Fleiri fréttir

Kærður fyrir manndráp

Lane Garrison, sem leikur í spennuþáttunum Prison Break, hefur verið ákærður fyrir manndráp og fyrir að aka undir áhrifum áfengis þegar bíll hans lenti í árekstri á síðasta ári. Sautján ára piltur lést í slysinu og tvær fimmtán ára stúlkur slösuðust.

Horft austur

Um tvö hundruð manns hafa þegar skráð sig í kvikmyndaklúbbinn Fjalaköttinn sem hóf sýningar í Tjarnarbíói fyrir skömmu. Þriðju sýningarhelgina verður kastljósinu beint að Rússlandi. Á morgun verða sýndar fjórar myndir en þar á meðal er stórvirkið Trönurnar fljúga eftir Mikhail Kalatozov.

Fúlgur fyrir fundinn

Aðdáendur popparans Michaels Jackson þurftu að borga tæpar 230 þúsund krónur á mann til að fá að hitta goðið í Tókýó á dögunum. Biðu aðdáendurnir spenntir eftir því að fá að spjalla við Jackson og taka myndir af honum á sérstökum fjöldafundi sem var settur upp fyrir þá. Söng hann hvorki né dansaði fyrir aðdáendurna.

Björgólfur ríkari en Trump og Spielberg

Íslenski kaupsýslumaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson hækkar sig um 101 sæti og kemst í 249. sæti yfir ríkustu menn heims á lista tímaritsins Forbes. Eignir Björgólfs Thors eru metnar á 3,5 milljarða bandaríkjadala, eða um 235 milljarða króna. Í fyrra voru eignir Björgólfs metnar á 2,2 milljarða dala og þá sat hann í 350. sæti yfir auðugustu menn veraldar.

Fullt af engu

Í Nýlistasafninu stendur nú yfir sýningin „Presque rien“ sem útleggst á hinu ástkæra ylhýra sem „næstum því ekki neitt“. Þar sýna franskir myndlistarmenn í tilefni af menningarkynningunni Pourquoi pas? en sýningin byggir á sköpunarverkum listamannsins Roberts Filliou.

Dorrit heiðursgestur í London

„Þetta var frábær ferð og ég naut þeirra forréttinda að vera með stórum og skemmtilegum hópi kvenna,“ segir Margrét Sverrisdóttir stjórnmálamaður á heimasíðu sinni um eftirminnilega ferð til London í vikunni.

Beastie Boys bætast við

Hljómsveitirnar Beastie Boys, The Killers, Peter Björn og John og Slayer eru á meðal þeirra sem hafa bæst við dagskrá Hróarskelduhátíðarinnar sem verður haldin í Danmörku í sumar.

Ástfangnir eldri borgarar

Söngleikurinn Ást eftir Gísla Örn Garðarsson og Víking Kristjánsson verður frumsýndur í Borgarleikhúsinu í kvöld.

(Dr. Gunni tekur viðtal) Alltaf að predika

Hugleikur Dagsson verður þrítugur í október. Miðað við aldur er hann búinn að afkasta heilan helling af æðislegu stöffi. Þjóðleikhúsið frumsýndi Legið hans á fimmtudaginn við gargandi fögnuð áhorfenda, í fyrra fékk hann Grímuna fyrir fyrsta leikverkið sitt, Forðist okkur, og honum hefur tekist það ómögulega: að gera vinsælar teiknimyndasögur á íslensku, sjö talsins, og eina á ensku sem Penguin gaf út í fyrra.

Nýr þátttakandi í leikjatölvustríðinu

Arftaki vinsælustu sjónvarpsleikjatölvu í heimi, PlayStation 2, er á leið til landsins. Þann 23. mars munu landsmenn, sem og aðrir Evrópubúar, geta notið nýju tölvunnar sem heitir því frumlega nafni PlayStation 3.

Vinir að eilífu

Daníel Ágúst kemur til dyranna klæddur eins og náfrændi Drakúla, þessi sem fluttist til Oklahoma. Þráðbeinn í baki, í svörtum lygilegum jakkafötum, opnar hann dyrnar fyrir blaðamanni og vísar honum inn í slotið.

