Fleiri fréttir

Kaloríulausar kræsingar

Erla Ósk Arnardóttir er hugmyndasmiðurinn á bak við kræsingarnar sem sjá má í meðfylgjandi myndskeiði en sætindin eru gerð úr sápu sem hún býr til sjálf frá grunni. Við heimsóttum Erlu Ósk í dag, fengum að skoða sápurnar hennar og spurðum hana hvernig hugmyndin að Sápubakaríinu sem hún rekur varð til og hvernig viðtökurnar við afurðinni hafa verið. Sápubakaríið hennar Erlu á Facebook.

Blúndubrúðarkjólar ekki vinsælir á Íslandi

Sigurdís Ólafsdóttir eigandi brúðarkjólaleigunnar Tvö Hjörtu í Bæjarlind fylgist vel með hvað íslenskar brúður vilja þegar brúðarkjólar eru annars vegar. Við litum við hjá henni í dag til að forvitnast um brúðarkjóla og slör í tilefni af brúðkaupi Vilhjálms bretaprins og Katrínar.

Konunglegur koss

Meðfylgjandi má sjá fyrsta opinbera koss Vilhjálms og Katrínar á svölum Buckingham hallar í dag. Eins og heyra má brutust út gríðarleg fagnaðarlæti á meðal fjöldans þegar prinsinn kyssti prinsessuna sína.

Steelheart flytur She's Gone á Nasa í sumar

Bandaríska "hár-metal“ hljómsveitin Steelheart spilar á Nasa 8. júní. Hún er þekktust fyrir kraftballöðuna She"s Gone þar sem söngvarinn Miljenko "Mili“ Matijevic nær ótrúlegum tónhæðum. Dagur Sigurðsson, sem vann Söngkeppni framhaldsskólanna fyrir skömmu, er mikill aðdáandi Steelheart, einkum söngvarans Mili.

Snuðra um fólk og staði

Snoop-around er ný ljósmynda- og viðtalsvefsíða þar sem heimili, vinnustaðir og vinnustofur skapandi fólks eru heimsótt. Markmið síðunnar er að gefa innsýn í líf áhugaverðs fólks bæði í máli og myndum.

Prinsessan yfirveguð við altarið

Prinsessan Katrín Middleton var áberandi yfirveguð eins og hún hefði ekki gert neitt annað um ævina þegar hún gekk að eiga Vilhjálm bretaprins í Westminster Abbey í dag. Þú ert gullfalleg, sagði Vilhjálmur við Katrínu þegar faðir hennar, Michael Middleton, var um það bil að gefa honum hönd dóttur sinnar.

Lohan kennir heimilislausum

Lindsay Lohan er byrjuð að búa sig undir samfélagsþjónustu sem dómari í Los Angeles skikkaði hana nýverið til að sinna. Lohan, sem var einnig dæmd í 120 daga fangelsisvist, þarf að vinna í 480 klukkustundir í þágu samfélagsins og hyggst eyða þeim í að kenna heimilislausum konum að leika. Lohan var dæmd fyrir að rjúfa skilorð þegar skartgripasali sakaði hana um að stela hálsmeni frá sér.

Systir prinsessu stendur sig í stykkinu

Brúðarmær prinsessunnar Pippa Middleton, 27 ára, tók sér nokkurra vikna frí frá vinnu til að aðstoða Katrínu við undirbúninginn fyrir brúðkaupsdaginn. Pippa sá um að skipuleggja partýið sem verður haldið í kvöld og eins og myndirnar sýna stóð hún sig aldeilis vel við að hjálpa systur sinni með 2,7 metra langa slörið á kjólnum meðal annars. Myndir úr kirkjunni - brúðarkjóllinn.

