Fleiri fréttir

Markalalaust í hálfleik hjá Val og FH

Ekkert mark hefur verið skorað í leik Vals og FH í 8-liða úrslitum VISA-bikarsins, en flautað hefur verið til leikhlés á Laugardalsvellinum. Þetta er síðasti leikur 8-liða úrslitanna en Fjölnir, Fylkir og Breiðablik hafa þegar tryggt sér þáttökurétt í undanúrslitum keppnarinnar.

Fjölnir sigraði Hauka í fjörugum leik

Fjölnir sigraði Hauka með fjórum mörkum gegn þremur í 8-liða úrslitum VISA-bikarsins í bráðskemmtilegum leik. Haukar leiddu í hálfleik 0-1. Fjölnismenn skoruðu svo þrjú mörk á fyrstu 19 mínútum seinni hálfleiks og komust í 3-1. Haukar minnkuðu muninn í 3-2 áður en Fjölnismenn bættu við sínu fjórða marki. Haukar skoruðu svo sitt þriðja mark fimm mínútum fyrir leikslok.

Fjölnismenn komnir yfir gegn Haukum

Staðan í leik Fjölnismanna og Hauka í 8-liða úrslitum VISA-bikarsins er 2-1 fyrir Fjölni. Haukar voru 1-0 yfir í hálfleik eftir að Ásgeir Ingólfsson skoraði á 28. mínútu eftir gott spil. Gunnar Már Guðmundsson jafnaði leikinn á 52. mínútu með skalla eftir hornspyrnu og var svo aftur á ferðinni á 60. mínútu þegar hann fylgdi vel á eftir skoti Fjölnismanna sem hafnaði í stöng.

Gunnar Már jafnar fyrir Fjölni

Gunnar Már Guðmundsson er búinn að jafna fyrir Fjölni gegn Haukum og staðan því 1-1. Gunnar Már skoraði markið á 52. mínútu með skalla eftir hornspyrnu. Staðan var 1-0 í hálfleik eftir að Ásgeir Ingólfsson hafði komið Haukum yfir með marki á 28. mínútu eftir gott spil.

Gummi Ben: Þetta verður bara stál í stál

Valur tekur á móti FH í 8-liða úrslitum bikarkeppnarinnar í kvöld. Liðin hafa mæst einu sinni í deildinni á þessu tímabili og sigruðu Valsmenn 4-1 á heimavelli. Þetta er stærsti leikur 8-liða úrslitanna, en Valur er í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir FH sem situr á toppnum. Guðmundur Benediktsson leikmaður Vals sagði í samtali við Vísi.is að hann búist við jöfnum leik.

Kristján Ómar: Höfum ekki tapað á Fjölnisvelli á þessari öld

Haukar heimsækja Fjölni í kvöld í átta liða úrslitum bikarkeppnarinnar á Fjölnisvelli. Kristján Ómar Björnsson, miðjumaður Hauka segir í samtali við Vísi.is að Haukar hafi ekki tapað á Fjölnisvelli á þesari öld og stefnan sé að halda þeirri hefð.

Halldór skaut Fylki áfram

Halldór Hilmisson var hetja Fylkismanna þegar þeir báru sigurorð af ÍA, 3-1, í framlengdum leik á Fylkisvelli í átta liða úrslitum VISA-bikars karla í fótbolta. Staðan var jöfn, 1-1, eftir venjulegan leiktíma en Halldór skoraði bæði mörk Fylkis í framlengingunni, fyrst á 99. mínútu og gulltryggði síðan sigurinn á 116. mínútu. Sigur Fylkismanna markar ákveðin tímamót því fyrir leikinn var Guðjón Þórðarson, þjálfari Skagamanna, ósigraður í 20 bikarleikjum í röð.

Framlengt hjá Fylki og ÍA

Framlengja þarf leik Fylkis og ÍA á Fylkisvellinum í VISA-bikar karla í fótbolta en staðan eftir venjulegan leiktíma var jöfn, 1-1. Fylkismenn komust yfir á 4. mínútu með sjálfsmarki Skagamannsins Guðjóns Heiðars Sveinssonar en Björn Bergmann Sigurðsson jafnaði metin fyrir ÍA á 41. mínútu.

