Fleiri fréttir

Tólf brennur í Reykjavík

Áramótabrennur í Reykjavík verða á 12 stöðum þessi áramót og eru flestar á sömu stöðum og verið hafa undanfarin ár. Þá verða sex brennur nágrannasveitarfélögunum. Breyting í ár er að forsvarsmenn Fylkisbrennunnar hafa fengið leyfi fyrir nýrri staðsetningu. Þá er ný brenna á Ártúnsholti.

Heimildamynd um kjarnakonur

Kjarnakonur heitir heimildamynd eftir Gísla Sigurgeirsson, sem sýnd verður í Sjónvarpinu næstkomandi mánudag. Í myndinni er fjallað um hvunndagshetjurnar, Kristínu Ólafsdóttur og Jóhönnu Þóri Jónsdóttur. Þær bjuggu lengst af einar í gömlu húsi í Fjörunni á Akureyri. Kristín er nú látin, en Jóhanna verður 106 ára í febrúar og er elsti norðlendingurinn og þriðji elsti íslendingurinn.

Húsfyllir í Háskólabíói og hálf þriðja milljón

Tæplega tvær komma fimm milljónir króna söfnuðust á tónleikum sem efnt var til í Háskólabíói í dag til styrktar SKB, Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Húsfyllir var á tónleikunum en allir listamenn gáfu vinnu sína nú sem fyrr.

Dýr áramót í Chicago

Vantar þig hugmynd að skemmtilegum áramótum? Lausnina gæti verið að finna á Peninsula-hótelinu í Chicago. Áramótapakkinn í ár er tvær nætur á svítunni með kampavíni og kavíar eins og þú getur í þig látið. Og þú mátt meira að segja taka handsaumaða baðsloppinn með þér heim þegar dvölinni lýkur.

Uppfærð útgáfa

Íslendingar fengu að sjá uppfærða útgáfu af kvikmyndinni A Little Trip to Heaven, þegar hún var frumsýnd hér á landi í gær. Baltasar Kormákur gerði endurbætur á myndinni eftir að hún hafði hlotið misjafnar viðtökur á erlendum kvikmyndahátíðum. Hin nýja útgáfa fékk góða dóma hjá íslenskum gagnrýnendum.

Birtist víða

Heilög María hefur enn einu sinni skotið upp kollinum í Bandaríkjunum, að þessu sinni á botninum á blómavasa.

Miðasala á Lisu Ekdahl hefst í dag

Miðasala á tónleika Lisu Ekdahl þann 24. mars hefst í dag kl. 10. Lisa Ekdahl er mörgum kunn á Íslandi enda kom hún hingað til lands og hélt tvenna tónleika fyrir troðfullu húsi í Austurbæ fyrir einu og hálfu ári síðan. Miðar á þá tónleika seldust upp á tveimur klukkutímum og er því ljóst að Lisa á marga aðdáendur á Íslandi.

Frænka bin Ladens vill í fyrirsætubransann

Ósama bin Laden er án efasti þekktasti einstaklingurinn í bin Laden fjölskyldunni. En það gæti breyst á næstunni. Bróðurdóttir Ósama, Wafah Dufour, vill nefnilega komast inn í fyrirsætubransann og sat því fyrir á myndum sem birtar eru í nýjasta tölublaði karlablaðsins GQ.

Túlkanir á Skugga-Sveini

Skugga-Sveinn hefur ekki sést í leikhúsunum um langt árabil. Kannski veitti sýning í Þjóðleikhúsinu 1984 honum rothögg. Samt telst hann vera langvinsælasta leikrit íslenskrar leiklistarsögu og nú er hann jólaleikrit útvarpsins...

Sigur Rós fær tvær platínuplötur og tvær gullplötur

Það er ekki á hverjum degi sem íslensk hljómsveit fær afhentar tvær platínuplötur og tvær gullplötur. Strákarnir í Sigur Rós munu þó upplifa þetta í Gallerí humar eða frægð í dag því klukkan fjögur fá þeir þessa verðlaunagripi afhenta fyrir þær fjórar stúdíóplötur sem þeir hafa gefið út til þessa.

