Lífið

Í gamanhlutverk

Í gamanhlutverk Hugh Grant mun bregða sér á kreik í nýrri gamanmynd. 
nordicphotos/getty
Í gamanhlutverk Hugh Grant mun bregða sér á kreik í nýrri gamanmynd. nordicphotos/getty
Hugh Grant mun leika í nýrri rómantískri gamanmynd í leikstjórn Marcs Lawrence. Grant og Lawrence hafa áður leitt saman hesta sína í myndunum Two Weeks Notice, Music And Lyrics og Did You Hear About The Morgans.

Myndin, sem enn hefur ekki hlotið titil, segir frá Ray Michaels sem eitt sinn var eftirsóttur handritshöfundur í Hollywood en er nú snauður, fráskilinn og óhamingjusamur. Hann tekur að sér að kenna ritlistartíma en fellur óvænt fyrir einum nemanda sínum.

Næst verður hægt að berja Grant augum í kvikmyndinni Cloud Atlas sem frumsýnd verður í Bandaríkjunum í byrjun næsta árs. Hann mun einnig fara með hlutverk í þriðju kvikmyndinni um Bridget Jones en sú mynd hefur lengi verið í biðstöðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×