Gott frí eftir barnsburð

Leikkonan Kate Hudson ætlar að taka sér gott frí frá kvikmyndaleik eftir að hún eignast sitt annað barn síðar á þessu ári. Hún vill fyrir enga muni missa af því að sjá barnið vaxa úr grasi. Hudson á von á barninu með Matt Bellamy, söngvara Muse, sem bað hennar einmitt í síðustu viku. Leikkonan hélt áfram að vinna skömmu eftir að hún eignaðist fyrsta barnið sitt, soninn Ryder, en núna verður annað uppi á teningnum. „Ég mun eingöngu halda áfram að vinna ef kvikmyndin er nógu áhugaverð,“ sagði hún.

Myndir úr kirkjunni

Meðfylgjandi myndir voru teknar í brúðkaupi Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton í Westminster Abbey í London í dag. Gríðarlegur mannfjöldi er samankominn í Lundúnum til þess að berja kóngafólkið augum enda ekki á hverjum degi sem verðandi krónprins Breta gengur í hnapphelduna. Smelltu hér til þess að fylgjast með útsendingunni. Þeir sem vilja fylgjast með í gegnum snjallsíma smella hér.

Órói sýnd í Kristiansand

Kvikmyndin Órói verður opnunarmyndin á kvikmyndahátíðinni í Kristiansand í Noregi 3. maí. Hátíðin sérhæfir sig í kvikmyndum fyrir ungt fólk og er mjög virt. Baldvin Z, leikstjóri Óróa, Ingibjörg Reynisdóttir, handritshöfundur og leikkona, og Atli Óskar Fjalarsson, aðalleikari myndarinnar, verða viðstödd frumsýninguna. Myndin verður sýnd fjórum sinnum og munu aðstandendur hennar svara spurningum áhorfenda að loknum sýningum. Órói var frumsýnd í október í fyrra og fékk mjög góðar viðtökur.

Partýhús í paradís

Þetta frábæra partýhús er á eyju rétt úti fyrir strönd Brasilíu stutt frá karnivalborginni, Rio de Janeiro. Byggingu hússins lauk árið 2009 en það gæti hæglega verið hluti af leikmynd úr James Bond mynd frá sjöundaáratug síðustu aldar. Fullkomið partýhús á paradíseyju í Brasilíu. Fallegur arkítektúr fyrir Robinson Crusoe nýtímans.

Stelur kastljósinu frá konunglega brúðkaupinu

Kristján Eyjólfsson, íslenskur gullsmiður og skartgripahönnuður búsettur í London, stal senunni af þeim Vilhjálmi Bretaprins og Kate Middleton á miðvikudag þegar heimspressan komst á snoðir um að hann og unnusta hans, hin ástralska Ivonne Valle, hygðust ganga í það heilaga í dag. Kristján og Ivonne mættu fyrst í viðtal við BBC London, svo var ítarlegt viðtal við þau á bandarísku fréttastöðinni ABC og deginum lauk með blaðaviðtali við Evening Standard.

Níðþung og sveitt stemning

Þungarokkssveitirnar Skálmöld og Sólstafir troða upp á Nasa í kvöld. Söngvarar sveitanna vona að hljóðkerfi staðarins standist álagið. „Þetta verður sveitt stemning,“ segir Björgvin Sigurðsson, söngvari víkingarokkaranna í Skálmöld. Sveitin spilar á Nasa í kvöld ásamt öðrum þungavigtarmönnum í Sólstöfum og ljóst að krafturinn sem leysist úr læðingi verður ógurlegur.

Beckham hjónin mættu í sínu fínasta pússi

Brúðkaup Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton fer fram í Westminster Abbey í London í dag. Gríðarlegur mannfjöldi er samankominn í borginni til þess að berja kóngafólkið augum. Meðfylgjandi má sjá myndir af David Beckham og Victoriu konu hans þegar þau mættu í brúðkaupið í morgun en mikil fagnaðarlæti brutust út á meðal fjöldans. Victoria er stórglæsileg með svartan Phillip Treacy hatt og hárið tekið í tagl, í kjól eftir hana sjálfa og sérsniðnum Christian Louboutin hælaskóm. David er ekki síðri, klæddur í Ralph Lauren frá toppi til táar. Hildur Helga Sigurðardóttir og Svavar Örn lýsa því sem fyrir augu ber í beinni útsendingu á Stöð 2 og Visir.is. Smelltu hér til þess að fylgjast með útsendingunni.