Unni Birnu seinkar

Bein útsending frá heimkomu Unnar Birnu Vilhjálmsdóttur seinkar um klukkustund vegna seinkunar á flugi hennar til landsins. Útsendingin frá hátíðinni í Smáralind hefst því klukkan sex í kvöld, en ekki fimm eins og áður var auglýst.

Unnur Birna kemur heim í dag

Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, ungfrú heimur, kemur til landsins síðdegis. Þeir sem vilja berja hið fagra fljóð augum fá tækifæri til þess í Smáralind klukkan fimm þar sem fegurðardrottningunni verður fagnað. NFS verður með beina útsendingu frá hátíðinni.

Sýna lengur

Sýning þeirra Guðrúnar Hrannar Ragnarsdóttur, Kristins E. Hrafnssonar og Jóns Laxdal í Safni við Laugaveg 37 hefur verið framlengd til áramóta. Í Safni er samtímamyndlist til sýnis á þremur hæðum.

Höggva jólatréið sitt sjálfir

Með hverju árinu fjölgar þeim sem halda út í skóg fyrir jólin til að höggva sjálfir sitt jólatré. Á sunnudaginn næsta býður Skógræktin í Reykjavík fólki að koma og höggva sér jólatré gegn hæfilegu gjaldi.

Jenný Ósk vann hjarta Steingríms

Jenný Ósk Jensdóttir vann hjarta íslenska piparsveinsins, Steingríms Randvers Eyjólfssonar, á Skjá einum í kvöld. Jenný Ósk er 21 árs gamall Selfyssingur.

Þriggja ára í piparkökubakstri

Yfir 720 klukkustundir fóru í piparkökubakstur fyrir Piparkökuhúsaleik Kötlu í Kringlunni. Leikurinn er fastur liður í jólaundirbúningnum. Börnum sem taka þátt fjölgar. Yngsti keppandinn er aðeins 3 ára gamall.

Miðnætursýning á King Kong

Í kvöld verður miðnætursýning á King Kong mynd Peter Jackson en hennar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Jackson ætlaði að gera þessa fyrir níu árum en hætti við eftir að Hringadrottinssaga kom til skjalanna.

Útgáfutónleikar L'amour fou

Í tilefni af útgáfu geisladisksins "Íslensku lögin" heldur hljómsveitin L'amour fou tónleika í Þjóðleikhúskjallaranum næstkomandi fimmtudag, 15. desember kl. 21.

Laugardalshöll í jólabúningi Frostrósa

Laugardalshöllin skartaði sínu fegursta síðastliðið laugardagskvöld þegar síðustu Frostrósa tónleikarnir voru haldnir. Aðsóknin var gríðarleg og neyddust tónleikahaldarar til að bæta við aukatónleikum sem voru haldnir fyrr um daginn.

Einvígi í Nýlistasafninu

Jólasería Tilraunaeldhússins fer af stað í kvöld þegar Borko, ásamt hljómsveit, og Magnús Helgason stilla saman strengi sína klukkan átta í Nýlistasafninu. "Verkið hans Magnúsar heitir "Það er lifandi en getur dáið" og í kvöld verður einvígi á milli hans og Borko," segir Kristín Björk Kristjánsdóttir sem ásamt Jóhanni Jóhannssyni og Hilmari Jenssyni skipar Tilraunaeldhúsið.

Efni frá tuttugu löndum

Nýverið héldu kraftajötnar landsins upp á tuttugu ára afmæli aflrauna á Íslandi á Kaffi Reykjavík. Þar sýndi Hjalti Úrsus brot úr heimildarmynd sem hann er með í bígerð um ævi þekktasta aflraunamanns heims, Jóns Páls Sigmarssonar. Nýleg könnun, sem Gallup gerði fyrir Visa Europe og birtist í fjölmiðlum í gær, sýnir að Jón Páll á enn sinn fasta samastað í þjóðarsálinni því Íslendingar töldu hann vera þann íþróttamann sem væri í mestum metum.

Hjálpum þeim kemur í búðir í dag

Geislaplata með endurgerð af laginu „Hjálpum þeim" kemur í verslanir í dag. Söluverð plötunnar er einungis þúsund krónur og rennur andvirðið óskipt til Hjálparstarfs kirkjunnar vegna hamfaranna í Pakistan og hjálparstarfs annars staðar þar sem þörf er á.

