Fleiri fréttir

Vibskov og Mundi til Seattle

Norræni tískutvíæringurinn verður haldinn í annað sinn í Seattle þann 30. september og stendur hann yfir til 13. nóvember. Norræna húsið er stofnandi tvíæringsins en listakonan Hrafnhildur Arnardóttir sinnir starfi sýningastjóra í ár.

Lampi í anda Eyjafjallajökuls

"Þegar Eyjafjallajökull og öskuskýið tóku yfir fréttatímann og dagblöðin í heiminum í fyrra heillaðist ég af myndunum sem birtust og þaðan kom hugmyndin að lampanum," segir Mia E. Göransson, sænskur leirhönnuður sem hefur hannað lampa sem ber nafnið Eyjafjallajökull.

Vó þið eruð nákvæmlega eins

Eins og meðfylgjandi myndir sýna er vaxstyttan af söngkonunni Aliciu Keys nákvæmlega eins og hún. Alicia sló á létta strengi þegar stytttan var formlega afhjúpuð á Madame Tussauds vaxmyndasafninu í New York í gær.

Konungur næturinnar skemmtir sér með myndavélinni

„Ég var alltaf úti á lífinu og eins og gengur og gerist þá tók ég með mér myndavél og fór að taka myndir af fólkinu. Það var síðan 2006 að ég ákvað að fara að gera eitthvað úr þessu,“ segir Sveinbjörn Gísli Þorsteinsson ljósmyndari.

Íslenski dansflokkurinn gerir góða hluti erlendis

Íslenski dansflokkurinn sýndi í annað sinn á stuttum tíma á danshátið í Austuríki. Í apríl á þessu ári sýndi flokkurinn í Linz og fékk vægast sagt frábærar viðtökur. Blaðið OÖNachrichten gaf sýningunni fimm stjörnur af sex mögulegum. Í júní var ferðinni svo heitið til Dornbirn þar sem Íslenski dansflokkurinn sýndi verkið "Svanurinn“ eftir Láru Stefánsdóttur, ásamt því að sýna nýjar íslenskar dansstuttmyndir eftir Katrínu Hall og Reyni Lyngdal. Íslenski dansflokkurinn fékk mjög góðar viðtökur í Dornbirn og var uppselt á báðar sýningar flokksins. Mikil áhersla var lögð á sýningu Íslenska dansflokksins í allri kynningu á danshátíðinni og voru myndir úr Svaninum í forgrunni í öllum kynningarefni ásamt myndefni út náttúru Íslands. Þessi mikla athygli útheimti að dansarar stæðu undir miklu væntingum sem þeir gerðu með sóma. Flokkurinn fékk einkar góða umsögn í þarlendum blöðum.

Íslenskur Iggy Pop

Ég verð að viðurkenna að ég veit engin deili á Guðmundi Þóri Sigurðssyni, en eftir því sem ég kemst næst er Guðmundur hans fyrsta sólóplata. Á henni eru níu lög og textar eftir hann, en þau voru hljóðrituð hjá Benzín bræðrum í Sýrlandi í ágúst í fyrra. Guðmundur syngur lögin, en þeir Börkur og Daði Birgissynir. Stefán Már Magnússon, Kristinn S. Agnarsson og Björn Ingason sjá um hljóðfæraleikinn og Margrét Eir bakraddar.

Magnús Scheving á háborði spænsku krúnunnar

„Prinsessan tjáði mér að stelpur þeirra hjóna væru miklir aðdáendur Latabæjar. Ég sagði henni að ég væri með tvo Sollu stirðu-búninga með mér og að þær mættu fá þá,“ segir Magnús Scheving.

Skilin í annað sinn

Californication stjarnan David Duchovny, 50 ára, og leikkonan Tea Leoni, 45 ára, eru skilin að borði og sæng. Þau hafa ákveðið að skilja í óákveðinn tíma en þau ætla að sjá til hvað þau ákveða að gera í framhaldinu. Þau giftu sig í maí árið 1997 og eignuðust saman tvö börn, Madelaine og Kyd. Í október 2008 skildu þau örfáum vikum eftir að David útskrifaðist úr kynlífsmeðferð. Það var síðan ári síðar að þau tóku saman á ný. Skoða má myndir af þeim í meðfylgjandi myndasafni.

