Fleiri fréttir

Gusgus spilar á Bestu hátíðinni

Hljómsveitin Gusgus og fjöldi annarra þekktra flytjenda hafa staðfest komu sína á Bestu útihátíðina sem verður haldin á Gaddstaðaflötum við Hellu helgina 8. til 10. júlí. Gusgus gaf nýverið út sjöttu plötu sína, Arabian Horse, og sveitin er þekkt fyrir að spara hvergi til þegar kemur að sviðsframkomu. Sveitin spilar á laugardagskvöldinu, sama kvöld og hljómsveitin Quarashi rís upp frá dauðum.

Heimilislegt yfirbragð

Bandaríska hljómsveitin Death Cab for Cutie er mætt með sína sjöundu hljóðversplötu. Heimilið er þar í aðalhlutverki. Sjöunda hljóðversplata bandarísku indíhljómsveitarinnar Death Cab for Cutie kemur út í næstu viku. Þrjú ár eru liðin frá útgáfu síðustu plötu, Narrow Stairs, sem fékk fínar viðtökur víðast hvar.

Fékk danskt barnabarn

Leikarinn Jack Nicholson brosir breitt þessar dagana en dóttir hans, hin danska Honey Hollman, eignaðist son á dögunum og gerði því hinn 74 ára gamla leikara að afa. Nicholson er þekktur fyrir kvensemi sína en hann á fjögur börn með þremur konum og er Holly afrakstur sambands Nicholson við dönsku fyrirsætuna Winnie Hollman árið 1981. Feðginin eru náin og hefur Honey verið með annan fótinn hjá pabba sínum í Hollywood síðan hún var lítil.

Berjast við vampírur

Spennumyndin Dylan Dog: Dead of Night með Anitu Briem í einu af aðalhlutverkunum var frumsýnd í Laugarásbíói í gær.

Stjörnurnar sáu svart á Billboard

Þær voru ekki af verri endanum stjörnurnar sem prýddu rauða dregilinn á hinum árlegu Billboard verðlaum sem fór fram í Las Vegas um liðna helgi.

Sumarbrúðkaup í vændum

Leikstjórinn Sofia Coppola ætlar að ganga að eiga kærasta sinn og barnsföður, rokkarann Thomas Mars, á Suður-Ítalíu í sumar. Ætlunin er að halda rómantíska athöfn við sumarhús Coppola-fjölskyldunnar að viðstöddum nánustu fjölskyldumeðlimum.

Þýsk hljómsveit með tónleika

Þýska hljómsveitin Die Ukrainiens heldur tvenna tónleika um helgina. Þeir fyrri verða á Faktorý á föstudagskvöld og þeir seinni verða á Vertinum á Hvammstanga á laugardagskvöld. Die Ukrainiens er frá Dresden í Þýskalandi og hefur tónlist hennar verið lýst sem blöndu af Rússadiskói og Balkantónlist. Lög sveitarinnar eru ýmist þekkt þjóð- og popplög frá Rússlandi, Úkraínu og öðrum Austur-Evrópulöndum eða frumsamin lög. Tónleikar Die Ukrainiens þykja kraftmiklir og dansvænir og minna um margt á austur-evrópsk brúðkaup og/eða jarðarfarir.

Reynir við Ermarsundið

Árni Þór Árnason, framkvæmdastjóri og sjósundkappi, ætlar að verða annar Íslendingurinn sem synt hefur yfir Ermarsund. „Benedikt Hjartarson kláraði þetta sund árið 2008 og ég hef ekki verið látinn vera síðan," segir Árni Þór glettinn.

Hannaði mínimalískan heyrnatólamagnara

Heyrnartólamagnari, bókaskápur og bakki eru meðal verka Snorra Þórðarsonar Reykdal á vorsýningu Iðnskólans í Hafnarfirði, sem var opnuð á laugardaginn.

