Lífið

Útgáfuteiti Clintons

Fræga og fallega fólkið mætti í gærkvöldi í stóra sal Metropolitan safnsins í New York í útgáfuteiti Bills Clintons, en ævisaga hans, My Life, kemur út í dag. Þúsund manns mættu í teitina. Tvær milljónir eintaka hafa þegar verið seldar, og nokkur fjöldi bókabúða vestan hans var opinn fram yfir miðnætti til að hefja sölu bókarinnar. Bókmenntagagnrýnendur eru almennt ekki hrifnir af bókinni, finnst hún fremur leiðinleg og skauta fram hjá umdeildum lykilatvikum á ferli forsetans fyrrverandi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.