Fleiri fréttir

Geir: Æskilegt að þjálfarar tali saman

Ísland varð í 5.-6. sæti á EM U-21 liða í Danmörku sem nú stendur yfir. Ísland komst því ekki í undanúrslitin en Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, er engu að síður stoltur af árangrinum.

Gasperini að taka við Inter

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Gian Piero Gasperini, fyrrum þjálfari Genoa, verði næsti þjálfari Inter.

Sviss lagði Tékkland í framlengingu

Það verða Spánn og Sviss sem leika til úrslita á EM U-21 árs landsliða í Danmörku. Sviss lagði Tékkland, 1-0, í seinni undanúrslitaleiknum í kvöld.

Tvö mörk frá Birni dugðu ekki til sigurs

Framherjinn Björn Bergmann Sigurðarson skoraði tvö mörk fyrir Lilleström í kvöld er það mætti Rosenborg í sextán liða úrslitum bikarkeppninnar. Mörkin dugðu þó ekki til því Rosenborg hafði betur eftir vítaspyrnukeppni.

Diego fékk hæstu sekt í sögu Wolfsburg

Þýska félagið Wolfsburg hefur sektað brasilíska framherjann Diego um 82 milljónir íslenskra króna fyrir að rjúka út af hóteli liðsins fyrir leik gegn Hoffenheim í síðasta mánuði. Upphæðin jafngildir mánaðarlaunum leikmannsins.

Pelé: Maradona elskar mig

Gömlu knattspyrnuhetjurnar Pelé og Diego Maradona eru enn eina ferðina komnir í hár saman. Að þessu sinni eftir að Maradona sagði Pelé að hann yrði að læra mannasiði.

Young færist nær Man. Utd

Samkvæmt heimildum Sky Sports þá er vængmaðurinn Ashley Young búinn að gangast undir læknisskoðun hjá Man. Utd. Hann gæti skrifað undir samning við félagið um helgina.

Lopez skaut Spánverjum í úrslit

Spánverjar tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleik EM U-21 árs liða í Danmörku. Spánverjar lögðu þá Hvít-Rússa, 3-1, í framlengdum leik. Þrátt fyrir mikla yfirburði út á vellinum gekk Spánverjum afar illa að skora.

Þorlákur: Gott fyrir keppnina

Þorlákur Árnason, þjálfari Stjörnunnar, hefði viljað fá auðveldari andstæðing í 8-liða úrslitum Valitors-bikar kvenna en dregið var í hádeginu í dag.

Kemur ekki til greina að kaupa Tevez

Marco Branca, yfirmaður íþróttamála hjá Inter, segir að launakröfur Carlos Tevez séu það miklar að það komi ekki til greina að kaupa hann frá Manchester City.

Villas-Boas: Snýst ekki um mig

Chelsea hefur birt brot af fyrsta viðtalinu við Andre Villas-Boas eftir að hann tók við starfi knattspyrnustjóra félagsins, aðeins 33 ára gamall.

Haraldur: Fylgjumst vel með leiknum á morgun

Haraldur Freyr Guðmundsson, fyrirliði Keflavíkur, á von á erfiðum leik í fjórðungsúrslitum Valitors-bikarkeppni karla, hvort sem andstæðingurinn verður KR eða FH.

Juventus staðfestir kaup á fjórum leikmönnum

Ítalska úrvalsdeildarfélagið Juventus staðfesti í dag kaup á fjórum ítölskum landsliðsmönnum fyrir tæpar 40 milljónir evra samtals eða rúma sex milljarða króna.

Bin Hammam mun ekki segja af sér

Mohammed bin Hammam mun ekki fara að fordæmi Jack Warner og segja af sér hjá alþjóða knattspyrnusambandinu FIFA. Warner sagði af sér fyrr í vikunni og talið var líklegt að bin Hammam gerði slíkt hið sama.