Hvernig verður hárið á prinsessunni?

Hildur Helga Sigurðardóttir og Svavar Örn standa vaktina til að lýsa því sem fyrir augu ber í konunglegu brúðkaupi Vilhjálms og Kate Middleton sem fram fer í beinni útsendingu á Stöð 2 í dag. Við kíktum á Hildi og Svavar nokkrum mínútúm áður en útsendingin hófst eldsnemma í morgun eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði. Smelltu hér til þess að fylgjast með útsendingunni.

Blue fær ekki spilun heima

Meðlimir breska strákabandsins Blue eru óánægðir með að Eurovision-lag þeirra I Can fái ekki nægilega spilun á útvarpsstöðvum heima. Lagið hefur ekki komist inn á helstu spilunarlistana, þar á meðal hjá BBC Radio 2. Samkvæmt vefsíðunni Myradio.com sem fylgist með lagaspilun útvarpsstöðva hefur I Can aðeins verið spilað 22 sinnum síðastliðinn mánuð á öllum Bretlandseyjum. „Við erum að reyna að gera þetta fyrir þjóðina okkar en hún vill ekki styðja við bakið á okkur,“ sagði söngvarinn Simon Webbe ósáttur. Eurovision-keppnin fer fram í Þýskalandi um miðjan maí.

Selebb Shuffle 2 - Jón Þór Ólafsson

Tónlistarmanninum Jón Þór Ólafssyni er greinilega ekkert heilagt því hann hikaði ekki við að mæta á páskasunnudag í þáttinn minn - sem var í beinni. Hann mætti askvaðandi á svæðið með litrík heyrnartól og silfurlitaðan iPod nanó. Ég hafði spilað lagið Tímavél af nýútkominni EP plötu hans í þættinum þannig að við gátum farið beint í það að tengja vasadiskóið hans í beina og setja á Shuffle.

Does it Offend You, Yeah? - Don't Say We Didn't Warn You

Önnur plata bresku indí-teknó háskólakrakkana frá Reading. Fyrsta platan var nægilega beitt til þess að ýta tónleikaferðalagstannhjólinu af stað. Sveitin hefur því verið á linnulausu ferðalagi heimshornanna á milli síðan fyrri platan, You Have No Idea What Your getting Yourself into, kom út árið 2008. Það var fín plata en þar stóð hæst upp úr lagið Let's Make Out sem Sebastian Grangier úr Death From Above 1979 söng.

Selebb Shuffle: Lilja Katrín Gunnarsdóttir úr Makalaus

Lilja Katrín Gunnarsdóttir leikkona úr Makalaus og blaðakona Séð&Heyrt mætti í fyrsta þáttinn og reið á vaðið í liðnum Selebb Shuffle. Þar mætir vel valin einstaklingur með vasadiskóið sitt (iPod eða annan mp3 spilara) og setur á Shuffle. Engin veit hvað gerist.

Vasadiskó - 1.þáttur

Fyrsti þátturinn fór í loftið núna á sunnudaginn og allt gekk bara prýðilega. Tæknimálin voru svona 82% á hreinu - en allt annað gekk bara eins og í smurð maskína. Fyrir þá sem misstu af - ætla ég að birta handritið af þættinum hérna eftir hvern þátt. Einnig birti ég sérfærslu um Selebb Shuffle, liðinn þar sem einhver þekktur mætir með vasadiskóið sitt og setur á Shuffle. Það var hún Lilja Katrín úr Makalaus þáttunum á Skjá1 sem reið á vaðið.

The Kills - Blood Pressures (2011)

"Ok... geisp-AAAAA". Blood Pressures er fjórða breiðskífa The Kills frá því að þau hófu að geta af sér afkvæmi árið 2003. Strax eftir aðra plötuna varð ljóst að hér væri svalt band á ferð. Nægilega svo til þess að afla sér ágætis aukatekna með sölu laga sinna í gallabuxnaauglýsingar og svoleiðis. Þau hafa það fínt.

