Fleiri fréttir

Glókollur um borð í Ægi

Glókollur, minnsti fugl Evrópu, flaug inn um brúargluggann á varðskipinu Ægi í gærmorgun en ákvað svo að taka flugið til lands í gærkvöldi eftir góða dvöl um borð yfir daginn. Fuglinn hóf að verpa hér á landi fyrir átta árum og hefur nánast orðið sprenging í útbreiðslu þeirra.

Bílabíó á miðbakkanum í kvöld

Bílabíó verður á miðbakkanum í Reykjavíkurhöfn í kvöld klukkan 21 í tengslum við Nordisk Panorama þar sem sýndar verða skemmtilegar norrænar stuttmyndir. Ætlunin var að bjóða upp á bílabíóið í gær en fresta varð sýningu um sólarhring vegna veðurs.

Brauðgerðarborð frá Frakklandi

Ólöf Breiðfjörð, húsmóðir og heimskona, á forláta antík brauðgerðarborð sem hún heldur mikið upp á. "Svona borð fyrirfinnast aðeins í Suður-Frakklandi og á Norður-Spáni. Þau voru notuð til að gera brauð og borðið er allt hugsað með tilliti til þess hvernig það kemst í snertingu við brauðið.

O´Brien tekur við af Leno

Konungur spjallþáttanna Jay Leno hefur fundið arftaka sinn í hinum knáa Conan O´Brien. Leno ætlar að hætta með þátt sinn árið 2009 og hefur verið ákveðið að Conan taki við honum. Leno segir að árið 2009 verði hann orðinn 59 ára gamall, búinn að starfa við þáttinn í 17 ár og þá verði tímabært að hverfa af vettvangi.

Haustmynd af garðinum.

Haustið setur svip sinn á garðana. Tré og runnar skarta gulu og rauðu en dregið hefur úr blómskrúðinu. Ein og ein blómategund lætur þó ekki koma sér á kné. Til dæmis brosir morgunfrúin enn framan í heiminn því hún endist betur en flest önnur sumarblóm. Á þessum tíma er ágætt að líta yfir garðinn með gagnrýnum augum og athuga hvort einhverju þurfi að breyta.

Heimsmet í koddaslag

Vel á þriðja þúsund nemendur gera nú tilraun til þess að slá heimsmetið í Koddaslag í Suður Afríku. Núverandi heimsmet sem sett var í Kansas, er koddaslagur 640 manna, en nemendurnir í Suður Afríku eru yfir 2400 talsins og því líklegt að heimsmetið verði slegið með glæsibrag. Nemendunum verður gefið frí frá kennslustundum á meðan á athæfinu stendur.  

Tortímandi og fylkisstjóri?

Framleiðendur myndanna um tortímandann hyggjast enn á ný leita til Arnolds Schwarzenegger, jafnvel þó að hann sé kominn í pólitík. Talsmaður fyrirtækisins sem framleiðir myndina, segir að allt verði reynt til þess að fá Arnie til þess að mæta til leiks enn á ný.

Rokktónleikar við Kínamúrinn

Þúsundir Kínverja sóttu rokktónleika sem haldnir voru við rætur Kínamúrsins í gærkvöld. Margt heimsfrægra poppstirna kom fram á þessum fyrstu rokktónleikum erlendra tónlistarmanna sem haldnir hafa verið við Kínamúrinn. Má þar nefna Aliciu Keys, Nellie McKay, Cyndi Lauper og Boyz to Men.

Ellilífeyrisþegi ættleiddur

Ítalskur ellilífeyrisþegi hefur verið ættleiddur eftir að hafa auglýst eftir „kjörforeldrum“ í dagblaði í síðasta mánuði. Hinn áttræði Giorgio Angelozzi hefur búið einn með sjö köttum rétt fyrir utan Róm síðan eiginkona hans lést árið 1992.

Þeir ríku verða ríkari

Þeir ríku verða sífellt ríkari miðað við lista tímaritsins <em>Forbes</em> um fjögur hundruð ríkustu Bandaríkjamennina. Þrjú hundruð og þrettán þeirra eru milljarðamæringar í dollurum talið. Það er töluverð aukning frá því í fyrra þegar milljarðamæringarnir voru tvö hundruð sextíu og tveir.

