Fleiri fréttir

Sædýrasafn innan tveggja ára

Til stendur að opna stórt og veglegt sjávardýrasafn í Reykjavík innan tveggja ára. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn fær þess vegna nýja lóð og verður stækkaður um fjórðung.

Tími tónlistarmanna líka peningar

Hljómlistarmenn hafa rætt að setja verði upp verðmat á framlag þeirra á styrktarskemmtunum, segir Björn Th. Árnason formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna.

Gefur víst út fyrir jólin

"Það sem gerði útslagið var fjöldi áskorana frá fólki sem las fyrsta bindið og sagði að ég mætti ekki svíkja það um annað bindi," segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, en hann ætlar að gefa út annað bindi ævisögu Halldórs Laxness fyrir þessi jól, þrátt fyrir að Almenna bókafélagið ætli ekki að gefa það út.

Dregið í VefTívíleik Vísis

Síðastliðinn mánudag var dregið í VefTívíleik Vísis. Hátt á sjötta þúsund manns tóku þátt í leiknum og var einn heppinn þátttakandi dreginn út úr þeim hópi. Vinningshafinn er Ingunn Erla Sævarsdóttir og hlaut hún í verðlaun nýjan og fullkominn NOKIA 6670 farsíma frá Hátækni.

Dregið í ferðaleik Vísis

Rúmlega 17.000 manns tóku þátt í ferðaleik Vísis og gerðu Vísi að upphafssíðu sinni. Fimm heppnir þátttakendur voru dregnir út úr þessum stóra hópi í vikunni og hlaut hver að launum gjafabréf frá Iceland Express upp á flugmiða fyrir tvo til London eða Kaupmannahafnar.

Einar og Sjón tilnefndir

Einar Kárason og Sjón eru tilnefndir fyrir hönd Íslendinga til Norrænu bókmenntaverðlaunanna 2005. Einar er tilnefndur fyrir bók sína Stormur, en Sjón fyrir Skugga-Baldur. Báðar komu bækurnar út á síðasta ári.

Mannakornshelgi á Kringlukránni

Það verður sannkölluð tónlistarveisla, sem Kringlukráin býður gestum til nú um helgina. Þá verður gestum staðarins boðið upp á svokallaða Mannakornshelgi bæði föstudags- og laugardagskvöld.

Bullpóstur um vírusa á Bloggi

Svo virðist sem taugar keppinauta Vísis séu nú þandar til hins ítrasta og þeir hinir sömu telji allt leyfilegt í stríði og friði. Bullpóstur þess efnis að skæður vírus sé á bloggsíðunni gengur nú um netið en aðstandendur Vísis geta fullvissað notendur um að svo er ekki, taugaveiklun keppinautanna skýrir póstsendinguna.

Sessý & Sjonni á Café Victor

Næstkomandi fimmtudagskvöld, 2. desember, verða Sessý & Sjonni með tónleika á Cafe Victor. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 22:30 og verða í rúmlega tvo tíma með stuttu hléi.

Mannréttindi að eiga uppþvottavél

Aðalbjörg Guðgeirsdóttir fékk sér skúffur sem eru uppþvottavélar og kom þeim fyrir sitthvoru megin við vaskinn.

Friður og ró við arineld

Margir eiga eflaust eftir að orna sér við elda frá örnum og kamínum í vetur, njóta þess að hlusta á snarkið og horfa í glæðurnar.

Elegans og hátíðleiki

Þjóðmenningarhúsið er flottasta húsið í bænum að mati Lísbetar Sveinsdóttur listakonu.

Smækkuð mynd af samfélagi

Nútíma íslenskur arkitektúr hefur að miklu leyti fengið að brjótast út í öllum þeim skólabyggingum sem hafa risið síðustu árin víðsvegar um landið og er áhugavert að skoða hugmyndirnar á bakvið þær.

Julia Roberts eignast tvíbura

Óskarsverðlaunaleikkonan Julia Roberts hefur eignast tvíbura með eiginmanni sínum, kvikmyndatökumanninum Danny Moder. Julia hefur legið á sjúkrahúsi undanfarinn mánuð vegna erfiðleika á meðgöngu. Nú hefur hún fætt dreng og stúlku sem nefnd hafa verið Phinnaeus og Hazel og heilsast öllum vel.

Um 100 þúsund söfnuðust

Um hundrað þúsund krónur hafa safnast handa fjölskyldu Feribu, litlu stúlkunnar sem lést í sjálfsmorðsárásinni í Kabúl, þeirri hinni sömu og þrír íslenskir friðargæslumenn slösuðust í.

Metaðsókn í meindýraeyðingu

Færri komust að en vildu á námskeið í eyðingu meindýra sem haldið var í síðustu viku. Veðurblíðan síðastliðin sumur er megin ástæðan fyrir auknum áhuga enda hefur meindýrum fjölgað.

