Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Neill fer til West Ham Breska sjónvarpið greindi frá því í dag að ástralski landsliðsmaðurinn Lucas Neill hefði ákveðið að ganga í raðir West Ham frá Blackburn, en þar hafi honum verið boðinn allt að helmingi hærri samningur en hjá Liverpool. 20.1.2007 21:30
Young samþykkir að fara til Aston Villa Martin O´Neill, stjóri Aston Villa, segir að framherjinn ungi Ashley Young hjá Watford hafi gert munnlegt samkomulag við sig um að ganga í raðir Villa. Hinn 21 árs gamli framherji hafði áður neitað að ganga í raðir West Ham eftir að liðið gerði kauptilboð í hann. Fréttir herma að Villa muni kaupa leikmanninn á um 8 milljónir punda. 20.1.2007 20:30
Middlesbrough burstaði Bolton Sjö af átta leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er nú lokið. Middlesbrough stal senunni nú síðdegis með því að vinna 5-1 stórsigur á Bolton á heimavelli sínum. West Ham náði aðeins að hanga á 2-2 jafntefli gegn Newcastle eftir að hafa náð 2-0 forystu, en Reading lagði Sheffield United 3-1. Heiðar Helguson var rekinn af velli í liði Fulham þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Tottenham. 20.1.2007 16:59
Liðið skortir sjálfstraust Jose Mourinho viðurkenndi að sína menn hefði einfaldlega skort sjálfstraust í dag þegar Chelsea tapaði 2-0 fyrir Liverpool. Rafa Benitez var að vonum ánægður með sína menn þegar hann landaði sigri í 100. deildarleik sínum með þá rauðu. 20.1.2007 15:58
Middlesbrough að bursta Bolton Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum sex sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knatttspyrnu. Middlesbrough hefur 4-1 forskot gegn Bolton á heimavelli sínum og Íslendingalið West Ham hefur yfir 2-1 á St. James Park. Þá hefur Reading yfir 1-0 gegn Sheffield United, en mörkin má sjá á Boltavaktinni hér á Vísi. 20.1.2007 15:53
Liverpool lagði Chelsea Liverpool vann í dag mikilvægan 2-0 sigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni með mörkum frá Dirk Kuyt og Jermaine Pennant í upphafi leiks. Liverpool styrkti stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum og hefur liðið nú hlotið 46 stig, fimm stigum minna en Chelsea sem er í öðru sæti. Þetta var 100. deildarleikur liðsins undir stjórn Rafa Benitez knattspyrnustjóra. 20.1.2007 14:34
Liverpool 2-0 yfir í hálfleik Liverpool hefur yfir 2-0 gegn Chelsea þegar flautað hefur verið til hálfleiks í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Hollendingurinn Dirk Kuyt kom heimamönnum yfir eftir 4 mínútur og Jermaine Pennant bætti við öðru marki á 19. mínútu. Petr Cech er kominn í markið hjá Chelsea á ný eftir langa fjarveru vegna meiðsla. 20.1.2007 13:43
Við erum úr leik ef við töpum Arsene Wenger viðurkennir að lið hans sé úr leik í baráttunni um enska meistaratitilinn ef það tapar fyrir Manchester United á heimavelli á sunnudag. Arsenal er þegar 15 stigum á eftir United, en Wenger segir það ekki þýða að hans menn geti ekki unnið sigur á toppliðinu. 19.1.2007 22:00
Milan Baros til Lyon? Tékkneski framherjinn Milan Baros hjá Aston Villa gengur í raðir Lyon í Frakklandi í næstu viku ef marka má fréttir frá Frakklandi nú undir kvöldið. Baros er sagður hafa hringt í Gerard Houllier persónulega til að biðja hann afsökunar á að hafa neitað að ganga í raðir liðsins fyrir einu og hálfu ári. 19.1.2007 21:00
Johnson nappaður við að stela klósettsetu Enski landsliðsmaðurinn Glen Johnson hjá Chelsea, sem leikur nú sem lánsmaður hjá Portsmouth, var á miðvikudaginn handtekinn ásamt félaga sínum eftir að hann reyndi að stela klósettsetu og pípulagnaefni í verslun á Dartford á Englandi. 19.1.2007 12:49
Lua Lua handtekinn Framherjinn Lomana Lua Lua hjá Portsmouth var handtekinn í nótt og er grunaður um líkamsárás. Lua Lua hefur verið meiddur í sex vikur og spilar ekki um helgina, en þetta er í annað sinn á þremur mánuðum sem lögregla þarf að hafa afskipti af Kongómanninum vegna óláta hans. Málið er enn í rannsókn. 19.1.2007 12:45