Hanna Björk talar frá Teheran: Vegatálmar og vestræn viðhorf

Í Íran er föstudagur frídagur, eins og sunnudagur heima. Fimmtudagskvöld eru því partíkvöld hér í Teheran. Það tók mig smá tíma að venjast því að hér byrjar vinnuvikan á laugadegi sem er eins og hver annar mánudagur heima. Svona eru hlutirnir oft öfugsnúnir í Íran. Dagatalið er allt annað, hér er árið 1385, og persneska er skrifuð og lesin í öfuga átt, frá hægri til vinstri.

Prison Break leikari á leið í fangelsi?

Leikarinn Lane Garrison, sem leikur David ,,Tweener" Apolskis í sjónvarpsþáttunum Prison Break, hefur verið ákærður fyrir manndráp. Hann lenti í bílslysi en í því lést 17 ára drengur og tvær 15 ára stúlkur slösuðust.

Launahækkun læknanna í Grey's Anatomy

Grey’s Anatomy stjarnan Ellen Pompeo, sem leikur Dr. Meredith Grey í þáttaröðinni vinsælu, hefur gert nýjan samning við ABC. Er samningurinn metinn á næstum 200 þúsund dollara fyrir hver þátt, en það jafngildir rúmum 13,5 milljónum króna. Eru um 20 þættir í hverri seríu.

Umboðsmaður Íslands

Sunnudagkvöldið næstkomandi verður Einar Báðarson gestur í Sjálfstæðu fólki. Einar hefur upp á síðkastið einkum getið sér orð fyrir að hafa náð góðum árangri í að koma íslenskri tónlist á framfæri í Bretlandi, auk þess að vera fastagestur á heimilum landsmanna á hverju föstudagskvöldi, sem einn þriggja dómara í X-Factor.

Kate Winslet vinnur mál gegn tímariti

Breska leikkonan Kate Winslet hefur unnið mál gegn tímariti sem sagði hana hafa leitað sér aðstoðar læknis til að grenna sig. Kate hefur verið óhrædd við að láta skoðanir sínar í ljós þegar kemur að því að gagnrýna það granna holdarfar sem ræður ríkjum í Hollywood.

Öfundsjúkir læknar

Mikil ólga er meðal leikaranna í læknaþættinum Grey´s Anatomy vegna þess að Kate Walsh sem leikur Dr. Addison Montgomery, fær sérstakan þátt um sína persónu, sem verður gerður samhliða aðalþáttunum. Allir leikararnir vildu ólmir fá sinn hliðarþátt og eru sagðir mjög afbrýðisamir út í Walsh.

Wulfgang í tónleikaferð til Kína

Íslenska hljómsveitin Wulfgang hefur verið boðið að spila á einni stærstu tónlistarhátíðinni í Kína sem ber nafnið Midi Festival. Hátíðin fer fram dagana 1. – 4. maí á þessu ári en hún er haldin í Haidian Park í Peking. Wulfgang mun leika á aðalsviði hátíðarinnar fyrir a.m.k. 15 þúsund áhorfendur.

Deilt um meint fermingarklám

„Hún hlýtur að hafa séð að sér. Hún er búin að taka færsluna niður. Það segir allt sem segja þarf," segir Eva Dögg Sigurgeirsdóttir markaðsstjóri Smáralindar.

33 atriði staðfest

Alls hafa 33 atriði verið staðfest á tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður sem verður haldin á Ísafirði um páskana. „Við ætluðum að fækka atriðum í ár en þau voru öll svo geðveik sem sóttu um þannig að það var ekki hægt að segja nei,“ segir Mugison sem hefur skipulagt hátíðina undanfarin ár. „Við höfum fengið 80 til 90 umsóknir og þær eru ennþá að berast, þótt við séum eiginlega búin að fylla í öll „slott“.

Á leiðinni til Texas

Hljómsveitirnar Lada Sport og Mammút munu spila á tónleikahátíðinni South by South West í Texas á næstunni. Til að hita upp fyrir ferðina og til að fá hjálp við fjármögnun ætla sveitirnar að halda tónleika á Grandrokki í kvöld.

