Barcelona skoraði fimm mörk á móti Villarreal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. ágúst 2011 20:52 Cesc Fabregas, Andres Iniesta og Lionel Messi fagna marki í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Getty
Barcelona-liðið fór á kostum í kvöld þegar liðið vann 5-0 sigur á Villarreal á Nývangi í leik liðanna í spænsku úrvalsdeildinni. Barcelona og Villarreal spila bæði í Meistaradeildinni í vetur en það virðist vera himinn og haf á milli þessara liða ef marka má leikinn í kvöld. Lionel Messi skoraði tvö mörk en hin mörkin skoruðu þeir Thiago Alcântara, Cesc Fabregas og Alexis Sánchez sem allir eru að stimpla sig inn í liðið á þessu tímabili. Thiago Alcântara nýtti tækifærið sitt vel því hann kom Barcelona í 1-0 á 24. mínútu. Það bjuggust allir að hann myndi senda boltann á einu af stjörnunum í sóknarlínu liðsins en Thiago nýtti sér það vel að varnarmennirnir hörfuðu frá honum og þrumaði boltanum í netið. Cesc Fabregas skoraði annað markið undir lok hálfleiksins eftir að hafa fengið frábæra stungusendingu inn í teiginn frá Lionel Messi. Alexis Sánchez skoraði þriðja markið í upphafi seinni hálfleiks eftir að hafa fengið stungusendingu frá Thiago og aðeins sex mínútum síðar var röðin komin að Lionel Messi. Messi fékk þá stungusendingu frá Andrés Iniesta, lék á markvörðinn og skoraði örugglega. Barcelona var þá búið að skora þrjú mörk á tíu mínútum og öll komu þau eftir stungusendingu og frábært hlaup. Lionel Messi bætti síðan við öðru marki sínu á 75. mínútu eftir sendingu frá Thiago sem var með eitt mark og tvær stoðsendingar í leiknum.
Spænski boltinn Mest lesið ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Jökull rekinn frá Stjörnunni Íslenski boltinn Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Fleiri fréttir Páfinn gerður að heiðursfélaga hjá Real Madrid Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Lærissveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Heimamenn í Kanada björguðu stigi í lokin Jökull rekinn frá Stjörnunni Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Elísa Lana tryggði Kristianstad jafntefli Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Sjá meira