Klesstum á múrvegg Sir Alex Ferguson segir að Manchester United hafi klesst á múrvegg í janúarglugganum og segir það staðfesta það sem hann hafi alltaf sagt - það sé mjög erfitt að finna góða leikmenn á þessum árstíma. 19.1.2007 12:36
Bayern neitar tilboði United í Hargreaves Þýska dagblaðið Bild greinir frá því í dag að Bayern Munchen hafi neitað kauptilboði Manchester United í enska landsliðsmanninn Owen Hargreaves upp á 30 milljónir evra. Hargreaves er nú við það að snúa aftur úr meiðslum, en forráðamenn Bayern standa fast á því að selja hann ekki fyrr en í fyrsta lagi í sumar. 19.1.2007 10:41
Young í viðræðum við Aston Villa Enska úrvalsdeildarfélagið Watford hefur gefið Aston Villa leyfi til að ræða við framherjann unga Ashley Young eftir að hafa samþykkt kauptilboð í hann í morgun. Talið er að tilboðið sé upp á um 8 milljónir punda, en Young hafði áður neitað að ganga í raðir West Ham eftir að Watford samþykkti 9,65 milljón punda tilboð í hann. 19.1.2007 10:24
Shevchenko hættur að ræða við fjölmiðla Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko gaf það út á heimasíðu sinni í kvöld að hann ætlaði framvegis að sniðganga alla fréttamenn á Englandi í kjölfar þess að bresku blöðin hafi birt eftir hann fjölda tilvitnana sem væru úr lausu lofti gripnar. 18.1.2007 21:46
Öskubuskuævintýrið Paul Scholes Breska dagblaðið The Sun birti í dag áhugaverða grein um það hvernig lítil tilviljun kann að hafa ráðið miklu um það að miðjumaðurinn Paul Scholes hjá Manchester United varð sú stórstjarna sem hann er í dag. 18.1.2007 20:34
Ég er sáttur hjá Chelsea Jose Mourinho segist vera ánægður með lífið hjá Chelsea og vill klára samning sinn við félagið sem gildir til ársins 2010. Mikið hefur verið rætt um að Mourinho sé að hætta hjá Chelsea í sumar, en Portúgalinn litríki segist vera búinn að koma sér fyrir í London og hefur engan hug á að yfirgefa félagið. 18.1.2007 20:30
Portsmouth kaupir Lauren Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth gekk í dag frá kaupum á varnarmanninum Lauren frá Arsenal og er hann samningsbundinn Portsmouth til ársins 2009. Lauren, sem er nýorðinn þrítugur, hefur verið í herbúðum Arsenal í rúmlega sex ár og gengur nú til liðs við fyrrum félaga sinn í vörn Arsenal - Sol Campbell. 18.1.2007 19:30
Fastasta skot allra tíma? Stuðningsmenn Newcastle eru enn að tala um þrumufleyg framherjans magnaða Obafemi Martins í sigurleik liðsins gegn Tottenham um síðustu helgi. Samkvæmt grein í breska blaðinu Telegraph, er þetta fastasta skot sem mælst hefur í ensku knattspyrnunni frá upphafi. 18.1.2007 18:36
Engin örvænting í herbúðum Chelsea Peter Kenyon, stjórnarformaður enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea, segir að allt sé í fínasta lagi í herbúðum félagsins og að Jose Mourinho muni gegna starfi knattspyrnustjóra út samningstímann. Þetta sagði Kenyon í drottningarviðtali við Sky-sjónvarpsstöðina í dag, eins og til að slá á þrálátan orðróm um ólgu í herbúðum félagsins. 18.1.2007 16:29
Thatcher skammast sín fyrir árásina Fanturinn Ben Thatcher sem nú leikur með Charlton, segist enn skammast sín fyrir líkamsárás sína á Pedro Mendes hjá Portsmouth í ágúst síðastliðnum. Thatcher var þá leikmaður Manchester City, en er nú í bullandi fallbaráttu með Charlton. 18.1.2007 15:25
Birmingham neitaði West Ham Birmingham neitaði í dag 4 milljóna kauptilboði West Ham í miðvörðinn Matthew Upson, en hann hefur verið eftirsóttur af úrvalsdeildarliðum í vetur. Upson er 27 ára gamall og var frábær í stórsigri Birmingham á Newcastle í gærkvöld. 18.1.2007 13:29
