Lífið

listalind.is

Hreindýrasalat. Salatsett með hreindýrshorni eftir Guðrúnu Steingríms í Eyjafirði. Guðrún var fyrst til að stíga inn í listalind Dórótheu.
Hreindýrasalat. Salatsett með hreindýrshorni eftir Guðrúnu Steingríms í Eyjafirði. Guðrún var fyrst til að stíga inn í listalind Dórótheu.

Listalind.is er ný vefsíða Dórótheu á Syðra-Felli þar sem finna má upplýsingar um íslenska handverksmenn sem vinna einstaka muni víðs vegar á landinu.

@Mynd -FoMed 6,5p CP:Rokkstjarnan Gítar í fullri stærð eftir handverksmanninn Jón Adolf, unninn úr linditré, hnotu, mahóní og tekki.

Íslenskt handverksfólk vinnur verk sín af miklum neista þótt aðferðirnar séu bæði flóknar og langvinnar. Sem dæmi þarf að sjóða öll horn og bein fjórum sinnum, en í sveitum er rafmagn dýrt og ljóst að handverksmenn hafa aldrei nema upp í brotabrot af kostnaði vinnu sinnar, en einkennandi er hógværð í verðlagningu og markaðssetningu.

Með listalindinni vill Dóróthea vekja almenning og fyrirtæki til umhugsunar um fegurð og fjölbreytni íslensks handverks og opna að því gáttina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.