Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Arsenal-maðurinn skoraði þegar Suður-Kóreumenn náðu bronsinu Park Chu-Young, leikmaður Arsenal, skoraði fyrra mark Suður-Kóreu í 2-0 sigri á Japan í leiknum um bronsið í fótboltakeppni Ólympíuleikanna í London en leikurinn fór fram á Þúsaldarleikvanginum í Cardiff. 10.8.2012 22:00
Eyjakonur upp í þriðja sætið eftir stórsigur ÍBV er komið upp í 3. sæti í Pepsi-deild kvenna í fótbolta eftir 6-1 stórsigur á Aftureldingu á Hásteinsvelli í Eyjum í kvöld í lokaleik þrettándu umferðar. ÍBV fór upp fyrir Val og Breiðablik með þessum sigri og er nú aðeins einu stigi á eftir Íslandsmeisturum Stjörnunnar sem sitja í öðru sætinu. 10.8.2012 20:03
Joe Allen orðinn leikmaður Liverpool Liverpool staðfesti það á heimasíðu sinni í kvöld að liðið sé búið að ganga frá kaupum á velska landsliðsmanninum Joe Allen frá Swansea. Allen er annar leikmaðurinn sem Brendan Rodgers fær til Liverpool síðan að hann settist í stjórastólinn á Anfield. 10.8.2012 19:48
Mancini telur United vera sigurstranglegasta liðið Keppnistímabilið á Englandi hefst formlega á sunnudaginn þar sem Englandsmeistarar Manchester City mæta bikarmeisturum Chelsea í leik um Samfélagsskjöldinn. 10.8.2012 19:30
Mikilvægur útisigur hjá Guðjóni og Kristni með Halmstad Guðjón Baldvinsson og Kristinn Steindórsson voru báðir í byrjunarliði Halmstad þegar liðið vann dýrmætan 2-0 útisigur á Ängelholms FF í sænsku b-deildinni í fótbolta í kvöld. 10.8.2012 18:39
Rúrik lagði upp sigurmark OB Rúrik Gíslason og félagar í OB unnu flottan sigur á FC Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Sigurinn skilaði OB-liðinu upp í annað sæti deildarinnar á eftir FC Kaupmannahöfn. 10.8.2012 18:23
Stutt ferðalag hjá Liverpool - mætir Hearts í Evrópudeildinni Liverpool drógst á móti skoska liðinu Hearts í undankeppni Evrópudeildarinnar en dregið var í dag. Newcastle fer til Grikklands og spilar við Atromitos en í boði er sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. 10.8.2012 15:45
Veigar Páll reynir að fá sig lausan frá Vålerenga Knattspyrnumaðurinn Veigar Páll Gunnarsson hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið hjá liði sínu Vålerenga og er nú svo komið að hann vinnur að því hörðum höndum að komast frá félaginu. Veigar vonast til að finna sér lið á einu af Norðurlöndunum áður en félagsskiptaglugganum verður lokað þann 31. ágúst. 10.8.2012 14:15
Rooney tæki Van Persie opnum örmum Wayne Rooney telur að Robin van Persie myndi reynast góð viðbót við lið Manchester United. Van Persie hefur verið sterklega orðaður við United síðustu daga. 10.8.2012 13:30
Bellamy stóðst læknisskoðun hjá Cardiff Craig Bellamy mun í dag ganga í raðir Cardiff City sem fær hann án greiðslu frá Liverpool. Bellamy átti eitt ár eftir af samningi sínum við síðarnefnda liðið. 10.8.2012 12:45
Alfreð og félagar mæta Celtic Dregið var í lokaumferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu nú í morgun og voru tvö Íslendingalið í pottinum. 10.8.2012 11:47
Rodgers: Allen á leið til Liverpool Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, staðfesti í gærkvöldi að Joe Allen væri á leið til félagsins frá Swansea. 10.8.2012 10:30
Stjóri Juventus í tíu mánaða bann Antonio Conte, knattspyrnustjóri Juventus, hefur verið dæmdur í tíu mánaða bann af ítalska knattspyrnusambandinu. 10.8.2012 09:45
