Fleiri fréttir

Newcastle að ganga frá kaupum á ítölskum bakverði

Newcastle United eru líklega búið að finna arftaka Jose Enrique sem gekk til liðs við Liverpool á dögunum en Ítalinn, Davide Santon, er samkvæmt enskum fjölmiðlum á leiðinni í læknisskoðun hjá þeim svarthvítu.

Liverpool neitaði tilboði Chelsea í Meireles

Fram kemur í enskum miðlum í dag að Liverpool hafi neitað tilboði Chelsea í miðjumanninn Raul Meireles, en Chelsea mun hafa boðið 8 milljónir í þennan snjalla Portúgala auk þess var liðið tilbúið að láta Yossi Benayoun fylgja með.

Pepsimörkin: Tónlist og tilþrif úr 17. umferð

Að venju var farið yfir öll helstu atvikin úr 17. umferð Pepsideildar karla í fótbolta í þættinum Pepismörkunum á á Stöð 2 sport í gærkvöld. Í myndbandinu má sjá öll mörkin og helstu tilþrifin.

Mancini: Adam Johnson er ekki til sölu

Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur gefið það út í enskum fjölmiðlum að Englendingurinn Adam Johnson sé alls ekki til sölu og leikmaðurinn eigi sér framtíð hjá félaginu.

Guðmundur og Matthías koma inn í landsliðshópinn

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, hefur kallað tvo leikmenn til viðbótar inn í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Kýpur og Noregi, en þeir Matthías Vilhjálmsson, leikmaður FH, og Guðmundur Kristjánsson, leikmaður Breiðabliks, koma nýir inn í hópinn.

Tryggva vantar bara eitt mark í að jafna metið - myndir

Tryggvi Guðmundsson skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 3-1 sigri ÍBV á Víkingi í Pepsi-deild karla í gærkvöldi. Tryggvi hefur þar með skorað 125 mörk í efstu deild og vantar aðeins eitt mark til að jafna markamet Inga Björns Albertssonar.

Lukkan var með KR á móti Fram - myndir

KR-ingar unnu mikilvægan 2-1 sigur á Fram í Pepsi-deild karla í gær og halda því áfram tveggja stiga forystu á ÍBV. KR hafði gert jafntefli í síðustu tveimur heimaleikjum sínum en tókst nú að landa sigri.

Lionel Messi: Nýju strákarnir falla vel inn í þetta hjá okkur

Lionel Messi skoraði tvö mörk í frábærum 5-0 sigri liðins á Villarreal á Nývangi í gær í fyrsta leik liðsins í spænsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Hin þrjú mörk skoruðu nýju mennirnir í liðinu, Thiago Alcantara, Cesc Fabregas og Alexis Sanchez.

Brasilískur bakvörður á leiðinni til Arsenal

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er langt kominn með að kaupa brasilíska bakvörðinn Andre Santos frá tyrkneska félaginu Fenerbahce. Wenger ætlar að borga 6,2 milljónir punda fyrir hann samkvæmt heimildum BBC.

Arsenal, Liverpool og Lille að keppa um Benayoun

BBC hefur heimildir fyrir því að Arsenal, Liverpool og franska félagið Lille hafi öll mikinn áhuga á því að fá til sín Ísraelsmanninn Yossi Benayoun sem á ekki mikla framtíð í Chelsea-liðinu.

Umfjöllun Vísis um leiki kvöldsins

Fjórir leikir fóru fram í Pepsi-deild karla í kvöld og var mikið um að vera. Hér má finna alla umfjöllun Vísis um leikina á einum stað.

Hannes tekur sæti Gunnleifs í landsliðshópnum

Hannes Þór Halldórsson, markvörður KR, átti frábæran leik í kvöld í 2-1 sigri á Fram og eftir leikinn fékk hann þær fréttir að hann væri kominn inn í íslenska landsliðshópinn. Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður FH, meiddist á móti Stjörnunni í kvöld og varð að segja sig út úr hópnum. Þetta kom fram í markaþættinum "Íslenski boltinn" á RÚV í kvöld.

