Fleiri fréttir

Medúlla fær misjafna dóma

Nýjasta plata Bjarkar "Medúlla" hefur fengið misjafna dóma hjá dönsku pressunni á síðustu dögum. Blaðamaður Politíken er hrifinn af tilraunum Bjarkar, en segir þó að þetta verði seint hans uppáhaldsplata. Hann óttast þó að platan höfði ekki til breiðs hóps og að það verði einungis forhertustu aðdáendur söngkonunnar sem hampi þessari plötu.

Stærsta mynd Baltasars til þessa

Tökur standa yfir á íslenskri stórmynd sem Baltasar Kormákur leikstýrir og skrifaði handritið að. Hann segir þetta stærsta verkefni sitt á ferlinum til þessa og vonast til að geta frumsýnt myndina fyrri hluta næsta árs.

Uppáhaldshúsið næstum tilbúið

Stefán Snær Konráðsson, framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, hefur brennandi áhuga á öllum íþróttum og þessvegna verður gaman hjá honum í lok ágúst. "Það finnst kannski einhverjum það skrýtið en uppáhaldshúsið mitt á höfuðborgarsvæðinu er nýja íþróttahúsið í Hofsstaðamýri í Garðabæ sem verið er að leggja lokahönd á."

Jay-Z og Outkast á MTV

Jay-Z og Outkast hlutu flest verðlaunin á tónlistarhátíð MTV-sjónarvarpsstöðvarinnar sem haldin var í Miami í nótt, fengu fern verðlaun hvor. Usher og Beyonce voru á meðal annarra verðlaunahafa á hátíð sem þótti heldur klén þetta árið.

Auglýsti eftir fjölskyldu

"Eldri kennari á eftirlaunum óskar eftir fjölskyldu sem er reiðubúin að ættleiða afa. Er fús að greiða fyrir." Svona hljómar einkamálaauglýsing sem birtist í sunnudagsútgáfu ítalska dagblaðsins Corriere della Sera.

Töpuðu fyrir Velvet Revolver

Glysrokkararnir í sveitinni The Darkness hljóta verðlaun rokktímaritsins Kerrand! sem besta breska sveitin. Verðlaunin voru afhent í gærkvöldi. Íslenska sveitin Mínus var tilnefnd í flokkinum bestu erlendu nýliðarnir, en töpuðu fyrir hljómsveitinni Velvet Revolver.<font size="2"></font>

Blair boðið á pönktónleika

Meðlimir íslensku pönkhljómsveitarinnar Tony Blair fagna komu bresku forsætisráðherrafrúarinnar, Cherie Booth Blair, hingað til lands og lýsa sérstakri ánægju með Rannsóknarstofu í kvennafræðum.

Sjálfráða og með kosningarétt

Útvarpsstöðin Bylgjan FM 98,9 fagnar 18 ára afmæli í dag. Bylgjan var fyrsta einkarekna útvarpsstöðin á Íslandi og hóf útsendingar 28. ágúst 1986. Bylgjan fagnar því 18 ára afmæli í dag og einnig því að vera stærsta útvarpsstöð landsins en í könnun Gallup í júní mældist Bylgjan í fyrsta sinn með meiri hlustun en Rás 2.

Vel klæddar kindur

Kínverskar kindur verða framvegis vel klæddar. Olíufyrirtæki Kína, Sinopec, hefur gefið 90 þúsund búninga sem passa á kindur í Ulsen Banner, þaðan sem ákaflega vinsæl ullartegund kemur. Búningarniar eiga að halda moskítóflugum frá, koma í veg fyrir að óhreinindi setjist í ullina og útbreiðslu smitsjúkdóma. Það fylgir sögunni að búningarnir eru úr gerviefni.

Eins sjarmerandi og búist var við

Þær urðu nokkuð undrandi í gær, konurnar í Kirsuberjatrénu, þegar Bill Clinton mætti í búðina og gerði sér lítið fyrir og keypti af þeim nokkrar skálar.

