Fleiri fréttir

SMS-skilaboð og Merlin-leikur

Breski listamaðurinn Tracey Moberly verður á meðal fyrirlesara á alþjóðlegu ráðstefnunni You Are In Control sem verður haldin í fimmta sinn 4. til 6. nóvember. Ráðstefnan fer að þessu sinni fram í Hörpu. Hún snertir allar hliðar skapandi greina, svo sem mat, tölvutækni, bókmenntir, hönnun, tónlist, kvikmyndagerð, tölvuleikjagerð og viðskipti.

Býr til skart úr smáhlutum

Salka Þorra Svanhvítardóttir býr til skemmtilegt og einstakt skart undir heitinu Salkasvan og selur á samskiptavefnum Facebook. Salka er aðeins fjórtán ára gömul en segist hafa saumað og skapað með ömmu sinni frá tveggja ára aldri.

Þessi toppar allt hjá dívunni

Söngkonan Lady Gaga vakti athygli þegar hún sat eins og fallegt blómabeð við hliðina á hönnuðinum Philip Treacy. Söngkonan og Philip...

Leiðir dularfullan mann

Leikkonan Rose McGowan leiddi óþekktan mann í Vestur-Hollywood á laugardaginn og fór með honum í hádegismat.

Vinsælir sjóræningjar

Vinsælir sjóræningjar Fjölmennt var í Borgarleikhúsinu á föstudagskvöldið er leiksýningin Gulleyjan var frumsýnd á stóra sviðinu.

Matarboð á Kex

Matarboð á Kex Kex Hostel hefur heldur betur stimplað sig inn í skemmtanalíf landans en fyrir helgi var útvöldum fastagestum boðið að smakka nýjan matseðil staðarins.

Óskarverðlaunahafi á RIFF

Danski kvikmyndaleikstjórinn og Óskarsverðlaunahafinn Susanne Bier verður verðlaunuð fyrir framúrskarandi listfengi á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, í lok mánaðarins.

Kardashian systur mættar til Miami

Allar svartklæddar mættu þær á flugvöllinn í Miami um helgina Kardashian systur þar sem tökur á raunveruleikaþætti þeirra munu fara fram á næstunni.

Sonur Tom Cruise er tilfinningaríkur

Tom Cruise og fjölskylda hafa ekki átt sjö dagana sæla eftir að Tom skildi við leikkonuna Katie Holmes. Skilnaðurinn fékk sérstaklega mikið á son Toms, Connor Cruise, sem hann ættleiddi með leikkonunni Nicole Kidman. Katie nefnilega gekk honum í móðurstað en Connor, sem er upprennandi plötusnúður, reynir að horfa á björtu hliðarnar.

Óþekkjanleg Jennifer

Ungstirnið Jennifer Lawrence, sem er hvað best þekkt fyrir hlutverk sitt í stórmyndinni Hunger Games, prýðir forsíðu októberheftis tímaritsins W. Jennifer er déskoti reffileg á forsíðunni og nánast óþekkjanleg. Í viðtali við blaðið talar hún um hlutverk sitt í Hunger Games, frægðina og lífið í Hollywood.

Fór í brjóstaaðgerð í beinni

Raunveruleikastjarnan Kris Jenner, móðir Kardashian-systranna, brá sér í skurðaðgerð í nýlegum þætti af Keeping Up With the Kardashians sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni E! Kris ákvað að sýna þegar brjóstafylling hennar var tekin út og ný sett inn í staðinn til að minna konur á að passa að hafa sílíkonpúða ekki of lengi í brjóstunum.

Drama í úrvalsflokki

A Seperation er ein besta mynd síðasta árs. Skothelt handritið, góð leikstjórn og leikur í úrvalsflokki sjá um þetta hjálparlaust.

Ragnhildur Steinunn hitti Of Monsters í sundi

Minnstu munaði að lagið "King and Lionheart", sem íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men hefur gert nokkuð frægt, kæmi aldrei út. Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, söngkona hljómsveitarinnar, er höfundur lagsins og kveðst hún stundum vera svo feimin við að sýna strákunum í hljómsveitinni login sín að hún hafi varla þorað að sýna strákunum þetta lag. Frá þessu segir Nanna Bryndís í viðtali við Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur í fyrsta þætti Ísþjóðarinnar sem sýndur er á RÚV í kvöld. Nanna Bryndís segist þurfa að hafa fulla trúa á lagahugmynd sinni áður en hún sýnir einhverjum,því henni þykir svo vænt um allt sem hún sendir frá sér.

Hvað gerði hann við hárið á sér?

