Fleiri fréttir

True Blood-hönk kaupir lúxushús

True Blood-hjartaknúsarinn Alexander Skarsgard hefur keypt glæsilegt heimili í Los Feliz-hæðum í Los Angeles á 1,85 milljónir dollara, rúmlega 230 milljónir króna.

Bond skutla stelur senunni

Leikararnir Daniel Craig og Javier Bardem stilltu sér upp á rauða dreglinum í París á frumsýningu kvikmyndarinnar Skyfall í vikunni. Með þeim var Bond-stúlkan Berencie Marlohe sem stelur iðulega senunni þegar kemur að því að stilla sér upp fyrir ljósmyndarana.

Sjúklega sæt svona silfruð

Leikkonan Halle Berry, 46 ára, mætti í silfruðum Dolce&Gabbana kjól sem fór ekki fram hjá nokkrum einasta manni á frumsýningu kvikmyndarinnar Cloud Atlas í Hollywood í gær. Með leikkonunni var unnusti hennar, franski leikarinn Olivier Martinez, sem var óskaplega vel klæddur að sama skapi.

Alltaf á djamminu

X-Factor dómarinn Nicole Scherzinger sést æ oftar úti á lífnu en eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er söngkonan örlítið utan við sig og líklega búin að skemmta sér fullvel á næturklúbbnum sem hún sást á í London í vikunni.

Áhrifamestu konur á Íslandi

Valdar hafa verið áhrifamestu konur á Íslandi árið 2012. Konurnar eru úr ólíkum geirum á mismunandi aldri og hafa skarað fram úr á sínu sviði, rutt brautina eða unnið eftirtektarverða sigra á árinu.

Byggir upp líf sitt eftir skelfilega lífsreynslu

"Við höfum fengið mjög góð viðbrögð við þættinum og áhorfið hefur verið eftir því,“ segir Sigrún Ósk Kristjánsdóttir stjórnandi Neyðarlínunnar á Stöð 2 en þriðji þátturinn fer í loftið í kvöld. Sá fyrsti fjallaði um unga konu sem fór í hjartastopp og annar um barnsfæðingu í bíl, en þátturinn í kvöld er um Júlíus Má Baldursson bónda á Tjörn á Vatnsnesi sem missti allt sitt í bruna fyrir tveimur árum. "Það muna mjög margir eftir þessum eldsvoða enda var hann töluvert í fréttum,“ segir Sigrún Ósk. "Þetta er ótrúleg saga manns sem hefur unnið þrekvirki í að byggja sitt upp að nýju eftir skelfilega lífsreynslu.“ Þátturinn um Júlíus hest klukkan 20.10 í kvöld.

Bomba í blúndu

Poppprinsessan Kylie Minogue var gullfalleg og geislandi í klassískum blúndukjól og háum hælum þegar hún lyfti sér upp of fór út að borða á heimsfræga veitingastaðnum Nobu í London í gær með góðum vinum.

Sexý í strákafötum

Victoria Justice var smart í strákafötum þegar hún var mynduð í New York á dögunum. Klæddist Justice einfaldri hvítri skyrtu og klassískum flauelsjakkafatajakka og var var með mjótt svart bindi við.

Fyrsta sýnishornið úr Lífsleikni Gillz

Vísir frumsýnir hér fyrsta sýnishornið úr Lífsleikni Gillz. Þáttaröðin hefur verið endurklippt til sýninga í kvikmyndahúsum og verður frumsýnd nú í nóvember. Þættirnir eru framleiddir af Stórveldinu og eru framhald af þáttunum Mannasiðir Gillz sem sýndir voru á Stöð 2 í fyrra. Sem fyrr er það landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson sem leikstýrir.

Ásdís Rán fagnar með frægum

"Þetta er Bobby vel þekktur samkynhneigður vinur minn sem varð 30 ára um helgina,. Ég var þarna með vinkonum mínum og nokkrum leikmönnum CSKA klúbbsins. Við vorum bæði að fagna afmælinu og úrslitum leiksins þetta kvöld sem fór CSKA-Levski 1-0 en þetta eru aðal fótboltaliðin í Sofíu," segir Ásdís Rán fyrirsæta spurð hvaða fólk þetta er sem hún skemmti sér með á myndunum sem birtast ótt og títt á Facebooksíðunni hennar.

Skælbrosandi eftir sambandsslit

Leikkonan Eva Longoria, 37 ára, brosti hringinn í gær þar sem hún kynnti herferð Obama í Nevada háskóla í Las Vegas. Eins og sjá má er Eva glöð eftir sambandsslitin sem lesa má meira um hér.

