Fleiri fréttir Tveir VIP miðar til Hollywood Dansþátturinn So you think you can dance hefur slegið í gegn og svo virðist sem hver sem á horfir heillist af þessari fallegu íþrótt. Og spurningin er; hefur dansæði gripið um sig á Íslandi? 7.8.2007 21:07 Bogi kaupir 150 milljóna glæsivillu Milljarðamæringurinn Bogi Pálsson, stjórnarformaður Flögu og stjórnarmaður í Exista, hefur fest kaup á glæsilegu 150 milljóna einbýlishúsi á Arnarnesinu. 7.8.2007 17:26 Samdi texta fyrir Pete Kate Moss og Pete Doherty eru aftur farin að rugla saman reitum en þó eingöngu á tónlistarsviðinu í þetta sinn. Pete hefur greint tímaritinu Daily Mirror frá því að Kate hafi aðstoðað hann við að skrifa textann í laginu You Talk á síðustu plötu hljómsveitarinnar Babyshambles. Pete segist hafa skrifað lagið á meðan Kate sat í rúminu. 7.8.2007 16:07 Kristinn kaupir í Skuggahverfi Kristinn Björnsson var fyrstur til að kaupa íbúð í öðrum áfanga íbúðabygginga í 101 Skuggahverfi. Íbúðin sem hann hefur fest kaup á er á 10. hæð að Lindargötu 37. Hún er 254 fermetrar og þar með er talinn 100 fermetra þakgarður. Íbúðin er með þeim stærri sem boðnar eru út í þessum áfanga og kostar 145 milljónir króna, en er án allra innréttinga. 7.8.2007 15:07 Ættleiðingarferli Madonnu í uppnámi Ættleiðing söngkonunnar Madonnu á hinum unga David Banda frá Malaví gæti verið í uppnámi eftir að embættismanni sem ætlað var að fylgja ættleiðingunni eftir var bannað að ferðast til Bretlands. Félagsráðgjafinn Penstone Kilebame átti að fylgjast með ættleiðingarferlinu og voru tvær ferðir áætlaðar á heimili Madonnu í London en yfirvöld í Malaví stöðvuðu heimsóknirnar. 7.8.2007 11:09 Hundar Ving Rhames drápu mann Allt lítur út fyrir að tveir bolabítar í eigu bandaríska kvikmyndaleikarans Ving Rhames hafi drepið fertugan umsjónarmann á heimili leikarans. Maðurinn fannst látinn á lóð heimilis Rhames í Los Angeles. Hann var þakinn hundabitum. 4.8.2007 18:56 Nýstárleg ljósmyndasýning opnuð á Eskifirði Sýning á myndum eftir sjö eskfirska ljósmyndara var opnuð á Eskifirði um helgina. Sýningin er sett upp á nýstárlegan hátt, og er ætlað að vera skúlptúr um leið og hún er rammi um sýninguna. Verkið stendur við sundlaugina á Eskifirði. 4.8.2007 12:08 Stjörnufræðingurinn Brian May Gítarleikari Queen, Brian may, hefur lagt fram doktorsverkefni sitt í stjörnufræði. May hóf doktorsnámið við Imperial College í London fyrir heilum 36 árum en lagði það til hliðar til að einbeita sér að ferli sínum með Queen. Hann hefur nú tekið upp þráðinn að nýju og stefnir ótrauður að doktorsgráðu. 3.8.2007 15:29 Hvað þarf að hafa með? Þeir sem ætla á útihátíð um helgina verða hafa margt í huga áður en lagt er af stað. Ísland í dag fór á rúntinn og talaði við þá sem þjónusta ferðalanga - og byrjaði á þeim stað sem er líklega fjölsóttastur fyrir þessa helgi. 