Blikar í undanúrslit

Breiðablik er komið í undanúrslit VISA-bikars karla í fótbolta eftir öruggan sigur á Keflavík, 3-1, á Kópavogsvelli. Staðan var markalaus í hálfleik en Blikar voru miklu sterkari í síðari hálfleik. Árni Kristinn Gunnarsson kom Blikum yfir á 62. mínútu, Prince Rajcomar bætti öðru marki við á 74. mínútu og Keflvíkingurinn Baldur Sigurðsson varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 80. mínútu. Pétur Heiðar Kristjánsson skoraði eina mark Keflavíkinga á 85. mínútu.

Fjórir leikir í fyrstu deild karla í kvöld

Fjórir leikir fara fram í 15 umferð 1. deildar karla í kvöld. Þróttur R. fer norður og mætir KA, Fjölnir heimsækir Leiknir, Stjarnan tekur á móti ÍBV og Víkingur Ó. tekur á móti Grindavík. Leikirnir hefjast allir klukkan 19:00.

Landsbankadeild kvenna: KR sigraði Fjölni

Einn leikur fór fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld. KR sigraði Fjölni á útivelli með fjórum mörkum gegn tveimur. Þar með helst áfram mikil spenna á toppi deildarinnar þar sem Valur og KR eru að stinga af, bæði lið með 28 stig eftir 10 leiki. Valsstúlkur eru þó með betri markatölu. Fjölnir er í sjötta sæti með 11 stig eftir níu leiki.

Skagamenn, Fylkir og Blikar sigruðu sína leiki

Þrír leikir fóru fram í Landsbankadeild karla í kvöld. Skagamenn unnu baráttusigur á Laugardalsvellinum gegn Fram með fjórum mörkum gegn tveim, eftir að hafa lent 2-0 undir. Fylkismenn sigruðu Víking 1-0 í Árbænum og Blikar sigruðu 3-0 í Keflavík.

Helgi framlengir við Val

Helgi Sigurðsson skrifaði í dag undir nýjan samning við Val og gildir sá samningur til 2010. Helgi gekk til liðs við Hlíðarendapilta fyrir þetta tímabil og hefur gengið vel í sumar, en hann er markahæsti leikmaður deildarinnar að svo stöddu. Helgi verður 35 ára þegar samningurinn rennur út.

Undir smásjá Viking í Noregi

Norska liðið Viking í Stavangri hefur vakandi auga á Sverri Garðarssyni, leikmanni FH. Egil Østenstad, yfirmaður knattspyrnumála, vildi sem minnst segja um málið við norska fjölmiðla í gær. „Ég veit hver hann er en það er ekki þar með sagt að við höfum áhuga á honum,“ sagði Østenstad.

Markalausir í 341 mínútu

Víkingar vonast til þess að finna loksins leið framhjá Fylkisvörninni í leik liðanna í 12. umferð Landsbankadeildar karla í kvöld. Víkingar hafa leikið þrjá deildarleiki í röð og samtals í 341 mínútu án þess að ná að skora hjá Árbæingum.

Þægilegir heimasigrar

Breiðablik og Keflavík unnu heimasigra í Landsbankadeild kvenna í gærkvöldi. Blikastúlkur sendu leikmenn Þórs/KA stigalausa heim norður á Akureyri eftir 2-0 sigur. Greta Mjöll Samúelsdóttir og Laufey Björnsdóttir skoruðu fyrir Blika.

Höfuðkúpubrotnaði í Danmörku

Varnarmaðurinn Hallgrímur Jónasson í Keflavík verður ekki með sínum mönnum í kvöld er liðið tekur á móti Breiðabliki í Landsbankadeild karla. Hann höfuðkúpubrotnaði á tveimur stöðum í Evrópuleiknum gegn Midtjylland ytra í síðustu viku. Læknar segja að hann verði frá í um fjórar vikur en hann vonast til að komast fyrr af stað.

Skelfilegt gengi suður með sjó

Blikar sækja í kvöld Keflvíkinga heim í 12. umferð Landsbankadeildar karla en þeir hafa ekki sótt þrjú stig suður með sjó síðan 15. júní 1983 eða í rúmlega 24 ár.

Tryggvi orðinn markahæstur

Fótbolti Tryggvi Guðmundsson varð í gær markahæsti leikmaður íslensks liðs í Evrópukeppnum frá upphafi. Markið sem Tryggvi skoraði í gær var hans sjötta í Evrópukeppni en fyrir leikinn höfðu hann og fjórir aðrir skorað fimm mörk í Evrópu.