Eignaðist son

Breska söngkonan Adele og unnusti hennar Simon Konecki eignuðust son um helgina. Talsmaður Adele staðfesti gleðifregnirnar í samtali við People og segir nýbökuðu foreldrana í skýjunum yfir guttanum.

Framsækinn Lundúnarappari

Nú þegar aðeins tæp vika er í að tónlistarveislan Iceland Airwaves skelli á eru margir á fullu að kynna sér þá listamenn sem spila á hátíðinni í ár. Það er gjarnan þannig með Airwaves að þegar maður skoðar listann í byrjun þá kannast maður ekki við næstum því öll nöfnin, en um leið og maður kynnir sér óþekktu nöfnin, þá fjölgar atriðunum sem maður má ekki missa af hratt.

Tómur en fullur salur

Í innsetningu sem þessari er salurinn tómur, en samt fullur, og misbjagaðar myndirnar af rýminu í HA hafa skynræn og líkamleg áhrif á mann.

Tala saman gegnum tónlist

Tónlistarhátíðin Sláturtíð 2012 stendur yfir þessa dagana og er frítt á alla fimm viðburði hennar.

Þriller og fyrirsætur

Í myndinni er fyrirsætubransinn skoðaður og varpað er ljósi á ólíkar útgáfur þess raunveruleika sem ungu stúlkurnar sem starfa í honum upplifa.

Í gamanhlutverk

Hugh Grant mun leika í nýrri rómantískri gamanmynd í leikstjórn Marcs Lawrence. Grant og Lawrence hafa áður leitt saman hesta sína í myndunum Two Weeks Notice, Music And Lyrics og Did You Hear About The Morgans.

Aftur opnar á ný

Margir mættu til að berja nýja verslun íslenska fatamerkisins Aftur augum á þriðjudaginn. Vöruúrvalið hefur stækkað í samræmi við húsnæðið en ásamt íslenska fatamerkinu, sem er frægt fyrir að endurvinna efni, er þar einnig að finna vel valdar vörur frá erlendum hönnuðum. Búðin er til húsa að Laugavegi 39.

Kallaði fram strákinn í sér

Einkaviðtal Sifjar Sigmarsdóttur við Sam Mendes Bond-leikstjóra. Hann er þekktur fyrir íhugular kvikmyndir sem líklegri eru til að taka á mildri miðstéttarangist en yfirvofandi heimsendi af völdum vopnþungra hryðjuverkamanna. Sif komst að því hvers vegna hann ákvað að leikstýra nýjustu Bond-myndinni. Svarið er að finna í fylleríi.

Tom Cruise vill 6.3 milljarða í skaðabætur

Bandaríski stórleikarinn Tom Cruise hefur höfðað skaðabótamál á hendur tveimur götublöðum. Miðlarnir héldu því fram að leikarinn hefði yfirgefið dóttur sína í kjölfar skilnaðar hans og Katie Holmes.

Kröftugir danskir rokkarar

Önnur breiðskífa Thee Attacks er komin út hér á landi. Þessi hressilega danska rokkhljómsveit verður meðal gesta á Airwaves-hátíðinni í ár.

Vill ástina að eilífu

Taylor Swift óttast að hún muni aldrei enda í ástarsambandi sem getur varað að eilífu. Hin 22 ára söngkona, sem hefur verið með John Mayer og Jake Gyllenhaal, telur að erfitt geti verið að viðhalda töfrunum í samböndum.

Þrír leikstjórar skoða Húsið

Þrír þekktir innlendir leikstjórar eru að íhuga að kvikmynda elleftu skáldsögu Stefáns Mána, Húsið, sem er nýkomin út. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru þeir að lesa bókina um þessar mundir með kvikmyndaréttinn í huga.

Að duga eða drepast að hætti fortíðar

Frankenweenie eftir Tim Burton er fyndin og falleg, en skortir hugrekkið sem þarf til að verða frábær. Kvikmyndin er byggð á samnefndri stuttmynd frá árinu 1984, og segir frá ungum dreng sem vekur dauðann hund sinn til lífsins.