Sipa - ný verslun í miðborginni

"Reksturinn fór frekar hægt af stað þar sem fólk áttaði sig ekki almennilega á því að hattabúðin væri hætt. Núna er þetta allt að komast í gang og framtíðin er björt," segir Pálína Pálsdóttir, eigandi Sipa.

Hlýlegt með dýraskinni

Teppalögð híbýli hafa ekki átt upp á pallborðið undanfarin ár hjá ungu fólki sem er að koma sér upp heimili. Mögulega er þetta eitthvað að breytast en það gerist hægt.

Gerðar úr hreðkum og kúrbít

Valdís Harrysdóttir, myndlistarmaður, gerir fallegar og óvenjulegar skálar úr grænmeti. Þær urðu fréttnæmar þegar Clinton fyrrverandi Bandaríkjaforseti féll fyrir þeim og fjárfesti í nokkrum slíkum í heimsókn sinni hingað til lands á þriðjudaginn var. </font />

Iðnaðarmenn í sólskini

Anna Sigríður Helgadóttir söngkona, segist vera heppnasta manneskja í heimi, því hún sér lífið líða hjá glugganum sínum á hverjum morgni.

Púðar sen endast lengur

Þó að þú sért orðin/n leið/ur á púðunum þínum þá þýðir það ekki endilega að þú þurfir nýja.

Ég er alveg þokkalega hress

"Ég hafði aldrei komið til Evrópu áður en ég kom til Íslands," segir Julianna Rose Mauriello sem leikur Sollu stirðu í sjónvarpsþáttunum um Latabæ eða Stephanie í Lazytown eins og persónan kallast á bandarísku sjónvarpsstöðinni Nick Junior þar sem þættirnir eru sýndir um þessar mundir.

Anita Briem í spænskri hrollvekju

"Þetta er frábært tækifæri," segir leikkonan Anita Briem en hún er nú stödd á Spáni þar sem hún leikur aðalhlutverk í nýrri kvikmynd sem ber heitið La Monja eða Nunnan.

Baðherberginu breytt

Góður undirbúningur er allt sem þarf. "Það er hægt að gera nánast hvað sem er og um að gera að gefa sér bara góðan tíma til að skoða möguleikana vel," segja þær Hulda I. Skúladóttir og Helga Nína Aas tækniteiknarar innréttingadeildar BYKO í Breiddinni þegar kemur að því að breyta eða bæta baðherberginu</font />

Vallarhverfi rís hratt í hrauninu

Þeir sem keyra suður í átt að álverinu í Straumsvík fara ekki varhluta af þeirri miklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað í hrauninu vestan Grísaness og sunnan Reykjanesbrautar. Þetta nýja hverfi sem rís svo hratt heitir Vellir og var byrjað á skipulagi þess árið 2002.

Leiðin til að koma á heimsfriði

"Við horfðum á Ólympíuleikana og fórum á Akrópólisarhæð og var sagt frá grísku goðsögunum," segir Esther Viktoría Ragnarsdóttir en hún vann miða til Aþenu á Ólympíuleikum ímyndunaraflsins teiknisamkeppni Visa.

Fékk svar eftir 28 ár

Georg Titianu, sem býr í Rúmeníu hefur loks fengið svar við umsókn sinni til rúmenska landssímans um að fá lagða símalínu í íbúð sína. Hann sótti um að fá línuna árið 1976, fyrir 28 árum, og á miðvikudag fékk hann loks svar.

Hæsti maður veraldar

Leonid Stadnyk, frá Úkraínu, er að öllum líkindum hávaxnasti maður veraldar. Hann er 2 metrar og 53 sentímetrar á hæð, eða 17 sentímetrum hærri en Túnisbúinn sem sagður er hávaxnastur í Heimsmetabók Guinnes.

