci sem er brasilískt tískumerki. 1.2.2011 17:21
Leikrit upp úr fornsögunum sýnt um allt Þýskaland „Nafnið á verkinu er mjög fyndin nálgun, það er fengið að láni frá Jóni Grunnvíkingi sem lýsti Íslendingasögunum svona, að þetta væru bændur að fljúgast á," segir Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA. 1.2.2011 13:00
Elíza fær góða dóma Tónlistarkonan Elíza Geirsdóttir Newman hefur fengið góða dóma í Bretlandi fyrir EP-plötu sína Ukulele Songs for You sem kom út í stafrænu formi fyrir skömmu. Platan inniheldur lögin Ukulele Song for You, Eyjafjallajökull, sem sló í gegn þegar Elíza flutti það á fréttastöðinni Al Jazeera, og áður óútgefið lag sem nefnist Out of Control. 1.2.2011 11:30
Hitar upp fyrir The Go! Team Retro Stefson hitar upp fyrir ensku hljómsveitina The Go! Team á tíu daga tónleikaferð um Þýskaland í mars. 1.2.2011 12:30
Blue keppir í Eurovision Strákabandið Blue keppir fyrir hönd Bretlands í Eurovision í vor. Lagið sem strákarnir ætla að flytja nefnist I Can og vonast þeir til að endurvekja feril sinn með þátttökunni í keppninni. „Orðrómurinn er á rökum reistur. Við getum ekki beðið eftir því að lofa ykkur að heyra lagið. Það er mjög flott," skrifaði söngvarinn Duncan James á Twitter. Blue hætti störfum árið 2005 en sneri aftur fyrir tveimur árum og fór í stóra tónleikaferð. 1.2.2011 11:00