Leikarinn Jude Law vakti talsverða athygli þegar hann fékk sér göngutúr í London fyrir helgi. Sjarmörinn er nefnilega kominn með miklu þykkara hár en hann var með fyrir nokkrum mánuðum þegar hann kynnti nýjustu Sherlock Holmes-kvikmyndina. Þá var eins og karlinn væri að verða sköllóttur en nú er hann allt í einu kominn með hár – líkt og fyrir töfra.

Jessie J krúnurakar sig fyrir gott málefni

Poppsöngkonan Jessie J hefur ákveðið að raka af sér allt hárið fyrir gott málefni og hún hefur ákveðið dagsetninguna. Jessie sagði aðdáendum sínum á Twitter-síðu sinni að hún ætli að krúnuraka sig á Degi rauða nefsins þann 1. mars á næsta ári.

Tölvuleikir og tækni

Í tilefni af sýningu myndarinnar Indie Game: The Movie stendur Riff-hátíðin í samstarfi við tölvuleikjaframleiðandann CCP að pallborðsumræðum á Sólon föstudaginn 5. október. Yfirskrift umræðnanna er Vöxtur og umfang tölvuleikjaframleiðslu og möguleikar sjálfstæðra framleiðenda til framtíðar.

Glæsilegur ferill

Fallega og fræga parið Blake Lively og Ryan Reynolds gekk í hjónaband um síðustu helgi í Suður-Karólínu. Aðeins er tæpt ár síðan þau sáust fyrst saman í Boston og orðrómur komst á kreik um samband þeirra en þau léku saman í myndinni Green Lantern. Hin 25 ára gamla Lively hefur oft verið nefnd ein heppnasta kona heims miðað við feril sinn í ástarmálum sem er frekar aðdáunarverður. Ekki á Reynolds, sem er 10 árum eldri en hún, mikið slakari feril á bakinu. - trs

Kúreki norðursins fær viðurkenningar

„Þetta kemur mér verulega mikið á óvart því mér hefði aldrei nokkurn tíma dottið þetta í hug,“ segir tónlistarmaðurinn Hallbjörn Hjartarson, kúreki norðursins og konungurinn í Kántrýbæ. Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi og bandarísku samtökin Country Music Association hafa ákveðið að veita Hallbirni viðurkenningu fyrir að koma kántrýtónlist á framfæri á Íslandi og fyrir framlag hans til kántrýtónlistar. Afhendingin fer fram í Kántrýbæ á Skagaströnd næstkomandi þriðjudag.

Nýliðar og reynsluboltar gefa út á tónlistarhausti

Margar áhugaverðar íslenskar plötur líta dagsins ljós í haust og fram að jólum. Fréttablaðið renndi yfir það sem er fram undan í popp- og rokkdeildinni.<br />Eins og undanfarin ár kemur út nóg af íslenskum popp- og rokkplötum núna á haustmánuðum.

Lára sýnir Judy Garland

Leikkonan Lára Sveinsdóttir verður með Judy Garland-sýningu í Leikhúskjallaranum á morgun, sunnudag. Lára gaf fyrir skömmu út plötuna Judy Garland Kabarett sem er afsprengi sýningar sem var haldin í Þjóðleikhúskjallaranum síðasta vetur. Þar söng Lára þekktustu lög Garland ásamt því að bregða sér í nokkur hlutverk og segja sögu hennar. Garland var ein frægasta söng- og leikkona síðustu aldar. Hún hóf feril sinn aðeins tveggja og hálfs árs gömul. Hún lék í fjölda kvikmynda, kom fram í sjónvarpsþáttum og á tónleikum og sendi frá sér plötur.

Allir með tölu hjá CCP

Tölvuleikjafyrirtækið CCP styrkti Kvennaathvarfið með kaupum á 150 marglitum tölum fyrir starfsmenn fyrirtækisins en Kvennaathvarfið stendur þessa dagana fyrir fjáröflunarátakinu Öll með tölu. Starfsfólk fyrirtækisins bætti um betur og sýndi áhuga sinn á verki með frekari tölukaupum og kynningum á átakinu í samfélagsmiðlum. Að þessu tilefni kom starfsfólkið í Reykjavík saman í gær og við það tækifæri var meðfylgjandi mynd tekin.

Langaði að sjá eitthvað geggjað

"Þetta er svolítið eins og að eignast barn,“ segir Arnljótur Sigurðsson, söngvari og bassaleikari Ojba Rasta, um útgáfu fyrstu plötu sveitarinnar á þriðjudaginn.

Sjóðheitar súperbombur! Hvor er flottari?

Bjútíbomburnar Charlize Theron og Kim Kardashian féllu báðar kylliflatar fyrir þessum eldrauða kjól frá Lanvin. Charlize klæddist honum í Los Angeles við ljósa hæla en Kim ákvað að vera rauð frá toppi til táar. En hvor ber þennan fallega kjól betur?

