Lífið

Damon leiður á hasarmyndum

Leikarinn Matt Damon er orðinn leiður á að leika í hasarmyndum. Hann er tilbúinn að hætta alfarið að leika í þeim og einbeita sér í staðinn að myndum sem bjóða upp á meira skapandi hlutverk. "Flestar hasarmyndir njörva mig of mikið niður vegna þess hve lítið er hægt að láta persónuna njóta sín," sagði Damon í nýlegu viðtali. "Það sem vakti áhuga minn á leiklist var að fá að vinna með fólki á skapandi hátt." Damon sést næst á hvíta tjaldinu í hasarmyndinni The Bourne Supremacy, sem er framhald myndarinnar The Bourne Identity. Hann segist hafa ákveðið að leika í myndunum tveimur vegna þess að handritin voru lagfærð verulega áður en tökur hófust. "Jafnvel þótt það séu frábær hasaratriði í myndunum byggja þær báðar á vel skrifuðum persónum," sagði hann.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.