Cat Stevens ekki velkominn

Bandaríkjamenn segja að Yusuf Islam, sem áður hét Cat Stevens, sé ekki velkominn til Bandaríkjanna þar sem hann tengist aðilum, sem gætu verið hryðjuverkamenn. Þetta er skýringin á því, af hverju farþegaflugvél á leið frá Lundúnum til Washington var beint til Bangor í Maine þegar nafnið Yusuf Islam kom í ljós á farþegalistanum.

Hjónaband Britney ógilt?

Nýjasta hjónaband poppdísarinnar Britney Spears er hugsanlega ógilt. Britney gekk um helgina að eiga ástmann sinn, en það er í annað skipti á þessu ári sem hún gengur í hjónaband. Nú segja fjölmiðlar vestan hafs að líkast til sé hjónavígslan ekki lögleg, þar sem ekki hafi verið gengið frá tilskyldum leyfum.

Á skjáinn upp úr áramótum

Sjónvarpið hefur tryggt sér sýningarrétt á þáttunum um Latabæ (eða <em>Lazytown</em>). Gengið var frá samningum um miðja vikuna í höfuðstöðvum Latabæjar í Garðabæ, þar sem þættirnir eru teknir upp.

CBS ekki sáttir

Forsvarsmenn bandaríska sjónvarpsrisans CBS hafa lýst yfir óánægju með sektina sem þeim hefur verið gert að greiða fyrir að sína geirvörtu Janet Jackson í hálfleik á Superbowl leiknum í febrúar. Í yfirlýsingu frá CBS segir að þó að stöðin harmi atvikið, telji hún jafnframt að engin lög hafi verið brotin.

Cat Stevens skilinn eftir

Flugvél á leið frá Lundúnum til Washington var snúið til Bangor í Maine-ríki í gær þar sem nafn á farþegalista vélarinnar þótti grunsamlegt. Farþeginn hét Yusuf Islam, og var áður þekktur sem Cat Stevens, poppari og höfundur laganna "Moonshadow" og "Wild World" á áttunda áratugnum.

Britney vill ekki tapa á hjúskap

Rómantíkin nær ekki alla leið hjá poppstjörnunni sakleysislegu Britney Spears. Hún var ekki búin að vera gift unnusta sínum Kevin Federline nema í tæpa þrjá daga þegar hún gerði honum skylt að skrifa undir sáttmála þess efnis að hann fengi ekkert af þeim rúmu átta milljörðum íslenskra króna sem Britney á, færi svo að upp úr hjónabandinu slitnaði.

Hafmeyjar í sjávarháska

Inga Björg Stefánsdóttir söngkona á málverk inni í stofu hjá sér sem hún man eftir frá því að hún man fyrst eftir sjálfri sér: "Myndin er nokkurskonar sjávarlandslag og á henni eru marglyttur, hafmeyjar, kastalar og skip. Hún er eftir Aðalbjörgu Sófaníasdóttur frá Loðmundarfirði sem var gift ömmubróður mínum og var mikið náttúrubarn.

Plexígler í uppáhaldi

Plexígler er í miklu uppáhaldi hjá Þórunni Högnadóttur, hönnuði og sjónvarpskonu. "Það eru ótrúlegir möguleikar með þetta efni, hægt er að velja hvaða lit sem er, efnið er til í mörgum þykktum, auðvelt er að beygja það og sveigja og best er hvað það er ódýrt.

Berun Janet dýr

Brjóstaberun Janet Jackson í hálfleik á Super Bowl leiknum fyrr á þessu ári mun samanlagt kosta þær 20 sjónvarpsstöðvar CBS sem athöfnina sýndu rúma hálfa milljón Bandaríkjadala. Hver stöðvanna 20 hefur verið sektuð um tæpa 30 þúsund dollara fyrir að brjóta siðsemisreglur með sýningunni.

Jóakim biður um skilning

Jóakim Danaprins bað fréttamenn að sýna sér skilning þegar hann var spurður um skilnað sinn og Alexöndru við opnun náttúruverndarátaks í Danmörku í dag. Hann og fjölskylda hans væru á erfiðum krossgötum og það hefði mikla þýðingu fyrir sig að annast þær skyldur sem hann hefði axlað.

Britney búin að gifta sig aftur

Poppdísin Britney Spears er sögð hafa gift sig - aftur. Talsmaður Spears greindi frá því að hún hefði gengið í hjónaband með einum af dönsurunum sínum í gær en þetta er í annað skipti á þessu ári sem hún gengur upp að altarinu. Síðast var hjónabandið ógilt næsta virka dag.