Fastara, dýpra og lengra

Skipuleggjendur Ólympíuleikanna í Aþenu hafa höfðað mál gegn grískri útgáfu af erótíska karlablaðinu Playboy. Leikarnir eru þema blaðsins, sem er þó ekki talið túlka hinn sanna ólympíuanda. Í blaðinu eru myndir af nöktum fyrirsætum meðal annars í spretthlaupi og kringlukasti, og enn aðrar halda ólympíukyndlinum á lofti.

Védís Hervör sigrar

Sigurvegari Ljósalagakeppni Reykjanesbæjar árið 2004 er Védís Hervör Árnadóttir, eftir því sem fram kemur á fréttavef Víkurfrétta. Hún samdi og söng lagnið "Þessa einu nótt". Lag Magnúsar Kjartanssonar, María, sem flutt var af Helga Björnssyni, varð í öðru sæti.

Hár á skalla Berlusconi

Ítalskur læknir hefur ljóstrað því upp, að hafa grætt hár á skalla Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu. Það vakti athygli fjölmiðla að Berlusconi sást með forláta skuplu á höfðinu á meðan heimsókn Tonys Blairs stóð fyrr í vikunni, og gátu gárungar sér til um að hárígræðsla væri ástæðan.

Reed sveiflar sverði á Arnarhóli

Lou Reed heldur tónleika sína í Laugardalshöll í kvöld. Kappinn kann vel við sig á Íslandi og lofar góðu giggi í Höllinni. Allir miðar í Laugardalshöll eru uppseldir að undantöldum örfáum í verslun Skífunnar við Laugaveg. 

Barði á Panorama

Leikstjórinn Ragnar Bragason er staddur í lest í Skotlandi þegar blaðamaður slær á þráðinn til hans. Ferðinni er heitið á kvikmyndahátíðina í Edinborg þar sem heimildarmynd hans, Love is in the Air, hefur verið valin til sýningar.

Bannað að segja brandara á setti

"Maður þarf að vera ansi strangur leikstjóri við fólk sem er svona innstillt," segir kvikmyndagerðarmaðurinn Óskar Jónasson aðspurður um hvernig það sé að halda utan um húmoristana í Svínasúpunni en fyrsti þáttur í nýrri seríu var sýndur á Stöð 2 á föstudagskvöld.

Að hrökkva eða stökkva

Á mánudaginn gerist sá merki viðburður að hljómsveitin The Prodigy gefur út nýja plötu. Spennan í kringum Always Outnumbered, Never Outgunned, er enn meiri vegna þess að 7 ár eru frá því að síðasta plata kom út.

Berlusconi í hárígræðslu?

Ítalskir fjölmiðlar velta því nú mikið fyrir sér hvort Silvio Berlusconi, forsætisráðherra landsins, hafi farið í hárígræðslu. Sem kunnugt er skartaði hann forláta skýluklút þegar Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, var hjá honum í heimsókn á dögunum.

Kristján Freyr elskar að vaska upp

Kristján Freyr Halldórsson er bóksali og trommuleikari í hljómsveitinni Reykjavík, sem er á stöðugri uppleið. Hann hefur mjög gaman af því að vaska upp og ástæðan er meðal annars sú að hann hlustar alltaf á tónlist á meðan

Pitt og Aniston á vaxmyndasafn

Fólki gefst nú kostur á að strjúka brjóst hjartaknúsarans Brads Pitt og klípa hann í rassinn. Að vísu er um að ræða vaxmynd af kvikmyndahetjunni í Tussauds safninu í London, en með nýrri tækni er sílikonið sem notað er hlýtt viðkomu og stöku hár eru á bringu styttunnar.

Lítil og nett vinnuaðstaða

Nú eru skólarnir að byrja og færist það í aukana að unglingar á menntaskólastigi þurfa að vinna mikla vinnu í tölvu. Margir skólakrakkar ferðast utan af landi í höfuðborgina til að feta skólabrautina og þurfa oft að sætta sig við fremur þröngan húsnæðiskost. Í litlum íbúðum getur oft reynst erfitt að skipta um skoðun, hvað þá að koma fyrir almennilegri vinnuaðstöðu.