Djúpt snortinn af framtakinu

Plata með nýju útgáfunni af laginu Hjálpum þeim kemur í verslanir í dag. Platan inniheldur, auk nýju útgáfunnar sem tekin var upp af Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni, ósungna karókí-útgáfu, sem og upprunalegu útgáfuna frá árinu 1985. Jónas Þórir Þórisson frá Hjálparstarfi kirkjunnar segist vera djúpt snortinn af framtaki tónlistarmannanna sem sungu lagið og allra hinna sem stóðu að verkefninu.

Beðinn um að syngja Bond-lag

Söngvarinn Robbie Williams hefur verið beðinn um að flytja titillag næstu James Bond-myndar. Tony Christie hefur þegar samið lagið og hann segir að rödd Robbie henti laginu fullkomlega.

Fara um Japan syngjandi

Íslenski söngflokkurinn Voices thules, sem sérhæfir sig í miðaldasöng, er á ferðalagi um Japan þessa dagana ásamt hópi hljóðfæraleikara og dansara. Þau eru samtals fimmtán talsins, nefna sig Borealis Ensemble og eru að kynna íslenska miðaldatónlist á tónleikaferðalagi um fimmtán borgir í Japan, sem hófst með tónleikum í Okayama í lok nóvember.

Missti gjörsamlega andlitið

"Ég gjörsamlega missti andlitið," segir Unnur Birna Vilhjálmsdóttir um sín fyrstu viðbrögð við sigrinum í fegurðarsamkeppninni Ungfrú heimur í Kína um helgina. Hún segist hafa verið mjög hissa á að komast í sex stúlkna úrslit og í raun hætt að hugsa um sigur í keppninni, þannig að þegar úrslitin urðu ljós hafi allt orðið þokukennt.

Titillinn vekur heimsathygli

Allir helstu norrænu fjölmiðlarnir og fleiri til fjalla um sigur Unnar Birnu Vilhjálmsdóttur í Miss World fegurðarsamkeppninni.

Bandaríkjamenn hankaðir á kompunum

"Það var verið að hanka Bandaríkjamenn á litlu kompunum þeirra. Það þarf að taka þá aðeins upp á eyrunum og finna leikstoðirnar þeirra," segir Bragi Skúlason "Baggalútur". "Það þarf að fara að finna grenin þar sem þeir fara með vondu kallana og kitla þá til sagna." Bragi segist sjá bjarta hlið á mögulegri notkun Bandaríkjamanna á Keflavíkurflugvelli til að millilenda með fangana.

Afdrep í jólaösinni

Í dag opnar Benedikt S. Lafleur listasetur fyrir almenning að Hólmaslóð 15 í Reykjavík. Benedikt, sem er bókaútgefandi, rithöfundur, myndlistarmaður og sjósundkappi með meiru, ætlar að bjóða þarna upp á afdrep fyrir unnendur jafnt myndlistar sem bókmennta auk þess sem þarna verður rými þar sem menn geta dregið sig í hlé til andlegrar íhugunar.

Snorri hættir opinberu brölti

Heimspekingarnir Jón Proppé og Valur Antonsson, sem báðir hafa látið sig myndlist mjög varða, ætla að gera úttekt á Snorra Ásmundssyni myndlistarmanni í Nýlistasafninu í dag, spjalla við hann og efna til umræðna með þátttöku áhorfenda um stöðu nýlista á Íslandi.

Systkini í jólaskapi á ferð um landið

Systkinin KK og Ellen eru á leiðinni í stutta tónleikaferð um landið í tilefni af útgáfu plötunnar Jólin eru að koma, sem er sú fyrsta sem þau gera saman. Þar er lögð áhersla á einfaldar kassagítar­útgáfur af vinsælum jólalögum.

