Fleiri
Svifið um á Warhawk 29.10.2007 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Led Zeppelin frestar tónleikum Hljómsveitin Led Zeppelin hefur frestað boðuðum tónleikum um tvær vikur eftir að Jimmi Page, gítarleikari hljómsveitarinnar, braut á sér fingurinn. 1.11.2007 20:44
Forhlustun á nýjustu plötu Páls Óskars ,,Allt fyrir Ástina", fyrsta dansplata Páls Óskars síðan árið 1999 kemur út miðvikudaginn 7. nóvember næstkomandi. Notendum tónlist.is gefst nú tækifæri til að hlusta á plötuna í heild sinni áður en hún kemur út. 1.11.2007 16:42
Jón Ásgeir og Ingibjörg Pálma ganga í hjónaband Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir verða gefin saman í Dómkirkjunni þann sautjánda nóvember næstkomandi. Þrjúhundruð gestum er boðið í veisluna sem verður haldin í Hafnarhúsinu. 1.11.2007 15:44
Amy Winehouse og Pete Doherty saman á MTV verðlaunahátíð Skrattinn hittir ömmu sína á Evrópsku tónlistarverðlaununum í kvöld ef marka má sögusagnir. Samkvæmt heimildum Sun blaðsins munu ofurvandræðagemsarnir Pete Doherty og Amy Winehouse syngja dúett á verðlaunahátíðinni, sem er sýnd í beinni útsendingu fyrir milljónir áhorfenda. 1.11.2007 14:25
Lúsin herjar á bæjarstjóra Bolvíkinga ,,Hér er kembt kvölds og morgna." sagði Grímur Atlason bæjarstjóri Bolungarvíkur í samtali við Vísi. Grímur greindi frá því á bloggi sínu á Eyjunni í gær að hann hefði fundið lús í hári sínu og dóttur sinnar. 1.11.2007 13:44
Prison Break leikari dæmdur fyrir manndráp af gáleysi Leikarinn Lane Garrison úr Prison break var í gær dæmdur í þriggja ára og fjögurra mánaða fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Sautján ára stúlka sem var farþegi í bíl Garrisons lést þegar leikarinn keyrði drukkinn á tré. 1.11.2007 12:49
Posh stundar ekki líkamsrækt út af fatavandræðum Victoria Beckham stundar ekki líkamsrækt. Ástæðan er sú að hún getur ekki fyrir nokkra muni ákveðið hverju hún á að klæðast í puðinu. 1.11.2007 11:33
Heimsins flottustu bossar Undirfatafyrirtækið Sloggi telur sig hafa fundið flottustu bossa í heimi, á karlmanni og konu. 1.11.2007 11:21
Existaforstjóri keypti styrktarmálverk fyrir 2,5 milljónir Erlendur Hjaltason, annar forstjóri Exista, keypti málverk eftir Hrafnkel Sigurðsson á styrktarkvöldi Krabbameinsfélags Íslands um síðustu helgi. Erlendur greiddi 2,5 milljónir fyrir verkið sem Hrafnkell málaði á staðnum. 1.11.2007 11:03
Rúnar í 17. sæti á alþjóðlegu pókermóti Rúnar Rúnarsson er í 17. sæti af þeim 122 keppendum sem eftir eru á EPT Dublin mótinu í Evrópumótaröðinni í Póker. Mótið heldur áfram í dag en því líkur á laugardag þegar þeir sem eftir standa leiða saman hesta sína á lokaborðinu. Alls hófu 221 þáttakendur leik en 99 eru hafa lokið keppni. 45 milljónir íslenskar króna koma í hlut sigurvegara mótsins. 1.11.2007 10:18
Fullt hús á Mugiboogie Þá er hún loks komin platan sem á að fylgja eftir einni af dáðustu plötum síðustu ára í íslenskri tónlist, Mugimama Is This Monkey Music? sem toppaði árslista flestra tónlistaráhugamanna árið 2004. Mugison hefur ekki setið auðum höndum á þessum þremur árum sem eru liðin fá útkomu Mugimama. Hann hefur spilað töluvert í útlöndum til að fylgja erlendum útgáfum hennar eftir og hann er búinn að gera tónlist við tvær kvikmyndir; A Little Trip to Heaven og Mýrina. Svo hefur hann unnið að nýju plötunni sem er hér til umfjöllunar, Mugiboogie. 1.11.2007 07:30