Fá náttúruna inn til sín

"Það er kominn tími til að nota liti úr íslenskri náttúru því við eigum svo mikið af fallegum litum," segir Guðlaug Halldórsdóttir textílhönnuður í Má Mí Mó sem hefur hannað nýtt litakort með íslenskum náttúrulitum fyrir Slippfélagið í samstarfi við Valdimar Gunnar Sigurðsson málarameistara.

Skúrinn sem maður saknar erlendis

Uppáhaldsbygging Arnars Geirs Ómarssonar myndlistarmanns er Bæjarins bestu. "Þetta er stórlega vanmetin dvergbygging þar sem allar tegundir fólks safnast saman jafnt á nóttu sem degi," segir Arnar Geir.

Fleiri kjósa nýbyggingar

Bilið á milli byggingarkostnaðar og húsnæðisverðs hefur verið að aukast að undanförnu samkvæmt morgunkorni Greiningar Íslandsbanka í morgun. Hratt hækkandi verð á íbúðahúsnæði hefur leitt til þess að fleiri sjá sér nú hag í því en áður að fara út í nýbyggingar.

Markaðshlutdeild sjóðsins minni

Markaðshlutdeild Íbúðalánasjóðs virðist hafa dregist töluvert saman samkvæmt hreyfingarskýrslu Íbúðalánasjóðs sem birt var í dag. Samkvæmt henni er samdráttur í innkomnum umsóknum um fasteignaveðbréf 44% í september miðað við sama tíma í fyrra.

Sven og Nancy upp að altarinu

Sven Göran Eriksson hefur beðið Nancy Dell´Olio að giftast sér að því er fram kemur í breskum blöðum í dag. Sem kunnugt er hélt Sven framhjá Nancy fyrir stuttu með ritara hjá enska knattspyrnusambandinu, en það kemur þó ekki í veg fyrir að parið telji sig ekki geta án hvors annars verið og því stefnan sett á altarið fljótlega.

Góðar viðtökur í Rússlandi

Stuðmenn héldu í síðustu viku í sína fyrstu ferð til Rússlands og hafa móttökur þar verið mjög góðar og mikið um það fjallað í rússneskum blöðum og sjónvarpi. "Rússar eru afar góðir heim að sækja og allt hefur gengið eins og best verður á kosið.

Culkin í dópinu

Barnastjarnan Macaulay Culkin, sem varð heimsþekktur á einni nóttu fyrir leik sinn í kvikmyndinni "Home Alone", hefur verið ákærður fyrir að hafa í fórum sínum Maríjuana og mikið af lyfseðilsskyldum lyfjum. Í fórum Culkins voru rúm 17 grömm af Maríjúana og 16 töflur af clonazepam, sem er ávanabindandi lyf, notað gegn kvíða.

Beach Boys til Íslands

Beach Boys koma til landsins og halda tónleika sunnudaginn 21. nóvember í Laugardalshöllinni. Brian Wilson kemur að vísu ekki en Mike Love aðalsöngvari og lagasmiður kemur ásamt hljómsveit og mun að sögn Guðbjarts Finnbjörnssonar tónleikahaldara færa smá sól inn í íslenskt vetrarríki.

Nýta rýmið sem best

Það getur verið stórskemmtilegt að innrétta barnaherbergi enda er þar tækifæri til að láta ímynduraflið njóta sín. Steinunn Jónsdóttir innanhússarkitekt segir að fyrstu skrefin við að skipuleggja herbergi séu þau sömu og þegar um önnur herbergi er að ræða.

Hækkun á húsnæðisverði

Greiningardeild Landsbankans telur að innkoma bankanna á fasteignalánamarkaðinn kunni að valda allt að fimmtán prósenta hækkun á húsnæðisverði, einkum á höfuðborgarsvæðinu. Það sé þó háð framboði á nýju húsnæði þannig að ef það eykst verði hækkunin minni.

Ætlar að verða Herra Skandinavía

Garðar Gunnlaugsson, 21 árs málari, er Herra Ísland. Hann fer til Helsinki í næsta mánuði til að taka þátt í keppninni Herra Skandinavía.

Svínað á breskum i-Tunes notendum

Neytendasamtök á Englandi hafa sent yfirvöldum kvörtun vegna kostnaðar sem lagður er á breska i-Tunes eigendur sem hlaða niður lögum af heimasíðu Apple.

