Fleiri fréttir

Damon leiður á hasarmyndum

Leikarinn Matt Damon er orðinn leiður á að leika í hasarmyndum. Hann er tilbúinn að hætta alfarið að leika í þeim og einbeita sér í staðinn að myndum sem bjóða upp á meira skapandi hlutverk.

Indverskur köngulóarmaður

Teiknimyndahetjan Spider-Man hefur verið löguð að indverskum markaði vegna útgáfu á teiknimyndasögum um Lóa þar í landi. Rétt nafn köngulóarmannsins verður ekki lengur Pétur Parker heldur Pavir Prabhakar.

James Jagger í leiklistina

James Jagger, sonur Rollingsins Mick Jagger og sýningarstúlkunnar Jerry Hall, ætlar að feta í fótspor foreldra sinna og öðlast frama í skemmtanaiðnaðinum.

Diaz í framhaldsmynd

Leikkonan Cameron Diaz ætlar að leika í framhaldi myndarinnar Starsky and Hutch. Ben Stiller, góðvinur Diaz síðan þau léku saman í There´s Something About Mary, lék Starsky í fyrri myndinni og vildi ólmur fá hana til að leika í framhaldinu.

Skráning í Idol að hefjast

Skráning í áheyrnarpróf fyrir næstu Idol-stjörnuleit hefst 1. júlí á heimasíðu Stöðvar 2. Fyrsta áheyrnarprófið verður svo haldið 29. ágúst. Að þessu sinni verður sönghetjum á landsbyggðinni gert auðveldra fyrir því áheyrnarprufurnar fara fram um land allt.

Stelpurnar í E&E crew

Plötusnúðarnir E&E crew hafa verið að gera það gott á Pravda Barnum að undanförnu. "Við höfum verið að spila þarna hverja helgi síðan Dóra Takefusa og Magga Rós tóku við Barnum," segir Ellen Loftsdóttir en hún er annar helmingur tvíeykisins E&E crew auk Ernu Bergmann.

Úr Vogue í eigið stúdíó

Ljósmyndarinn Björg Vigfúsdóttir flutti heim til Íslands fyrir aðeins einum mánuði síðan eftir að hafa lokið prófi frá School of Visual Arts á Manhattan. "Ég hef haft nóg að starfa síðan ég kom heim og vona að boltinn haldi áfram að rúlla," segir Björg.

Líflegar bóndarósir

Þær eru blómlegar bóndarósirnar í garðinum hans Kristjáns Vídalín Jónssonar, skrúðgarðyrkjumeistara þar sem þær standa útsprungnar í góðu skjóli sunnan við hús hans í Barmahlíðinni.

Múrsteinar

Sífellt leitar fólk nýrra leiða við að fegra og skreyta heimili sín. Innanhúsblöðin gefa góðar hugmyndir ætli maður að fara að taka til hendinni heima fyrir og á síðum þeirra hefur mikið borið á múrsteinsveggjum undanfarið.

Elsta tré Reykjavíkur

Lauftré ganga í endurnýjun lífdaga hvert vor, jafnvel þau sem lifað hafa hátt á aðra öld. Það sannar silfurreynirinn í gamla kirkjugarðinum í Aðalstræti.

Í sandkassann

Þegar þörf er á hreinum sandi í sandkassa í garðinum er þrennt til ráða.

Nýr vefur um sumarbústaði

Sumarbustadur.is (með litlu s í byrjun) er nýlegur íslenskur vefur sem LandArt ehf heldur úti.

Hamrinum beitt

Sumarið er tími viðgerða, bæði á húsum, girðingum og fleiru utanhúss.

Ný og víðtækari Idol-stjörnuleit

Ný og víðtækari Idol-Stjörnuleit í haust á Stöð 2. Skráning hefst 1. júlí á stod2.is Óhætt er að segja að Idol-Stjörnuleit hafi slegið í gegn síðasta vetur þegar þjóðin fylgdist spennt með fæðingu fyrstu Idol-stjörnunnar.