Spánverjar elska Íslendingahótel Íslendingahótelið Hotel D´Angleterre í Danmörku hefur fengið enn ein verðlaunin og nú frá Spánverjum. Það er ferðamálaritið Diavaram, sem er eitt virtasta ritað í þessum geira þar í landi, sem nefnir hótelið það besta í Danmörku. 31.10.2007 20:55
Gagnrýnendur eru hrifnir af nýjustu plötu Britney Það er sennilega margt sem betur mætti fara í lífi Britney Spears, en gagnrýnendur fara aldrei þessu vant alveg afburða vel með nýjustu afurð stúlkunnar. Fjöldi fjölmiðla hafa kallað nýjustu plötu Spears, Blackout, þá bestu sem hún hefur gert. 31.10.2007 17:20
Systur selja dýrustu nærbuxur Íslands "Við ætlum að vera með nærföt í hæsta gæðaflokki," segir Sigrún Edda Eðvarðsdóttir sem á föstudag opnar nýja nærfataverslun á Laugarvegi. Verslunin hefur hlotið nafnið Systur en það skýrist af því að Sigrún á og rekur verslunina í félagskap við systur sína, Ragnheiði Eðvarðsdóttur. 31.10.2007 16:38
Heather Mills segist fá verri meðferð en barnaníðingur Bítlaeiginkonan fyrrverandi, Heather Mills, brotnaði niður í viðtali í morgunsjónvarpi GMTV sjónvarpsstöðvarinnar og sakaði fjölmiðla um að ýta sér út á brún. Mills sat með fulla möppu af blaðaúrklippum og táraðist þegar hún lýsti því hvernig hún hefði fengið líflátshótanir og hugleitt sjálfsmorð á því eina og hálfa ári sem liðið er frá því hún skildi við Paul McCartney. 31.10.2007 16:22
Djúpavogsbúar háma í sig svið Árleg sviðamessa verður haldin á Hótel Framtíð á Djúpavogi laugardaginn 10. nóvember næstkomandi. Þetta er í ellefta sinn sem bæjarbúar halda sviðamessuna, en með henni hefur verið endurvakinn sá gamli íslenski siður að fagna vetrarkomu skömmu eftir sláturtíð og gæða sér á sviðum og löppum með rófustöppu og kartöflum. 31.10.2007 14:55
Bjartur leitar að sex ára vinningshafa Bókaforlagið Bjartur leitar nú að sex ára dreng frá Akureyri sem það vill bjóða til Evrópu. Þetta kann að hljóma undarlega fyrir mörgum en fyrir þessu er allsérstök ástæða. 31.10.2007 14:14
Sprengjuhöllin, Jeff Who? og Motion Boys á NASA Þrjár af vinsælustu hljómsveitum landsins blása til stórtónleika á NASA þann 16 nóvember næstkomandi. Í tilkynningu frá sveitunum segir að það séu breyttir tímar í íslenskri popptónlist. ,,Svo virðist sem lítt burðugt sveitaballapopp sé á undanhaldi og ferskari kynslóð sé tekin að úða olíu á nær útbrunninn kyndil íslenskrar popptónlistar." 31.10.2007 14:04
Síðasta vígið fallið? Íslendingar hafa undanfarin ár verið duglegir að fjárfesta í þjóðarperlum dana á borð við Illum og Magasin de Nord, við mismikla hrifningu innfæddra. Nú hlýtur þó síðasta vígið að vera fallið, en íslenskt fyrirtæki mun fyrir jól selja jólaskraut á jólamarkaði Tívolís. 31.10.2007 12:43
Nigella er óánægð með vöxtinn Nigella Lawson er víst óörugg með kroppinn öðru hvoru. Sjónvarpskokkurinn með bombuvöxtinn viðurkenndi í viðtali við Red tímaritið að henni finndist hún stundum líta út eins og fíll. 31.10.2007 11:19
Britney fær ekki forræði yfir börnunum Britney Spears fær ekki forræði yfir börnunum sínum aftur. Þetta úrskurðaði dómari í Kaliforníu um í gær. Britney fær að heimsækja syni sína tvo þrisvar í viku, tvisvar frá hádegi til kvöldmatarleitis, og einu sinni yfir nótt. Heimsóknirnar fara fram undir eftirliti. 31.10.2007 10:54
