Fleiri fréttir Einvalalið listamanna á styrktartónleikum Styrktartónleikar Kirkjukórs Lágafellssóknar, Jólaljós, verða í Guðríðarkirkju á sunnudaginn. Allur ágóði rennur til þriggja eftirlifandi barna Hönnu Lilju Valsdóttur sem lést af barnsförum í sumar. 18.11.2011 13:00 Rihanna stígur á svið Rihanna og Usher stíga á svið þegar tilkynnt verður um tilnefningar til bandarísku Grammy-verðlaunanna 30. nóvember. Aðrir sem koma fram verða Ludacris og Lupe Fiasco, Sugarland, Jason Aldean og Lady Gaga. Kynnir verður rapparinn LL Cool J. Grammy-verðlaunahátíðin sjálf verður haldin í 54. sinn í febrúar á næsta ári í Staples Centre í Los Angeles. Lady Gaga stal senunni á síðustu hátíð þegar hún var borin inn á svæðið í eggi. Á sviðinu söng hún síðan lagið Born This Way. 18.11.2011 13:00 Fleiri ábreiður frá Stebba og Eyfa „Það má segja að þetta sé sjálfstætt framhald af fyrri plötunni,“ segir Eyjólfur Kristjánsson um plötuna Fleiri notalegar ábreiður sem er að koma út hjá Senu. 18.11.2011 13:00 Læsileg frásögn en brotakennd Bók Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um íslenska kommúnista er læsileg frásögn, prýdd fjölda mynda og krydduð skemmtilegum arfsögnum. Kaflar eru stuttir og efnið streymir létt fram. Þetta er myndarleg bók og vel gerð, fáar ritvillur og útlit gott. Þetta er mikið verk, rúmlega 600 blaðsíður, og rækilegar eftirmálsgreinar, heimilda- og nafnaskrár. 18.11.2011 13:00 Vasadiskó: Haukur Heiðar kynnir nýja plötu Diktu 18.11.2011 12:46
Sjá næstu 50 fréttir
Einvalalið listamanna á styrktartónleikum Styrktartónleikar Kirkjukórs Lágafellssóknar, Jólaljós, verða í Guðríðarkirkju á sunnudaginn. Allur ágóði rennur til þriggja eftirlifandi barna Hönnu Lilju Valsdóttur sem lést af barnsförum í sumar. 18.11.2011 13:00
Rihanna stígur á svið Rihanna og Usher stíga á svið þegar tilkynnt verður um tilnefningar til bandarísku Grammy-verðlaunanna 30. nóvember. Aðrir sem koma fram verða Ludacris og Lupe Fiasco, Sugarland, Jason Aldean og Lady Gaga. Kynnir verður rapparinn LL Cool J. Grammy-verðlaunahátíðin sjálf verður haldin í 54. sinn í febrúar á næsta ári í Staples Centre í Los Angeles. Lady Gaga stal senunni á síðustu hátíð þegar hún var borin inn á svæðið í eggi. Á sviðinu söng hún síðan lagið Born This Way. 18.11.2011 13:00
Fleiri ábreiður frá Stebba og Eyfa „Það má segja að þetta sé sjálfstætt framhald af fyrri plötunni,“ segir Eyjólfur Kristjánsson um plötuna Fleiri notalegar ábreiður sem er að koma út hjá Senu. 18.11.2011 13:00
Læsileg frásögn en brotakennd Bók Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um íslenska kommúnista er læsileg frásögn, prýdd fjölda mynda og krydduð skemmtilegum arfsögnum. Kaflar eru stuttir og efnið streymir létt fram. Þetta er myndarleg bók og vel gerð, fáar ritvillur og útlit gott. Þetta er mikið verk, rúmlega 600 blaðsíður, og rækilegar eftirmálsgreinar, heimilda- og nafnaskrár. 18.11.2011 13:00
Flutti á móti straumnum frá Noregi til Íslands Hin norska Josefin Winther er kolfallin fyrir Íslandi eftir ársdvöl hér. Hún spilar körfubolta með KR og hefur verið dugleg að fara í leikhús í borginni. Í kvöld heldur hún fyrstu tónleika sína á Íslandi. 18.11.2011 12:00
Segir jóga hafa góð áhrif á vinnuna Sýning með nýjum málverkum Daða Guðbjörnssonar opnar á Kjarvalsstöðum á morgun klukkan fjögur. Daði sótti innblástur í Ódysseifskviðu Hómers við gerð verkanna. 18.11.2011 12:00
Mikið rétt gellurnar mættu í glamúrinn Meðfylgjandi myndir voru teknar í glamúrhófi í gær. Gellurnar létu sjá sig... 18.11.2011 11:23