Heimir: Gerðum barnaleg mistök

Heimir Guðjónsson þjálfari FH segir lið sitt hafa gert barnarleg mistök í leik sem hann leit á sem úrslitaleik um hvort FH gæti gert alvöru atlögu að Íslandsmeistaratitlinum þegar FH steinlá 4-0 gegn Stjörnunni.

Bjarni: Það blómstruðu allir

Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar var hinn kátasti eftir að hafa stýrt liði sínu til stór sigurs á heimavelli gegn FH, 4-0.

Heimir: Var smeykur við þennan leik

Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, var greinilega létt að hafa unnið Víkinga í kvöld. Eyjamenn gefa því ekkert eftir í toppbaráttu Pepsi-deildarinnar.

Tryggvi: Þetta var „soft“ víti

Tryggvi Guðmundsson átti skrautlegan leik í kvöld. Hann skoraði mark úr víti sem hann viðurkennir að hafi ekki verið víti, skoraði mark með hnénu og fékk svo fjölda tækifæra til að innsigla þrennuna og jafna frægt markamet Inga Björns Albertssonar.

Barcelona skoraði fimm mörk á móti Villarreal

Barcelona-liðið fór á kostum í kvöld þegar liðið vann 5-0 sigur á Villarreal á Nývangi í leik liðanna í spænsku úrvalsdeildinni. Barcelona og Villarreal spila bæði í Meistaradeildinni í vetur en það virðist vera himinn og haf á milli þessara liða ef marka má leikinn í kvöld.

Sunnudagsmessan: Er Wenger kominn á endastöð með Arsenal?

Sunndagsmessan með þeim Guðmundi Benediktssyni og Hjörvari Hafliðasyni var á sínum stað á Stöð2Sport2 í gær en gestur þáttarins var Lúðvík Arnarson, varaformann knattspyrnudeildar FH, en hann er mikill stuðningsmaður Arsenal. Þeir félagar ræddu mikið um lið Arsenal og hvort Wenger væri jafnvel komin á endastöð með liðið.

Þriggja manna vörn hjá Barcelona og Fabregas byrjar

Barcelona spilar sinn fyrsta leik í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld þegar liðið tekur á móti Villareal á Nývangi. Pep Guardiola hefur breytt um leikerfi fyrir leikinn í kvöld en liðið spilar 3-4-3 í stað 4-3-3.

Umfjöllun: Stjarnan slökkti í meistaravonum FH

Stjarnan vann ótrúlegan 4-0 sigur á FH á heimavelli sínum í Garðabæ í kvöld. Stjarnan var 1-0 yfir í hálfleik en leikurinn var bráðfjörugur og hefðu bæði lið getað skorað fleiri mörk í leiknum en sigurinn var þó síst of stór.

Umfjöllun: Tryggvi með tvö í öruggum Eyjasigri

Tryggva Guðmundssyni vantar nú aðeins eitt mark til að jafna markamet Inga Björns Albertssonar en hann skoraði tvö mörk í 3-1 sigri ÍBV á nýliðum Víkings í Fossvoginum í kvöld.

Umfjöllun: Meistaraheppni í Vesturbænum

KR náði í dýrmæt þrjú stig í titilbaráttunni í kvöld þegar liðið lagði lánlausa Framara 2-1 í Vesturbænum. Öll mörkin komu á síðustu tíu mínútum leiksins.

Hermann og Heiðar ekki með - fjórar breytingar á A-landsliðinu

Hermann Hreiðarsson, Heiðar Helguson, Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson verða ekki með íslenska landsliðinu í leikjunum á móti Noregi og Kýpur í undankeppni EM. Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur kallað inn fjóra nýja menn í hópinn.