Íslenskir milljarðamæringar í New York maraþoninu Á sunnudaginn fer hið víðfræga New York maraþon fram en þá verða hlaupnir 42 kílómetrar um öll fimm hverfi borgarinnar. Alls eru 55 íslendingar skráðir til leiks en athygli vekur að þar á meðal eru nokkrir af atkvæðamestu kaupsýslumönnum landsins. 31.10.2007 09:54
Britney endurheimtir umgengnisrétt við börnin Britney Spears fær að hitta börnin sín þrisvar sinnum í viku undir eftirliti samkvæmt úrskurði dómara. Söngstjarnan þarf hins vegar að mæta vikulega í áfengis- og lyfjapróf og sækja reglulega námskeið í foreldrafærni. Kevin Federline, fyrrverandi eiginmaður Spears fékk fullt forræði yfir börnunum í byrjun október. Dómarinn, Scott Gordon, hefur áður veitt Britney umgengnisrétt við börnun en svipt hana réttinum aftur, aðallega vegna áfengis- og fíkniefnavanda hennar. 31.10.2007 07:00
Sesar A á 10 tungumálum Afi íslenska rappsins Sesar A er risinn upp frá dauðum og gefur nú út sína þriðju sólóplötu. Sesar A sem heitir réttu nafni Eyjólfur B Eyvindarson er bróðir Erps Eyvindarsonar eins umtalaðasta rappara landsins. 30.10.2007 18:40
Með hesthús og heitan pott í stofunni Dreymi þig um að geta horft á kvöldfréttirnar í heitapottinum við róandi snark í arineldi þá er tækifæri til þess núna. Eigirðu 180 milljónir á lausu eða sért í góðu sambandi við bankann þinn geturðu nú fjárfest í 500 fermetra höll Kópavoginum. 30.10.2007 17:01
Íslenskur pókerkóngur reynir við 50 milljónir Íslendingurinn Rúnar Rúnarsson hóf í dag þátttöku í Evrópumótaröðinni í Póker. Mótið fer fram í Merrion Casino Club í Dublin og eru tæpar 50 milljónir íslenskra króna í verðlaunafé. 30.10.2007 15:35
Verkfall handritshöfunda gæti valdið holskeflu raunveruleikaþátta Margar af stærstu sjónvarpsþáttaröðum í Bandaríkjunum, á borð við Grey's Anatomy og Heros gætu lent í vandræðum vegna yfirvofandi verkfalls handritshöfunda. 30.10.2007 15:20
Segir Heather Mills hafa hrætt gæludýr til dauða Nágrannakona Heather Mills segir að flugeldasýning sem bítlaeiginkonan fyrrverandi hélt hafi drepið hundinn sinn. 30.10.2007 12:43
Jackson gæti misst Neverland Michael Jackson gæti misst Neverland, þar sem hann hefur ekki staðið við greiðslur af eins og hálfs milljarðs króna láni sem hvílir á búgarðinum. 30.10.2007 11:50
Hélt að Justin Timberlake væri hommi Lance Bass, einn meðlima NSYNC, segir í viðtali í nóvembertölublaði GQ að hann hafi alltaf haldið að meirihluti hljómsveitarmeðlima væri samkynhneigður. 30.10.2007 11:19
Oprah biðst afsökunar á misnotkun Oprah Winfrey grátbað í fyrradag foreldra nemenda í stúlknaskóla hennar í Suður-Afríku að fyrirgefa sér meinta misnotkun starfsmanna skólans á nemendum. 30.10.2007 10:56
Plötufyrirtækið að gefast upp á Jennifer Lopez Það gæti verið að styttast í annan endann á tónlistarferli Jennifer Lopez. Epic Records, plötufyrirtæki Lopez, er víst alveg að fá nóg af lélegri sölu á tónlist stúlkunnar, og yfirgengilegum kostnaði við markaðssetningu hennar. 30.10.2007 10:29
Brangelina fjölgar sér enn Angelina Jolie er ólétt af öðru barni sínu. Þessu héldu ítalskir fjölmiðlar fram í gær eftir að leikkonan þurfti að aflýsa fyrirlestri vegna ,,persónulegra ástæðna" 30.10.2007 09:41
