Fleiri fréttir

Í spor einhverfra

„Ég gerði bók um einhverfu,“ segir Jóhann Leó Linduson, nemi í grafískri hönnun, um útskriftarverkefni sitt. Jóhann Leó stefnir á að útskrifast úr grafískri hönnun nú í vor. Bókin ber heitið Í annarra manna spor og Jóhann segir að tilgangurinn með henni sé að útskýra á einfaldan hátt vandamál tengd einhverfu.

Söngvararnir stela senunni

Arabian Horse er mjög sterk og sannfærandi Gusgus-plata og mun aðgengilegri og skemmtilegri en sú síðasta. Hún ætti að geta stækkað áheyrendahóp sveitarinnar enn frekar, bæði hér á landi og erlendis.

Maria Shriver ræður spæjara

Maria Shriver hefur ráðið einkaspæjara til að rannsaka þær fullyrðingar að fyrrverandi eiginmaður hennar, Arnold Schwarzenegger, eigi fleiri en eitt barn utan hjónabands þeirra. Þetta kom fram á fréttasíðunni RadarOnline.com.

Hvernig dettur þér í hug að vera svona til fara?

Söngkonan Lady Gaga kynnti nýju plötuna sína, Born This Way, í New York með látum í fyrradag. Þá var hún meðal annars mynduð fyrir utan upptökuver sjónvarpsþáttarins The Late Show með David Letterman þar sem hún var gestur. Eins og sjá má í myndasafni var söngkonan léttklædd vægast sagt.

Þessi toppar þá alla (svei mér þá)

Jennifer Lopez, 41 ára, var klædd í bláan Zac Posen kjól í gær þegar Simon Fuller, gaurinn á bak við Idolið, fékk eigin Hall of Fame stjörnu sem þykir mikill heiður í skemmtanabransanum. Þá má sjá eiginmann Jennifer, Marc Anthony, og Randy Jackson einn af dómurum American Idol keppninnar í myndasafni.

Önnur upprisa Fönixins í kvöld

Seinni sýning Ferðalags fönixins verður á Stóra sviði Borgarleikhússins á Listahátíð í Reykjavík í kvöld. Í sýningunni fást Eivör Pálsdóttir söngkona, Reijo Kela nútímadansari og María Ellingsen leikkona hver á sinn hátt við hina táknrænu goðsögu um Fönixinn.

Bieber setur konuilmvatn á markað

Söngvarinn Justin Bieber setur á markað konuilmvatn, sem ber heitið Someday, eftir 25 daga. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá auglýsingu ilmvatnsins. Í tilkynningu frá söngvaranum er skýrt tekið fram að Justin lét gera ómótstæðilegan ilm fyrir aðdáendur sína sem eru ófáir um víða veröld. Hann fær ekki nóg af því að lykta af Someday ilminum.

Tenórinn í Hörpu með grúppíuhóp

Hátt í fjögur hundruð erlendir aðdáendur þýska tenórsins Jonasar Kaufmann voru í Eldborgarsal Hörpunnar þegar hann þandi raddböndin með Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð Reykjavíkur. Margra mánaða og jafnvel ára bið er eftir miðum á tónleika Kaufmanns í Evrópu.

Úr tónlist í tískuna

Plötuútgefandinn Haraldur Leví Gunnarsson opnaði tískuverslunina Lólu við Laugaveg 55 ásamt kærustu sinni, Eddu Ýr Aspelund, í gær. Verslunin selur notaðan fatnað og er hver flík sérvalin af Haraldi og Eddu. "Við ætluðum okkur að opna verslun síðasta sumar en það varð ekkert úr því þá. Við ákváðum því að kýla á þetta í sumar og höfum nú unnið hörðum höndum að því að koma öllu í stand. Við höfum staðið hér undanfarna daga með pensil í hönd og unnið að því að koma húsnæðinu í almennilegt stand," segir Haraldur Leví sem einnig er eigandi hljómplötuútgáfunnar Record Records og fyrrum trymbill hljómsveitanna Lödu Sport og Lifun.