Dylan heiðursdoktor í Skotlandi

Söngvarinn goðsagnakenndi Bob Dylan hefur verið gerður að heiðursdoktor í tónlist við St. Andrews-háskólann í Skotlandi. Þetta er aðeins í annað sinn sem Dylan þiggur heiðursnafnbót sem þessa. Síðast var það árið 1970 þegar Princeton-háskóli í Bandaríkjunum heiðraði hann.

Diaz vill stofna fjölskyldu

Leikkonan Cameron Diaz vill gera hlé á kvikmyndaferli sínum til að stofna fjölskyldu með kærasta sínum, Justin Timberlake.

Liv Tyler ófrísk

Leikkonan Liv Tyler er ófrísk af sínu fyrsta barni. Tyler er gift söngvaranum Royston Langdon úr hljómsveitinni Spacehog. Eiga þau von á barninu í vetur.

Knúinn áfram af fegurð

Á öllum mínum fimm árum sem blaðamaður hefur mér aldrei liðið jafn illa að tala við nokkurn mann í síma og Lou Reed. Ég held að mér hafi, á þessum fáránlega stutta tíma í starfinu, tekist að taka viðtöl við öll goðin mín þannig að ég var ekkert sérstaklega spenntur né kvíðinn fyrir þessu spjalli. 

Kynþokkafullt golfmót

Miðnæturgolfmótið Amstel Light Iceland Open verður haldið um helgina. Til landsins eru mættar tvær fegurðardísir til að gera mótið enn áhugaverðara.

Enn ein breska falsettusveitin

Ein af þeim hljómsveitum sem hafa verið að vekja athygli í Bretlandi á árinu er Southampton sveitin The Delays sem þykir minna á eðalpoppsveitir eins og The Byrds, Big Star og The Thrills. Trausti Júlíusson tékkaði á þessum nýjustu vonarstjörnum Rough Trade útgáfunnar.

Audda vísað úr KR-stúkunni

Áhorfendur á KR-leiknum á mánudagskvöldið urðu varir við mikil læti í Auðuni Blöndal. Auðunn gargaði grimmt á dómarann og svo fór að lokum að honum var vísað úr stúkunni.

Depp vill leika Ozzy

Svo gæti farið að leikarinn Johnny Depp muni leika rokkarann Ozzy Osburne í nýrri mynd um ævi hans. Að sögn Sharon, eiginkonu Ozzy, hefur ákvörðun ekki verið tekin í málinu en Depp er sagður hafa mikinn áhuga á hlutverkinu.

Nýtur hverrar mínútu með Madonnu

Sekkjapípuleikarinn Lorne Cousin nýtur lífsins þessa dagana því hann er staddur á tónleikaferð með Madonnu sem stendur yfir í fimm mánuði. Madonna bað hann um að spila í tónleikaferðinni eftir að hún hafði heyrt í honum í brúðkaupi vinkonu sinnar, Stellu McCartney. 

EP-plata frá Metallica

Rokksveitin Metallica, sem spilar hér á landi þann 4. júlí, ætlar að gefa út EP-plötu í tilefni af sýningu heimildarmyndarinnar Metallica: Some Kind of Monster í kvikmyndahúsum víðs vegar um heim.

Skálkaskjólið skapað

Fyrir nokkru bárust fregnir af því að <strong>Ölstofa Kormáks og Skjaldar</strong> væri að færa út kvíarnar, þó ekki hafi þeir félagar, Kormákur og Skjöldur, ákveðið hvað gera skyldi við þennan nýja stað. Nú hafa þeir fundið honum hlutverk, þó einungis tímabundið sé.

Afskorin blóm setja svip

Þegar sumarið er loksins komið og sólin trónir hátt á lofti þá er um að gera að finna hvað sem er til að lífga upp á vistarverur okkar ef ekki er hægt að sleppa sér út í sólskinið.

Polyscreen-gluggatjöld

Í versluninni Pílugluggatjöld fást Polyscreen-gluggatjöld úr polyesterefni sem draga úr skaðlegum áhrifum sólargeisla.

Blómlegir bílar í Hjartslætti

Það kom upp hugmynd um að lífga upp á farkostina með þessum hætti," segir Baldvin Kári Sveinbjörnsson, einn af þáttastjórnendum Hjarsláttar á Skjá einum. Frumlegar merkingar bíla Hjartsláttargengisins hafa hafa vakið athygli í umferðinni upp á síðkastið.

