
Fleiri fréttir

Gladbach áfram með tak á Þýskalandsmeisturum Bayern
Borussia Mönchengladbach vann 3-2 sigur á Þýskalandsmeisturum Bayern München í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Bæjurum hefur ekki tekist að sigra Gladbach í síðustu fimm leikjum í deild eða bikar.

Sigurður Bjartur sá um HK í Vesturbænum
KR tók á móti HK í Lengjubikar karla í knattspyrnu í Vesturbænum í dag. Fór það svo að heimamenn unnu öruggan 6-1 sigur á gestunum sem eru nýliðar í Bestu deild karla á komandi tímabili.

Valsmenn með fullt hús eftir sigur á Skaganum
Valur vann góðan 2-0 sigur er liðið sótti ÍA heim í riðli 1 í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í dag.

Tvö mörk í uppbótartíma og Arsenal endurheimtir toppsætið
Eftir töpuð stig í seinustu þremur leikjum vann Arsenal loks dramatískan 4-2 útisigur er liðið heimsótti Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag í leik þar sem staðan var enn jöfn þegar komið var í uppbótartíma.

Kórdrengir verða ekki með og Ægir fær sæti í Lengjudeildinni
Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur staðfest að Kórdrengir munu ekki taka þátt á Íslandsmóti karla í knattspyrnu í sumar. Kórdrengir voru með lið í Lengjudeildinni síðasta sumar, en Ægir frá Þorlákshöfn tekur sæti þeirra í næst efstu deild.

Stjarnan fær liðsstyrk frá Blikum
Stjarnan hefur fengið unglingalandsliðskonuna Eyrúnu Völu Harðardóttur til liðs við sig fyrir komandi átök í Bestu-deild kvenna í fótbolta.

Guðný dregur sig úr landsliðshópnum
Guðný Árnadóttir hefur dregið sig úr íslenska landsliðshópnum sem leikur á Pinatar Cup á Spáni um þessar mundir vegna meiðsla.

Atsu fannst látinn í rústum
Ganverski knattspyrnumaðurinn Christian Atsu hefur fundist látinn í rústum heimilis síns í Tyrklandi. Hans hafði verið saknað frá því að jarðskjálfti skók stóran hluta Tyrklands og Sýrlands þann 6. febrúar síðastliðinn.

Al Thani leggur fram tilboð í Manchester United
Sjeik Jassim bin Hamad Al Thani, stjórnarformaður eins stærsta banka Katar, QIB, hefur staðfest að hann muni leggja fram tilboð í enska úrvalsdeildarfélagið Manchester Unied.

Dýrkeypt mistök kostuðu Lee Mason starfið
Knattspyrnudómarinn Lee Mason og dómarasambandið PGMOL hafa komist að samkomulagi um að Mason muni yfirgefa sambandið eftir dýrkeypt mistök. Hann mun því ekki dæma aftur í ensku úrvalsdeildinni.

Kvaratskhelia og Osimhen enn sjóðheitir og Napoli nálgast titilinn
Napoli er nú með 19 stiga forskot á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir góðan 2-0 útisigur gegn Sassuolo í kvöld.

Blikar hefndu fyrir tapið gegn FH
Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu góðan 3-1 sigur er liðið tók á móti FH í riðli tvö í A-deild Lengjubikarsins í fótbolta í kvöld.

Mikael tryggði AGF sigur og liðið stökk upp um fjögur sæti
Mikael Neville Anderson skoraði eina mark leiksins er AGF vann 1-0 útisigur gegn Álaborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Með sigrinum stökk AGF úr áttunda sæti og upp í það fjórða.

Fjögurra ára bann fyrir að sparka í Ramsdale
Joseph Watts, 35 ára gamall stuðningsmaður Tottenham Hotspur, hefur játað sök fyrir dómi eftir að hafa sparkað í markvörð Arsenal þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni fyrr í vetur.

Ten Hag ánægður með tíuna Weghorst
Erik ten Hag var ánægður með hvernig Wout Weghorst spilaði í nýrri stöðu þegar Manchester United gerði 2-2 jafntefli við Barcelona í umspili um sæti í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar í gær.