Fimm atriði sem þú vissir ekki um Claudiu Schiffer

Claudia Schiffer var ein vinsælasta fyrirsæta tíunda áratugarins og var lengi andlit tískuhússins Chanel. Hún þykir sláandi lík kvikmyndastjörnunni Brigitte Bardot og hefur á ferli sínum prýtt forsíður meira en 500 tímarita.

Brjálaðir tónleikagestir

Algerlega frábær skemmtun með stórkostlegum listamanni. Áheyrendur gengu gersamlega af göflunum! Kaufmann var klappaður upp hvað eftir annað, og söng hvorki meira né minna en fjögur aukalög. Þetta voru ótrúlegir tónleikar. Ljóst er að tónlistarlífið í Hörpu byrjar vel.

Gulur, rauður, grænn og blár

Dökkir litir hafa verið ríkjandi í snyrtivörum í vetur en nú taka bjartari tímar við. Pastellitir, appelsínugulir tónar og fallegir fjólubláir litir munu leysa af dökka varaliti og svört naglökk.

Mikið rétt fallega fólkið sigraði

Hugmynd okkar sem komum að keppninni Goð og Gyðjur var að finna einstaklinga sem hafa sterka sjálfsvirðingu og hafa ákveðið að fara vel með anda sinn, sál og líkama, sagði Ósk Norðfjörð spurð út í keppnina sem hún hélt síðustu helgi. Sigurvegararnir Björn M. Sveinbjörnsson, 33 ára, lögreglumaður og Íris María Bjarkardóttir, 23 ára, nemi voru leyst út með gjöfum. Ljósmyndarinn Sveinbi hjá Superman.is tók flestar myndirnar í meðfylgjandi myndasafni.

Sigraði fatahönnunarkeppni fyrir barnshafandi konur

Meðfylgjandi myndir voru teknar í versluninni Tvö Líf þegar úrslitin í samvinnuverkefni milli fatahönnunarnema Listaháskóla Íslands og verslunarinnar Tvö líf, sem selur fatnað fyrir konur á meðgöngu, voru kynnt. Hera Guðmundsdóttir nemandi á öðru ári í fatahönnun sigraði en hún ásamt fleiri nemenda tóku þátt í námskeiði undir leiðsögn Lindu Bjargar, fagstjóra fatahönnunarbrautar, þar sem markmiðið var að hanna fatalínu fyrir Tvö líf. Hver nemandi hannaði tíu alklæðnaði fyrir barnshafandi konur. Tvö Líf á Facebook.

Hryllingurinn ögrar og ógnar

Við sáum skrímsli er vel formuð sýning en hnökrar í útfærslu og úrvinnslu koma í veg fyrir að hún uppfylli möguleika sína. Frammistaða flytjendanna var fín. Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og Sigríður Soffía Níelsdóttir voru ekki áberandi en fylltu samt mjög vel upp í sviðið þegar þær dönsuðu. Ásgeir Helgi Magnússon fékk bæði að láta ljós sitt skína í dansi og atriðum sem kröfðust meiri leikrænnar tjáningar. Dúettinn hans við ljáinn var áhrifamikill sem og atriðið með höndunum. Valdimar Jóhannsson sem þreytti frumraun sýna sem dansari í dansverki skilaði sínu með prýði enda var hlutverkið hans vel sniðið að getu hans. Hann notaði röddina skemmtilega og tónlistin sem var hans hugarfóstur passaði vel við stemmingu dansverksins hverju sinni.

Brilljant hönnun skemmtilegra hluta

Í meðfylgjandi myndasafni má finna myndir af hlutum þar sem ýmsir ungir hönnuðir hafa skemmtanagildið að leiðarljósi við hönnun hluta með hversdagleg notagildi. Það er skemmtilegt að krydda upp á tilveruna með fallegum hlutum og á það ekki síst við þegar hugmyndin á bak við hlutinn er jafn brilljant og margar af þeim sem sjá má í þessu skemmtilega myndasafni.