2.8.2007 21:48 Nicole Richie ER ólétt Stjarnan smávaxna staðfesti þrálátar sögusagnir um óléttu sína í viðtali við Diane Sawyer sem verður sjónvarpað í Good Morning America þættinum á ABC sjónvarpsstöðinni. Richie er komin fjóra mánuði á leið með fyrsta barn hennar og kærastans Joel Maddens. Í viðtalinu tjáði hún sig einnig um yfirvofandi fangelsisvist sína vegna ölvunaksturs,sem hún sagði vera sína leið til að axla ábyrgð á gjörðum sínum. 1.8.2007 10:40 Reiði Guðanna vinnur til verðlauna á Stony Brook Heimildarmyndin ,,Reiði guðanna" eftir Jón Gústafsson vann til verðlauna á Stony Brook kvikmyndahátíðinni í New York um helgina. Myndin fjallar um gerð myndarinnar Bjólfskviðu, þar sem ýmislegt gekk á. Reiði Guðanna hefur gengið vel á hinum ýmsu kvikmyndahátíðum og hefur almennt hlotið betri gagnrýni en umfjöllunarefnið. 1.8.2007 09:58 Hún er ömurleg en ég elska hana Rokkróninn Pete Doherty gerði í gær sjarmerandi tilraun til að endurheimta ástir Kate Moss. Leiðin sem hann valdi var viðtal við breska götublaðið Mirror. 1.8.2007 07:00 Kryddpíur vantar stílista Mörgum þótti Kryddpíurnar ekki nógu stílíseraðar þegar þær hittust til að tilkynna um endurkomu sveitarinnar. Þegar maður skoðar myndina er það þó í rauninni aðallega Geri sem stingur í stúf enda eru allar hinar í svörtu og Mel B í svörtu og rauðu. Geri er hins vegar í skósíðum blómakjól sem passar alls ekki inn í heildarmyndina. 1.8.2007 04:15 Bar Dóru Takefusa opnaður í kvöld 1.8.2007 01:00
Sjá næstu 50 fréttir
Tveir VIP miðar til Hollywood Dansþátturinn So you think you can dance hefur slegið í gegn og svo virðist sem hver sem á horfir heillist af þessari fallegu íþrótt. Og spurningin er; hefur dansæði gripið um sig á Íslandi? 7.8.2007 21:07
Bogi kaupir 150 milljóna glæsivillu Milljarðamæringurinn Bogi Pálsson, stjórnarformaður Flögu og stjórnarmaður í Exista, hefur fest kaup á glæsilegu 150 milljóna einbýlishúsi á Arnarnesinu. 7.8.2007 17:26
Samdi texta fyrir Pete Kate Moss og Pete Doherty eru aftur farin að rugla saman reitum en þó eingöngu á tónlistarsviðinu í þetta sinn. Pete hefur greint tímaritinu Daily Mirror frá því að Kate hafi aðstoðað hann við að skrifa textann í laginu You Talk á síðustu plötu hljómsveitarinnar Babyshambles. Pete segist hafa skrifað lagið á meðan Kate sat í rúminu. 7.8.2007 16:07
Kristinn kaupir í Skuggahverfi Kristinn Björnsson var fyrstur til að kaupa íbúð í öðrum áfanga íbúðabygginga í 101 Skuggahverfi. Íbúðin sem hann hefur fest kaup á er á 10. hæð að Lindargötu 37. Hún er 254 fermetrar og þar með er talinn 100 fermetra þakgarður. Íbúðin er með þeim stærri sem boðnar eru út í þessum áfanga og kostar 145 milljónir króna, en er án allra innréttinga. 7.8.2007 15:07
Ættleiðingarferli Madonnu í uppnámi Ættleiðing söngkonunnar Madonnu á hinum unga David Banda frá Malaví gæti verið í uppnámi eftir að embættismanni sem ætlað var að fylgja ættleiðingunni eftir var bannað að ferðast til Bretlands. Félagsráðgjafinn Penstone Kilebame átti að fylgjast með ættleiðingarferlinu og voru tvær ferðir áætlaðar á heimili Madonnu í London en yfirvöld í Malaví stöðvuðu heimsóknirnar. 7.8.2007 11:09