Nýtt austurrískt leikrit byggt á 10 ráðum eftir Hallgrím

Leikrit byggt á síðustu bók Hallgríms Helgasonar, 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp, verður frumsýnt í Salzburg í Austurríki í haust. Sjaldgæft er að leikrit byggð á bókum íslenskra höfunda séu sett á fjalirnar erlendis.

Tískuföt á meðgöngu

Hera Guðmundsdóttir, nemandi á öðru ári í fatahönnun við Listaháskóla Íslands, sigraði í samkeppni um meðgöngu- og brjóstagjafafatnað fyrir verslunina Tvö líf. Lína Heru þótti bæði praktísk og flott.

105 réttir úr stofu 105

Andrea Guðmundsdóttir og Margrét Þóra Þorláksdóttir úr mötuneyti LHÍ hafa gefið út matreiðslubók.

Vill hanga í himninum

Áslaug Rán Einarsdóttir og Aníta H. Björnsdóttir fljúga á svifvængjum um allan heim í nafni kvenfrelsis. "Við erum báðar með ódrepandi ferðabakteríu og sáum þarna tækifæri til að sameina tvö áhugamál."

Snorri Helga klárar nýja plötu

Snorri Helgason, fyrrum liðsmaður Sprengjuhallarinnar, er að ljúka vinnu að annarri breiðskífu sinni. Plötuna vinnur hann með aðstoð Sindra Má Sigfússonar úr Seabear og Sin Fang í hljóðveri hans í Reykjavík.

Í spor einhverfra

„Ég gerði bók um einhverfu,“ segir Jóhann Leó Linduson, nemi í grafískri hönnun, um útskriftarverkefni sitt. Jóhann Leó stefnir á að útskrifast úr grafískri hönnun nú í vor. Bókin ber heitið Í annarra manna spor og Jóhann segir að tilgangurinn með henni sé að útskýra á einfaldan hátt vandamál tengd einhverfu.

Söngvararnir stela senunni

Arabian Horse er mjög sterk og sannfærandi Gusgus-plata og mun aðgengilegri og skemmtilegri en sú síðasta. Hún ætti að geta stækkað áheyrendahóp sveitarinnar enn frekar, bæði hér á landi og erlendis.

Maria Shriver ræður spæjara

Maria Shriver hefur ráðið einkaspæjara til að rannsaka þær fullyrðingar að fyrrverandi eiginmaður hennar, Arnold Schwarzenegger, eigi fleiri en eitt barn utan hjónabands þeirra. Þetta kom fram á fréttasíðunni RadarOnline.com.

Hvernig dettur þér í hug að vera svona til fara?

Söngkonan Lady Gaga kynnti nýju plötuna sína, Born This Way, í New York með látum í fyrradag. Þá var hún meðal annars mynduð fyrir utan upptökuver sjónvarpsþáttarins The Late Show með David Letterman þar sem hún var gestur. Eins og sjá má í myndasafni var söngkonan léttklædd vægast sagt.

Þessi toppar þá alla (svei mér þá)

Jennifer Lopez, 41 ára, var klædd í bláan Zac Posen kjól í gær þegar Simon Fuller, gaurinn á bak við Idolið, fékk eigin Hall of Fame stjörnu sem þykir mikill heiður í skemmtanabransanum. Þá má sjá eiginmann Jennifer, Marc Anthony, og Randy Jackson einn af dómurum American Idol keppninnar í myndasafni.

Önnur upprisa Fönixins í kvöld

Seinni sýning Ferðalags fönixins verður á Stóra sviði Borgarleikhússins á Listahátíð í Reykjavík í kvöld. Í sýningunni fást Eivör Pálsdóttir söngkona, Reijo Kela nútímadansari og María Ellingsen leikkona hver á sinn hátt við hina táknrænu goðsögu um Fönixinn.