Íslensk list í skýjunum

Meðfylgjandi myndskeið var tekið þegar Iceland Express í samvinnu við listahópinn VIÐVERA setti formlega í gang sameiginlegt verkefni sem snýr að kynningu á íslenskum listamönnum og verkum þeirra um borð í vélum Iceland Express. Verkefnið kallast Listagallerí háloftanna og er listasýningin sem sýnd er um borð er í formi póstkortabókar sem seld er í vélum Iceland Express og í verslunum Eymundsson á jörðu niðri. Þá má einnig sjá myndir af starfsfólki Iceland Express fagna verkefninu.

Ertu ekkert leið á sjúskaða lúkkinu stelpa?

Á milli þess sem Lindsay Lohan, 24 ára, vinnur í þágu samfélagsins í Los Angeles eftir að hún var dæmd fyrir að rjúfa skilorð þegar skartgripasali sakaði hana um að stela hálsmeni frá sér, situr hún fyrir. Eins og sjá má í myndasafni pósaði Lindsay í húðlituðum sundbol fyrir Plum Miamai tímaritið í gær.

Hvað er í gangi hérna (og hvað með grímuna)?

Í meðfylgjandi myndskeiði og myndasafni má sjá söngkonurnar Rihönnu og Britney Spears dansa upp við súlur ögrandi klæddar vægast sagt þegar þær fluttu saman lag Rihönnu, S&M, á Billboard hátíðinni síðastliðið sunnudagskvöld. Þá mætti Britney með svarta grímu með kanínueyrum eins og sjá má.

Kvikmyndin Reykjavik - Stór mynd með stórum stjörnum

„Við erum búinn að vera að vinna í þessu verkefni mjög lengi og höfum sinnt mikilli rannsóknarvinnu. Við höfum rætt við fólk sem kom að þessum fundi, bæði á Íslandi, í Bandaríkjunum og Rússlandi,“ segir Stewart MacKinnon, einn af aðalframleiðendum kvikmyndarinnar Reykjavik.

Fallegir opnunartónleikar

Skúli Sverrisson og Ólöf Arnalds fylltu Norðurljósasal Hörpunnar af fallegum tónum á vel heppnuðum tónleikum. Dagskráin samanstóð af lögum þeirra beggja, aðallega af plötum Skúla, Sería og Sería II og Ólafar, Við og við og Innundir skinni. Tónleikarnir hófust á lögunum Spontanious Kindness og Sería eftir Skúla og svo komu Englar og dárar og Klara eftir Ólöfu og þannig hélt dagskráin áfram út tónleikana, lögin þeirra til skiptis.

Sumir líta fáránlega vel út (42 ára)

Ástralska söngkonan Kylie Minogue, 42 ára, var klædd í svartan Alexander McQueen kjól og Alexander McQueen hælaskó á rauða dreglinum síðustu helgi. Eins og myndirnar sýna var Kylie vægast sagt glæsileg.

Myndaveisla frá Hlustendaverðlaunum FM957

Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi hjá Superman.is á Hlustendaverðlaunum FM 957 sem fram fóru í Hörpu og á skemmtistaðnum Nasa en þar hélt útvarpsstöðin partý eftir hátíðina.