Hundar Ving Rhames drápu mann Allt lítur út fyrir að tveir bolabítar í eigu bandaríska kvikmyndaleikarans Ving Rhames hafi drepið fertugan umsjónarmann á heimili leikarans. Maðurinn fannst látinn á lóð heimilis Rhames í Los Angeles. Hann var þakinn hundabitum. 4.8.2007 18:56
Nýstárleg ljósmyndasýning opnuð á Eskifirði Sýning á myndum eftir sjö eskfirska ljósmyndara var opnuð á Eskifirði um helgina. Sýningin er sett upp á nýstárlegan hátt, og er ætlað að vera skúlptúr um leið og hún er rammi um sýninguna. Verkið stendur við sundlaugina á Eskifirði. 4.8.2007 12:08
Stjörnufræðingurinn Brian May Gítarleikari Queen, Brian may, hefur lagt fram doktorsverkefni sitt í stjörnufræði. May hóf doktorsnámið við Imperial College í London fyrir heilum 36 árum en lagði það til hliðar til að einbeita sér að ferli sínum með Queen. Hann hefur nú tekið upp þráðinn að nýju og stefnir ótrauður að doktorsgráðu. 3.8.2007 15:29
Hvað þarf að hafa með? Þeir sem ætla á útihátíð um helgina verða hafa margt í huga áður en lagt er af stað. Ísland í dag fór á rúntinn og talaði við þá sem þjónusta ferðalanga - og byrjaði á þeim stað sem er líklega fjölsóttastur fyrir þessa helgi. 2.8.2007 21:48
Nicole Richie ER ólétt Stjarnan smávaxna staðfesti þrálátar sögusagnir um óléttu sína í viðtali við Diane Sawyer sem verður sjónvarpað í Good Morning America þættinum á ABC sjónvarpsstöðinni. Richie er komin fjóra mánuði á leið með fyrsta barn hennar og kærastans Joel Maddens. Í viðtalinu tjáði hún sig einnig um yfirvofandi fangelsisvist sína vegna ölvunaksturs,sem hún sagði vera sína leið til að axla ábyrgð á gjörðum sínum. 1.8.2007 10:40
Reiði Guðanna vinnur til verðlauna á Stony Brook Heimildarmyndin ,,Reiði guðanna" eftir Jón Gústafsson vann til verðlauna á Stony Brook kvikmyndahátíðinni í New York um helgina. Myndin fjallar um gerð myndarinnar Bjólfskviðu, þar sem ýmislegt gekk á. Reiði Guðanna hefur gengið vel á hinum ýmsu kvikmyndahátíðum og hefur almennt hlotið betri gagnrýni en umfjöllunarefnið. 1.8.2007 09:58
Hún er ömurleg en ég elska hana Rokkróninn Pete Doherty gerði í gær sjarmerandi tilraun til að endurheimta ástir Kate Moss. Leiðin sem hann valdi var viðtal við breska götublaðið Mirror. 1.8.2007 07:00
Kryddpíur vantar stílista Mörgum þótti Kryddpíurnar ekki nógu stílíseraðar þegar þær hittust til að tilkynna um endurkomu sveitarinnar. Þegar maður skoðar myndina er það þó í rauninni aðallega Geri sem stingur í stúf enda eru allar hinar í svörtu og Mel B í svörtu og rauðu. Geri er hins vegar í skósíðum blómakjól sem passar alls ekki inn í heildarmyndina. 1.8.2007 04:15
Paris Hilton gerð arflaus Fangelsisvist, djammlíf og grasreykingar Parisar Hilton féllu ekki betur í kramið hjá afa hennar en svo að hann hefur gert hana arflausa. Afinn, Barron Hilton, er sonur stofnanda Hilton keðjunnar og átti þangað til nýlega rúm fimm prósent hlutabréfa í henni. 31.7.2007 13:51
Spilað gegn kynbundnu ofbeldi á Grand Rokk Baráttutónleikar gegn kynbundnu ofbeldi verða haldnir á morgun á skemmtistaðnum Grand Rokk í Reykjavík. Karlahópur femínistafélagsins, Vdags samtökin og Jafningjafræðslan standa fyrir tónleikunum sem hefjast klukkan átta. Í tilkynningu frá fyrrnefndum samtökum kemur fram að þau vilji leggja í sameiningu áherslu á mikilvægi þess að fólk taki virkan þátt í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi 31.7.2007 13:40