Kynþokkafull með klauf

Leikkonan suðræna Penelope Cruz heillaði alla upp úr skónum á frumsýningu kvikmyndarinnar Twice Born á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto fyrir helgi.

Kate flassar magavöðvunum

Leikkonan Kate Hudson skekur sig allhressilega í fyrsta þætti fjórðu seríu af Glee. Kate leikur danskennarann Cassandra July í sjónvarpsseríunni og flassar stæltum magavöðvunum í einu atriðinu.

SJP selur lúxusíbúðina í New York

Sex and the City-pæjan Sarah Jessica Parker og eiginmaður hennar, leikarinn Matthew Broderick, eru búin að setja íbúðina sína í Greenwich Village-hverfinu í New York á sölu. Ásett verð? 25 milljónir dollara, rétt rúmlega þrír milljarðar króna.

Næstum því nakin Christina

Söngkonan og The Voice-dómarinn Christina Aguilera er búin að afhjúpa myndina sem prýðir hulstur nýjustu smáskífu hennar, Your Body.

Leður, leður og meira leður

Heitustu konurnar í Hollywood eru gjörsamlega ástfangnar af leðri og klæðast því á hvaða vegu sem er. Kíkið á myndirnar og fáið innblástur um hvernig hægt er að lúkka vel í leðri.

Komst ekki með Suri

Leikarinn Tom Cruise var ekki á staðnum er dóttir hans, Suri, hóf skólagöngu sína í vikunni.

Páll Baldvin ekki áfram í Kiljunni

Bókmenntaþáttur Egils Helgasonar, Kiljan, fer í loftið innan skamms á RÚV. Persónur og leikendur verða þó aðrir en verið hefur.

Jón Jónsson sækir bændur heim

Fyrsti þáttur Stöðvar 2 af þættinum Beint frá býli fór mjög vel í landann, enda fór tónlistarmaðurinn Björgvin Halldórsson á kostum. Næsti þáttur er ólíkur hinum fyrri að því leyti að það er Jón Jónsson sem kemur fram. Líkt og Björgvin er Jón Jónsson eldhress og fer á kostum, en tónlist þeirra er þó gerólík eins og þeir sem munu horfa á morgun taka eftir. Ábúendur að Meðalfelli í Kjós lifðu sig mjög vel inn í tónleika Jóns og voru hæstánægðir með heimsóknina og börnin á bænum sungu hástöfum með.

Stjörnurnar strippa hjá Ellen

Poppprinsessan Pink kom áhorfendum hressilega á óvart þegar hún sýndi nærbuxurnar sínar í þætti grínistans Ellen DeGeneres í vikunni. En hún er alls ekki sú eina sem er haldin strípihneigð í settinu hjá Ellen eins og meðfylgjandi myndir sýna.

Helgaruppskriftin - Rabarbarapæ með kaffinu

"Ég hef verið svo heppin að fá rabarbara frá vinkonu minni síðustu ár. Ég hef skorið hann niður og fryst í litlum pokum og get því unað mér rabarbarapæ yfir veturinn...

Eyðir 600 milljónum í brúðkaupið

Leikkonan Jessica Biel er aldeilis heppin ef eitthvað er að marka nýjustu sögusagnirnar um væntanlegt brúðkaup hennar og tónlistarmannsins Justins Timberlake

Gerlausar ostabollur - Ebba eldar með Latabæ

Ebba eða PureEbba er komin í lið með Lata­bæ og ætlar nú að kenna allri fjölskyldunni að elda hollt í glænýrri matreiðslubók sem kemur út síðar í þessum mánuði.

Heitustu trendin beint af pöllunum

Í meðfylgjandi myndasafni má sjá heitustu trendin fyrir næsta vor sem sýnd voru á tískuvikunni í New York sem nú er að ljúka. Gullið var afar áberandi sem og skæru litirnir rétt eins og þetta sumarið, magabolir, blómamunstur og margt fleira fallegt. Án efa eitthvað fyrir alla.

Elti ungar stjörnur um heiminn

Önnur sería sjónvarpsþátta Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur, Ísþjóðarinnar, hefur göngu sína á sunnudaginn. Að þessu sinni flakkaði Ragnhildur Steinunn heimshorna á milli til að eltast við unga Íslendinga sem eru að gera það gott.

Game of Thrones-leikari leikstýrir í Þjóðleikhúsinu

"Þeir eru yndislegir náungar og það er mjög gott að vinna með þeim," segir norður-írski Game of Thrones-leikarinn Ian McElhinney, sem leikstýrir Stefáni Karli Stefánssyni og Hilmi Snæ Guðnasyni í leikritinu Með fulla vasa af grjóti.

Sjá næstu 50 fréttir