Xavi segir að Raphinha hafi ekki þurft að biðjast afsökunar
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Raphinha baðst í gær afsökunar á því hvernig hann brást við þegar hann var tekinn af velli í 2-2 jafntefli Barcelona og Manchester United í Evrópudeildinni.

Ensku konurnar eru enn taplausar síðan Sarina tók við
Evrópumeistarar Englands héldu sigurgöngu sinni áfram í gær þegar liðið vann 4-0 sigur á Suður-Kóreu í æfingaleik.

Ramos bað ljósmyndarann sem hann ýtti við afsökunar
Sergio Ramos, leikmaður Paris Saint-Germain, hefur beðið ljósmyndarann sem hann stjakaði við eftir leikinn gegn Bayern München afsökunar. Ljósmyndarinn segir málinu lokið.

Mourinho grætti Salah
José Mourinho gagnrýndi Mohamed Salah einu sinni svo harðlega að Egyptinn fór að gráta.

Nunnan sem liggur á bæn um að Messi komi aftur heim
Lionel Messi á sér marga aðdáendur í Barcelona eftir magnaðan tíma þar en ein af þeim frægustu er nunnan Systir Lucia.

Meistararnir fá Oliver
Íslandmeistarar Breiðabliks í fótbolta hafa fengið til sín Skagamanninn Oliver Stefánsson frá Norrköping í Svíþjóð. Hann skrifaði undir samning við Blika sem gildir næstu þrjár leiktíðir eða út árið 2025.

Besta deildin hækkar sig um fjögur sæti á fyrsta ári
Íslenska úrvalsdeildin í fótbolta, betur þekkt sem Besta deildin, er komin upp í 48. sæti á nýjum styrkleikalista Knattspyrnusambands Evrópu.

Slagsmál liðsfélaga enduðu inn á borði lögreglunnar
Tveimur leikmönnum danska úrvalsdeildarliðsins Bröndby lenti saman á æfingu liðsins og svo alvarleg voru átök þeirra að þetta er nú orðið að lögreglumáli.

Rannsaka greiðslur Barcelona til varaformanns dómaranefndar
Saksóknarar á Spáni rannsaka nú greiðslur sem spænska stórveldið Barcelona greiddi fyrirtæki í eigu José María Enríquez Negreira á árunum 2016 til 2018. Negreira var þá varaformaður spænsku dómaranefndarinnar, CTA.

Búist við katörsku tilboði í United
Búist er við því að katarskir fjárfestar tengdir konungsfjölskyldunni muni leggja fram tilboð í enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United á morgun.

„Fannst þetta vera Meistaradeildarleikur og jafnvel meira“
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, var ánægður með spilamennsku sinna manna er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Barcelona í Evrópudeildinni í kvöld. Hann hefði þó þegið sigur, enda fannst honum sínir menn stjórna leiknum.

Sevilla valtaði yfir PSV og Juventus missti frá sér sigurinn
Seinni fjórum leikjum kvöldsins í Evrópudeildarinni í fótbolta er nú lokið þar sem Sevilla vann öruggan 3-0 sigur gegn PSV Eindhoven og Juventus þurfti að sætta sig við 1-1 jafntefli gegn Nantes á heimavelli.

Víkingur hafði betur gegn Stjörnunni
Víkingur vann góðan 2-1 sigur er liðið tók á móti Stjörnunni í riðli þrjú í A-deild Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld.

Salzburg og Shakhtar með yfirhöndina en jafnt hjá Ajax og Union Berlin
Alls er fjórum af átta leikjum kvöldsins í Evrópudeildinni í fótbolta nú lokið. Salzburg og Shakhtar Donetsk unnu nauma sigra gegn Roma og Rennes, en Ajax og Union Berlin skildu jöfn í Hollandi.

Allt jafnt fyrir stórleikinn á Old Trafford
Barcelona og Manchester United áttust við í fyrri viðureign liðanna í Evrópudeildinni í fótbolta í kvöld. Lokatölur urðu 2-2 og því verður allt undir þegar liðin mætast á Old Trafford í seinni leiknum að viku liðinni.