Pete Doherty vill fá Kate aftur Eiturlyfjagosinn Pete Doherty vill fá Kate Moss aftur. Súpermódelið henti Doherty út fyrir skemmstu þegar hún komst að því að hann hefði verið að lúlla hjá suður-afrískri fyrirsætu. ,,Ég elska hana ennþá. Hún hryggbraut mig" sagði söngvarinn við breska dagblaðið The Sun. 31.7.2007 12:00
Britney skilin Britney Spears og Kevin Federline eru loksins skilin, en gengið var frá pappírunum í dag. Þau giftust í október árið 2004 átta mánuðum eftir að skammlíft hjónaband Spears og æskuvinar hennar var ógilt. Söngkonan sótti svo um skilnað frá Federline 7. nóvember í fyrra, og bar við óleysanlegum ágreiningi. Hjónin eignuðust saman synina Sean Preston, sem nú er 22 mánaða gamall, og hinn 10 mánaða gamla Jayden James. Þau hafa deilt forræði yfir drengjunum hingað til, en lögfræðingur Spears vildi ekki gefa upp hvaða fyrirkomulag yrði á þeim málum í kjölfar skilnaðarins. 31.7.2007 11:30
Rob ráðleggur Lindsay Margir hafa tjáð sig um mál Lindsayar Lohan að undanförnu og er grínistinn Rob Schneider sá nýjasti og hefur hann afar sterkar skoðanir á málinu. 31.7.2007 05:00
Afar krefjandi ævintýri Þrír starfsmenn Arctic Truck tókust á hendur svaðilför ásamt sjónvarpsmönnunum frægu úr bílaþættinum Top Gear, sem sýndur er á BBC við miklar vinsældir. 31.7.2007 01:45
Íslendingar flykkjast á Simpsons Bíómyndin um vinsælustu fjölskyldu heims virðist ætla að ganga vel ofan í Íslendinga, en myndin sló fjölda aðsóknarmeta um helgina. Hvorki fleiri né færri en 16.007 Íslendingar sáu myndina á fyrstu 3 sýningardögum og halaði hún inn rúmlega 12.5 milljónum króna. Myndarinnar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu, en hún hefur verið tæp sex ár í vinnslu. 30.7.2007 12:54
Eddie Murphy trúlofast Grínistinn Eddie Murphy hefur trúlofast kærustu sinni til tíu mánaða, Tracey Edmonds. Trúlofunarhringurinn var ekkert slor, með risavöxnum átta karata gulum demanti. 30.7.2007 11:47
Tom Cruise og Nicole Kidman sameinuð Leiðir Nicole Kidman og Tom Cruise liggja saman á ný í haust þegar þau verða bæði við tökur í Bablesburg stúdíóunum í Berlín, þar sem þau leika hvort í sinni helfararmyndinni. 30.7.2007 11:09
Íslenskur Simpsons þáttur endursýndur vegna truflana Simpsons þátturinn sem sýndur var á Stöð 2 í gærkvöldi verður endursýndur á Stöð 2 Sirkus í kvöld klukkan 19.45 vegna truflana í útsendingu í gær. Um er ræða 400. þáttinn um hina vinsælu Simpsons-fjölskyldu og hefur hann af því tilefni verið talsettur á íslensku. 28.7.2007 15:45
Penelope Cruz og Bono nýtt par? Miklar vangaveltur eru nú uppi um mögulegt samband Penelope Cruz og Bono, söngvara U2. Það sást til skötuhjúanna skemmta sér saman á franska næturklúbbnum VIP Room. Svo fóru þeim heim um fjögurleitið, í sama bíl. 27.7.2007 12:05
