Fleiri fréttir

Bono: Ég er í rusli

Bono skrifar að hann sé í rusli og að U2 hafi samið nýtt lag fyrir Glastonbury-tónleikana en auk þeirra hefur verið hætt við 16 tónleika í Bandaríkjunum.

Eurovison: Kjóllinn geymdur á öruggum stað

Við kíktum í morgun á hótelið þar sem íslenski hópurinn dvelur. Þar hittum við Emilíönu Tómasdóttur hárgreiðslukonu, Kristjönu Stefánsdóttur söngkonu, Elínu Reynisdóttur förðunarfræðing og Birnu Gyðu Björnsdóttur danshöfund.

Eurovisionkveðja frá Osló - myndband

„Við erum að fara upp á herbergi með smá pizzu áður en við förum á æfingu núna í kvöld í Telenor-höllinni," sagði Pétur Örn Guðmundsson söngvari sem var með fangið fullt af pizzum þegar við hittum hann og söngkonurnar Heiðu Ólafs og Ernu Hrönn á Radisson hótelinu í Osló í gærkvöldi. Þá senda söngvararnir Íslendingum hlýja Eurovisionkveðju í meðfylgjandi myndskeiði. Hera Björk á rauða dreglinum.

Hannar nokkrar línur í einu

Fatahönnuðirnir Edda Guðmundsdóttir og Arna Sigrún Haraldsdóttir eru þær fyrstu til að hanna undir merkjum Black-merkisins.

Íslensk matreiðsla í mikilli sókn

Svissneskur ferðamálaprófessor segist áður hafa borðað á íslenskum veitingastöðum af nauðsyn. Í dag er það einstök lífsreynsla.

Paula Abdul dómari í nýjum dansþætti

Paula Abdul virðist vera að ná vopnum sínum á ný eftir að hafa verið rekin úr American Idol. Hún verður dómari í þættinum Got to Dance.

Massadjamm á blakmóti

Hópurinn Massadjamm vakti athygli fyrir leikgleði og fagnaðarlæti á blakmóti þrátt fyrir að vinna aðeins einn leik.

Hera Björk stelur senunni í Osló - myndir

Opnunarhátíð Eurovisionkeppninnar var haldin hátíðleg í Ráðhúsi Oslóar í gær þar sem norski dúettinn Bobbysocks söng meðal annars lagið La det swinge við mikinn fögnuð viðstaddra. Hera Björk fékk gríðarlega mikla athygli fjölmiðla þegar hún mætti á rauða dregilinn.

Bret sigrar Apprentice - Ekki fá þér drykk!

Rokkarinn Bret Michaels, sem fékk heilablóðfall fyrir nokkrum vikum og hjartaáfall í síðustu viku, sigraði í gær í bandaríska sjónvarpsþættinum Celebrity Apprentice.

Óvæntustu úrslit Cannes í manna minnum

Valið á sigurmynd kvikmyndahátíðarinnar í Cannes kom öllum í opna skjöldu þetta árið. Tim Burton stýrði dómnefndinni sem veitti tælenskri mynd Gullpálmann.

Beckham heimsótti hermenn í Afganistan

Knattspyrnukappanum David Beckham var vel tekið þegar hann heimsótti breska hermenn í Afganistan í gær. Beckham ræddi við hermenn á hersjúkrahúsi og í aðalherstöð Breta í Helmandhéraði, en þar hefur verið afar róstusamt undanfarið ár. Auk þess að ræða við samlanda sína og gefa eiginhandaráritanir fór Beckham að minnismerki um fallna hermenna.

Brostu og vertu sæt - myndband

Oftar en ekki gerast skemmtilegustu augnablikin eftir að slökkt hefur verið á upptökuvélunum eins og þegar fegurðardrottningarnar brostu óvenju þolinmóðar til fjölda ljósmyndara sem mynduðu þær á sviðinu á Broadway eftir keppnina á föstudagskvöldið. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá þegar ungfrú Ísland 2010, Fanney Ingvarsdóttir, 19 ára Garðbæingur, Íris Thelma Jónsdóttir og Íris Björk Jóhannsdóttir brosa uppstilltar en eru á sama tíma óþreyjufullar að fagna með vinum og fjölskyldu. Hér má skoða myndir frá keppninni.

Á klósettinu með fegurðardrottningum - myndband

Við króuðum Guðrúnu Dögg Rúnarsdóttur, ungfrú Ísland árið 2009, og Sylvíu Dagmar Friðjónsdóttur, sem hafnaði í þriðja sæti sama ár, af á klósettinu á Broadway örfráum mínútum áður en þær hlupu á sviðið þar sem þær krýndu arftaka sína. Í meðfylgjandi myndskeiði segja þær okkur hvað verðandi fegurðardrottning þarf að hafa í huga. Þá má einnig sjá myndir af Guðrúnu og Sylvíu.