Eins og þrír erfiðir landsleikir

Í dag klukkan 13 mæta Íslandsmeistarar Vals finnska liðinu FC Honka Espoo í fyrstu umferð Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu. Riðill Vals verður leikinn í Færeyjum og klárast á þriðjudaginn kemur.

Útlitið dökkt í Vesturbænum

Valur vann í gær þrjú dýrmæt stig á KR-vellinum og hélt þar með pressu á FH á toppi Landsbankadeildarinnar. KR situr enn á botni deildarinnar og virðast þjálfaraskiptin lítinn árangur hafa borið.

Í heildina erum við með jafn gott lið

Evrópuævintýri Íslands­meistara FH er lokið í ár eftir 4-2 tap samanlagt gegn hvítrússneska liðinu BATE. Síðari leiknum í gær lyktaði með 1-1 jafntefli þar sem Tryggvi Guðmundsson kom FH yfir úr víti í fyrri hálfleik sem hann fékk sjálfur, en BATE jafnaði metin á lokamínútunni þegar FH freistaði þess að sækja annað mark.

FH dottið úr undankeppni Meistaradeildar Evrópu

FH féll í dag úr leik í undankeppni Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa gert 1-1 jafntefli FC Bate í Hvíta-Rússlandi í dag. FH-ingar töpuðu fyrri leiknum í Kaplakrika 3-1 og samanleg staða því 4-2 fyrir FC Bate. Tryggvi Guðmundsson skoraði mark FH úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik en Platonov jafnaði fyrir heimamenn undir lok leiksins. Auðun Helgason fékk rautt spjald í fyrri hálfleik.

Gunnlaugur: Eyðileggjum titilvonir Valsmanna í kvöld

Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði KR, segir í samtali við Vísi að gott andrúmsloft sé í herbúðum liðsins fyrir komandi átök í fallbaráttu Landsbankadeildarinnar. KR-ingar mæta Valsmönnum á heimavelli í kvöld og greinilegt að leikurinn er mjög mikilvægur fyrir bæði lið þar sem Valsmenn eru í harðri toppbaráttu í deildinni, en KR situr á botni deildarinnar.

Pesic hættur hjá Fram

Stjórn Fram og Igor Pesic hafa komist að þeirri niðurstöðu að rifta samningi leikmannsins. Pesic hefur því lokið leik með Fram en hann kom til liðsins frá ÍA fyrir þetta leiktímabil. Hann lék níu leiki fyrir Fram í sumar og klúðraði meðal annars tveimur vítaspyrnum. Fram er í næstneðsta sæti Landsbankadeildarinnar með átta stig eftir 11 leiki. Félagið hefur fengið til sín tvo útlendinga á síðustu dögum, Nígeríumann og Dana.

Vissi ekki að hann hefði skorað

Paulo José de Oliveiera, brasilíski framherjinn hjá Häcken sem skoraði sigurmarkið gegn KR í Evrópuleiknum á fimmtudaginn, missti meðvitund í rúma mínútu þegar hann lenti í samstuði við markvörð KR. Hann var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús.

Verð að fara að skora fyrir Breiðablik

Fanndís Friðriksdóttir 17 ára stelpa úr Breiðabliki varð markahæsti leikmaður Evrópumóts 19 ára landsliða kvenna sem fram fór hér á landi og lauk með sigri Þjóðverja um síðustu helgi. Fanndís skoraði jafnmörg mörk og þær Mary-Laure Delie hjá Frakklandi og Ellen White hjá Englandi en lék færri leiki en þær báðar.

KR úr leik eftir tap á heimavelli

KR tapaði í kvöld fyrir sænska liðinu Häcken í Frostaskjóli. Leikurinn fór 1-0 fyrir gestina og þar með er KR úr leik í Evrópukeppni félagsliða þar sem fyrri leikurinn fór 1-1 í Svíþjóð. KR-ingar spiluð góðan bolta en voru óheppnir að fá á sig mark þegar aðeins 7 mínútur voru til leiksloka. KR hefði nægt markalaust jafntefli til að komast áfram. Þetta var fyrsti leikur Loga Ólafssonar sem þjálfari KR.