Beyoncé dettur kylliflöt Söngkonan Beyoncé Knowles varð fyrir því óláni að hrynja niður stiga á tónleikum sínum í Florida fyrr í vikunni. Hún virðist þó hafa sloppið með skrekkinn því hún stóð snöggt á fætur og hélt áfram að syngja eins og ekkert hefði í skorist. Sumir áhorfenda voru meira að segja á því að söngkonan hefði ekki misst úr eitt einasta orð. 27.7.2007 05:45
Leno gerir grín að Lindsay Leikkonan Lindsay Lohan var tekin öðru sinni fyrir ölvunarakstur í vikunni líkt og fram kom í Fréttablaðinu. Handtakan kom sér illa fyrir fleiri en Lindsay því þáttastjórnandinn Jay Leno hafði bókað hana í þáttinn sinn sama kvöld. Þar var henni ætlað að kynna nýja mynd sína I Know Who Killed Me. 27.7.2007 05:00
Damon á frægðarstétt Leikarinn Matt Damon fékk nýverið stjörnu sína á frægðarstétt Hollywood. Damon segist hafa ungur að árum horft á stéttina og dreymt um að komast þangað einn daginn. 27.7.2007 04:45
Nýr þáttur í anda Beðmálanna Aðdáendur Beðmála í borginni geta glaðst því nýr þáttur frá hugmyndasmið Sex and the City, Darren Star, er í vinnslu fyrir sjónvarpsstöðina ABC. 27.7.2007 02:45
Björgólfur með einkaþjálfara í fullu starfi Ríkasti maður Íslands, Björgólfur Thor Björgólfsson, er mikið á ferð og flugi starfs síns vegna. Það aftrar honum þó ekki frá því að gefa sér tíma til að sinna heilsunni og þegar hann er staddur hér á landi æfir hann af krafti í Laugum. 27.7.2007 01:45
Maraþon í hjólastól Hjónin Guðrún og Sigurður ætla að hlaupa Glitnismaraþonið þann átjánda águst næstkomandi. Það væri kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir það að Sigurður ætlar að ýta Guðrúnu í hjólastól alla leiðina - 42 kílómetra. 26.7.2007 20:18
Spector saklaus? Allt er komið á hvolf í þrálátum réttarhöldum yfir tónlistarframleiðandanum Phil Spector, sem er sakaður um morð á leikkonunni Lönu Clarkson. Réttarlæknir sem bar vitni í réttarhöldunum á dögunum heldur því fram að líklega hefði leikkonan framið sjálfsmorð og Spector hvergi komið þar nærri. 26.7.2007 14:54
Syndug hjörtu á Rauðasandi Laugardaginn 28. júlí verður efnt til menningarkvölds að Saurbæ á Rauðasandi undir yfirskriftinni: Við klukknahljóm syndugra hjarta. Tilefnið er ný útgáfa Bókaútgáfunnar Bjarts á skáldsögunni Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson. 26.7.2007 12:57
Marc Jacobs til Íslands Aðdáendur hins heimsfræga hönnuðs Marc Jacobs eru væntanlega glaðir núna því í fyrsta sinn eru vörur frá honum væntanlegar í búð á Íslandi. Það er verslunin Kronkron sem mun selja flíkur úr ódýrari línu hans, Marc by Marc Jacobs en þessa dagana eru „Gleðidagar“ í búðinni þar sem verið er að rýma fyrir Marc ásamt öðrum nýjum og hressandi vörum. 26.7.2007 07:30
Hefur varla séð sig í sjónvarpinu „Þetta hefur gengið betur en ég bjóst við,“ segir Einar Magnús Einarsson sem nýverið hóf störf sem veðurfréttamaður í Ríkissjónvarpinu. Einar birtist fyrst á skjánum á miðvikudaginn í síðustu viku og hefur sýnt fína takta þrátt fyrir reynsluleysið. 26.7.2007 03:15
Guðjón í Oz kaupir Næpuna af Baltasar Guðjón Már Guðmundsson, gjarnan kenndur við Oz, hefur keypt hið sögufræga hús Næpuna af hjónunum Baltasar Kormáki og Lilju Pálmadóttur sem auglýstu húsið til sölu í júnímánuði. 26.7.2007 01:30