Tom og Katie sögð eiga von á öðru barni

Hjónakornin Katie Holmes og Tom Cruise sáust á dögunum kaupa barnahúsgögn fyrir tugþúsundir dollara í West Hollywood. Húsögnin voru þó varla ætluð Suri, dóttur hjónanna, því þau voru greinilega ætluð strákum.

Fáðu þér bara sæti

Myndlistarmaðurinn Hlynur Hallsson opnar sýninguna LJÓS - LICHT - LIGHT í galleriBOXi á Akureyri kl. 16 á morgun. Verkið sem Hlynur setur upp í galleriBOXi samanstendur af borði og sætum sem gerð eru á afar einfaldan hátt úr froðuplastplötum og gæruskinni.

Árangurslítil meðferð

Lindsay Lohan, sem er nýkomin úr meðferð, hefur snúið aftur til fyrri starfa. Leikkonan hefur lítið dregið úr ferðum sínum á skemmtistaðina í Englaborginni og þykir mörgum nóg um.

Galdrakarlar, tröll og krakkar

Á morgun kl. 15 er komið að árlegum fjölskyldutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói en þá verður lokið upp dyrum að ævintýralegum heimi trölla, galdrakarla og annarra kynjavera.

Hugvísindaþing hefst í dag

Hugvísindaþing hefst síðdegis í dag í Aðalbyggingu Háskólans og stendur í tvo daga. Að því standa, eins og undanfarin ár, Hugvísindastofnun, ReykjavíkurAkademían og guðfræðideild. Þinginu er ætlað að bregða ljósi á ýmis viðfangsefni sem unnið er að á skika hugvísinda í landinu, bæði lítil álitaefni og stór.

Gler- og ljósmyndir Drafnar

Myndlistarkonan Dröfn Guðmundsdóttir opnar á morgun sýningu á glerverkum og ljósmyndainnsetningu í Grafíksafni Íslands – sal íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu, hafnarmegin.

Illugi sigraði Bryndísi

Bryndís Sveinsdóttir, blaðamaður og nemi, var Illuga Jökulssyni, hinu þekkta spurningaljóni, engin fyrirstaða í fjórða þætti Meistarans á Stöð 2 sem var í gærkvöldi. Illugi náði forystu snemma í þættinum og hélt henni allt til enda. Og sigraði með miklum yfirburðum eða 25 gegn 8 stigum Bryndísar.

Robbie heim til mömmu

Söngvarinnar Robbie Williams skráði sjálfan sig af meðferðarheimili þrátt fyrir að eiga enn eftir viku af fjögurra vikna dagskrá. Hundsaði söngvarinn ráð lækna um að halda áfram og flaug rakleiðis heim til Englands þar sem hann vildi vera með móður sinni, Jan. Robbie Williams skráði sig í meðferð hinn 13. febrúar, á afmælisdaginn sinn, en hann var orðinn háður svefn- og þunglyndislyfjum, auk þess sem koffínneysla hans var komin úr böndunum.

Rætt um Lindgren

Ráðstefna um barnabókmenntir og barnamenningu verður haldin í menningarmiðstöðinni Gerðubergi á morgun. Ráðstefnan er að þessu sinni tileinkuð Astrid Lindgren og framlagi hennar til barnamenningar fyrr og nú.

Samheldni og stolt

Mikið verður um dýrðir í Breiðholtinu um helgina þegar Íþróttafélag Reykjavíkur, ÍR, fagnar aldarafmæli sínu með pomp og prakt. Hörður Heiðar Guðbjörnsson, framkvæmdastjóri félagins, hvetur núverandi og framtíðar ÍR-inga til þess að fjölmenna og samfagna á þessum miklu tímamótum.

Spila í Danmörku

Hljómsveitin Nilfisk frá Stokkseyri er á leiðinni í afmælis- og tónleikaferð um Danmörk í apríl. Næstkomandi laugardag verða fjögur ár liðin síðan sveitin var formlega stofnuð og af því tilefni heldur hún tónleika á Draugabarnum á Stokkseyri í kvöld. Mun allur ágóðinn renna í reisuna til Danmerkur.