18 lög á 15 tungumálum

Úr vísnabók heimsins er komin út á vegum Rauða kross Íslands. Á henni syngja íslensk börn af ýmsum uppruna barnalög, þjóðlög og vísur frá 18 löndum á 15 tungumálum. Löndin 18 eru Albanía, Mexíkó, Kína, Japan, Sambía, Palestína, Pakistan, Rúmenía, Taíland, Víetnam, Bandaríkin, Írland, Ástralía, Perú, Frakkland, Serbía, Danmörk og Ísland.

listalind.is

Listalind.is er ný vefsíða Dórótheu á Syðra-Felli þar sem finna má upplýsingar um íslenska handverksmenn sem vinna einstaka muni víðs vegar á landinu.

Íslensk fegurð

Unnur Birna er fjórða íslenska konan sem ber titilinn ungfrú heimur. Áður hafa Guðrún Bjarnadóttir, Hólmfríður Karlsdóttir og Linda Pétursdóttir skartað kórónunni eftirsóttu. Sautján ár eru síðan Linda hlaut titilinn ungfrú heimur.

Moss samdi við Virgin útgáfuna

Breska ofurfyrirsætan Kate Moss hefur gengið frá auglýsingasamningi við fyrirtækið Virgin, aðeins þremur mánuðum eftir að kókaínhneyksli gekk næstum að ferli hennar dauðum. Þó nokkur fyrirtæki riftu samningum sínum við fyrirsætuna eftir að ljósmyndir birtust af henni í dagblaði að sniffa kókaín.

Ísland hýsir evrópska jólatónleika

Í gærkvöldi voru stórtónleikar Frostrósa í Laugardalshöll. Ásóknin var það mikil að tónleikahaldarar neyddust til að bæta við aukatónleikum. Aðsóknin var ekkert síður minni á þá og eru þessir jólatónleikar því einhver mest sótti tónlistarviðburður Íslands.

Aukatónleikar Tinganellis á Nasa

Það þurftu margir frá að hverfa þegar ítalsk-íslenski söngfuglinn og áttfaldur Ítalíumeistari í kappróðri hélt útgáfutónleika sína í Salnum í nóvember, í tilefni sólóplötu sinnar Volo Libero.

Gjörbreyttur tónlistarstíll

Fyrsta plata hljómsveitarinnar Nilfisk, Don"t Run After Your Own Apples, er komin út. Platan er níu laga og hefur verið í bígerð síðustu tvö ár. Að sögn Víðis Björnssonar gítarleikara eru bæði glæný lög og tveggja ára gömul lög á plötunni. Upptökur fóru fram í vor og kláruðust í haust.

Síðdegisrokk

Hljómsveitirnar Jeff Who?, Jan Mayen og Brain Police munu troða upp í tvígang á Gauki á Stöng í kvöld. Fyrri tónleikarnir hefjast rétt eftir kl. 17 og þá verður ekkert aldurstakmark og aðgangseyrir verður 0 krónur.

Reggí og hiphop í Sjallanum

Hljómsveitirnar Forgotten Lores og Hjálmar halda tónleika í Sjallanum á Akureyri á Laugardaginn. "Við hitum upp fyrir Hjálmana en þetta er í annað skipti sem við höldum tónleika saman," segir Benedikt Freyr Jónsson, plötusnúður í Forgotten Lores.

Tekur neikvæða umfjöllun nærri sér

Victoria Beckham segist taka neikvæða fjölmiðlaumfjöllun afar nærri sér en fjölmiðlarnir hafa til dæmis gagnrýnt hana harðlega fyrir holdafar hennar.

Jólaóratórían flutt í heild ásamt nýfundnu aríunni

Jólaóratóría Bachs er sjaldnast flutt í heilu lagi, hvað þá með fullskipaðri barokkhljómsveit eins og gert verður í Hallgrímskirkju núna um helgina. Aukabónus á tónleikunum verður nýfundin aría eftir Bach sem hafði verið týnd í tæp 300 ár.

Sýna bak við bingó

"Við höfum verið þarna með vinnustofur síðan 2002 og höfum haldið sýningu árlega," segir Margrét M. Norðdahl, ein úr hópi ellefu myndlistar- og tónlistarmanna sem í kvöld opna sýningu í Skipholti 33b. "Á opnuninni verða góðar veitingar og jólastemning og svo spila hljómsveitir og tónlistarmenn," segir Margrét.

Sjá næstu 50 fréttir