Conte snýr ekki aftur til vinnu fyrr en hann hefur náð fullum bata
Antonio Conte, knattspyrnustjóri Tottenham, verður ekki á hliðarlínunni þegar liðið tekur á móti West Ham í ensku úrvalsdeildinni næstkomandi sunnudag. Hann verður frá vinnu þar til hann hefur náð fullum bata eftir að hafa gengist undir aðgerð þar sem gallblaðran var fjarlægð úr honum.

Fyrrum forsætisráðherra Svía gæti orðið forseti sænska sambandsins
Fredrik Reinfeldt, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur verið orðaður við forsetastólinn hjá sænska knattspyrnusambandinu.

Ráku sama þjálfara tvisvar sinnum á 31 degi
Ítalska félagið Salernitana hefur rekið þjálfarann Davide Nicola í annað skiptið á þessu ári.

Vika gaslýsingar hjá FIFA
Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, er sakað um allsherjar gaslýsingartilburði með sköpun nýrrar stöðu mannréttindafulltrúa hjá sambandinu. Ráðningin kemur upp samhliða nýjum samningum við ríki þar sem mannréttindi eru fótum troðin.

Sjáðu Meistaradeildarmörk vikunnar
Sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu hófust í vikunni. Fimm mörk voru skoruð í fyrstu fjórum leikjum sextán liða úrslitanna.

Olla og Sveindís deila nú metinu yfir bestu byrjun landsliðskonu
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir skoraði tvö mörk í sínum fyrsta leik með íslenska A-landsliðinu í gær og jafnaði þar með rúmlega tveggja ára gamalt met.

Einvígi risa sem raknað hafa úr rotinu
Barcelona og Manchester United hafa marga spennandi hildi háð í gegnum tíðina. Í dag mætast liðin hins vegar í Evrópudeildinni í fyrsta sinn, þrátt fyrir uppgang beggja í vetur undir stjórn nýrra þjálfara.

Vellirnir sem Ísland ætti að nota vegna úrræðaleysis stjórnvalda: Þórshöfn efst
Knattspyrnusamband Íslands hefur hafið leit að leikvangi erlendis fyrir íslensku landsliðin til að spila á, komi til þess að þau þurfi að spila heimaleiki að vetri til eins og líklegt er að gerist. Vísir leitaði til sérfræðings sem stillti upp tíu ákjósanlegustu leikvöngunum fyrir heimaleiki utan landsteinanna.

Manchester United sagt ætla að spyrja leikmenn um framtíð Greenwood
Enski knattspyrnumaðurinn Mason Greenwood er laus allra mála eftir að málið gegn honum var fellt niður en nú þarf Manchester United að ákveða hvað félagið ætlar að gera með einn efnilegasta leikmann félagsins.

Cloé kölluð inn í kanadíska landsliðið en landsliðskonurnar hóta verkfalli
Hin íslensk-kanadíska Cloé Eyja Lacasse er í landsliðshópi Kanada á SheBelieves æfingamótinu.

Eigendur Chelsea og PSG hittust og ræddu möguleg kaup á Neymar
Paris Saint-Germain vill losa sig við brasilíska knattspyrnumanninn Neymar og það lítur út fyrir að enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hafi áhuga.

Kynlífsmyndband tekið upp á vellinum þar sem Ísland vann sinn fræknasta sigur
Forráðamenn franska knattspyrnuliðsins Nice eru ósáttir þessa dagana eftir að þeir komust að því að kynlífsmyndband var tekið upp inni á salerni á heimavelli félagsins.

Þorsteinn: Á von á að gera töluvert margar breytingar fyrir næsta leik
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari var ánægður með sigur Íslands á Skotlandi í dag en liðin mættust á Pinatar-mótinu sem fram fer í Murcia á Spáni.

Haaland: Stoltur af hverjum einasta manni
Erling Haaland skoraði þriðja mark Manchester City í sigri liðsins á Arsenal í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar. Hann segir Arsenal hafa verið besta liðið á tímabilinu til þessa.

Dortmund og Benfica með frumkvæðið fyrir seinni leikina
Borussia Dortmund vann 1-0 sigur á Chelsea í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Seinni leikurinn fer fram á Stamford Bridge eftir þrjár vikur.