Miklar matarkröfur Eagles

Matarkröfur Eagles fyrir tónleikaferð sína Long Road Out Of Eden eru gríðarlegar samkvæmt lista sem Fréttablaðið komst yfir. Búast má við að íslenskir tónleikahaldarar þurfi að uppfylla einhverjar af þessum kröfum þótt þeir geti eflaust ekki reddað Starbucks-kaffi eins og beðið er sérstaklega um. Ísleifur B. Þórhallsson, sem stendur fyrir tónleikum Eagles, sagðist ekkert vilja tjá sig um kröfur Eagles, þær væru trúnaðarmál. Matarkröfurnar eru jafn strangar og þær eru margar. Mikilvægt er að maturinn sé heilsusamlegur þar sem fólk í föruneyti Eagles er að reyna að hugsa um heilsuna, eins og kemur fram á kröfulistanum á netinu. Öll búningsherbergi verða að vera full af ferskum ávöxtum og grænmeti ásamt nýbökuðu brauði. Mikilvægt er að harðsoðin egg sem verða í boði séu köld, með sprungulausri skurn. Þá verða vínber að vera svo fersk, að þegar þau eru hrist slitna þau ekki úr klasanum.

Listahátíð sett í Hörpunni

Listahátíð í Reykjavík var sett í anddyri Hörpunnar síðastliðinn föstudag. Ólöf Arnalds, Högni Egilsson og karlakórinn Fóstbræður voru á meðal þeirra sem komu fram.

Fékk tíu fyrir barnalínu

Herdís Björk Þórðardóttir útskrifaðist með einkunnina 10 í grafískri hönnun við Myndlistaskólann á Akureyri síðastliðinn þriðjudag. Hún hannaði vörulínu fyrir börn sem nefnist Bimbi.

Sævar Karl opnar sýningu

"Þetta eru örugglega sextíu verk, allt málverk á striga. Nú er ákveðnu tímabili að ljúka og þegar því er lokið hefst ég bara handa við eitthvert annað tímabil,“ segir Sævar Karl Ólason. Hann opnar sína fyrstu einkasýningu sunnudaginn 29. maí á heimil sínu í München og sendi út boðskort í gær.

Lögreglukórinn með uppgjör

„Þetta er svolítið uppgjör og pólitísk ádeila á sjálfan sig og aðra," segir Guðlaugur Viktorsson, stjórnandi Lögreglukórsins. Kórinn hefur gefið út plötuna GAS - Góðir alþýðusöngvar, þar sem sungin eru lög eftir Bubba, KK, Bergþóru Árnadóttur, Hörð Torfason og fleiri.

Jóhann Jóhannsson: Vann með lúðrasveit frá Durham

Ný plata tónlistarmannsins Jóhanns Jóhannssonar við myndverkið The Miner‘s Hymns kemur út á mánudaginn. Verkefnið, sem hann vann með kvikmyndagerðarmanninum Bill Morrison, fjallar um kolanámumenn í norðurhluta Englands.

Ofurkropparnir æfðu samviskusamlega

Hafdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri World Class sá til þess að ofurkropparnir í fegurðarsamkeppni Ungfrú Ísland í ár blómstruðu sem aldrei fyrr. Í myndskeiðinu segir Hafdís hvernig fegurðardísirnar stóðu sig þegar kom að því að rækta kroppana.

Boðnar 40 milljónir

Írsku rapptvíburunum Jedward hafa verið boðnar tæpar fjörutíu milljónir króna fyrir að koma fram í breska raunveruleikaþættinum I"m A Celebrity… Get Me Out Of Here! Samkvæmt götublaðinu The Sun fengu tvíburarnir boðið eftir að hafa lent í áttunda sæti í Eurovision-keppninni í Düsseldorf. Alls sáu 12,7 milljón

Caribou tónleikum aflýst vegna gossins

Hljómleikum Caribou sem áttu að fara fram á Nasa í kvöld hefur verið aflýst vegna eldgossins í Grímsvötnum. Hljómsveitin átti að koma frá Amsterdam í dag en vegna gossins liggur allt flug niðri.