Sá fyrsti í sjö ár til að skora tvær þrennur á einu tímabili FH-ingurinn Atli Guðnason hefur verið á skotskónum í Pepsi-deild karla í sumar og er nú með tveggja marka forskot á listanum yfir markahæstu leikmenn deildarinnar. 10.8.2012 06:00
Úrvalsdeildarfélög hafa enn áhuga á Michael Owen Michael Owen verður kannski áfram í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili þótt að hann hafi ekki fengið nýjan samning hjá Manchester United. 9.8.2012 23:45
Tottenham tapaði fyrir Valencia í kvöld Gylfi Þór Sigurðsson spilaði fyrstu 80 mínúturnar þegar Tottenham tapaði 0-2 fyrir Valencia á Spáni í kvöld í síðasta undirbúningsleik sínum fyrir komandi tímabil. 9.8.2012 23:04
Bandarísku fótboltastelpurnar tóku gullið á þriðju leikunum í röð Bandaríkin tryggði sér í kvöld sigur í knattspyrnukeppni kvenna á Ólympíuleikunum í London þegar bandarísku stelpurnar unnu 2-1 sigur á Heimsmeisturum Japans í úrslitaleiknum fyrir framan rúmlega 80 þúsund manns á Wembley. 9.8.2012 22:52
Guðlaug búin að taka aftur fram skóna á 41. aldursári Guðlaug Jónsdóttir, snéri aftur í úrvalsdeild kvenna í kvöld, þegar þessi fyrrum landsliðsmaður og margfaldur meistari með KR, kom inn á sem varamaður þegar KR vann 3-2 sigur á Fylki. Guðlaug hafði góð áhrif á Vesturbæjarliðið sem vann sinn fyrsta sigur í sumar. 9.8.2012 22:31
Langþráður sigur á hjá KR-konum | Blikar töpuðu stigum á Selfossi Botnliðin í Pepsi-deild kvenna bitu frá sér í 13. umferðinni í kvöld. KR vann 3-2 heimasigur á Fylki og Selfoss gerði 3-3 jafntefli við Blikakonur sem eru í 3. sæti deildarinnar. 9.8.2012 21:26
Þór/KA gefur ekkert eftir og vann stórsigur á FH Þór/KA-konur gefa ekkert eftir á toppi Pepsi-deildar kvenna en þær náðu sex stiga forskoti eftir 6-0 sigur á FH í fyrsta leik 13. umferðar á Akureyri í kvöld. Stjörnukonur geta minnkað forskotið aftur niður í þrjú stig seinna í kvöld. 9.8.2012 20:29
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Valur 2-3 | Elín Metta hetja Valskvenna Elín Metta Jensen skoraði sigurmark Valskvenna í viðbótartíma er liðið vann 3-2 útisigur á Stjörnunni í 13. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Stjarnan tapaði dýrmætum sigur í titilbaráttunni en Valur stimplaði sig inn í toppbaráttuna á nýjan leik. 9.8.2012 17:06
Liverpool örugglega áfram eftir 3-0 sigur Liverpool átti ekki í miklum vandræðum með því að komast áfram í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld en liðið vann þá 3-0 sigur á Gomel frá Hvíta-Rússlandi. Liverpool fór áfram 4-0 samanlagt. 9.8.2012 21:08
Hólmfríður og Kristín Ýr með fimm mörk saman í stórsigri Íslensku landsliðskonurnar Hólmfríður Magnúsdóttir og Kristín Ýr Bjarnadóttir voru á skotskónum í 6-0 stórsigri Avaldsnes á Grand Bodö í norsku b-deildinni í kvöld. Hólmfríður skoraði þrennu og Kristín Ýr var með tvö mörk. Þær stöllur hafa raðað inn mörkunum með norska liðinu í sumar. 9.8.2012 19:29
Pepsi-mörkin: Allur þátturinn um 14. umferð aðgengilegur á Vísi Farið var yfir gang mála í öllum leikjunum í 14. umferð í Pepsideild karla í þættinum Pepsi-mörkin á Stöð 2 sport í gær. Þátturinn er aðgengilegur á Vísi í heild sinni. Í þættinum fóru þeir Hörður Magnússon, Reynir Leósson og Hjörvar Hafliðason yfir helstu atvikin í leikjunum sex og það var mikið fjör í leikjunum þar sem að 27 mörk voru skoruð og nokkur rauð spjöld fóru á loft. 9.8.2012 19:00