Denzel Washington og Russel Crowe leika saman Óskarsverðlaunahafarnir Denzel Washington og Russel Crowe hafa nýlokið við tökur á myndinni “American Gangster”. Í myndinni leikur Washington eiturlyfjabaróninn Frank Lucas, sem auðgaðist mjög á sjöunda áratug síðustu aldar á því að flytja heroín til New York. 30.10.2007 07:00
Safnplatan Bestaf/Nylon væntanleg Safnplata með bestu lögum Nylonlflokksins er væntanleg í verslanir í lok nóvember. Síðustu vikur hafa stelpurnar verið að taka upp tvo lög sem verða einu tvo nýju lögin á plötunni, en hún inniheldur 17 lög sem öll eiga það sameiginlegt að hafa náð miklum vinsældum og mikilli spilun í útvarpi á Íslandi og þó víðar væri leitað. Meðal laga á plötunni eru meðal annars: Lög unga fólsins, Einhverstaðar, einhvertíma aftur, Síðasta Sumar, Losing a friend og Sweet Dreams sem fór í efsta sæti breska dans listans á sama tíma í fyrra. 29.10.2007 17:49
Maríjúana er ekki eiturlyf - það er lauf Tortímandinn og ríkisstjórinn Arnold Schwarzenegger viðurkenndi í viðtali í síðasta tölublaði tímaritsins GQ að hafa reykt maríjúana. Ólíkt Clinton fyrrverandi Bandaríkjaforseta gekkst hann meira að segja við því að hafa dregið reykinn ofan í lungu. 29.10.2007 15:28
Geðveikir bolir á tónleikum Rúna Júl „Þetta fór bara langt fram úr okkar björtustu vonum og ætli við höfum ekki selt hátt í 200 boli,“ segir Sigrún Ásgeirsdóttir félagi í Björginni í Reykjanesbæ. 29.10.2007 15:08
Sarkozy sýnir skapið í 60 Minutes Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti sýndi ekki sínar bestu hliðar í viðtali við Lesley Stahl í fréttaskýringaþættinum 60 Minutes sem sýndur var vestanhafs í gær. 29.10.2007 14:53
Flestir vilja vera Brangelina Og hverjir skyldu Bandaríkjamenn helst vilja vera þetta árið? Brad Pitt og Angelina Jolie greinilega. Samkvæmt könnun Captain Morgan/Kelton, eru ,,Brangelina" þær stjörnur sem menn vilja helst vera á hrekkjavökunni í ár. 29.10.2007 12:40
Audiæði hjá yfirstjórn RÚV Þórhallur Gunnarsson ritstjóri Kastljóssins fjárfesti í lok ágúst í spánnýjum dökkgráum Audi A6 bíl. Bíllinn er með tveggja lítra vél sem skilar 170 hestöflum og sjö gíra sjálfskiptingu og kostar rúmar 4,3 milljónir. Þetta er því hógvær útgáfa af A6, því þeir geta kostað allt að 7,9 milljónir króna. 29.10.2007 12:22
Eddu stuttmyndir sýndar í Regnboganum Þrjár stuttmyndir eru tilnefndar til Edduverðlauna í ár. Myndirnar verða allar sýndar í Regnboganum á þriðjudag og fimmtudag klukkan 18 og er aðgangur ókeypis. 29.10.2007 12:21
Paris gengur berserksgang í beinagrindarbúningi Starfsmenn hjálpartækjaverslunar í Toronto halda því fram að Paris Hilton hafi gengið berserksgang í búð þeirra í síðustu viku. Á öryggismyndavélum búðarinnar sést kona íklædd hrekkjavökugrímu og beinagrindarbúningi kvarta með látum yfir auglýsingu í glugga verslunarinnar fyrir ,,One Night in Paris", víðfrægt kynlífsmyndband hótelerfingjans. 29.10.2007 10:54
Catherine Zeta Jones er ekki með anorexíu Kynbomban Katherine Zeta Jones þvertekur fyrir að nokkuð sé hæft í orðrómi um að hún þjáist af lystarstoli. Leikkonan hefur löngum verið þekkt fyrir afar kvenlegan vöxt og andstöðu við megrunarmaníu ungstyrnanna í Hollywood. Undanfarið hafa hinsvegar heimsfrægar ávalar línur hennar vikið fyrir nýrri og tálgaðri líkamsvexti. 29.10.2007 10:05
Sálin hans Márusar til sölu á Ebay á sex þúsund kall Sál Márusar Brynjars Bjarnasonar, 21 árs Grafarvogsbúa, er nú til sölu á Ebay. Það er Márus sjálfur sem er seljandinn. 29.10.2007 09:53