Hágrátandi fyrirsæta

Fimm ára krullhærð fyrirsæta hágrét á Smalto tískusýningunni í París síðasta laugardag. Eins og myndirnar sýna leiddi brasilíska ofurfyrirsætan Alexandre Cunha hágrátandi drenginn en tók hann síðan í fang sér í lokaatriðinu og þá var fimm ára fyrirsætan enn að jafna sig. Drengurinn bræddi nærstadda með tárum sínum. Haft var á orði að margar fyrirsætur eru oftar en ekki hágrátandi innra með sér en halda andlitinu á pöllunum. Barninu var hinsvegar slétt sama og þerraði stöðugt tárin. Sjá drenginn í meðfylgjandi myndskeið (08:36) og í blálokin. Facebook-leikur Lífsins. Vertu með hér!

Leikaraliðinu leiddist greinilega ekki

Meðfylgjandi myndir voru teknar á veitingahúsinu Kex í gærkvöldi á árshátíð Brynjanna og Útlaganna sem eru félög leikkvenna og leikara sem lærðu erlendis. Félögin eru nú orðin þriggja ára og fara ört stækkandi enda sífellt fleiri sem sækja nám sitt utan landsteinanna. Síða Brynjanna á Facebook. Síða Útlaganna á Facebook. Facebook-leikur Lífsins. Vertu með hér!

Alan og Íris gefa út brúðkaupsballöðu

Tónlistarmaðurinn Alan Jones gefur um miðjan júlí út ballöðuna Stay With Me ásamt Írisi Hólm. „Þetta er hálfgert brúðkaupslag. Við vonum að þegar fólk heyri það vilji það nota lagið í brúðkaupunum sínum,“ segir Alan.

Davíð fékk vespuna skemmda til baka

"Vespan fannst í Írabakka. Lögreglan í Kópavogi kom með hana heim áðan. Lögreglumaðurinn var búinn að sjá fréttina á Visir.is í dag og hringdi í mig. Ég þakka kærlega fyrir þetta," sagði Bryndis Erna móðir Davíðs...

Dama í gær drusla í dag

Leikkonan Drew Barrymore, 36 ára, var mynduð á LAX flugvellinum í Los Angeles í gærdag, klædd í gallbuxur og Iron Maiden bol með nýja kærastanum sínum, Will Kopelman. Þá má einnig sjá Drew uppáklædda á rauða dreglinum í síðustu viku í myndasafni. Eftir að Drew sat fyrir léttklædd í Playboy árið 1995 sendi leikstjórinn Steven Spielberg henni bútasaumsteppi með orðunum breiddu yfir þig. Eintak af blaðinu fylgdi með þar sem búið var að breyta öllum myndum af henni þannig að hún var fullklædd á þeim öllum.

Viltu frítt eintak af Léttara og betra líf?

Léttara og betra líf er leiðarvísir danska ráðgjafans og sjónvarpskonunnar Lene Hansson til heilsubótar og vellíðunar – um er að ræða átta vikna áætlun þar sem hollmeti og hreyfing vísar veginn til breyttra og bættra lífshátta. Kvittaðu á Facebook síðu Lífsins, deildu leiknum á þinni Facebook síðu og hver veit nema heppnin verði með þér. Við drögum út fimm heppna þátttakendur næsta föstudag, 1. júlí. Vertu með ef þú vilt taka mataræðið í gegn hér. Í meðfylgjandi myndskeiði spyrjum við Lene út í svokallaðan svarta lista sem inniheldur fæðutegundir sem hún ráðleggur fólki sem vill grennast og bæta heilsuna alls ekki að neyta.

Hvítt heltekur Hollywood

Meðfylgjandi myndir sýna að Hollywoodstjörnurnar eru hrifnar af skjannahvítum kjólum. Sjáðu Kim Kardashian, Carrie Underwood, Kate Middleton, Lucy Liu, Evu Longoria og fleiri í myndasafni.

Spennandi tækifæri

Herborg Eðvaldsdóttir er á leið í starfsnám í postulínsverksmiðjunni Kahla í Þýskalandi. „Þetta verður skemmtileg upplifun,“ segir Herborg Eðvaldsdóttir en tilkynnt var um valið á alþjóðlegu sýningunni DMY í Berlín á dögunum, þar sem sjö nemendur skólans sýndu verk sín.