Hallgrímur og Steinþór Freyr kallaðir inn í landsliðið

Hallgrímur Jónasson, leikmaður GAIS í Svíþjóð, og Steinþór Freyr Þorsteinsson, leikmaður Sandnes Ulf í Noregi, hafa verið kallaðir inn í íslenska landsliðið í knattspyrnu. Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari staðfesti þetta í samtali við Vísi.

Vesen í gríska boltanum

Fresta þurfti þremur af átta leikjum fyrstu umferðar gríska boltans um helgina. Ástæðan er sú að þrjú af liðunum sextán í grísku deildinni hafa ekki enn fengið grænt ljós á þátttöku sína.

Sunnudagsmessan: Alls ekki lið vikunnar

Sunndagsmessan með þeim Guðmundi Benediktssyni og Hjörvari Hafliðasyni var á sínum stað á Stöð2Sport2 í gær en gestur þáttarins var Lúðvík Arnarson, varaformann knattspyrnudeildar FH. Þeir félagar settu að vanda saman alls ekki lið vikunnar.

Stærsta tap Arsenal í 115 ár

Tapið gegn Manchester United var stærsta tap Arsenal í 115 ár. Arsenal tapaði 8-2 gegn Man. Utd. á Old Trafford í ótrúlegum leik í gær.

Arsenal býður vonsviknum stuðningsmönnum á annan útileik

Forsvarsmenn Arsenal hafa ákveðið að bjóða stuðningsmönnum liðsins, sem ferðust til Manchester í gær, á annan útileik félagsins á tímabilinu. Arsenal beið lægri hlut gegn Manchester United 8-2 í leik liðanna á Old Trafford.

Umfjöllun: Fylkismenn hirtu stigin þrjú í Keflavík

Fylkismenn sóttu þrjú stig suður með sjó í gær þegar lið bar sigur úr býtum gegn Keflvíkingum, 2-1, á Nettóvellinum. Albert Brynjar Ingason og Ingimundur Níels Óskarsson gerðu mörk Fylkismanna, en Guðmundur Steinarsson skoraði eina mark Keflvíkinga.

Birkir Bjarnason er líklega á leiðinni frá Viking

Birkir Bjarnason var ekki í leikmannahópnum hjá norska liðinu Viking frá Stavanger í gær og svo virðist sem Birkir hafi leikið sinn síðasta leik fyrir félagið. Åge Hareide þjálfari liðsins hefur ekki valið Birki í liðið í undanförnum leikjum en Birkir hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning við félagið og bendir allt til þess að hann fari frá félaginu áður en félagaskiptaglugganum verður lokað á miðvikudaginn.

AGF samdi við tvo íslenska unglinga

Danska úrvalsdeildarfélagið gekk í vikunni frá samningum við tvo leikmenn íslenska U-17 landsliðsins sem fagnaði sigri á Norðurlandamótinu hér á landi fyrr í sumar - þá Óliver Sigurjónsson og Þórð Jón Jóhannesson.

Capello hefur augastað á ungu leikmönnum United

Danny Wellbeck, leikmaður Manchester United, verður ekki með enska landsliðinu gegn Búlgaríu og Wales í undankeppni Evrópumótsins í Póllandi og Úkraínu árið 2012, en hann tognaði í aftanverður læri í leik gegn Arsenal um helgina.

Wenger ætlar að fá Alex til Arsenal

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur greinilega áttað sig á því eftir niðurlæginguna gegn Manchester United í gær að liðið sárvantar fleiri leikmenn og þá sérstaklega varnarmenn.

Stuðningsmenn skotnir og þjálfari fékk hjartaáfall

Tveir stuðningsmenn brasilíska liðsins Palmeiras urðu fyrir skotum eftir átök brutust út milli stuðningsmanna og lögreglu í tengslum við leik liðsins gegn Corinthians í gær. Þá var Ricardo Gomes, stjóri Vasco da Gama, lagður inn á sjúkrahús eftir að hafa fengið hjartaáfall.

Sjá næstu 50 fréttir