Lag dagsins - Tennesee Ernie Ford - 16 Tons

Það er eitthvað við þetta lag og þessa bassarödd sem er algjörlega dáleiðandi. Síðan er textinn svo harður - hljómar eins og söngur kolanámumannsins. Menn gefa ekki upp andann þrátt fyrir að vera alsótugir… enginn miskunn!

Vasadiskó verður útvarpsþáttur á X-inu - bloggið yfir á Vísi

Fyrir áramót hélt ég uppi tónlistarbloggi á bloggar.is kerfinu. Þið getið lesið það hér. Núna hefur verið gengið frá því að Vasadiskó er að verða að útvarpsþætti á X-inu 977 - fyrsti þáttur fer í loftið núna á sunnudaginn 17. apríl og verður í boði tónlist.is.

Dansinn sem allir eiga að geta lært

Alþjóða dansdagurinn er í dag. Hátíðarhöld verða á Ísafirði, Akureyri og í höfuðborginni en dagskrá hefst í Smáralind klukkan 17. Í tilefni dagsins var saminn hip hop dans sem ætlunin er að dansa á öllum hátíðunum. Ísland í dag kíkti á krakka í Dans Center sem fluttu lengri útgáfu af dansinum eins og sjá má hér fyrir ofan. Aðstandendur dagsins segja að allir eigi að geta lært dansinn. Þeir sem vilja negla sporin geta einnig kíkt á kennslumyndband sem sett var á YouTube.

Ísaldarþríeykið snýr aftur í fjórðu myndinni

Þeir Manni, Lúlli og Dýri eru sennilega eitt ólíklegasta þríeyki sem til er: loðfíll, letidýr og sverðtígur. Þeir kynntust fyrst þegar þeir björguðu litlu barni frá blóðþyrstri hjörð Dýra og hafa síðan þá haldið hópinn. Myndirnar, sem eru orðnar þrjár talsins, hafa notið mikilla vinsælda og skilað gróða upp á 2 milljarða dala, eða 225 milljarða íslenskra króna. Það kemur því ekkert óskaplega á óvart að ráðast eigi í gerð fjórðu myndarinnar, en stefnt er að frumsýningu hennar á næsta ári. Þeir Ray Romano, John Leguizamo og Denis Leary verða sem fyrr í sínum hlutverkum og Queen Latifah snýr að sjálfsögðu aftur í hlutverk Elínar.

Þrumuguðinn Þór og danska dramað

Þrjár kvikmyndir eru frumsýndar um helgina og þær gætu vart verið ólíkari. Stórmyndin Thor eða Þór með Chris Hemsworth, Natalie Portman og Anthony Hopkins í helstu hlutverkum verður frumsýnd í Laugarásbíói. Þór er í myndinni dæmdur til refsingar á jörðinni fyrir kæruleysi og vanrækslu. Á meðan tekur hinn lævísi Loki völdin í Ásgarði og að endingu neyðist Þór til að kyngja stoltinu og bjarga heimkynnum sínum.

Nýtt efni frá Damon á netinu

Nýtt lag sem tónlistarmaðurinn Damon Albarn tók upp með Dan the Automator og Kid Koala gengur nú hratt á milli tónlistarunnenda á netinu. Lagið komst í umferð eftir að Kid Koala spilaði það í útvarpsþætti á þriðjudagskvöldið. Hægt er að sjá hann spila lagið í þættinum í myndbandinu hér fyrir ofan. Tónlistarmennirnir hafa ekkert látið uppi um lagið eða önnur sem kunna að fylgja í kjölfarið en almennt er talið að það verði á væntanlegri sólóplötu Dan the Automator. Albarn vann með þeim tveimur að fyrstu plötu Gorillaz árið 2001.