Tónleikar í Stokkhólmi

Tónleikaferð bresku hljómsveitarinnar The Police um Evrópu hefst í Stokkhólmi 29. ágúst. Sveitin mun ferðast um Bretland, Tékkland, Austurríki, Holland, Þýskaland og Spán á tónleikaferð sinni, sem er sú fyrsta síðan hún lagði upp laupana fyrir 23 árum.Líklegt er að The Police spili einnig í Belgíu, Danmörku, Ítalíu og Sviss á tónleikaferðinni.

Undrablanda frá Japan

Japanskar stelpur í indí-heiminum virðast bera með sér óendanlegan persónusjarma og hæfileika. Steinþór Helgi Arnsteinsson er að minnsta kosti agndofa.

Valentino þeytir skífum í afmæli

Slóvenski plötusnúðurinn Valentino Kanzyani þeytir skífum á Nasa í kvöld í tilefni af tveggja ára afmæli techno.is. Valentino kemur fram með þrjá plötuspilara og spilar það ferskasta í danstónlistinni um þessar mundir. Einnig koma fram Exos og Plugged, sem áttu toppsæti árslista techno.is árið 2006 með endurhljóðblöndun sinni af laginu Kokaloca með Dr. Mister and Mr. Handsome.

X-Faktor sýndur í Færeyjum

Færeyingurinn Jógvan Hansen hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í X-Faktor og eins og Fréttablaðið hefur áður sagt frá ríkir sannkallað Jógvans-æði í Færeyjum. Vinsældir hans í heimalandinu hafa nú náð nýjum hæðum því færeyska ríkisjónvarpið hefur keypt sýningarréttinn á þeim sex þáttum sem eftir eru.

Þorvaldur leitar að nýrri Sódómu

„Ég er eiginlega að biðja hljómsveitir og tónlistarmenn um að senda mér lagasmíðar sínar, helst tilbúnar til útgáfu sem gætu þá heyrst í kvikmyndinni,“ útskýrir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, höfundur og stjórnandi tónlistarinnar í kvikmyndinni Astrópíu, sem leitar nú logandi ljósi að nýjum smellum fyrir myndina.

Þórir ferðast um Ítalíu

Tónlistarmaðurinn Þórir ætlar í tónleikaferð um Ítalíu í apríl. Þar mun hann spila einsamall á níu tónleikum á níu dögum. „Það verður mjög gaman enda hef ég aldrei komið til Ítalíu,“ segir Þórir, sem er að vinna að sinni þriðju plötu sem er væntanleg í sumar. „Þetta gengur hægt og bítandi,“ segir hann um plötuna, sem hann tekur upp sjálfur.

Mills vill milljón á dag

Heather Mills hefur sett fram kröfur um háar greiðslur úr búi fyrrum eiginmanns síns, Pauls McCartney. Málið er í hnút því Paul neitar öllum slíkum tilboðum.

Illugi snýr aftur og tekur enga sénsa

IIllugi Jökulsson byrjaði keppni í Meistaranum fyrr í kvöld með viðlíka krafti og í fyrra þegar hann tók einnig þátt í þessum vinsæla spurningaþætti sem sýndur er á Stöð 2 á fimmtudagskvöldum.

Pierce Brosnan sannur Bond?

Leikarinn Pierce Brosnan, sem hvað þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem njósnarinn James Bond, er ekki jafn mikill Bond í raunveruleikanum og á hvíta tjaldinu. Hann var á leið frá Kauai til Los Angeles með United Airlines þegar vélin þurfti skyndilega að millilenda í Honolulu vegna veikinda eins farþegans. NY Post greinir frá þessu.

Rachael Ray bitin af hundi

Sjónvarpskonan geðþekka, Rachael Ray, varð fyrir árás hunds í Union Square garðinum á laugardag þar sem hún varð að reyna að verja litla hundinn sinn, Isaboo.

Sært stollt Jareds Letos

Leikarinn og rokkarinn Jared Leto slasaði sig á tónleikum sem hljómsveitin hans 30 Seconds to Mars hélt í Texas á fimmtudagskvöld. Hann slasaðist á andliti og fæti en það var ekki bara líkaminn sem særðist, heldur stoltið líka.

Sjá næstu 50 fréttir