Bieber setur konuilmvatn á markað

Söngvarinn Justin Bieber setur á markað konuilmvatn, sem ber heitið Someday, eftir 25 daga. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá auglýsingu ilmvatnsins. Í tilkynningu frá söngvaranum er skýrt tekið fram að Justin lét gera ómótstæðilegan ilm fyrir aðdáendur sína sem eru ófáir um víða veröld. Hann fær ekki nóg af því að lykta af Someday ilminum.

Tenórinn í Hörpu með grúppíuhóp

Hátt í fjögur hundruð erlendir aðdáendur þýska tenórsins Jonasar Kaufmann voru í Eldborgarsal Hörpunnar þegar hann þandi raddböndin með Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð Reykjavíkur. Margra mánaða og jafnvel ára bið er eftir miðum á tónleika Kaufmanns í Evrópu.

Úr tónlist í tískuna

Plötuútgefandinn Haraldur Leví Gunnarsson opnaði tískuverslunina Lólu við Laugaveg 55 ásamt kærustu sinni, Eddu Ýr Aspelund, í gær. Verslunin selur notaðan fatnað og er hver flík sérvalin af Haraldi og Eddu. "Við ætluðum okkur að opna verslun síðasta sumar en það varð ekkert úr því þá. Við ákváðum því að kýla á þetta í sumar og höfum nú unnið hörðum höndum að því að koma öllu í stand. Við höfum staðið hér undanfarna daga með pensil í hönd og unnið að því að koma húsnæðinu í almennilegt stand," segir Haraldur Leví sem einnig er eigandi hljómplötuútgáfunnar Record Records og fyrrum trymbill hljómsveitanna Lödu Sport og Lifun.

Fimm atriði sem þú vissir ekki um Claudiu Schiffer

Claudia Schiffer var ein vinsælasta fyrirsæta tíunda áratugarins og var lengi andlit tískuhússins Chanel. Hún þykir sláandi lík kvikmyndastjörnunni Brigitte Bardot og hefur á ferli sínum prýtt forsíður meira en 500 tímarita.

Brjálaðir tónleikagestir

Algerlega frábær skemmtun með stórkostlegum listamanni. Áheyrendur gengu gersamlega af göflunum! Kaufmann var klappaður upp hvað eftir annað, og söng hvorki meira né minna en fjögur aukalög. Þetta voru ótrúlegir tónleikar. Ljóst er að tónlistarlífið í Hörpu byrjar vel.

Gulur, rauður, grænn og blár

Dökkir litir hafa verið ríkjandi í snyrtivörum í vetur en nú taka bjartari tímar við. Pastellitir, appelsínugulir tónar og fallegir fjólubláir litir munu leysa af dökka varaliti og svört naglökk.

Mikið rétt fallega fólkið sigraði

Hugmynd okkar sem komum að keppninni Goð og Gyðjur var að finna einstaklinga sem hafa sterka sjálfsvirðingu og hafa ákveðið að fara vel með anda sinn, sál og líkama, sagði Ósk Norðfjörð spurð út í keppnina sem hún hélt síðustu helgi. Sigurvegararnir Björn M. Sveinbjörnsson, 33 ára, lögreglumaður og Íris María Bjarkardóttir, 23 ára, nemi voru leyst út með gjöfum. Ljósmyndarinn Sveinbi hjá Superman.is tók flestar myndirnar í meðfylgjandi myndasafni.

Sigraði fatahönnunarkeppni fyrir barnshafandi konur

Meðfylgjandi myndir voru teknar í versluninni Tvö Líf þegar úrslitin í samvinnuverkefni milli fatahönnunarnema Listaháskóla Íslands og verslunarinnar Tvö líf, sem selur fatnað fyrir konur á meðgöngu, voru kynnt. Hera Guðmundsdóttir nemandi á öðru ári í fatahönnun sigraði en hún ásamt fleiri nemenda tóku þátt í námskeiði undir leiðsögn Lindu Bjargar, fagstjóra fatahönnunarbrautar, þar sem markmiðið var að hanna fatalínu fyrir Tvö líf. Hver nemandi hannaði tíu alklæðnaði fyrir barnshafandi konur. Tvö Líf á Facebook.