Þriggja daga Blúshátíð Reykjavíkur

Meðfylgjandi myndir tók Ólafur Kr. Ólafsson á Blúshátíð Reykjavíkur sem stóð yfir í þrjá daga á Reykjavík Hilton Nordica á dögunum en fullt var út úr dyrum öll kvöldin. Eins og myndirnar sýna var gríðarlega góð stemning á meðal flytjenda og áhorfenda, ekki síst þegar stórstjörnur hátíðarinnar, þeir Vasti Jackson og Marquise Knox slógust í hóp stærri og smærri listamanna í litlum bluesbar sem hafði verið útbúinn í hliðarsal hótelsins. Þar hélt blúsinn áfram fram á rauða nótt eftir hverja tónleika. Aðrir sem komu fram voru Blue Ice band (skipað þeim Halldóri Bragasyni, Guðmundur Péturssyni, Davíð Þór Jónssyni, Róbert Þórhallssyni, Birgi Baldurssyni og Óskari Guðjónssyni), Björgvin Halldórsson, Páll Rósinikranz, Blúsmafían (skipuð Þóri Baldurssyni, Guðmundi Péturssyni, Róberti Þórhallssyni, Pálma Sigurhjartarsyni, Jóhanni Hjörleifssyni og Óskari Guðjónssyni) Ferlegheit, Klassart og Stone Stones. Jóhanna Guðrún og Elvar Örn Friðriksson ásamt hljómsveit tóku lagið með stæl sem sérlegir ungliðar hátíðarinnar og svo hljómsveitirnar Lame Dudes, Devil's train, VOR og fleiri og fleiri.

Árni Sveinsson frumsýnir nýja mynd í Hörpu

Kvikmyndagerðarmaðurinn Árni Sveinsson er að leggja lokahönd á heimildarmyndina Video, sem fjallar um stöðu tónlistarmyndbandsins í dag. Myndin verður frumsýnd í bíósal Hörpunnar 16. maí og verður hún eingöngu sýnd þar. „Tónlistarmyndbandið er ungt form en hefur samt breyst ótrúlega mikið,“ segir Árni, sem síðast leikstýrði vel heppnaðri heimildarmynd um Ragga Bjarna. „Það er ekkert svo langt síðan útlit var fyrir að það væri að deyja drottni sínum. Stóru fyrirtækin voru efins um að setja peninga í þessi myndbönd því stóru stöðvarnar eins og MTV voru að hrynja,“ bætir hann við.

Felix og Greifarnir mætast í Popppunkti

"Við Felix [Bergsson] erum byrjaðir að bóka, það verða ýmsar kempur í þessum þáttum sem hafa ekki verið áður," segir Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni. Upptökur á sjöundu seríunni af Popppunkti hefjast 18. maí en þættirnir fara í loftið hinn 28. maí. Þessi spurningakeppni íslenskra poppara hefur notið mikilla vinsælda, meira en hundrað þættir hafa verið framleiddir og það verður enginn hörgull á stórstjörnum í þessari þáttaröð.

Leita arftaka Kalla Berndsen

Karl Berndsen er hættur sem þáttastjórnandi Nýs Útlits á Skjá einum. Við spurðum Kristjönu Thors Brynjólfsdóttur dagskrárstjóra Skjásins af hverju Karl væri hættur. "Það eru gríðarlega miklar annir hjá Kalla á Beauty Barnum sem krefjast meiri tíma frá honum. Því miður verður hann því að hverfa frá Skjá Einum til að sinna uppgangi stofunnar. Við erum ánægð með samstarfið við Kalla og vonum að honum og stofunni gangi sem best," svarar Kristjana. Mun Nýtt Útlit halda áfram? "Já, sjónvarpsþáttaröðin mun að sjálfsögðu halda áfram í haust en að þessu sinni með breyttum áherslum. Það munu vera "makeover" eins og áhorfendur eru vanir að sjá en einnig viðbót sem ekki hefur verið áður í þáttunum." Hver mun þá stýra þættinum? "Öllum breytingum fylgja líka tækifæri og við erum að skoða nýja þáttastjórnendur eins og er. Nú þegar höfum við komið auga á nokkra sem koma til greina," segir Kristjana.

Þakíbúð í New York

Meðfylgjandi má sjá myndir af þakíbúð á Broadway í New York sem Joel Sanders arkitekt hannaði. Eins og sjá má er íbúðin björt og áhersla lögð á að birtan utan frá njóti sín í þessu rými.

