
Fleiri fréttir

Ásdís Rán keppir um milljónirnar
Íslensk fyrirsæta og þriggja barna móðir keppir nú um að komast að í áströlskum raunveruleikaþætti þar sem sigurlaunin eru 1 milljón dollara eða 65 milljónir íslenskra króna. Við lok dags í gær var hún í öðru sæti í keppninni.

Lopez tvíburarnir heita Max og Emme
Jennifer Lopez og Marc Antony hafa gefið tvíburunum sínum nöfnin Max og Emme. Stúlkan og drengurinn fæddust 22. febrúar á Long Island í New York.

Elizabeth Taylor sögð við dauðans dyr
Leikkonan Elísabet Taylor á ekki langt eftir ólifað að sögn bandaríska blaðsins National Enquierer. Líffæri hennar eru sögð vera að gefa sig.

Frekari skuldir Jackson koma í ljós
Michael Jackson hefur ítrekað sleppt afborgunum af húsi sem fjölskylda hans notar í Los Angeles. Nýlega kom fram að Jackson gæti missti Neverland búgarð sinn vegna leiguskulda upp á rúmlega 1,6 milljarð íslenskra króna.

Stóra gjöfin hennar Opruh
Nýr raunveruleikaþáttur Oprah Winfrey „Oprah's Big Give“ fer í loftið vestanhafs á morgun. Þátturinn er keppni meðal þeirra sem vilja láta gott af sér leiða.

Rithöfundur viðurkennir að hafa falsað ævisögu
Belgískur rithöfundur hefur viðurkennt að hún hafi skáldað metsöluævisögu sína sem segir frá æskuárum hennar þegar hún bjó á meðal úlfa á tímum Helfararinnar. Frönsk kvikmynd hefur verið gerð eftir bókinni „Misha: Minningar frá árum Helfararinnar" og bókin var þýdd á 18 tungumál.

Naomi Campell útskrifuð af spítala
Ofurfyrirsætan Naomi Campell var útskrifuð af spítala í dag. Hún yfirgaf sjúkrahúsið eins og ofurfyrirsætu sæmir, í lúxusþyrlu.

amiina vekur athygli víða
Hilli, lag íslensku hljómsveitarinnar amiinu og Lee Hazlewood heitins var valið lag mánaðarins í tímaritinu MixMag auk þess sem myndbandið við lagið var númer 2 á topp tíu lista tímaritsins Mojo yfir bestu myndböndin.

Fjármálaráðherra skálar í nýjum íslenskum bjór
Nýr íslenskur bjór, Skjálfti, verður settur á markað 1. mars, á sjálfan bjórdaginn, en þá eru 19 ár síðan sala bjórs var aftur leyfð á Íslandi, eftir áratuga bann.

Borgarfulltrúi ber fram bónorð á bloggi
„Ég bíð í ofvæni, hef ekki fengið svar enn," segir Oddný Sturludóttir borgarfulltrúi sem í dag bað Hallgrím Helgason, sambýlismann sinn, um að giftast sér á ansi frumlegan máta.

Ásdís komin í efsta sætið
Fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir hefur tekið forystuna í hinni æsispennandi Is She Hot? keppni sem nú fer fram á afþreyingarvefnum savvy.com.

Knightley segir Björk vera fyrirmynd
Leikkonan Keira Knightley segir í viðtali við dagblaðið Daily Express í dag að söngkonan Björk Guðmundsdóttir sé ein af hennar helstu fyrirmyndum þegar kemur að tísku og stíl.

Morten Harket í viðtali hjá Ívari Guðmunds
Norski popparinn sem gerði allt vitlaust með hljómsveitinni A-ha árið 1985 mætti í viðtal hjá Ívari Guðmunds á Bylgjunni í morgun. Popparinn er staddur hér á landi til þess að leggja lokahönd á sína aðra sólóplötu.

Jákvæðar fréttir af Britney
Eftir að samkomulag var undirritað þann 22. febrúar á milli Britney Spears og Kevin Federline, varðandi rétt Britney til að umgangast syni sína, þá Preston og Jayden, hefur allt gengið eins og í sögu hjá söngkonunni.

Giftist einni kynþokkafyllstu konu veraldar
Hinn umdeildi útvarpsmaður Howard Stern er nú á leið upp að altarinu. Hann ætlar að giftast unnustu sinni sem er ein kynþokkafyllsta kona veraldar.

Magic, Baldwin og Moore verða á BookExpo
Magic Johnson, Alec Baldwin og Michael Moore eru á meðal þotuliðsins sem mun halda ræðu á BookExpo America, einni stærstu bókaráðstefnu í heimi, sem verður haldin í Los Angeles frá 30 maí til 2. júní næstkomandi. Aðrir sem munu taka þátt í þessum árlega viðburði eru barnabókahöfundurinn Judy Blume, spennusagnahöfundurinn Dennis Lehane og Ted Turner. Þetta tilkynnti fulltrúi Reed Exhibitions, sem hefur veg og vanda að ráðstefnunni, í dag.