Joe Allen: Ég vil fara til Liverpool Sky Sports hefur heimildir fyrir því að Liverpool sé búið að samþykkja að hækka tilboð sitt í Joe Allen hjá Swansea og að leikmaðurinn sjálfur vilji fara til Liverpool. 9.8.2012 18:45
Parker missir af fyrsta mánuði tímabilsins - Gylfi enn mikilvægari Scott Parker, miðjumaður Tottenham og enska landsliðsins, verður ekkert með Tottenham-liðinu fyrsta mánuðinn á nýju tímabili sem hefst eftir rúma viku. Parker er enn að jafna sig eftir aðgerð á hægri hásin og Tottenham gaf það út á heimasíðu sinni í dag að hann myndi ekki spila fyrr en í september. 9.8.2012 18:15
Kanadísku stelpurnar tryggðu sér bronsið í uppbótartíma Miðjumaðurinn Diana Matheson tryggði kanadíska landsliðnu bronsið í fótboltakeppni kvenna á Ólympíuleikunum í London í dag þegar hún skoraði eina markið í leiknum um þriðja sætið á móti Frökkum. 9.8.2012 16:21
Þórður fékk áminningu og 25 þúsund króna sekt Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA í Pepsi-deild karla, fékk í dag áminningu frá aga- og úrskurðarnefnd KSÍ fyrir viðbrögð sín í fjölmiðlum eftir tap á móti KR á KR-vellinum á dögunum. 9.8.2012 15:45
Freyr leikjahæstur hjá FH-sló met Harðar í gær Freyr Bjarnason varð í gærkvöld leikjahæsti leikmaður FH í efstu deild frá upphafi. Freyr lék sinn 175. leik fyrir FH í úrvalsdeildinni í gærkvöld þegar liðið burstaði Selfoss, 5-2. Metið átti markaskorarinn, Hörður Magnússon en hann lék á sínum tíma 174 leiki fyrir FH í efstu deild. 9.8.2012 14:09
Baldock verður í herbúðum ÍBV út ágústmánuð George Baldock, sem hefur leikið með ÍBV í Pepsi-deild karla að undanförnu mun leika með liðinu út ágústmánuð. Talið var að enski miðjumaðurinn færi af landi brott í þessari viku en Eyjamenn fá að njóta krafta hans í nokkrar vikur til viðbótar. Eyjafréttir greina frá. 9.8.2012 13:45
Mourinho ætlar ekki að selja Kaka á útsöluverði Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Real Madrid, segir að Kaka geti yfirgefið liðið ef rétt verð fæst fyrir Brasilíumanninn. Kaka fór á kostum með Spánarmeistaraliðinu í vináttuleik gegn AC Milan þar sem að Real Madrid hafði betur 5-1 en Kaka hefur verið orðaður við sitt gamla lið, AC Milan. 9.8.2012 11:00
Ferguson vonast til þess að landa Robin van Persie Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir í vitðali á heimasíðu félagsins að liðið hafi gert formlegt kauptilboð í hollenska framherjann Robin van Persie. Man Utd náði ekki að kaupa Brasilíumanninn Lucas Moura sem er á leið til PSG í Frakklandi og Ferguson vonast til þess að kaupin á Robin van Persie gangi upp. 9.8.2012 10:30
Pepsi-mörkin: Ellismellurinn | Ólafur Þórðarson Ólafur Þórðarson, fyrrum landsliðsmaður í fótbolta, og núverandi þjálfari Víkings í 1. deild karla, var í aðalhlutverki í ellismellinum í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 sport í gærkvöld. Þar var birt bútur úr viðtali sem tekið var við Ólaf árið 1996 þegar hann hætti að leika með íslenska landsliðinu. 9.8.2012 09:15
Pepsi-mörkin: Markaregnið úr 14. umferð Það var mikið skorað af mörkum í gærkvöld þegar 14. umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta fór fram, alls 27 mörk. Að venju var farið yfir gang mála í öllum leikjunum í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 sport. Öll mörkin má sjá með því að smella á örina hér fyrir ofan. 9.8.2012 09:00