Ýkt sæt svona ómáluð

Þýska fyrirsætan Claudia Schiffer, 40 ára, tekur sig vel út í Chanel gleraugnaherferð fyrir haustið 2011 eins og sjá má í myndasafni. Claudia lét hafa eftir sér í tímaritinu Harper´s Bazaar að hún ætlar innan tíðar að setja eigin prjónafatalínu á markað. Ég er mjög bjartsýn og jákvæð varðandi verkefnið en á sama tíma pínu taugaveikluð. Ég hef alltaf ætlað mér að framleiða eitthvað sem ég sjálf er mjög hrifin af, eitthvað sem ég er virkilega stolt af, lét fyrirsætan hafa eftir sér. Þá má sjá Claudiu, sem á þrjú börn, á hlaupum fyrir utan skóla elstu barnanna sinna, sem eru 6 og 8 ára, ómálaða með slegið hárið.

Rappari skrifar um einelti

50 Cent vinnur nú að bók um einelti. Rapparinn hefur þegar skrifað undir samning við bókaútgefandann Ben Schrank um innihald bókarinnar, en hún mun kallast Playground og vera skáldsaga byggð á hans eigin æsku.

Dýrgripir úr ólíkum þræði

Sýningin Þræðir var opnuð á þjóðhátíðardaginn í Sparki á Klapparstíg 33. Þar mætast tvær kynslóðir sem fást við skartgripagerð á ólíkan hátt en þó eiga þær margt sameiginlegt.

Trúir á Lindsay Lohan

Leikarinn og fyrrverandi kærasti Lindsay Lohan, Wilmer Valderrama, segist ennþá hafa trú á leikkonunni þrátt fyrir mikil vandræði hennar upp á síðkastið. Valderrama og Lohan voru saman árið 2004 en leikarinn, sem er þekktastur fyrir leik sinn í þáttaröðinni That ‘70s Show, tjáir sig um Lohan í viðtali við blaðið People.

Tilvonandi prinsessa er bæði óörugg og kvíðin

Albert prins af Mónakó gengur að eiga sunddrottninguna Charlene Wittstock um næstu helgi. Tilvonandi prinsessa hefur átt í erfiðleikum með að aðlagast menningunni og tungumálinu í Mónakó. Henni hefur verið bannað að veita viðtöl fram að brúðkaupinu.

Paris stofnar hótelkeðju

Paris Hilton ætlar að stofna hótelkeðju, eins og langafi hennar, Conrad Hilton, gerði árið 1925 en hann er maðurinn á bak við Hilton-hótelin heimsþekktu. Hin þrítuga Paris hætti með kærasta sínum Cy Waits á dögunum og vill nú ólm einbeita sér að nýjum verkefnum, en hún hefur þegar hannað föt, skó og ilmvötn undir sínu nafni.

Hjálpum Davíð að finna vespuna sína

"Vespan hans Davíðs var læst fyrir framan eldhúsgluggann okkar í hleðslu og á sunnudeginum um hádegið kíkti ég út. Þá hélt ég að Davíð hefði farið á vespunni til pabba síns þannig að ég var ekkert að hafa áhyggjur af því," segir Bryndís Erna Thoroddsen móðir þrettán ára drengs, Davíðs, sem saknar vespunnar sinnar sárt en henni var stolið aðfaranótt sunnudags í Asparlundi í Garðabæ. Davíð var að leika í leikhúsinu, í Skoppu og Skrýtlu, og vann sér inn 150 þúsund krónur. Hann keypti sér vespuna í október í fyrra fyrir launin, ofsalega stoltur," útskýrir Bryndís Erna. Hún er af gerðinni Zuzuki, aðallega hvít á litin með smá gráu og það er bara einn spegill á henni en flestar eru með tveimur speglum. Já já við erum búin að keyra út um allt og hann er búinn að tala við krakkana í hverfinu," segir Bryndís spurð hvort þau hafi leitað að vespunni í í hverfinu. Í meðfylgjandi myndasafni má sjá skutluna hans Davíðs. Vinsamlegast hafið augun opin fyrir vespunni hans Davíðs. Sími Bryndísar er 6973912. Allar ábendingar vel þegnar.

Hann er fáránlega sætur

„Það eru fyrst og fremst sagan hans og lögin sem heilla stelpur, en svo er hann auðvitað alveg fáránlega sætur,“ segir María Mjöll Björnsdóttir, 16 ára Kópavogsmær og einn helsti Justin Bieber-aðdáandi Íslands.