Laugardagslögin rúlla upp áhorfskönnun
Tæp 80 prósent þjóðarinnar sáu lokaþátt Laugardagslaganna sem sýndur var í Sjónvarpinu um helgina. Þetta kemur fram í nýjustu könnun Capacent á sjónvarpsáhorfi landsmanna sem birt var í dag.

Tölvuleikur með Gillzenegger
Egill Einarsson er einn umtalaðasti maður síðustu daga. Eftir að “Gillz” og félagar úr Merzedes Club kepptu í Eurovision hefur maðurinn verið á allra vörum. Nú er kominn vinsæll tölvuleikur á netið. Leikinn geta allir spilað en hann ber heitið, Gillzenegger í ræktinni.

Dæmdu disk án þess að hafa hlustað á hann
Bandaríska útgáfan af tímarítinu Maxim hefur beðist afsökunar á lélegum dómi um nýjan disk Black Crowes.

Vill frekar láta skjóta sig en hlusta á Kylie Minogue
Þeir eru margir sem muna eftir söngkonunni Sinead O´Connor. Í blaðaviðtali nýlega hafði hún uppi stór orð í garð söngkonunnar Kylie Minogue.

Amy fallin!
Amy Winehouse er byrjuð að dópa af fullum krafti á ný eftir að hafa eytt hálfum mánuði á meðferðarstofnun. Götublaðið The Sun greinir frá þessu og hefur eftir „nánum vinum" stjörnunnar að hún sé farin að nota kókaín, ecstacy, kannabis og brennivín til að slá á sorgina en hún er sögð miður sín yfir örlögum kærastans, Blake Civil Fielder sem nú situr í fangelsi.

Upprunalegir eigendur komnir við stjórnvölinn á Óliver
Örum breytingum á rekstri vinsælasta skemmtistaðs Íslands, Óliver, er lokið. Staðurinn er kominn aftur í hendur stofnenda sinna, Arnars Þórs Gíslasonar og Loga Helgasonar eftir að hafa flakkað á milli rekstraraðila undanfarna mánuði.

Augun opnuðust í Kína
Arnar Steinn Þorsteinsson stundaði háskólanám í kínversku í borginni Guang Zhou í suðurhluta Kína. Hann segir augu sín hafa opnast fyrir matargerð á þeim tíma.

Jessica Simpson fer til Kúveit
Ofurdífan Jessica Simpson er á leiðinni til Kúveit. Þar ætlar hún að syngja fyrir landa sína sem gegna herskyldu þar, að því er fram kemur á vefsíðu aðdáendahóps hennar.

Ryan Seacrest á FM957
Fyrsti þátturinn af Entertainment Edge með Ryan Seacrest fór í loftið á FM957 síðasta laugardag. Þátturinn er einn sá vinsælasti í heimi, og er Ryan sjálfur frægur um allan heim sem kynnir American Idol.

Enginn "menntaskólabragur" á leikritinu í MH
Næstkomandi föstudag, þann 29. febrúar mun leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð frumsýna leikritið E1NTAK. Viðfangsefnið er einstaklingurinn andspænis veröldinni og hvort tilvera okkar hafi eitthvert vægi hér á jörðinni?

Brangelina vilja ala nýja barnið upp í Frakklandi
Angelina Jolie ætlar að eignast og ala næsta barn sitt upp í Frakklandi, til heiðurs fransk-kanadískrar móður sinnar sem lést fyrir ári. Þrátt fyrir sögusagnir þess efnis að hún og Brad Pitt eigi von á tvíburum segist Sun hafa heimildir fyrir því að hún gangi með eitt barn - stúlku.

Bókaveisla í Perlunni
Árlegur bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda verður haldinn í Perlunni frá fimmtudeginum 28. febrúar og fram til sunnudagsins 9. mars 2008. Markaðurinn er opinn daglega frá 10-18.

Pamela sækir um skilnað
Pamela Anderson hefur sótt um að hjónaband hennar og Ricks Solomon verði ógilt. Parið, sem giftist í byrjun október eftir tveggja vikna samband, hefur unnið í því frá því í desember að bjarga hjónabandinu. Í málsgögnum er ástæða ógildingarinnar sögð vera svik.

Verða Nicole og Paris svilkonur?
Paris Hilton og tónlistamaðurinn Benji Madden eyða öllum stundum saman þessa dagana. Þrátt fyrir að einungis séu tvær vikur liðnar síðan Benji sagði skilið við kærustuna sína, Sophie Monk, virðist samband hans og Parisar orðið nokkuð alvarlegt. Að minnsta kosti ef marka má heimildir Page Six, sem segir að gítarleikarinn hafi keypt trúlofunarhring handa Paris.

Naomi á sjúkrahúsi
Ofurfyrirsætan Naomi Campbell gekkst undir minniháttar aðgerð í Brasilíu á mánudaginn til að láta fjarlægja hnúð. Hún ku hafa flogið alla leið frá London til að leita sér aðstoðar á Sirio Libanes spítalanum í Sao Paulo. Campbell, sem helst illa á aðstoðarmönnum vegna vandræða með skapið, virðist þó ennþá hafa talsmann. Haft er eftir honum að Campbell heilsist vel eftir aðgerðina. Hún hvílist nú og hlakki til að fara aftur að vinna.