Chris Hughton tekur líklega við Birmingham

Chris Hughton verður væntanlega kynntur til sögunnar sem nýr knattspyrnustjóri hjá enska fótboltaliðinu Birmingham í dag eða morgun, samkvæmt heimildum Press Association Sport. Hughton, sem var rekinn úr starfi sem knattspyrnustjóri Newcastle s.l. haust, mun taka við af Alex McLeish sem réði sig til grannaliðsins Aston Villa nýverið.

Meistaradeildin og Evrópudeild UEFA áfram á Stöð 2 sport

UEFA og 365 miðlar hafa gert samkomulag um áframhaldandi samstarf um Meistaradeild Evrópu í fótbolta og verður keppnin sýnd á sportstöðvum Stöðvar 2 líkt og undanfarin ár. Samningurinn er til þriggja ára, 2012-2015. Alls verða 10 beinar útsendingar frá hverri umferð ásamt samantektarþáttum sýndar á Stöð 2 sport. Að auki var einnig samið um sýningarréttinn á Evrópudeild UEFA fyrir sama tímabil, 2012-2015.

Grindavík fær Þór í heimsókn

Þó svo að enn séu tveir leikir eftir í 16-liða úrslitum Valtors-bikarkeppni karla var í dag dregið í fjórðungsúrslit keppninnar.

Portúgalinn Andre Villa-Boas tekur við Chelsea

Chelsea hefur ráðið Andre Villas-Boas frá Portúgal sem knattspyrnustjóra liðsins og skrifar hann undir samning til þriggja ára. Villas-Boas er aðeins 33 ára gamall en hann hefur náð frábærum árangri með Porto í heimalandinu og hann var áður aðstoðarþjálfari hjá Chelsea þegar landi hans Jose Mourinho var knattspyrnustjóri liðsins.

Knattspyrnusamböndin í meira lagi ósátt

Knattspyrnusambönd Norður-Írlands, Skotlands og Wales eru afar ósátt við bresku ólympíunefndina BOA. Nefndin hefur fengið leyfi fyrir því að leikmenn þjóðanna ofantöldu auk Englands megi spila fyrir breska landsliðið á Ólympíuleiknum í London 2012.

Bojan Krkic á leið til Roma

Bojan Krkic leikmaður Barcelona er sagður á leið til Roma. Samkvæmt útvarpsstöðinni Catalunya Radio hafa félögin komist að samkomulagi um félagaskiptin og er kaupverðið talið vera um 10 milljón evrur.

ÍBV á heimavelli á Hlíðarenda - myndir

Eyjamenn kunna heldur betur vel við sig á Vodafonevellinum enda búnir að leggja Val þar í tvígang í sumar. Í gær vann ÍBV, 2-3, í leik liðanna í Valitorbikarnum.

Sveinbjörn: Ætlum okkur alla leið

"Við erum komnir í 8-liða úrslit og þetta gerist vart betra,“ sagði markaskorarinn, Sveinbjörn Jónasson, eftir sigurinn í kvöld. Þróttur slóg Fram útúr Valitor-bikarnum eftir að hafa unnið þá 3-1 á Valbjarnarvelli.

Tryggvi: Okkur líður vel á Hlíðarenda

"Þetta mark sem við fengum á okkur í lok fyrri hálfleiks gaf þeim blóð á tennurnar. Ég þori ekki að fullyrða hvort þetta var víti en okkar maður lét plata sig í hreyfinguna. Hvort það varð síðan snerting veit ég ekki," sagði hetja ÍBV, Tryggvi Guðmundsson, sem skoraði tvö mörk í 2-3 sigri ÍBV á Val í kvöld.

Páll: Alltaf gaman að vinna úrvalsdeildarlið

"Við lögðum upp með að vera þéttir til baka og reyna samt að skora snemma," sagði Páll Einarsson, þjálfari Þróttar, eftir sigurinn í kvöld. Þróttur vann frábæran sigur, 3-1, gegn Fram í 16-liða úrslitum Valitor-bikar karla í knattspyrnu.