Keflavík tapaði í Danmörku og er fallið úr leik

Keflavík tapaði fyrir FC Midtjylland í dag 2-1 í seinni leik liðanna í undankeppni Evrópukeppni félagsliða. Keflavík vann fyrri leikinn á heimavelli 3-2 og staðan því samanlagt 4-4 eftir leikina tvo. Keflavík er þar með dottið úr leik því að FC Midtjylland skoraði fleiri mörk á útivelli.

Evrópumótið í mýrarknattspyrnu haldið um helgina

Evrópumótið í mýrarknattspyrnu verður haldið um helgina á Ísafirði. Þetta er í fjórða sinn sem að mótið verður haldið og verður umgjörðin flottari en nokkru sinni fyrr. Leikið verður á í það minnsta fjórum knattspyrnuvöllum og hafa á þriðja hundrað manns skráð sig.

Keflvíkingar leika í dag síðari leik sinn gegn danska liðinu Midtjylland

Keflvíkingar leika í dag síðari leik sinn gegn danska liðinu Midtjylland. Búist er við 10 þúsund áhorfendum á leikinn sem fram fer í Danmörku. Keflvíkingar unnu fyrri leik liðanna sem fram fór fyrir hálfum mánuði í Keflavík. Danirnir náðu þá tveggja marka forystu en Keflvíkingar skoruðu þrjú mörk og unnu mikilvægan 3-2 sigur.

KR mætir Häcken í kvöld

KR-ingar taka á móti sænska liðinu Häcken í kvöld en þetta er síðari leikur liðanna í fyrstu umferð Evrópukeppninnar. Liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri viðureign liðanna í Gautaborg fyrir hálfum mánuði. Svíarnir komust í 1-0 eftir 10 mínútna leik, en Guðmundur Pétursson jafnaði metin fyrir KR á 68. mínútu og ættu KR -ingar því að teljast í ágætis málum fyrir leikinn í dag.

FH-ingar lágu í Kaplakrikanum

FH-ingar töpuðu í kvöld fyrir Bate frá Hvíta-Rússlandi í fyrri leik liðanna í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu, 1-3. FH-ingar komust yfir á 3. mínútu með marki frá Matthíasi Vilhjálmssyni en Hvít-Rússarnir náðu að jafna á 31. mínútu. Staðan var 1-1 í hálfleik, en leikmenn Bate náðu að setja tvö mörk í seinni hálfleik.

KR sigraði Breiðablik.

KR sigraði Breiðablik í kvöld í 9. umferð Landsbankadeildar kvenna með sex mörkum gegn tveimur. KR-ingar leiddu 2-0 í hálfleik. Með sigrinum er KR komið við hlið Vals á toppnum með 25 stig en Valur er með betri markatölu. Breiðablik er í 3. sæti með 13 stig.

1-1 í Kaplakrika

Flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign FH og Bate í fyrri leik liðanna í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu. Staðan er 1-1, en FH-ingar komust yfir á 3. mínútu þegar Matthías Vilhjálmsson skoraði eftir góða sókn. Eftir markið náðu leikmenn Bate taki á leiknum og voru mun meira með boltann. Á 31. mínútu jöfnuðu þeir leikinn með góðu marki en Daði Lárusson var nálægt því að verja.

FH mætir Bate í Kaplakrika í kvöld

Íslandsmeistarar FH leika fyrri leik sinn í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. FH-ingar mæta Bate Borisov frá Hvíta-Rússlandi og hefst leikurinn kl. 19:00 á Kaplakrikavelli.

Casper gerir samning við Breiðablik út 2008

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur framlengt samning við markvörðinn Casper Jacobsen sem verið hefur hjá félaginu frá því í byrjun júní þar sem Hjörvar Hafliðason þurfti að gangast undir aðgerð vegna meiðsla. Samningurinn gildir út keppnistímabilið 2008.

Einn leikur í Landsbankadeild kvenna í kvöld

Einn leikur verður leikinn í 9. umferð Landsbankadeildar kvenna í kvöld. Breiðablik heimsækir KR í vesturbæinn og hefst leikurinn klukkan 17:30. KR er í öðru sæti deildarinnar og Breiðablik í því þriðja en talsverður munur er á liðunum í stigafjölda. Leikurinn er mjög þýðingamikill fyrir KR því að með sigri komast þær við hlið Vals á toppi deildarinnar.

Sjá næstu 50 fréttir