Stuðmannabarnið hitar upp fyrir Hjálma
Dísa, betur þekkt sem Bryndís Jakobsdóttir, hitar upp fyrir hljómsveitina Hjálma á laugardaginn á Nasa. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni bjórdagsins, 1.mars.

Bermuda blæs til hátíðar í Öskjuhlíð
Útgáfutónleikar hljómsveitarinnar Bermuda fara fram á Rúbín í Öskjuhlíðinni í kvöld. Verið er að fagna útgáfu fyrstu plötu sveitarinnar sem ber heitið, Nýr dagur. Þó platan sé nýkomin út tala menn um aðra plötu strax. Sú gæti verið á ensku.

Neverland á uppboð
Neverland, búgarður Michael Jackson verður settur á nauðungaruppboð í næsta mánuði ef Jackson getur ekki greitt hátt á annan milljarð króna af skuldum sínum. Uppboðið er dagsett þann 19. mars en Jackson hefur ekki búið á Neverland síðan árið 2005 er hann var sakaður um kynferðislega áreitni í garð drengs undir lögaldri á búgarðinum. Í augnablikinu er talið að Jackson búi í ríkinu Bahrain í Mið-Austurlöndum.

Yrsa lofuð í Bretlandi fyrir Þriðja táknið
Breska blaðið Sunday Express gefur Þriðja tákninu eftir Yrsu Sigurðardóttur fjórar stjörnur af fimm mögulegum. Segir gagnrýndandinn að útrás spennusagnanna frá Íslandi bætist við útrás í tískuverslanastarfsemi og fjármálastarfsemi í Bretlandi.

Spila með Lúðrasveit verkalýðsins á afmæli sínu
200.000 naglbítar fagna tíu ára útgáfuafmæli sínu í haust. Áfanganum verður fagnað með eftirminnilegum hætti.

Örvhentir og blindir fagna breytingum
Örvhentir nemendur við Háskóla Íslands taka þeim breytingum sem hafa verið gerðar á nýjum kvikmyndasölum Háskólabíós fagnandi. Ný sæti með borðum fyrir örvhenta hefur verið komið fyrir yst vinstra megin í hverri sætaröð og eiga þeir því auðveldara með það en áður að glósa í fyrirlestrum.

Rauðhærðir styðja Friðrik
„Mér finnst ég aldrei hafa náð því að vera rauðhærður, er bara með þetta víkingablóð og held að ég sé reyndar ljós yfirlitum,“ segir Friðrik Ómar Hjörleifsson. Því hefur verið fleygt að annað árið í röð sé fulltrúi Íslands rauðbirkinn eða jafnvel rauðhærður.

Hvað á húsið að heita?
Nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsið rís nú á hafnarbakkanum í Reykjavík. Áætluð opnun er í desember á næsta ári og Bubbi Morthens hefur þegar tekið stóra sal hússins frá á Þorláksmessukvöld næstu árin. En það bráðvantar nafn á húsið,

Naomi Campell fór í bráðaaðgerð
Breska ofurfyrirsætan Naomi Campell er nú óðum að ná sér eftir bráðaaðgerð á maga. Aðgerðin var gerð á Sirio-Libanes spítalanum í Sao Paulo um helgina. Campell var lögð inn á spítalann á sunnudag

Vill að Will Smith leiki sig
Barack Obama væntanlegur forsetaframbjóðandi demókrata myndi vilja að Will Smith myndi leika sig ef búin yrði til mynd sem byggði á ævi hans.

Paris leitar að nýjum vinum
Leik- söng- og allt múlíg konan Paris Hilton byrjar með nýjan raunveruleikaþátt á næstunni. Þátturinn fjallar um leit hennar að nýjum besta vini, og verður líklega sýndur á MTV, eða VH1 sjónvarpsstöðvunum.

Jónína afeitrar Ísfirðinga
Jónína Benediktsdóttir verður með fyrirlestur um afeitrunarmeðferðir í Menntaskólanum á Ísafirði á fimmtudagskvöldið, að því er fram kemur á vef Bæjarins. Sérstök áhersla verður lögð á stólpípuferðirnar til Póllands, sem um 400 Íslendingar hafa farið í síðasta árið.

Friðrik Ómar skráir sig úr símaskránni
Friðrik Ómar Hjörleifsson verðandi Eurovisionfari hefur tekið númer sitt úr símaskránni. Friðrik var skráður með símanúmer og heimasíðu í skránni í gær, en þegar honum var flett upp í dag var hann hvergi sjáanlegur.

Byssusmiður minnir á Byssudaga
„Við vorum að kynna okkar vörur og það voru bæði safngripir þarna og margir aðrir áhugaverðir gripir,“ segir Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður en nú standa yfir Byssudagar í Ellingsen.