Frægir á Skyfall

Meðfylgjandi myndir voru teknar í Laugarásbíó á forsýningu kvikmyndarinnar Skyfall í kvöld. Stemningin var frábær og bíógestum var boðið upp á Heineken bjór, popp og kók. Ófáir þjóðþekktir einstaklingar mættu til að berja James Bond augum eins og Svava Johansen og Björn Sveinbjörnsson unnusti hennar, útvarpsmennirnir Ívar Guðmunds og Svavar Örn og fleiri. Þá má einnig sjá myndir sem teknar voru í Bretlandi á forsýningu myndarinnar þar sem aðalleikararnir Daniel Craig og Javier Bardem stilltu sér upp á rauða dreglinum í Albert Hall í gærkvöldi.

Eyðir 20 milljónum á ári í útlitið

Það er ekki ókeypis að vera hertogynja. Það veit Kate Middleton mætavel. Áætlað er að hún eyði rúmlega hundrað þúsund pundum, rúmum tuttugu milljónum króna, í útlitið á ári.

Veikur á brúðkaupsdaginn

Justin Timberlake og Jessica Biel gengu í það heilaga um síðustu helgi en eitt skyggði þó á þennan annars fullkomna dag.

Sjóðheit í rauðu

Söngkonan Taylor Swift, var vægast sagt flott í hárauðum kjól með varalit í stíl þegar hún kíkti á spjallþáttakónginn David Letterman í New York í vikunni. Swift var með mjög grófa hliðarfléttu við en fléttur eru mikið í tísku um þessar mundir. Til að toppa annars flott útlit klæddist hún húðlituðum skóm við.

Bleikur brúðarkjóll

Söngvarinn Justin Timberlake klæddur í Tom Ford smóking og leikkonan Jessica Biel prýða forsíðu tímaritsins People. Eins og sjá má er kjóllinn hennar Jessicu stórglæsilegur bleikur á litinn og ekki er slöðrið eða blómvöndurinn síðri en kjóllinn er eftir Giambattista Valli. "Upplifunin var meiriháttar," lét leikkonan hafa efti sér en eitt hundrað gestir mættu í brúðkaupið sem fór fram á Ítalíu.

Kolfinna íhugar að hætta

Kolfinna Kristófersdóttir er ein eftirsóttasta fyrirsæta heims um þessar mundir og hefur náð lengra en nokkur önnur íslensk fyrirsæta. En himinhá laun og linnulaus atvinnutilboð frá þekktustu tískuhúsunum er ekki það sem skiptir hana mestu máli. Í Nýju lífi sem kemur út á morgun segir hún frá því hversvegna hún íhugar að hætta núna.

Gerði allt vitlaust í London

Söng og leikkonan, Jennifer Lopez hélt tónleika í London í vikunni og það enga smá tónleika. Voru gestir hætti að hafa tölu á því hve oft dívan skipti um búninga og urðu dansatriðin kynþokkafyllri þegar leið á tónleikana. Tók Lopez meðal annars náinn dans með sínum heittelskaða, Casper Smart. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndasafni vantar ekkert upp á sviðsframkomu Lopez.

Stuðið var þarna

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar Rof, fjórða spennusaga Ragnars Jónassonar, kom út. Bækur hans hafa hlotið mikið lof gagnrýnenda heima og erlendis. Vinir og vandamenn Ragnars mættu og fögnuðu með honum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Búin að dömpa þessum líka

Það er eflaust erfitt að finna ástina í Hollywood eins og leikkonan Eva Longoria, 37 ára, hefur fengið að reyna. New York Jets spilarinn Mark Sanchez, 25 ára, hefur fengið reisupassann en myndirnar af þeim voru teknar á götum New York þar sem allt virtist vera í góðu lagi og þau sögð leita að íbúð þar í borg.

Átti þessi kjóll heima á rauða dreglinum?

Vanessa Hudgens hefur aldrei verið feimin þegar kemur að fatavali, stíl og litum. Þvert á móti hefur hún tekið margar áhætturnar, rétt eins og hún gerði á rauða dreglinum í vikunni. Mætti leikkonan í mjög sérstökum svörtum kjól með nánast beran magann fyrir utan smá stykki sem hélt saman efri og neðri hluta kjólsins. Mörgum hverjum þótti kjóllinn ekki eiga heima á rauða dreglinum.

Kát Kate Middleton

Hertogaynjan af Cambridge, Kate Middleton, 30 ára, var stórglæsileg þegar hún tók á móti breska liðinu sem tók þátt í Ólympíuleikum fatlaðra sem fram fór í Lundúnum á dögunum. Eins og sjá má fór vel á með Kate og íþróttafólkinu.

Sjá næstu 50 fréttir