Kærastan sterkari George Clooney hrósaði nýverið kærustu sinni, glímukonunni Stacy Keibler, í hástert í blaðaviðtali og sagði hana óvenju sterka. „Hún er mjög hávaxin og hún gæti lamið mig í klessu ef til þess kæmi. Hún gæti líklega gert út af við mig í þremur höggum. En hún er líka ofsalega ljúf og yndisleg,“ sagði leikarinn um kærustu sína. 18.11.2011 11:15
Bölvuð leiðindi þegar bíl trommuleikara var stolið „Maður er með sex manna fjölskyldu og trommusett sem þarf að ferja. Þetta eru bölvuð leiðindi," segir trommuleikarinn Einar Scheving. 18.11.2011 10:00
Losar sig við Marilyn Leikkonan Megan Fox hefur ákveðið að láta fjarlægja húðflúr sem hún ber á hægri handlegg. Húðflúrið er af leikkonunni Marilyn Monroe og hefur Fox þegar hafist handa við að fjarlægja flúrið. Fox lét flúra myndina á handlegg sinn þegar hún var átján ára gömul og segist nú vera komin með leiða á því. „Maður vex upp úr hlutum, núna finnst mér þetta ekki viðeigandi. Ég hef þegar farið einu sinni og á eftir þrjú skipti til viðbótar og ég held að ég muni ekki bera nein ör eftir meðferðina,“ sagði Fox. 18.11.2011 09:00
Helgi Björns kann sko að halda partý Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær þegar Helgi Björns kynnti nýja diskinn sinn, Dægurperlur, á veitingahúsinu La Luna á Rauðarárstíg... 18.11.2011 08:09
Bubbi syngur inn jólin á Akureyri „Ég var að spila fyrir norðan í vor og þá kom sægur af fólki og kvartaði undan því að það kæmist aldrei á Þorláksmessutónleikana mína, það gæti aldrei farið suður á þessum árstíma því það væri svo erfitt. Þannig að ég settist yfir dæmið og velti því fyrir mér hvort og hvernig ég gæti komið til móts við þetta fólk. Og komst að þeirri niðurstöðu að ég gæti haldið Þorláksmessutónleikana tveimur dögum fyrr fyrir norðan,“ segir Bubbi Morthens. 18.11.2011 08:00
Akkúrat rétta umgjörðin Todmobile er að gefa út sína sjöundu plötu og heldur af því tilefni útgáfutónleika í Eldborgarsal Hörpunnar í kvöld þar sem öllu verður tjaldað til. 18.11.2011 06:00
Demi Moore ætlar að skilja við Kutcher Demi Moore, leikkonan ástsæla, hefur ákveðið að skilja við eiginmann sinn, Ashton Kutcher. Þau hafa verið gift í sex ár. Samband þeirra hefur verið vinsælt umræðuefni á síðum slúðurblaðanna undanfarnar vikur, vegna frásagna af framhjáhaldi Kutchers. "Mér þykir mjög sorglegt að hafa tekið þá ákvörðun að binda endi á hjónaband mitt og Ashtons. Sem kona, móðir og eiginkona eru ákveðin gildi sem eru mér heilög og það er á grundvelli þeirra gilda sem ég hef ákveðið að halda áfram lífi mínu,“ sagði Moore í samtali við AP fréttastofuna. 17.11.2011 22:26
María Ellingsen og Eivör fóru í sjósund í Færeyjum María Ellingsen, Eivör Pálsdóttir og félagar skelltu sér í sjósund í Færeyjum eftir sýningu á dansverkinu Ferðalag Fönixins. 17.11.2011 22:00
Stjarnfræðilegar vinsældir lélegustu hljómsveitar heims Ótrúlega margar frábærar hljómsveitir hafa komið frá Kanada undanfarin ár. Arcade Fire, Wolf Parade og Broken Social Scene eru aðeins lítill hluti af hópi sem Nickelback tilheyrir ekki. 17.11.2011 21:30
Fiskar narta húðflögur af andliti Nilla Týnda kynslóðin leggur land undir fót fyrir næsta þátt. Hópurinn er staddur í Kaupmannahöfn og gerir þar alls kyns óskunda eins og þeim einum er lagið. 17.11.2011 16:30
Kynþokkinn hjálpaði mér ekki Eftir að ég var valin kynþokkafyllsta lifandi konan í heiminum gerði ég ráð fyrir að allar dyr myndu opnast fyrir mér... 17.11.2011 15:19