Þú eldist fáránlega vel

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum eldist ástralska leikkonan Nicole Kidman, 44 ára, fáránlega vel. Leikkonan brosti blítt í gærdag þegar hún mætti á flugvöllinn í Sydney í Ástralíu ásamt dætrum sínum Sunday og Faith. Þá má sjá Nicole ásamt barnsföður sínum og eiginmanni Keith Urban sem gaf nýverið út lagið Without You í myndasafni.

Kate týndi hringnum á Glastonbury

Kate Moss týndi trúlofunarhring sínum á Glastonbury-hátíðinni um helgina. Fyrirsætan var stödd á tónleikum The Kills þegar hún uppgötvaði að hringurinn var horfinn, en kærasti hennar, Jamie Hince, er gítarleikari hljómsveitarinnar.

Kristrún Ösp og Dwight Yorke byrjuð saman aftur

Já erum svona að spá í þessu aftur. Ég fór bara stutt út núna og ætla hitta hann aftur í næsta mánuði, svarar Kristrún Ösp spurð hvort hún sé aftur byrjuð með fótboltakappanum Dwight Yorke. Líklegast til Barbados eða Trinidad, bætir hún við. Ég fór til Manchester að hitta hann yfir helgina og við keyrðum saman til London og höfðum það gott yfir helgina saman., Ég var að koma heim núna rétt áðan, sagði Kristrún Ösp áður en við kvöddum hana rétt í þessu.

Owen Wilson í ástarsorg

Bandaríski leikarinn Owen Wilson er hættur með barnsmóður sinni, Jade Duell. Hún er flutt út og býr í New York ásamt syninum Robert Ford.

Sundlaugin kallar á mann

Sundlaugin við húsið sem staðsett er í Ástralíu kallar svo sannarlega á mann. Húsið, sem er hannað af arkitektum sem kalla sig Vibe Design Group, er sérstak í útliti eins og sjá má í myndasafni en lögð var áhersla á að birtan fengi að njóta sín og að allar hliðar hússins myndu gleðja íbúa þess þegar kemur að útliti og notagildi.

Brúðarkjóll valinn fyrir stóra daginn

Raunveruleikasjónvarpsstjarnan Kim Kardashian, 30 ára, sem ætlar að giftast körfuboltastjörnunni Kris Humphries, fékk aðstoð fatahönnuðarins Veru Wang við val á brúðarkjólnum í gær. Kourtney systir Kim var einnig með í för. Eins og myndirnar sýna var leitin að rétta kjólnum tekin upp af starfsmönnum sjónvarspsstöðvarinnar E! sem sér til þess að heimurinn geti fylgst með öllu sem Kardashian fjölskyldan tekst á við. Chelsea Clinton, Ivanka Trump, Jennifer Lopez og Jennifer Aniston hafa allar gift sig í kjólum eftir Veru Wang. Haustlína Veru Wang 2011 .

Leikari kvæntist ólögráða stúlku

Leikarinn Doug Hutchison, sem þekktastur er fyrir leik sinn í kvikmyndinni The Green Mile og sjónvarpsþáttunum Lost og The X-Files, kvæntist á dögunum hinni sextán ára gömlu Courtney Alexis Stodden í Las Vegas. Hutchison er sjálfur fimmtíu og eins árs gamall og ári eldri en tengdamóðir hans.

Aniston með nýtt tattú

Ef meðfylgjandi myndir eru skoðaðar gaumgæfilega má greinilega sjá að leikkonan Jennifer Aniston, 42 ára, er komin með nýtt tattú á hægri fótlegg. Þar hefur nafn hundsins hennar, Norman, sem dó í síðasta mánuði, verið húðflúrað með tengiskrift sem virðingavottur af hennar hálfu við tímann sem þau áttu saman. Þá má einnig sjá Norman í myndaalbúmi og Justin Theroux, nýja kærastann hennar. Fyrrverandi eiginmaður hennar Brad Pitt hafði samband þegar hann frétti af fráfalli Norman.

Gátu ekki beðið lengur

Stjörnuparið Daniel Craig og Rachel Weisz giftu sig um helgina. Fréttirnir komu flestum á óvart enda hefur parið einungis verið saman í nokkra mánuði og ekki er ár liðið frá því að leikkonan skildi við leikstjórann Darren Aronofsky.