Að skreyta vegg

Auðir veggir pirra marga og þá er ráð að reyna að skreyta þá á sem fallegastan máta. Þegar listaverk eða myndir í ramma eru hengd upp er mikilvægt að skipuleggja það vel svo naglar séu ekki lamdir í fallega veggi að ástæðulausu

Steinasteinn: Steinflísar og ker

Mikið úrval er af alls kyns steinum til hleðslu og útiflísum fyrir verandir og gangstéttir í mismunandi gerðum og litum í versluninni Steinasteinum sem var opnuð í vor úti við Eyjaslóð í Reykjavík.

Gæludýrahár

Þeir sem eiga gæludýr, hunda eða ketti, kannast flestir við það hvimleiða vandamál að hárin af dýrunum eiga það til að sitja eftir í bólstruðum húsgögnum. Fólk beitir misjöfnum aðferðum við að ná hárunum í burt og hér koma nokkur ráð:

Lou Reed kominn til landsins

Hinn heimsþekkti tónlistarmaður Lou Reed kom til landsins í dag. Hann setti á sig hettu og sólgleraugu þegar hann gekk út úr tollinum í Leifsstöð og fór umkringdur lífvörðum beint upp í sendiferðabíl ásamt fylgdarliði og vildi ekkert tjá sig við fjölmiðla.

Stjörnufans í Keflavík

Stórstjörnurnar Julia Stiles og Forest Whitaker eru komin til landsins, en þau leika bæði í mynd Baltasars Kormáks, A little trip to heaven, sem tökur hefjast á í lok ágúst. Þau komu bæði í áætlunarflugi, Stiles frá New York og Whitaker frá Minneapolis.

Lou Reed á Menningarnótt

Tónlistarmaðurinn Lou Reed er orðinn mjög áhugasamur um land og þjóð og þannig hefur hann lengt ferð sína í báða enda og ætlar að kíkja á Menningarótt í Reykjavík.

Jórunn Viðar með lag á Medulla

"Það er búið að syngja þetta lag sundur og saman og sérstaklega hefur fólk rifið það í sig í Söngskólanum í Reykjavík," segir tónskáldið Jórunn Viðar um lag sitt Vökuró en lagið sem hefur verið sungið af mörgum stórsöngvurum í gegnum tíðina er nú að finna á nýjustu plötu Bjarkar Guðmundsdóttur.

Óvíst að Harry lifi af

Óvíst er hvort að Harry Potter lifir af allar hrakningarnar sem hann lendir í. Þetta segir J. K. Rowling, höfundur bókanna um Harry. Hún kom fram á bókmenntahátíð í Edinborg um helgina og sagði Harry lifa af sjö bækur, en hvort að hann lifði lengur væri alls óvíst. Rowling sagði ekkert um sjöttu bókina, en hún situr nú við skrif hennar.

Hefur slæm áhrif á frammistöðu

Knattspyrnustjarnan David Beckham hefur loks viðurkennt að fjölmiðlaumfjöllun um einkalíf sitt hafi haft slæm áhrif á frammistöðu sína á Evrópumótinu í knattspyrnu. Beckham, sem hingað til hefur kennt þjálfunaraðferðum hjá Real Madrid um slælega frammistöðu sína á Evrópumótinu,

Travis Bickle besta andhetjan

Travis Bickle, persónan sem Robert De Niro lék í myndinni Taxi Driver, hefur verið kosinn besta and-hetja kvikmyndasögunnar. Hann var valinn af lesendum Totol film tímaritsins, segir á veffréttasíðu BBC. Taxi Driver er mynd eftir Martin Scorsese og var De Niro tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir leik sinn í henni.

Stóðst ekki mátið

"Við höfum fengið alveg ótrúlega góðar viðtökur, betri og meiri en við þorðum nokkurn tímann að vona," segir Jóel Briem, nýr verslunarstjóri Spútnik.

Sjá næstu 50 fréttir