ÍBV riftir samningi sínum við Eyþór Helga | Tryggvi í ótímabundið agabann Knattspyrnudeild ÍBV sendi í kvöld frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að félagið hafi ákveðið að rifta samningi sínum við Eyþór Helga Birgisson. Þá hefur Tryggvi Guðmundsson verið settur í ótímabundið bann hjá félaginu. 8.8.2012 22:56
Garðar með bæði mörk Skagamanna í sigri á Fylki - myndir Garðar Bergmann Gunnlaugsson var hetja Skagamann í sigri á Fylki í Pepsi-deild karla í kvöld þegar hann skoraði bæði mörk liðsins þar af sigurmarkið tíu mínútum fyrir leikslok. 8.8.2012 22:52
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍA - Fylkir 2-1 | Garðar með tvö mörk Garðar Bergmann Gunnlaugsson tryggði Skagamönnum 2-1 sigur á Fylki á Akranesi í kvöld í 14. umferð Pepsi-deildar karla. Garðar skoraði bæði mörk ÍA í leiknum þar á meðal sigurmarkið tíu mínútum fyrir leikslok. 8.8.2012 18:30
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: FH - Selfoss 5-2 | Atli Guðna með þrennu FH-ingar eru komnir á toppinn í Pepsi-deild karla eftir 5-2 sigur á Selfossi á Kaplakrikavellinum í kvöld en auk þess að vera með tveggja stiga forystu á KR-inga þá á FH-liðið einnig leik inni. Atli Guðnason skoraði þrennu í leiknum og bakvörðurinn Guðjón Árni Antoníusson var með tvö mörk. 8.8.2012 18:30
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Stjarnan - Keflavík 1-3 Keflvíkingar unnu flottan 3-1 sigur á Stjörnunni í 15. umferð Pepsi deild karla í kvöld. Með þessu lyfta þeir sér upp í fimmta sæti, aðeins stigi á eftir Stjörnunni. 8.8.2012 00:01
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Grindavík - Fram 2-2 Grindavík náði mikilvægu 2-2 jafntefli gegn Fram á heimavelli í kvöld. Kristinn Ingi Halldórsson kom Fram tvisvar yfir í leiknum en Iain James Williamson og Hafþór Ægir Vilhljálmsson jöfnuðu jafn oft. Hafþór jafnaði þegar þrjár mínútur voru eftir en allt benti til þess að Fram myndi innbyrða sanngjarnan sigur. Enn munar því sex stigum á liðunum í fallbaráttunni. 8.8.2012 00:01
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Valur - Breiðablik 3-4 Blikar sýndu ótrúlegan karakter í 4-3 sigri á Val í leik liðanna í í 14. umferð Pepsi-deildar karla á Vodafonevellinum í kvöld. Blikar skoruðu fjögur mörk á síðustu tuttugu mínútum leiksins en þeir misstu markvörð sinn Ingvar Þór Kale að velli með rautt spjald á 66. mínútu. 8.8.2012 00:01
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - KR 2-0 | Hannes sá rautt Eyjamenn komust aftur á sigurbraut í Pepsi-deild karla með því að vinna 2-0 heimasigur á toppliði KR á Hásteinsvellinum í kvöld en þetta var fyrsti leikurinn í 14. umferð Pepsi-deildar karla. 8.8.2012 00:01
Chijindu tryggði Þór þrjú stig á Egilsstöðum Chukwudi Chijindu skoraði sigurmark Þórs gegn Hetti þremur mínútum fyrir leikslok í frestuðum leik í 1. deild karla í kvöld. 8.8.2012 22:22
United klikkaði á öllum vítunum sínum og Barca vann Barcelona vann Manchester United í æfingaleik liðanna í Gautaborg í kvöld. Úrslitin réðust í vítakeppni eftir markalaust jafntefli. 8.8.2012 20:21
PSG búið að kaupa Moura - fer til Frakklands í janúar Franska félagið Paris Saint-Germain er búið að ganga frá kaupum á brasilíska sóknarmanninum Lucas Moura frá Sao Paulo en hann hefur verið orðaður við Manchester United í allt sumar. Manchester United missti af kappanum á lokasprettinum en enska stórliðið átti ekki svar við peningamönnunum í PSG. 8.8.2012 18:25