Heinze vill ekki fara frá United Argentínumaðurinn Gabriel Heinze hefur neitað orðrómi sem verið hefur á kreiki um að hann sé að fara frá Manchester United og segist ánægður í herbúðum liðsins þó hann hafi fengið mun minna að spila í ár en áður. "Ég veit að AC Milan hefur sýnt mér áhuga, en ég er ánægður hjá United og vil ekki fara neitt annað," sagði Heinze. 18.1.2007 13:25
Benitez að missa áhugann á Neill Breska blaðið Daily Mirror heldur því fram í dag að Rafa Benitez, stjóri Liverpool, sé að gefast upp á því að reyna að fá til sín varnarmanninn Lucas Neill hjá Blackburn. Sagan segir að Neill hafi meiri áhuga á að ganga í raðir West Ham þar sem honum hafi verið boðinn betri samningur, en óvíst er að hann fari þangað eftir að félagið keypti Calum Davenport frá Tottenham í dag. 18.1.2007 12:43
Rossi lánaður til Parma Framherjinn ungi Giuseppe Rossi hjá Manchester United hefur verið lánaður til síns gamla félags Parma á Ítalíu til loka keppnistímabilsins. Rossi hefur verið í láni hjá Newcastle síðan í sumar, en fékk þar aðeins þrisvar að leika í byrjunarliði þrátt fyrir meiðsli lykilmanna þar á bæ. Rossi er aðeins 19 ára gamall. 18.1.2007 12:39
Enska úrvalsdeildin hagnast Sigurvegararnir í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili eiga von á góðum bónusum eftir að tilkynnt var að deildin hefði náð erlendum sjónvarpssamningum fyrir 625 milljónir punda. Þetta þýðir að liðið sem hirðir efsta sætið á næsta ári mun fá aukalega um 50 milljónir punda í vasann. Samningurinn gildir út árið 2010. 18.1.2007 12:35
Wolves hafnar tilboði Souness og félaga Forráðamenn enska 1. deildarliðsins Wolves hafa hafnað yfirtökutilboði frá hópi fjárfesta undir forystu fyrrum knattspyrnustjórans Graeme Souness. Tilboð hópsins var að sögn talsmanna Wolves of lágt og því verður áfram leitað eftir kaupendum. 18.1.2007 12:33
Ben Haim fer ekki til Chelsea Chelsea hefur gefið út yfirlýsingu þar sem fram kemur að félagið muni ekki reyna frekar að fá til sín varnarmanninn Tal Ben Haim frá Bolton, en viðræður milli félaganna um kaupverðið sigldu í strand. Haim verður samningslaus í sumar. 18.1.2007 12:29
Calum Davenport til West Ham Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham festi í dag kaup á miðverðinum Calum Davenport frá grönnum sínum í Tottenham fyrir óuppgefna upphæð. Davenport gekk í raðir Tottenham frá Coventry árið 2004 en þessi 24 ára gamli leikmaður hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Tottenham. Hann hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við West Ham. 18.1.2007 12:26
Birmingham burstaði Newcastle Þrír leikir fóru fram í enska bikarnum í kvöld, en hér var um að ræða aukaleiki um sæti í fjórðu umferð keppninar. Ekkert vantaði upp á dramatíkina frekar en venjulega í elstu bikarkeppni í heimi. 17.1.2007 22:17
Newcastle - Birmingham í beinni á Sýn Þrír leikir eru á dagskrá í enska bikarnum í kvöld en hér er um að ræða aukaleiki um sæti í fjórðu umferð keppninnar. Leikur Newcastle og Birmingham verður sýndur á Sýn klukkan 19:50 en auk þess tekur Fulham á móti Leicester og Tottenham mætir Cardiff. Leikur Valencia og Getafe í spænska bikarnum er svo í beinni á Sýna Extra klukkan 19:55. 17.1.2007 19:01
Mourinho hefur komið illa fram við Shevchenko Oleg Blokhin, landsliðsþjálfari Úkraínu, hefur ráðist harkalega að Jose Mourinho hjá Chelsea fyrir meðferð hans á framherjanum Andriy Shevchenko. 17.1.2007 16:45
Heinze orðaður við Tottenham Argentínski landsliðsmaðurinn Gabriel Heinze hjá Manchester United hefur nú verið sterklega orðaður við Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, en talið er að United sé tilbúið að selja hann fyrir um 5 milljónir punda ef félagið nær að krækja í ungstirnið Gareth Bale frá Southampton. Heinze hefur ekki náð sér á strik síðan hann kom úr erfiðum hnémeiðslum og hefur misst sæti sitt í hendur Patrice Evra. 17.1.2007 16:29
Allardyce ósáttur að missa af Dunn Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, er afar óhress með ákvörðun varnarmannsins David Dunn að ganga í raðir Blackburn á elleftu stundu eftir að hann hafði gengist undir læknisskoðun og var við það að fara til Bolton. 17.1.2007 16:24