Smokkar og tepokar konunglega merktir

Í meðfylgjandi myndasafni má sjá brota brot af því sem framleitt hefur verið í tilefni af konunglegu brúðkaupi Vilhjálms og Kate Middleton sem fram fer á morgun. Eins og sjá má á myndunum eru smokkar, dúkkur, brúðkaupspizzur, te, bjór og ælupokar sérmerktir brúðhjónunum fáanlegir í verslunum í tilefni morgundagsins.

Góðlátlegt grín

Arthur er endurgerð samnefndrar kvikmyndar frá árinu 1981 þar sem Dudley Moore heitinn leikur drykkfellda milljónamæringinn Arthur Bach sem verður ástfanginn af stelsjúkri gengilbeinu. Fjölskylda hans vill hins vegar að hann kvænist stúlku af góðum ættum og hótar að gera Arthur arflausan verði hann ekki við þeim óskum. Í þessari nýju uppfærslu er það breski spaugarinn Russell Brand sem fer með hlutverk Arthurs. Hann gerir það nokkuð vel þrátt fyrir að vera ekki jafn fyndinn og forveri hans í rullunni. Á meðan gamli Arthur var fyrst og fremst þvoglumælt fyllibytta og leiðindaseggur er sá nýi sympatískari og mannlegri. Úr verður að nýja myndin kom mér töluvert sjaldnar til að hlæja en dramatíkin fannst mér sterkari.

Svona færðu stinnan rass og sléttan maga

Í meðfylgjandi myndskeiði sýnir Helga Lind Björgvinsdóttir þjálfari í Hreyfingu nokkrar auðveldar en góðar æfingar til að styrkja maga, rass og læri. Æfingarnar eru tilvaldar til að gera heima í stofu.

Morkinskinna kemur á óvart

Morkinskinna kom nýverið út í tveggja binda útgáfu Íslenzkra fornrita. Ármann Jakobsson hefur unnið að útgáfu Morkinskinnu undanfarin átta ár, síðustu árin í félagi við Þórð Inga Guðjónsson. „Morkinskinna var ekki mikils metin, menn hneigðust til að líta á hana sem samsteypuhandrit sem hefði ekki gildi í sjálfu sér,“ segir Ármann Jakobsson, doktor í íslensku og dósent í íslensku- og menningardeild við Háskóla Íslands. Ármann hefur undanfarin átta ár unnið að útgáfu ritsins, sem spannar sögu Noregskonunga frá því um 1030 þegar Ólafur helgi féll og til ársins 1157 þegar Eysteinn Haraldsson var höggvinn.

Fleet Foxes full af sjálfri sér

Fleet Foxes var án nokkurs vafa ein af hljómsveitum ársins 2008. Frumburði hljómsveitarinnar var gríðarlega vel tekið, en nú er önnur platan á leiðinni og væntingarnar eru miklar. Önnur breiðskífa Fleet Foxes, Helplessness Blues, kemur út í byrjun maí. Í fyrstu átti platan að vera tekin upp á stuttum tíma og forsprakkinn Robin Pecknold sagði í viðtali við tónlistarvefinn Pitchfork að allur söngur ætti að vera tekinn upp í einni tilraun. „Þannig að ef við klúðrum einhverju vil ég halda því á plötunni,“ sagði hann. „Ég vil ekki að raddirnar verði gallalausar og ég vil að það sé gítarklúður.“ Pecknold og félagar hættu svo við þessa hugmynd, hentu því sem þeir voru búnir að taka upp og byrjuðu upp á nýtt. Þeir gáfu sér góðan tíma í upptökurnar og afraksturinn lofar góðu, miðað við titillagið sem er þegar byrjað að hljóma á öldum ljósvakans.