Hryllingurinn ögrar og ógnar

Við sáum skrímsli er vel formuð sýning en hnökrar í útfærslu og úrvinnslu koma í veg fyrir að hún uppfylli möguleika sína. Frammistaða flytjendanna var fín. Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og Sigríður Soffía Níelsdóttir voru ekki áberandi en fylltu samt mjög vel upp í sviðið þegar þær dönsuðu. Ásgeir Helgi Magnússon fékk bæði að láta ljós sitt skína í dansi og atriðum sem kröfðust meiri leikrænnar tjáningar. Dúettinn hans við ljáinn var áhrifamikill sem og atriðið með höndunum. Valdimar Jóhannsson sem þreytti frumraun sýna sem dansari í dansverki skilaði sínu með prýði enda var hlutverkið hans vel sniðið að getu hans. Hann notaði röddina skemmtilega og tónlistin sem var hans hugarfóstur passaði vel við stemmingu dansverksins hverju sinni.

Brilljant hönnun skemmtilegra hluta

Í meðfylgjandi myndasafni má finna myndir af hlutum þar sem ýmsir ungir hönnuðir hafa skemmtanagildið að leiðarljósi við hönnun hluta með hversdagleg notagildi. Það er skemmtilegt að krydda upp á tilveruna með fallegum hlutum og á það ekki síst við þegar hugmyndin á bak við hlutinn er jafn brilljant og margar af þeim sem sjá má í þessu skemmtilega myndasafni.

Íslensk list í skýjunum

Meðfylgjandi myndskeið var tekið þegar Iceland Express í samvinnu við listahópinn VIÐVERA setti formlega í gang sameiginlegt verkefni sem snýr að kynningu á íslenskum listamönnum og verkum þeirra um borð í vélum Iceland Express. Verkefnið kallast Listagallerí háloftanna og er listasýningin sem sýnd er um borð er í formi póstkortabókar sem seld er í vélum Iceland Express og í verslunum Eymundsson á jörðu niðri. Þá má einnig sjá myndir af starfsfólki Iceland Express fagna verkefninu.

Ertu ekkert leið á sjúskaða lúkkinu stelpa?

Á milli þess sem Lindsay Lohan, 24 ára, vinnur í þágu samfélagsins í Los Angeles eftir að hún var dæmd fyrir að rjúfa skilorð þegar skartgripasali sakaði hana um að stela hálsmeni frá sér, situr hún fyrir. Eins og sjá má í myndasafni pósaði Lindsay í húðlituðum sundbol fyrir Plum Miamai tímaritið í gær.

Hvað er í gangi hérna (og hvað með grímuna)?

Í meðfylgjandi myndskeiði og myndasafni má sjá söngkonurnar Rihönnu og Britney Spears dansa upp við súlur ögrandi klæddar vægast sagt þegar þær fluttu saman lag Rihönnu, S&M, á Billboard hátíðinni síðastliðið sunnudagskvöld. Þá mætti Britney með svarta grímu með kanínueyrum eins og sjá má.

Kvikmyndin Reykjavik - Stór mynd með stórum stjörnum

„Við erum búinn að vera að vinna í þessu verkefni mjög lengi og höfum sinnt mikilli rannsóknarvinnu. Við höfum rætt við fólk sem kom að þessum fundi, bæði á Íslandi, í Bandaríkjunum og Rússlandi,“ segir Stewart MacKinnon, einn af aðalframleiðendum kvikmyndarinnar Reykjavik.

Fallegir opnunartónleikar

Skúli Sverrisson og Ólöf Arnalds fylltu Norðurljósasal Hörpunnar af fallegum tónum á vel heppnuðum tónleikum. Dagskráin samanstóð af lögum þeirra beggja, aðallega af plötum Skúla, Sería og Sería II og Ólafar, Við og við og Innundir skinni. Tónleikarnir hófust á lögunum Spontanious Kindness og Sería eftir Skúla og svo komu Englar og dárar og Klara eftir Ólöfu og þannig hélt dagskráin áfram út tónleikana, lögin þeirra til skiptis.