Framtíðin er Gogoyoko

Sprotafyrirtækið Gogoyoko er dæmi um blómstrandi íslenskt hugvit en fyrirtækið er vettvangur fyrir tónlistarfólk til að selja tónlist sína og koma sér á framfæri á netinu. Um helgina opnar fyrirtækið nýja og glæsilega tónlistarbúð þar sem tónlistarmenn fá allar tekjur sjálfir af verkum sínum. Anna Margrét Björnsson fékk sér kaffibolla með þeim Pétri Einarssyni og Kristjáni Gunnarssyni og fékk að heyra meira.

Viðtal við Megas: Eins og hver annar iðnaðarmaður

Tónleikar Megasar í Háskólabíói eru stærsta innlenda atriðið á Listahátíð í ár. Megas ræddi við Kolbein Óttarsson Proppé um tónleikana, tíundastökk og lögin sem koma úr djúpinu og eru honum vörn gegn krabbameini í hugsun en verða svo öðrum brúkshlutir.

Viðtal við Megas: Eins og hver annar iðnaðarmaður

Tónleikar Megasar í Háskólabíói eru stærsta innlenda atriðið á Listahátíð í ár. Megas ræddi við Kolbein Óttarsson Proppé um tónleikana, tíundastökk og lögin sem koma úr djúpinu og eru honum vörn gegn krabbameini í hugsun en verða svo öðrum brúkshlutir.

Bono skorinn upp á mænunni

Söngvarinn Bono er nú staddur á einkasjúkrahúsi í München í Þýskalandi þar sem færustu taugaskurðlæknar sem í boði eru skáru upp bakið á honum.

Tiger kominn á kvennaveiðar

Golfkylfingurinn Tiger Woods er að sögn vefsíðunnar RadarOnline kominn aftur á markaðinn. Hann sást nýverið í fylgd með ókunnugri, ljóshærðri konu.

Andri Snær með Matt Damon í umdeildri heimildarmynd

„Þetta hlýtur að vera toppurinn á tilverunni, að vera í mynd með Matt Damon sem sýnd er í Cannes,“ segir rithöfundurinn Andri Snær Magnason. Hann er hluti af viðmælendateymi heimildarmyndarinnar Inside Job eftir Charles Ferguson sem vakið hefur mikla athygli á kvikmyndahátíðinni í Cannes.

Friðrik Weisshappel að þrotum kominn

„Ég skulda kroppnum örugglega fimmtíu tíma af svefni, hef líklega sofið í mesta lagi þrjá tíma á dag að undanförnu,“ segir kaffihúsaeigandinn Friðrik Weisshappel í Kaupmannahöfn.

Brjáluð vika Lindsay Lohan - sagan öll

Djamm í Cannes, handtökuskipun og nýr elskhugi. Nei, við erum ekki að skrifa um brjálaða viku bankamannsins Sigurðar Einarssonar heldur leikkonunnar Lindsay Lohan.

Íslenska partíið í sendiráðinu – 12 stig!

Íslenska sendiráðið í Noregi hélt partí fyrir Eurovision-hópinn og gesti þeirra í vikunni. Á bloggsíðunni Eurovision Express, sem fylgist með öllu sem er að gerast í kringum keppnina, kemur fram að partíið hafi verið gríðarlega vel heppnað.

Velur mat eftir kynlífsvenjum dýranna - þolir ekki svín

Hinn ástsæli leikari Nicolas Cage segist ekki neyta svína- eða nautakjöts en ástæða þess þykir mörgum heldur undarleg. Cage segist ekki borða svína- og nautakjöt því honum þyki þessi dýr stunda subbulegt kynlíf.

Konur stjórna 13 bræðrum

Dansverkið Bræður verður sýnt á Listahátíð í Reykjavík dagana 27. og 28. maí. Gunnlaugur Egilsson fer með hlutverk eins bræðranna og hlakkar mikið til sýninganna.

Gaga brjálaðist út af gæslunni

Söngkonan Lady Gaga hefur rekið öryggisverði sína eftir að aðdáandi komst óáreittur upp á svið á tónleikum hennar í Japan.

Elskhuginn til Þýskalands

Samningar hafa náðst við þýska útgáfurisann Rowohlt um útgáfu á Góða elskhuganum eftir rithöfundinn Steinunni Sigurðardóttur.

Ungfrú Ísland í vandræðum - myndband

Nýkjörin fegurðardrottning Íslands Fanney Ingvarsdóttir, 19 ára Garðbæingur, átti í vandræðum með kórónuna eins og meðfylgjandi myndskeið sem tekið var í lok keppninnar á Broadway í gærkvöldi sýnir. Þá má sjá Guðrúnu Möller formann dómnefndar, Ingibjörgu Egilsdóttur, Heiðar Jónsson sérfræðing í íslenskri fegurð og Karl Berndsen sem var ekki lengi að bjarga fegurðardrottningunni úr vandræðunum.

Lokaþáttur Lost annað kvöld

Tvöfaldur, tveggja tíma langur lokaþáttur af Lost verður sýndur í Bandaríkjunum annað kvöld. Þá fá spenntir sjónvarpsáhorfendur loksins úr því skorið hvernig ævintýrið á eyjunni dularfullu endar.

Sjá næstu 50 fréttir