Hlustaði á Bítlana

Poppdívan Lady Gaga segir foreldra sína hafa kynnt fyrir henni tónlist Bítlanna og Led Zeppelin þegar hún var lítil. Tónlistarsmekkur foreldranna hafi mótað hennar eigin smekk. „Foreldrar mínir kynntu mig fyrir laginu Signed, Sealed, Delivered með Stevie Wonder og fyrir Bítlunum þegar ég var yngri,“ sagði hún. „Vel valið, mamma og pabbi. Þið gátuð ekki látið mig hlusta á Bítlana, Steve Wonder, Bruce Springsteen, Pink Floyd, Led Zeppelin og Elton John án þess að búast við því að ég yrði eins og ég er.“

Rifjum upp undirfatasýninguna

Meðfylgjandi myndir voru teknar á fegurðarsamkeppni Ungfrú Ísland á Broadway á föstudagskvöldið þegar Sigrún Eva Ármannsdóttir, 18 ára, landaði titlinum. Stúlkurnar sýndu bað- og undirföt við góðar undirtektir gesta. Guðlaug Dagmar Jónasdóttir varð í 2. sæti.

Vill ekki hjónaband

Leikarinn og sjarmörinn Johnny Depp hefur engan áhuga á að ganga í hjónaband með kærustu sinni Vanessu Paradis. Þetta kemur fram í nýlegu viðtali sem birtist í breska blaðinu OK.

Takið eftir hvað Gillz er þolinmóður

Í meðfylgjandi myndskeiði fagna Egill Gillz Einarsson og Ásgeir Kolbeinsson með unnustu Egils, Gurrý Jónsdóttur sem varð í 4. sæti í fegurðarsamkeppni Ungfrú Ísland á Broadway á föstudaginn. Athygli vakti hvað Gillz var skilningsríkur og þolinmóður gagnvart skipandi ljósmyndurum.

Beint úr tökum til Bergen

„Þetta verður bara alveg frábær og skemmtileg ferð,“ segir leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson en hann er á leiðinni til Bergen í Noregi með leikhópnum sem stendur á bakvið Gerplu.

Næst sætasta kona Íslands er lofuð

Meðfylgjandi má sjá örstutt viðtal við Guðlaugu Dagmar Jónasdóttur sem landaði 2. sætinu í fegurðarsamkeppni Ungfrú Ísland sem haldin var á Broadway í gærkvöldi. Þá var einnig rætt við unnusta Guðlaugar og Björn Leifsson einn af dómurum keppninnar.

Ungfrú Ellingsen og ljósmyndafyrirsæta Hagkaups

Eva Rakel Jónsdóttir var valin Ungfrú Ellingsen og Ljósmyndafyrirsæta Hagkaups á fegurðarsamkeppninni Ungfrú Ísland á Broadway í gærkvöldi. Í meðfylgjandi myndskeiði er rætt við Evu, Agnar unnusta hennar og móður, Sigrúnu Karlsdóttur.

Tónleikar með Caribou

Kanadíska hljómsveitin Caribou leikur á Nasa á sunnudagskvöld. Hljómsveitin Sin Fang sem er með samning við þýsku útgáfuna Morr Music hitar upp. Caribou er sviðsnafn stærðfræðidoktorsins Daniels Victors Snaith sem einnig er þekktur undir nafninu Manitoba.

Hvítir miðaldra karlar í vanda

Mel Gibson, Lars Von Trier, Dominique Strauss Kahn, Charlie Sheen og Arnold Schwarzenegger. Allir eiga þessir menn það sameiginlegt að hafa haldið, á einum tímapunkti, að vald þeirra væri ótakmarkað, ímynd þeirra óhagganleg og þeir sjálfir ósnertanlegir. Annað hefur komið á daginn.

Rífast vegna Siennu

Samband leikaranna Roberts Pattinson og Kristen Stewart stendur völtum fótum um þessar mundir og á það rætur sínar að rekja til ágangs Siennu Miller. Tímaritið Star heldur því fram að Miller sé stöðugt að senda Pattinson smáskilaboð og að það fari fyrir brjóstið á Stewart.

Sjá næstu 50 fréttir