Sumir líta fáránlega vel út (42 ára)

Ástralska söngkonan Kylie Minogue, 42 ára, var klædd í svartan Alexander McQueen kjól og Alexander McQueen hælaskó á rauða dreglinum síðustu helgi. Eins og myndirnar sýna var Kylie vægast sagt glæsileg.

Myndaveisla frá Hlustendaverðlaunum FM957

Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi hjá Superman.is á Hlustendaverðlaunum FM 957 sem fram fóru í Hörpu og á skemmtistaðnum Nasa en þar hélt útvarpsstöðin partý eftir hátíðina.

Miklar matarkröfur Eagles

Matarkröfur Eagles fyrir tónleikaferð sína Long Road Out Of Eden eru gríðarlegar samkvæmt lista sem Fréttablaðið komst yfir. Búast má við að íslenskir tónleikahaldarar þurfi að uppfylla einhverjar af þessum kröfum þótt þeir geti eflaust ekki reddað Starbucks-kaffi eins og beðið er sérstaklega um. Ísleifur B. Þórhallsson, sem stendur fyrir tónleikum Eagles, sagðist ekkert vilja tjá sig um kröfur Eagles, þær væru trúnaðarmál. Matarkröfurnar eru jafn strangar og þær eru margar. Mikilvægt er að maturinn sé heilsusamlegur þar sem fólk í föruneyti Eagles er að reyna að hugsa um heilsuna, eins og kemur fram á kröfulistanum á netinu. Öll búningsherbergi verða að vera full af ferskum ávöxtum og grænmeti ásamt nýbökuðu brauði. Mikilvægt er að harðsoðin egg sem verða í boði séu köld, með sprungulausri skurn. Þá verða vínber að vera svo fersk, að þegar þau eru hrist slitna þau ekki úr klasanum.

Listahátíð sett í Hörpunni

Listahátíð í Reykjavík var sett í anddyri Hörpunnar síðastliðinn föstudag. Ólöf Arnalds, Högni Egilsson og karlakórinn Fóstbræður voru á meðal þeirra sem komu fram.

Fékk tíu fyrir barnalínu

Herdís Björk Þórðardóttir útskrifaðist með einkunnina 10 í grafískri hönnun við Myndlistaskólann á Akureyri síðastliðinn þriðjudag. Hún hannaði vörulínu fyrir börn sem nefnist Bimbi.

Sævar Karl opnar sýningu

"Þetta eru örugglega sextíu verk, allt málverk á striga. Nú er ákveðnu tímabili að ljúka og þegar því er lokið hefst ég bara handa við eitthvert annað tímabil,“ segir Sævar Karl Ólason. Hann opnar sína fyrstu einkasýningu sunnudaginn 29. maí á heimil sínu í München og sendi út boðskort í gær.

Lögreglukórinn með uppgjör

„Þetta er svolítið uppgjör og pólitísk ádeila á sjálfan sig og aðra," segir Guðlaugur Viktorsson, stjórnandi Lögreglukórsins. Kórinn hefur gefið út plötuna GAS - Góðir alþýðusöngvar, þar sem sungin eru lög eftir Bubba, KK, Bergþóru Árnadóttur, Hörð Torfason og fleiri.

Jóhann Jóhannsson: Vann með lúðrasveit frá Durham

Ný plata tónlistarmannsins Jóhanns Jóhannssonar við myndverkið The Miner‘s Hymns kemur út á mánudaginn. Verkefnið, sem hann vann með kvikmyndagerðarmanninum Bill Morrison, fjallar um kolanámumenn í norðurhluta Englands.

Sjá næstu 50 fréttir