Hannes gefur ekki út fyrir jól

Annað bindi ævisögu Halldórs Laxness eftir Hannes Hólmstein Gissurarson prófessor kemur ekki út fyrir þessi jól að sögn Bjarna Þorsteinssonar, útgáfustjóra Almenna bókafélagsins sem gaf fyrsta bindið út.

Presturinn á Kirkjustétt

Séra Sigríður Guðmarsdóttir, prestur í Grafarholti, er nýflutt á Kirkjustéttina. Við sömu götu mun hverfiskirkjan rísa þegar þar að kemur. Sigríður prestur hafði hug á að búa við Prestastíg en hefur ekki aldur til.

Halli var frábær

Haraldur Reynisson tónlistarmaður hélt stofutónleika á Holtastíg 11 í Bolungarvík á laugardagskvöldið en þar búa hjónin Ingibjörg Vagnsdóttir og Ketill Helgason með þremur börnum sínum.

Orð Guðna breyta litlu

Pylsusala virðist ekki hafa tekið neinn sérstakan kipp þrátt fyrir hvatningu landbúnaðarráðherra á dögunum til íslenskrar æsku þess efnis að borða fleiri pylsur.

Þýsk sjónvarpsstöð sýnir Latabæ

Þýska sjónvarpsstöðin Super RTL hefur ákveðið að sýna sjónvarpsþáttinn um íbúa Latabæjar. Sjónvarpsstöðin er sú fjórða sem undirritar samning við fyrirtækið LazyTown Entertainment.

Fyrirsæta auglýsir hamborgara

Fyrirsætan grannvaxna, Heidi Klum, mun segja fólki allt um ágæti þess að snæða hamborgara og franskar næstu tvö árin. Hún hefur skrifað undir tveggja ára samning við hamborgararisann McDonalds þess efnis að vera andlit fyrirtækisins.

Erill í verslunum í Bandaríkjunum

Það er jólastemning víðar en á Íslandi því jólainnkaupin eru hafin af fullum krafti í Bandaríkjunum. Í New York hófst hin eiginlega jólaverslun í gær, föstudaginn svarta, en það nefna verslunareigendur alla jafna daginn eftir þakkargjörðarhátíðina. Margir reyndu að lokka fólk til sín með alls konar gylliboðum.

Laugavegsganga hundanna

Óvenjumargir ferfætlingar spókuðu sig á Laugaveginum í dag. Þar voru félagar í Hundaræktarfélagi Íslands á ferð ásamt hundum sínum í árlegri Laugavegsgöngu. Ekki er annað vitað en að bæði tví- og ferfætlingar hafi skemmt sér hið besta í miðborg höfuðstaðarins í dag.

Fókus býður í bíó

Fókus fylgir DV í dag og býður á eðalgrínið Without a Paddle. Einnig segist Hreimur í Landi og sonum hafa fengið nóg af poppstjörnunni, vill ekki selja á sér rassgatið. Freysi, Brynjar Már og Kristján í Ópinu spiluðu jólaspilin yfir bjór. Ruslana fór í hungurverkfall, þrátt fyrir að segja Fókus að hún tæki ekki pólitíska afstöðu -- og margt fleira.

Best að taka sig ekki of alvarlega

Forsíðu Fókus, sem fylgir DV í dag, prýðir hinn góðkunni Hreimur Örn Heimisson söngvari. Hann hefur haft hægt um sig á þessu ári, fékk nóg af poppbransanum og ákvað að taka sér smá hlé. Hann réð sig því í "venjulega" vinnu. Hreimur segir poppstjörnuhlutverkið ekki vera nærri eins glamúrus og margir vilja halda.

Í hungurverkfall eftir Fókusviðtal

Fyrir nokkrum vikum setti Fókus, sem fylgir með DV í dag, sig í samband við Ruslönu, sem sigraði Eurovision svo eftirminnilega með laginu Wild Dances. Þá var nýafstaðin forkosning til forseta í Úkraínu og Ruslana sagðist ekki ræða pólitík opinberlega. Sú staða breyttist með dramatískum hætti á miðvikudaginn.

Strandverðir lélegastir

Breskir sjónvarpsáhorfendur eru á því að Strandverðir séu lélegasti bandaríski sjónvarpsþáttur frá upphafi. Í nýlegri könnun sjónvarpstímarits í Bretlandi kemur einnig fram að þættirnir um Simpson-fjölskylduna þykja þeir bestu sem komið hafa frá sjónvarpsrisanum í vestri.

Haukur M bestur Íslendinga á imdb

Fókus, sem fylgir DV í dag, fór í himnaríki kvikmyndanördsins, International Movie Data Base. Þar eru upplýsingar um nánast allar kvikmyndir sem gerðar hafa verið og þar að auki er birt einkunnargjöf. Flestallar íslensku myndirnar eru á vefnum og hér má sjá hvernig þær koma út, í röð frá bestu myndinni til þeirrar verstu.