Köttur spáir fyrir um dauða vistmanna á hjúkrunarheimili Köttur nokkur á hjúkrunarheimili á Rhode Island í Bandaríkjunum hefur óvenjulegan hæfileika til að segja fyrir um andlát vistmanna þar. Þegar Óskar, eins og kötturinn er nefndur, hjúfrar sig upp að einhverjum, veit starfsfólk heimilisins að viðkomandi á líklega ekki langt eftir. Þetta hefur Óskar gert í 25 skipti, og hafa vistmennirnir allir verið látnir innan fjögurra klukkustunda. Nú er svo komið að starfsfólk spítalans er farið að hringja í ættingja fólks ef að Óskar sýnir því áhuga, til að vara þá við yfirvofandi dauða þess. 26.7.2007 00:00
Lohan í fangabúningi Það er ekki búið að setja Lindsay Lohan inn ennþá, en það er samt búið að klæða hana í fangabúning. Vaxmyndina af henni að minnsta kosti. Vaxmyndasafn Madame Tussauds í New York ákvað í kjölfar annarar handtöku stjörnunnar fyrir ölvunarakstur að klæða styttuna af henni í fangelsisröndóttan samfesting. Safnið gerði það sama við styttuna af Paris Hilton í síðasta mánuði meðan hún afplánaði dóm sinn fyrir ölvunarakstur. 25.7.2007 10:25
ÍSMÓT í byrjun september Íslandsmeistaramót hársnyrta, snyrtifræðinga, gullsmiða, klæðskera og ljósmyndara, ÍSMÓT 2007, fer fram í nýju Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal helgina 1. og 2. september næstkomandi. 24.7.2007 10:47
Frá Royal Albert Hall til Íslands Þrír af aðalgestum Kirkjulistahátíðar koma fram á tónleikum í tónleikaröðinni „BBC Proms" í Royal Albert Hall aðeins örfáum dögum áður en þeir koma til landsins og taka þátt í flutningi á h-moll messunni eftir Bach við opnun Kirkjulistahátíðar í Hallgrímskirkju 11.ágúst. 23.7.2007 12:19
Syndug hjörtu á Rauðasandi Laugardaginn 28. júlí verður efnt til menningarkvölds að Saurbæ á Rauðasandi undir yfirskriftinni: Við klukknahljóm syndugra hjarta. Tilefnið er ný útgáfa Bókaútgáfunnar Bjarts á skáldsögunni Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson. 23.7.2007 11:43
Gönguferð um Vatnsdalsárgil Laugardaginn 28. júlí stendur Ferðaþjónustan á Hofi í Vatnsdal fyrir gönguferð með Vatnsdalsárgili. Þar eru margir fossar, sem þykja hver öðrum fallegri. Má þar nefna Skínanda, Kerafoss, Skessufoss og Dalsfoss. 23.7.2007 10:18
Kate Moss flýr Doherty Fyrirsætan Kate Moss er endanlega búin að fá nóg af Pete Doherty. Hún hefur skipt um lás á íbúðinni sinni og leitar að húsi. 23.7.2007 05:00
Keppni við Akranes gæti orðið ljúfsár hefnd „Okkur hafa borist þó nokkrar tillögur en það hefur ekki enn verið valið í liðið. Einhver nöfn hafa þó borið oftar á góma en önnur,“ segir Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar. 23.7.2007 04:45
Jamie Kennedy í annarlegu ástandi Grínistinn og Íslandsvinurinn Jamie Kennedy mætti á tölvuleikjaráðstefnuna E3 á dögunum og var með uppistand. Það hefði verið í góðu lagi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að Jamie var í afar annarlegu ástandi með úfið hár og í fráhnepptri skyrtu. 23.7.2007 03:00