Geimveruslagur í vestrinu og aðrar stórmyndir sumarsins

Á sumrin koma stórmyndirnar frá kvikmyndaverunum í Hollywood. Formúlukenndar og sneisafullar af tæknibrellum, stjörnum hlaðnar gamanmyndir eða framhaldsmyndir; sumarmyndirnar eru kapítuli fyrir sig og gróði þeirra hefur oft bjargað bókhaldinu hjá skuldsettum framleiðslufyrirtækjum.

Vinsælastur allra á Íslandi og í Ameríku

Páfagauksmyndin Rio, þar sem Jesse Eisenberg og Anne Hathaway tala fyrir aðalpersónurnar, er vinsælasta kvikmyndin á Íslandi um þessar mundir samkvæmt upplýsingum frá Smáís. Þetta er hliðstætt því sem er að gerast í hinni stóru Ameríku en þar situr páfagaukurinn einnig í efsta sæti. Myndin er frá sömu framleiðendum og gerðu hinar vinsælu Ísaldarkvikmyndir og því er ekkert skrýtið að smáfólkið skuli flykkjast í bíó með foreldrum og forráðamönnum.

Klæðnaður prinsessanna

Carolina Herrera var einn af gestunum í brúðkaupi Karls og Díönu. Hún ræðir hér muninn á Kate Middleton og Díönu og fleira. Úr þættinum Secrets of a Royal Bridesmaid á Stöð 2. Fylgist einnig með brúðkaupi Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton, sem verður í beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi í fyrramálið.

Brúðarkjóll Díönu prinsessu

Rætt við David Emanuel um brúðarkjól Díönu prinsessu og viðburðaríkan aðdraganda brúðkaupsins. Úr þættinum Secrets of a Royal Bridesmaid á Stöð 2.

Laddi leikur galdrakarlinn í Oz

„Mér líst bara vel á þetta enda er þetta heljarinnar stór sýning,“ segir Þórhallur Sigurðsson, Laddi. Hann leikur galdrakarlinn í Oz í uppfærslu Borgarleikhússins sem frumsýnd verður í september á þessu ári. Bergur Ingólfsson leikstýrir sýningunni en það er Lára Jóhanna Jónsdóttir sem leikur Dóróteu. Alls koma 36 krakkar og atvinnuleikarar að sýningunni en hátt í fjögur þúsund börn mættu í prufur fyrr í vetur. Sérstakar persónur hafa löngum loðað við Ladda og þegar hann stígur á fjalirnar verða sérkennilegir karekterar oftast fyrir valinu. Hann hefur til að mynda leikið þjófaforingjann Fagin í Oliver Twist, Skrögg í Jólasögu Dickens og svo talaði hann auðvitað fyrir annan galdrakarl, Kjartan að nafni, sem lagði Strumpana í einelti. „Ég kann vel við þessar persónur og raunar er draumahlutverkið mitt að leika illmenni í kvikmynd. Ég hef rætt þetta við ansi marga en það hefur bara enginn hlustað.“

Legóbrúðkaup Vilhjálms og Kötu

Gríðarstórt líkan af brúðkaupi Vilhjálms og Kötu hefur verið byggt úr Legókubbum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. 180 þúsund Legókubbar fóru í smíðina og 400 Legókarlar tákna brúðkaupsgestina. Átta vikur tók að smíða líkanið sem verður til sýnis í Vísindasafninu í Manchester frá deginum í dag.

Kóngafólkið setur upp hatta

Fáir muna eftir skónum sem Díana prinsessa klæddist þegar hún gekk að eiga Karl og núna er veðjað á kórónuna sem Kate Middleton mun setja upp á morgun. Margir eru spenntir að sjá brúðarkjólinn sem Kate klæðist og stóra spurningin er hvaða hönnuður hannar kjólinn. Endalausar spekúlasjónir eru um hárgreiðslu brúðarinnar og að ekki sé minnst á skartið. Ekki má gleyma útvöldum gestunum sem verða 1900 talsins en hefðin er að konungbornar konur sem og aðrar sem fá að vera viðstaddar athöfnina setji upp skrautlega hatta í tilefni dagsins. Meðfylgjandi má skoða nokkra slíka.

Sjá næstu 50 fréttir