Kveikja í gítarnum á sviðinu

Fókus, sem fylgir DV í dag, fjallar ítarlega um allt sem er að gerast í næturlífi landans. Þar á meðal um tónleika Nine Elevens á Grand Rokk í kvöld. Hversu oft kemst maður í tæri við rokkhljómsveit með svo mikið af effektum að hún þarf að ráða einn fremsta brellumeistara íslenska kvikmyndabransans til að halda utan um allt havaríið?

Fókus selur Bjarkarbjöllu

Blaðamenn Fókus, sem fylgir DV í dag, komust fyrir skemmstu yfir bjöllu sem nú hefur verið sett á uppboðsvefinn eBay.com. Bjallan er smá í sniðum og svo sem ekkert merkileg nema ef vera skildi fyrir þær sakir að hafa sérst í nýjasta myndbandi skærustu stjörnu Íslands, Bjarkar Guðmundsdóttur.

Hoffmann með ofnæmi fyrir kókaíni

Leikarinn Dustin Hoffmann segist hafa neyðst til þess að hætta að taka kókaín, þar sem hann hafi ofnæmi fyrir því. Hann segist hafa orðið afar andstuttur í hvert skipti sem hann hafi tekið efnið og hann hafi að lokum orðið að hætta að taka það inn, þar sem að þegar verst lét, hafi hann átt við önduarerfiðleika að stríða vikum saman eftir notkun þess.

Hollenskt Queen-koverband

Fókus, sem fylgir DV á föstudögum, fjallar ítarlega um skemmtanalíf landans að venju. Athygli er vakin á Queen-koverbandinu Miracle, sem er frá Hollandi og treður upp í Reykjavík um helgina. Aðdáendaklúbbur Queen á Íslandi flutti kraftaverkadrengina inn.

32 manna úrslit í IDOL halda áfram

32 manna úrslit í IDOL stjörnuleit halda áfram annað kvöld. Þau hófust á Stöð 2 í síðustu viku og þá stigu átta söngvarar á svið. Annað kvöld stígur nýr átta manna hópur á svið og fara tveir úr hópnum áfram í lokaúrslit keppninnar sem hefjast í Smáralind eftir áramótin.

Á eina kryddpíu eftir

Hjartaknúsarinn Robbie Wiliams segist hafa sængað hjá fjórum af kryddpíunum sálugu en vill ekki gefa uppi hverjar þær eru. Robbie lýsti þessu yfir í sjónvarpsviðtali í Argentínu þar sem hann gortaði sig af því að eiga aðeins eftir að sænga hjá einni til þess að klára dæmið.

Graffití í nýja herbergið

Rósa Stefánsdóttir og Ragnar Hilmarsson, ásamt börnum sínum Alex og Birtu, eru nýflutt í íbúð í Laugarneshverfinu. Alex litli hefur yndi af hjólabrettum og veggjakroti, eða graffítí, og ákvað því að hafa herbergið sitt á nýja staðnum örlítið öðruvísi.

Mikill skortur á blóði

Blóðbankinn sendir frá sér neyðarkall því skapast hefur mikil og rík þörf fyrir blóðhluta hjá sjúkrahúsunum vegna sjúkdóma, bráðra veikinda, aðgerða og slysa á síðustu dögum og vikum. Blóðbankinn leggur sérstaka áherslu á að fá virka blóðgjafa í öllum blóðflokkum til að koma og gefa blóð.

Fréttatími í hádeginu vegna bruna

Vegna brunans verða aukafréttir á Stöð 2 í hádeginu klukkan tólf og verður fréttatími Bylgjunnar og Stöðvar 2 því sameiginlegur og sendur út á samtengdum rásum.

Vill hlúa betur að börnum

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar Erfðagreiningar, segir að nauðsynlegt sé að hlúa betur að börnum á Íslandi. Hann segir að börn á Íslandi gætu haft það mun betra ef allir leggist á eitt til þess að búa þeim góðan jarðveg. Hann segir Ísland mjög hratt samfélag og því sé sérlega mikilvægt að haldið sé utan um börn á meðan foreldrar sinni vinnu.

Nýtt heimili í Drápuhlíð

Valdimar Gunnar Hjartarson og Stella Vestmann falla alveg í skilgreininguna "fátækir námsmenn", eru tuttugu og tveggja ára og bæði í Háskólanum, hún í stjórnmálafræði og hann í lögfræði.

Leiðist eldhúsið

Erla Ragnarsdóttir kennari og söngkona í Dúkkulísunum segist vilja vera þar sem hún hafi góða yfirsýn yfir hlutina á heimilinu og tekur fram að eldhúsið sé ekki í uppáhaldi

Sjá næstu 50 fréttir