Verðlaun fyrir að ná bíóþjófum

Starfsfólk kvikmyndahúsa í Bandaríkjunum fær allt að 36 þúsund krónum í verðlaun fyrir að hafa hendur í hári áhorfenda sem laumast til að taka upp myndirnar á stafrænar vélar.

Klára 33 ára dæmi

Hin goðsagnakennda rokkhljómsveit Deep Purple kom til landsins í gær. Þeir Ian Gillan, Roger Glover, Ian Paice, Don Airey og Steve Morse hittu fréttamenn að máli í gær og voru í góðu stuði.

Knúinn áfram af fegurð

"Það er gott heyra. Ef fólk vill heyra gamalt efni, þá hef ég ekkert á móti því að spila þau annað slagið. Þegar ég fer á tónleika vil ég yfirleitt heyra eitthvað af slögurunum," segir Lou Reed í viðtali við Fréttablaðið þar sem hann ræðir um nýjustu útgáfur sínar, fortíðina og tónleikana hér á landi.

Feimumst vonandi í allt sumar

Sumarsöngleikurinn Fame verður frumsýndur í kvöld í Vetrargarðinum í Smáralind. Leikkonan Álfrún Helga Örnólfsdóttir segir listaskólann í Fame minna á eigin skólagöngu þó ekki hefði verið algengt að samnemendur hennar brystu óvænt út í söng og balletdans.

3000 aukamiðar á Metallica

15.000 miðar á tónleika Metallicu seldust upp á augabragði. Tónleikahaldarar hafa nú fengið leyfi til að selja 3000 miða til viðbótar þannig að allt útlit er fyrir að um 18.000 Íslendingar komi saman í Egilshöll 4. júlí.

Over the Rainbow besta lagið

Lagið Over the Rainbow úr myndinni The Wizard of Oz frá árinu 1939 hefur verið valið besta kvikmyndalag sögunnar af Bandarísku kvikmyndastofnuninni. Samanstendur hún af 1500 leikurum, kvikmyndagerðarmönnum, gagnrýnendum og fleiri áhrifamönnum í Hollywood.

Osbourne-hjónin með spjallþátt?

Rokkarinn Ozzy Osbourne og eiginkona hans Sharon eiga í viðræðum við sjónvarpsstöðina ITV í Bretlandi um að stjórna nýjum spjallþætti.

Spilar með Dido og Phil Collins

Bang Gang hefur verið á faraldsfæti undanfarin misseri. Hljómsveitin mun í sumar spila á tveimur stórum tónlistarhátíðum auk þess að spila undir sænskri hryllingsmynd í París. Barði Jóhannsson er hress að vanda.

40 þúsund kall á Metallica

Gríðarleg eftirvænting ríkir fyrir tónleika hljómsveitarinnar Metallica í Egilshöll um þarnæstu helgi. Brögð eru að því að farið sé að braska með miða og heyrst hefur um falsanir.

Útgáfuteiti Clintons

Fræga og fallega fólkið mætti í gærkvöldi í stóra sal Metropolitan safnsins í New York í útgáfuteiti Bills Clintons, en ævisaga hans, My Life, kemur út í dag. Þúsund manns mættu í teitina. Tvær milljónir eintaka hafa þegar verið seldar, og nokkur fjöldi bókabúða vestan hans var opinn fram yfir miðnætti til að hefja sölu bókarinnar.

Baldur tekur áskorun

Baldur Ágústsson, forsetaframbjóðandi, ætlar að tala til ungu kynslóðarinnar þegar hann mætir í þáttinn 70 mínútur á PoppTíví annað kvöld. 

Jenson Button á Íslandi

Formúlukappinn heimsfrægi Jenson Button millilenti hér á landi á leið heim til Evrópu frá kappaksturskeppninni sem haldin var í Indianapolis um helgina.

Erkibiskup í The Simpsons

Framleiðendur The Simpsons hafa beðið Rowan Williams, erkibiskupinn í Canterbury á Englandi, um að koma fram í gestahlutverki í þáttunum.

Sjá næstu 50 fréttir