Nýtt lag á safnplötu Britney

Nýtt lag sem kallast, Do Something, verður að finna á væntanlegri safnplötu Britney Spears sem kemur út 9. nóvember. Einnig verður þar lagið (I´ve Just Begun) Having Fun sem aðeins hefur verið fáanlegt á DVD-útgáfu síðustu plötu Britney, In the Zone, í Evrópu.

Sony kaupir MGM

Japanski útgáfurisinn Sony er nánast búinn að ganga frá kaupum á kvikmyndafyrirtækinu Metro-Goldwyn-Mayer (MGM) en gengið var frá drögum að samningi þess efnis í fyrradag.

Heimildarmynd um Medúllu

Á dögunum kom út DVD-útgáfa af nýjustu plötu Bjarkar, Medúllu. Þar er meðal annars að finna heimildarmyndina "The Inner Or Deep Part of an Animal or Plant Structure," sem er orðabókaskýring á hugtakinu Medulla. Á íslensku myndi það útleggjast sem "innri eða dýpri hluti af dýri eða plöntu." 

70 mínútur hætta á Popptíví

Sjónvarpsþátturinn 70 mínútur verður tekinn af dagskrá Popptíví þann 20. desember en þá verður eitt þúsundasti þátturinn sýndur. Það þýðir að einungis 68 þættir eru eftir af þessum vinsælasta sjónvarpsþætti ungu kynslóðarinnar.

Hafnarfjarðarlöggan á skjáinn

Nýr íslenskur gamanþáttur, Hafnarfjarðarlöggan, verður frumsýndur á Stöð 2 föstudaginn 24. september. Leikstjóri er Hallur Helgason og með aðalhlutverk fara Steinn Ármann Magnússon, Björk Jakobsdóttir, Jón Páll Þorbergsson, Bergþór Pálsson og Nanna Gunnarsdóttir.

Ragga Bjarna dagar á Stjörnunni

Í tilefni af sjötugsafmæli Ragnars Bjarnasonar 22. september næstkomandi mun útvarpsstöðin Stjarnan FM 94,3 heiðra stórsöngvarann. Dagana 20.-26. september verður dagskrá stöðvarinnar helguð afmælisbarninu.

Sæti strákurinn stefnir á útlönd

Þorvaldur Davíð Kristjánsson hefur, þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur, leikið aðalhlutverk í fjölmörgum söngleikjum, þar á meðal í Bugsy Malone, Thriller og Wake Me Up. Hann hefur ákveðið af fara til útlanda í leiklistarnám en fyrst ætlar hann að takast á við eitt aðalhlutverkanna í Hárinu.

Leikur ekki samkynhneigðan mann

Söngvarinn kunni Robbie Williams hefur hafnað tilboði um að leika samkynhneigðan mann í vinsælum söngleik á Broadway. Að sögn er leikarinn smeykur um að orðrómur þess efnis að hann sé hommi færi af stað á nýjan leik ef hann tæki að sér hlutverkið.

Rödd yðar á plötu

Kvæðamannafélagið Iðunn fagnar 75 ára afmæli á morgun, miðvikudaginn 15. september. Af því tilefni verður efnt til hátíðar í Borgarleikhúsinu annað kvöld klukkan 20.00. Hátíðin er um leið útgáfutónleikar á silfurplötum sem teknar voru upp í Bankastræti 7 á árunum 1935-36.

Draumur verður að veruleika

Fyrsta plata dúettsins Braks kom út á dögunum og kallast hún Silfurkoss. Lögin, sem eru tólf talsins, eru eftir þá félaga Harald Gunnlaugsson og Hafþór Ragnarsson. Allir textar eru á íslensku.

Annar höfunda Chicago allur

Fred Ebb, textahöfundur söngleikjanna Chicago og Cabaret, lést í gær í kjölfar hjartaáfalls. Ebb var einnig þekktur fyrir að semja textann við lagið New York, New York sem Frank Sinatra gerði ódauðlegt.

Zetu næstum rænt

Byssumenn reyndu að ræna velsku leikkonunni Catherine Zeta-Jones þegar hún var á heimleið frá tökustað í Mexíkó. Byssugengið reyndi að neyða bíl hennar af veginum en lífverðir hennar komu henni til bjargar og veittu glæpamönnunum eftirför.

Sjá næstu 50 fréttir