Upphafið að endi Twilight Aðdáendur Twilight-seríunnar höfðu tjaldað í nokkra daga fyrir utan Nokia-leikhúsið í Los Angeles til þess að geta séð aðalleikara Twilight-myndanna mæta á frumýningu The Twilight Saga: Breaking Dawn Part 1 á mánudagskvöldið. Ekki urðu þeir fyrir vonbrigðum því allir mættu í sínu fínasta pússi. 17.11.2011 20:00
Lætur Gettu betur ekki nægja Laufey Haraldsdóttir var í sigurliði Kvennaskólans í Reykjavík í Gettu betur í vor. Hún lætur til sín taka í félagslífi skólans, er illa við að hanga á sófanum og stefnir á leiklistarnám í framtíðinni. 17.11.2011 14:30
Dr. Dre tekur sér frí Rapparinn og upptökustjórinn Dr. Dre ætlar að taka sér frí frá tónlistinni eftir 27 ár í bransanum án teljandi hvíldar. 17.11.2011 14:00
Fágaður Felix Þögul nóttin hefur yfir sér fágað yfirbragð. Það hefur greinilega verið vandað til verka. Á heildina litið þokkalegasta plata, en Felix gerir örugglega betur næst. 17.11.2011 13:00
Bono kenndi mér að dansa Florence Welch úr hljómsveitinni Florence and the Machine segir að Bono, söngvari U2, hafi kennt sér að dansa á háum hælum uppi á sviði. Hljómsveitin hitaði upp fyrir U2 á 360-tónleikaferð hennar um heiminn. 17.11.2011 13:00
Æðislegt að sýna fyrir vestan Heimildarmyndin Stansað, dansað, öskrað er að koma út í tilefni þess að þrjátíu ár eru liðin frá stofnun hljómsveitarinnar Grafíkur. Frumsýningin verður á Ísafirði 24. nóvember. 17.11.2011 12:30
Þetta er náttúrulega bara geðveiki Þetta er í einu orði sagt geðveiki, segir Heiðar Austmann útvarpsmaðurinn geðþekki á FM957 þegar hann lýsir... 17.11.2011 12:20
Þú & ég með jólalag Dúettinn Þú & ég, sem þau Helga Möller og Jóhann Helgason skipa, hefur gefið út nýtt jólalag sem nefnist Ljós út um allt. Lagið er eftir Gunnar Þórðarson og textinn eftir Þorstein Eggertsson. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1980 sem Þú & ég gefur út jólalag, en þá kom út Í hátíðarskapi sem hefur notið mikilla vinsælda. Lagið verður spilað á árlegum jólatónleikum Helgu Möller í Laugarneskirkju sem verða haldnir 8. og 15. desember. Þar koma fram góðir gestir, þau Ragnar Bjarnason, Gunnar Þórðarson, Ómar Ragnarsson, Elísabet Ormslev og Þú & ég. Magnús Kjartansson, Björn Thoroddsen, Einar Valur Scheving og Jón Rafnsson sjá um undirleik. 17.11.2011 12:00
Boyle vill syngja með Kings of Leon Söngkonan Susan Boyle, sem sló eftirminnilega í gegn í sjónvarpsþáttunum Britain‘s Got Talent, hefur áhuga á að syngja með Kings of Leon og Lady Gaga. 17.11.2011 12:00
Ekki barn Bieber er krúttbomba Meðfylgjandi má sjá myndasyrpu af barninu sem Bieber á ekki ásamt mömmu sinni, Mariuh Yeater, 20 ára, sem steig fram í fjölmiðlum í lok október með drenginn, þá aðeins þriggja mánaða... 17.11.2011 11:55
Sumir skór eru meira sexí en aðrir Söngvararnir Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Matthías Matthíasson ræða um Freddie Mercury heiðurstónleikana sem eru framundan og skó eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði... 17.11.2011 10:22
Troðfullt á Twilight Fjórða kvikmyndin um þau Edward, Bellu og Jakob úr Twilight-seríunni var forsýnd í gærkvöldi í Sambíó Egilshöll... 17.11.2011 09:48
Eins og að vinna með Mariu Callas Keith Richards, gítarleikari The Rolling Stones, líkti því að vinna með Mick Jagger við að vinna við hlið óperudívunnar Mariu Callas. Richards sagði í viðtali við The Guardian að hinir hljómsveitarmeðlimirnir hafi tiplað á tánum í kringum Jagger til þess að halda honum góðum, en hann hafi ávallt viljað hafa rétt fyrir sér. 17.11.2011 02:30