Fangzhuo framlengir við United Kínverski framherjinn Dong Fangzhuo hefur skrifað undir nýjan samning við enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United og er því samningsbundinn til ársins 2010. Fangzhuo er 21 árs gamall og hefur verið í láni hjá belgíska liðinu Anderlecht síðan hann gekk í raðir United árið 2004. Hann er nýkominn með atvinnuleyfi á Englandi. 17.1.2007 16:09
Ancelotti ekki á leið til Chelsea Forráðamenn AC Milan hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að þjálfari liðsins Carlo Ancelotti sé hvergi á förum í ljósi frétta á Englandi sem hermdu að Ancelotti yrði eftirmaður Jose Mourinho hjá Chelsea. Fréttir á borð við þessa eru farnar að skjóta upp kollinum eftir að fréttist að Mourinho væri hugsanlega á förum frá Chelsea. 17.1.2007 13:35
Spiluðum Rocky-lögin fyrir og eftir leik Áhorfendur og leikmenn Everton og Reading fengu óvænta heimsókn um liðna helgi er bandaríski stórleikarinn Sylvester Stallone var meðal áhorfenda. Fyrir leikinn gekk hann út á miðjan völlinn með Everton-trefil á lofti og fékk gríðarlega góðar viðtökur frá stuðningsmönnum liðsins. 17.1.2007 07:00
Vildi ekki fara til West Ham Ekki eru allir tilbúnir að ganga til liðs við Eggert Magnússon og félaga hjá West Ham. Ashley Young, framherji enska liðsins Watford, neitaði að fara til West Ham eftir að Eggert Magnússon var búinn að ná samkomulagi við Watford um að kaupa þennan 21 árs strák fyrir 9,65 milljónir enskra punda eða 1,3 milljarða íslenskra króna. 17.1.2007 06:00
City í fjórðu umferð Manchester City tryggði sér í kvöld sæti í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar með 2-1 sigri á Sheffield Wednesday í aukaleik liðanna í þriðju umferð. Darius Vassell skoraði sigurmark City sem þurfti að hafa mikið fyrir sigri sínum. Middlesbrough þurfti einnig að hafa mikið fyrir hlutunum þegar liðið tók á móti Hull City. 16.1.2007 21:48
Solano útilokar ekki að spila í Bandaríkjunum Miðjumaðurinn skemmtilegi Nolberto Solano hjá Newcastle gagnrýndi harðlega ákvörðun David Beckham að fara til Bandaríkjanna frá Real Madrid, en segist sjálfur vel geta hugsað sér að spila í Ameríku þegar hann hættir í ensku úrvalsdeildinni. 16.1.2007 17:45
Man City - Sheffield Wednesday í beinni í kvöld Leikur Manchester City og Sheffield Wednesday í þriðju umferð enska bikarsins verður sýndur beint á Sýn í kvöld og hefst útsending 19:50. Liðin gerðu jafntefli í fyrri leik sínum og mætir sigurvegari kvöldsins liði Southampton á heimavelli í fjórðu umferðinni. Leikur Barcleona og Alaves í spænska bikarnum verður í beinni á Sýn Extra klukkan 19:55 en þar verður Eiður Smári Guðjohnsen hvíldur að þessu sinni. 16.1.2007 17:09
Luque fer ekki til PSV Glenn Roeder, stjóri Newcastle, hefur skorað á Spánverjann Albert Luque að einbeita sér að því að vinna sér sæti í enska liðinu, því ekkert verði af för hans til PSV Eindhoven í Hollandi eins og til stóð. 16.1.2007 16:15
Harðar deilur milli Arsenal og Tottenham Nú er útlit fyrir að enska knattspyrnusambandið þurfi að skerast í hatramma deilu grannliðanna Arsenal og Tottenham í tengslum við miðasölu á undanúrslitaviðureignir liðanna í enska deldarbikarnum. 16.1.2007 15:05
Boro ætlar ekki að semja við Viduka í janúar Forráðamenn Middlesbrough hafa tekið það skýrt fram að félagið muni ekki endurnýja samning sinn við framherjann Mark Viduka fyrr en eftir að janúarglugganum lokar, því samningur hans rennur ekki út fyrr en í sumar. 16.1.2007 14:14
Rommendahl vill fara aftur heim Danski landsliðsmaðurinn Dennis Rommendahl hjá Charlton virðist vera orðinn þreyttur á botnbaráttunni, því hann hefur kallað á FC Kaupmannahöfn í heimalandi sínu og skorar á menn þar á bæ að gera tilboð í sig. 16.1.2007 13:58