Leikjavísir

Nýr þátttakandi í leikjatölvustríðinu

Playstation 3
Tölvan er svört á lit, kúpt og nokkuð stór í sniðum. Útgáfan sem seld er í Evrópu hefur 60 gígabæta harðan disk, möguleika á þráðlausu neti og minniskortalesara auk Blu-Ray drifsins sem er í öllum útgáfum tölvunnar. Stýripinnarnir tengjast vélinni með Bluetooth þráðlausri tengingu og háskerpusjónvörp tengjast í gegnum HDMI-tengi á tölvunni.
Playstation 3 Tölvan er svört á lit, kúpt og nokkuð stór í sniðum. Útgáfan sem seld er í Evrópu hefur 60 gígabæta harðan disk, möguleika á þráðlausu neti og minniskortalesara auk Blu-Ray drifsins sem er í öllum útgáfum tölvunnar. Stýripinnarnir tengjast vélinni með Bluetooth þráðlausri tengingu og háskerpusjónvörp tengjast í gegnum HDMI-tengi á tölvunni.
Henni hefur verið seinkað, breytt og seinkað aftur, en PlayStation 3 leikjatölvan er loksins að koma. Þann 23. mars hefst sala á tölvunni sem tekur við af vinsælustu sjónvarpsleikjatölvu í heimi, PlayStation 2. Dagurinn sem evrópskir tölvuleikjaunnendur hafa beðið eftir svo lengi er við það að renna upp.

Upphaf og Evrópuseinkun

PlayStation 3 var fyrst kynnt almenningi um mitt ár 2005, á tölvuleikjaráðstefnunni E3 í Bandaríkjunum. Upphaflega átti hún að koma út vorið 2006, en útgáfudeginum var seinkað þar til í nóvember sama ár. Átti hún þá að koma út í Bandaríkjunum, Evrópu og Japan samtímis.

Þegar á hólminn var komið hopaði Sony, framleiðandi tölvunnar, enn á ný og frestaði útgáfunni í Evrópu um fimm mánuði, við óblíðar viðtökur Evrópubúa.

Vandræði við fjöldaframleiðslu á Blu-Ray diskadrifunum voru sögð ástæðan fyrir því að aðeins Japanar og Bandaríkjamenn fengu að njóta tölvunnar í nóvember 2006, en Evrópa sat á hakanum.

Nýjungar

PlayStation 3 er mun öflugri en fyrirrennari hennar og státar af mörgum nýjungum. Þar ber einna helst að nefna Blu-Ray drifið sem kemur í stað DVD-drifsins á PS2 tölvunni, en Blu-Ray diskar geta geymt allt að fimm sinnum meiri gögn en DVD-diskarnir.

Leikirnir fyrir vélina verða flestir í háskerpu, en það þýðir að upplausnin er mun hærri en í „venjulegum“ leikjum. Bíómyndir á Blu-Ray diskum eru einnig í háskerpuupplausn. Til þess að nýta háskerpuna þarf þó sjónvarp sem ræður við að sýna efni í slíkri upplausn.

Dýrt spaug

Verðið á tölvunni er ein af þeim nýjungum sem hafa vakið litla hrifningu hjá fólki. Í Evrópu mun premium-útgáfa vélarinnar kosta 600 evrur, en ódýrari útgáfan verður ekki gefin út hér til að byrja með.

Til samanburðar kostar Xbox 360, einn keppinauta PlayStation 3 í leikjatölvustríðinu, 300-400 evrur eftir útgáfum. Nintendo Wii, þriðji þátttakandinn, kostar 250 evrur.

Hér á Íslandi má búast við að vélin kosti milli 60 og 70 þúsund krónur, en verslanir BT, Elko og Max verða allar með leikjatölvuna til sölu.

Í premium-útgáfunni er sextíu gígabæta harður diskur, möguleiki fyrir þráðlausa nettengingu og minniskortalesari auk Blu-Ray drifsins sem er í öllum útgáfum.

Barist um örfá eintök

Útgáfa PlayStation 3 í Bandaríkjunum einkenndist fyrst og fremst af gríðarlegri eftirspurn og langt í frá nægu framboði. Þetta ástand hafði það í för með sér að tækifærissinnar sáu sér leik á borði og biðu dögum saman í biðröð eftir tölvunni, og seldu hana um leið á uppboðsvefnum eBay með hundrað prósenta álagi eða svo. Fjölmennar biðraðir þar sem enginn ætlaði sér í rauninni að nota sjálfa tölvuna voru ekki óalgeng sjón á útgáfudeginum.

Nokkru eftir útgáfudaginn tók að lægja og ástandið batnaði. Í árslok hafði Sony selt tæpar tvær milljónir eintaka, þar af um 750.000 í Bandaríkjunum.

Leikirnir skipta mestu máli

Það skiptir litlu máli hversu öflug leikjatölva er ef leikirnir sjálfir standa ekki undir kröfum. Fimmtán leikir komu út á sama tíma og tölvan í Bandaríkjunum og Japan, en alls verða rúmlega fjörutíu leikir á boðstólum þegar vélin fer í sölu í Evrópulöndum.

Einna vinsælustu leikirnir eru skotleikurinn Resistance: Fall of Man, bardagaleikirnir Virtua Fighter 5 og Fight Night Round 3 og bílaleikurinn MotorStorm, sem kom út nú fyrir nokkrum dögum. Leikjaunnendur eru þó eflaust spenntastir fyrir Grand Theft Auto IV, sem kemur út í október, og Metal Gear Solid 4: Guns of the Patriots, sem kemur út einhvern tímann á þessu ári.

Ekki góð kaup fyrir alla

Fyrir þá sem eiga ekki háskerpusjónvarp eru kostir PS3 nokkru færri en hjá hinum. Vissulega er hægt að spila alla leikina án vandkvæða, en þeir eru í mun lægri upplausn og líta alls ekki jafn vel út. Hið sama gildir um Blu-Ray myndir, þær munu í besta falli líta jafnvel út og myndir á DVD-diskum.

Tölvan nýtist því eigendum háskerpusjónvarps mun betur en þeim sem ekki eru svo heppnir. Áhugasamir ættu að taka þetta með í reikninginn þegar ákveðið er hvort kaupa á vélina eða ekki.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×