Hjálmar teiknuðu stjörnu í Köben Hljómsveitin Hjálmar spilaði síðastliðið laugardagskvöld í Kulturhuset við Islands Brygge í Kaupmannahöfn. Þar kom hún fram við góðar undirtektir gesta, en tónleikarnir voru hluti af Koldbrand-tónlistarhátíðinni. 16.11.2011 20:00
Friðrik Ómar og Jógvan ræða barneignir 20. desember þá er Hrafnhildur sett... já þetta verður litli jólamaðurinn kannske, segir Jógvan Hansen einlægur spurður út í frumburðinn... 16.11.2011 17:37
Bieber er þá ekki pabbinn eftir allt saman Tvítug stúlka, Mariah Yeater, sem steig fram í fjölmiðlum með þriggja mánaða gamalt barn sem hún sagði vera son Bieber er hætt við allt saman... 16.11.2011 17:15
Sigurður sextugur Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson varð sextugur í síðustu viku og fagnaði áfanganum með veislu á Kaffi Nauthóli um helgina. Veislan var vel sótt eins og sjá mátti af jeppaflotanum fyrir utan kaffihúsið og þótti vel heppnuð. Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens og Jóhannes Kristjánsson eftirherma stigu á stokk og skemmtu gestum en þeirra á meðal var Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. 16.11.2011 17:00
Þýski afinn hærri og eldri en Siggi Sigurjóns Þýski grínistinn Karl Dall mun leika Afann í Þýskalandi á næsta ári. Samningur þess efnis var undirritaður um síðustu helgi. Dall sá Sigurjón Sigurjónsson leika Afann í Borgarleikhúsinu og hittust „afarnir“ tveir eftir sýninguna. „Þetta er bara þýskur afi. Hann er ögn hærri í loftinu en ég og eilítið eldri,“ segir Sigurður. „Ég lék þetta fyrir hann eins og óður væri og ég vona að hann hafi lært eitthvað af því.“ Spurður hvort Dall hafi roð við honum í hlutverkinu segir Sigurður léttur: „Það held ég reyndar ekki. En fyrir þýskan markað, það má alveg reyna það.“ 16.11.2011 15:00
Melódískt sýrupopp Kjarr er nýtt verkefni Kjartans Ólafssonar sem gerði góða hluti sem annar aðalmaður rafpoppsveitarinnar Ampop og var hann einnig meðlimur í Leaves. Á heildina litið er þetta ágætis plata frá hæfileikaríkum tónlistarmanni. 16.11.2011 20:00
Elska nýja Charlies-lagið en segja myndbandið undarlegt Íslenska hljómsveitin The Charlies er sem kunnugt er starfrækt frá Los Angeles um þessar mundir. Þær stúlkur hafa nú gefið út svokallað mixteip á heimasíðu sinni. Samhliða því kom út myndbandið við lagið Monster á YouTube sem horfa má á hér í fréttinni. 16.11.2011 16:00
Magnaður rokkpakki Ein af rokkplötum ársins. Sólstöfum hefur tekist að búa til magnaða stemningu á henni sem nær taki á manni strax í forspilinu í fyrsta laginu, Ljós í stormi, og heldur manni út plötuna. 16.11.2011 14:00
Hellisbúinn loksins samþykktur í Kína "Eftir nokkrar breytingar hefur leikgerðin loksins verið samþykkt í Kína,“ segir Óskar Eiríksson, framkvæmdastjóri Leikhúsmógulsins ehf. sem ætlar að setja upp leikritið Hellisbúann í Kína á næstu mánuðum. 16.11.2011 14:00
Gott að vera einhleyp Leikkonan Charlize Theron var einhleyp í fyrsta sinn í næstum tvo áratugi á meðan hún lék í myndinni Young Adult og líkaði það vel... 16.11.2011 13:30
Madonna og unglambið Madonna, 53 ára, mætti í Kabbalah trúmiðstöðina síðasta laugardag í New York... 16.11.2011 12:15
Bieber þetta er ekki Selena Gomez Eins og sjá má á myndunum var Bieber brjálaður út í ljósmyndarana sem mynduðu hann bak og fyrir... 16.11.2011 11:00
Brosað út í annað Tower Heist hefur allt sem til þarf nema brandarana. Leikarahópurinn er öflugur og Brett Ratner er enginn aukvisi þegar kemur að leikstjórn gamansamra spennumynda og hefði því átt að geta neglt þetta. Handritið er hins vegar ekki nógu fyndið og eftir stendur grínmynd þar sem grínið er af skornum skammti. 16.11.2011 11:00