Cars 2 beint á toppinn

Teiknimyndin Cars 2 frá Pixar fór beint á toppinn yfir vinsælustu myndirnar vestanhafs um síðustu helgi. Þrátt fyrir það sögðu gagnrýnendur myndina þá verstu úr herbúðum Pixar frá upphafi. Myndin náði inn 68 milljónum dala í kassann á fyrstu þremur dögum sínum, eða tæpum átta milljörðum króna. Hún er tólfta myndin frá Pixar í röð sem fer á toppinn í Norður-Ameríku, síðan fyrsta myndin Toy Story kom út árið 1995. Í öðru sæti yfir vinsælustu myndirnar lenti Bad Teacher með Cameron Diaz í aðalhlutverki.

Fámennt en góðmennt í Galtalæk

„Við erum alls ekki ánægðir með þetta en svona gerist stundum," segir Alexander Kárason, einn aðstandenda tónlistar-og jaðarsportshátíðar sem fram fór í Galtalæk um helgina, en gestafjöldi hátíðarinnar var langt undir væntingum.

Kaupendur hanna fötin

Fyrsti íslenski internetklæðskerinn sem sérhæfir sig í sérsaumuðum og sérhönnuðum jakkafötum á karlmenn og drögtum á konur hefur hafið rekstur. Áætluð er útrás til Skandinavíu og Bretlands.

Prinsessan toppar sjálfa sig í kjólavali

Vihljálmur prins og prinsessan hans, Kate Middleton, mættu á Wimbledon-tennismótið í dag sem fram fer í London eins og sjá má á meðfylgjandi myndunum. Prinsessan var klædd í hvítan Moraiah kjól frá Temperley London á mótinu. Þá má sjá Kate ómótstæðilega í dökkbláum hnepptum kjól þegar hún heiðraði írska hermenn með Villa sínum á laugardaginn var.

Kaðlar og krúsidúllur

Tískuvikunni í Sao Paulo lauk á dögunum en þar mátti sjá kvenleg snið og múlbundnar fyrirsætur.

Getur ekki hætt að monta sig af Aniston

Leikkonan Jennifer Aniston og kærasti hennar, leikarinn og handritshöfundurinn Justin Theroux, sáust saman opinberlega í fyrsta sinn á MTV kvikmyndaverðlaunum sem fram fóru í byrjun júní. Parið virðist afskaplega ástfangið og hyggjast ættleiða hund saman.

Ásdís Rán pollróleg þrátt fyrir Facebook-vesen

Það gerðist ekkert! Þetta virkar bara þannig að ef það er reportað nógu mikið út af myndunum mínum eða prófílnum þá er honum eytt á endanum ásamt fansíðunni sem er tengd við prófílinn minn, svarar Ásdís Rán fyrirsæta spurð hvað í ósköpunum kom fyrir Facebooksíðuna hennar en henni var eytt á Facebook um helgina. Ég var löngu buin að taka út allar myndir sem teljast yfir siðgæðisreglum FB en samt sem áður þá er hægt að reporta líka myndir sem fólki finnst of ögrandi og þegar þessi basic hópur 'á móti Ásdísi Rán' hefur ekkert betra að gera þá níðast þeir á Facebookinu mínu og reporta allt, segir Ásdís. Þetta er í annað skiptið sem ég missi öll tengslin min og auðvitað aðdáendur líka sem skiptu hátt í 10.000 svo þetta er alltaf frekar svekkjandi að fólk geti mögulega haft svona áhrif. En flestir vita hvar er hægt að ná í mig á email eða asdisran.com og ég er buin að stofna nýjan reikning á Facebook sem ég auðvitað held gangandi til að geta verið í sambandi við famelíu og fólk milli landa á sem auveldastan hátt," segir Ásdís Aðdáendasíða Ásdísar á Facebook

Nevermind í nýrri útgáfu

Viðhafnarútgáfa af Nevermind með Nirvana kemur út 19. september, 20 árum eftir að upphaflega platan kom út. Fjórir geisladiskar og einn mynddiskur fylgja með pakkanum. Þar verða áður óútgefin lög, B-hliðalög, tónleikaupptökur og fleira góðgæti.

Reynir við Ameríku

„Þetta er mjög spennandi. Næsta rökræna skref hjá mér er að prófa Ameríku,“ segir auglýsingaleikstjórinn Þórhallur Sævarsson. Hann hefur samið við hið virta bandaríska framleiðslufyrirtæki Madheart og ætlar að starfa fyrir það á næstunni. Þórhallur hefur á sjö ára ferli sínum unnið mestmegnis í Evrópu og gert auglýsingar fyrir Skoda, Philips, McDonald"s, Vodafone, Coca-Cola og fleiri þekkt fyrirtæki.

Sjá næstu 50 fréttir