Ragnar: Getum spilað fótbolta

Ragnar Gíslason nýr þjálfari botnliðs HK í 1. deildinni í fótbolta var að mörgu leyti sáttur við leik sinna manna sem tapaði 2-1 fyrir Grindavík í 16 liða úrslitum Valitor bikarsins í kvöld.

Ólafur: Svæfðum okkur sjálfir

Ólafur Örn Bjarnason þjálfari Grindavíkur sagði ekkert annað skipta máli en að Grindavík væri komið áfram í bikarnum þó hann hafi óneitanlega vonast eftir auðveldari leik í ljósi þess að Grindavík komst snemma í 2-0 þegar Grindavík marði botnlið fyrstu deildar 2-1 á heimavelli í gær manni færri allan seinni hálfleikinn.

Þórarinn Ingi: Duttum of langt til baka

Þórarinn Ingi Valdimarsson kom beint inn í Eyjaliðið eftir að hafa verið með íslenska U-21 árs liðinu á EM. Þar fékk hann reyndar ekkert að spila og mætti því ferskur til leiks.

Leikur Vals og ÍBV í Boltavarpi Vísis

Boltavarp Vísis er á ferðinni í kvöld eins og venjulega og að þessu sinni verður lýst beint frá Vodafonevellinum þar sem Valur tekur á móti ÍBV í sextán liða úrslitum Valitor-bikarsins.

Umfjöllun: Þrenna Sveinbjarnar sá um Framara

Fyrstudeildarlið Þróttar vann frækin sigur, 3-1, gegn nágrönnum sínum í Fram í 16-liða úrslitum Valitor-bikarsins í kvöld. Sveinbjörn Jónasson, leikmaður Þróttar, skoraði öll þrjú mörk liðsins en tvö þeirra gerði hann úr vítaspyrnum í fyrri hálfleik. Fram missti Alan Lowing útaf með rautt spjald eftir um hálftíma leik og var róðurinn heldur erfiður fyrir Safamýrapilta eftir það.

Umfjöllun: Grindavík marði botnlið 1.deildar

Grindavík verður í pottinum þegar dregið verðu í átta liða úrslit Valitor bikarsins á morgun eftir 2-1 sigur á HK, botnliði fyrstu deildar, á heimavelli í kvöld. Grindavík lék manni færri allan seinni hálfleikinn en HK hefði hæglega getað fengið meira út úr leiknum.

Bale og Fletcher geta spilað með breska ÓL liðinu í London

Breska ólympíunefndin, BOA, hefur greint frá því að knattspyrnumenn frá Englandi, Skotlandi, Wales, Norður-Írlandi og að sjálfsögðu Englandi séu gjaldgengir í ólympíulið Bretlands fyrir ÓL 2012 sem fram fara í London. BOA segir að um tímamótasamkomulag sé að ræða en forsvarsmenn knattspyrnusambands Skotlands og Wales eru alls ekki sáttir við þessa niðurstöðu.

Umfjöllun: Værukærir Valsmenn teknir í bólinu

ÍBV er komið í átta liða úrslit Valitor-bikarsins í knattspyrnu eftir 2-3 sigur á Val á Vodafonevellinum í kvöld. Leikurinn var bráðfjörugur og skemmtilegur. ÍBV virtist ætla að slátra leiknum en Valur komst óvænt inn í leikinn og hefði hæglega getað jafnað.

Dynamo Kiev vill fá Niko Kranjcar frá Tottenham

Rússneska liðið Dynamo Kiev hefur áhuga á að fá Króatann Niko Kranjcar frá Tottenham í sumar. Kranjcar hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá Tottenham á undanförnum mánuðum og hann vill komast frá félaginu.

AC Milan hefur ekki borgað Barcelona krónu fyrir Zlatan Ibrahimovich

Forráðamenn Barcelona eru ekki sáttir við forsvarsmenn AC Milan þar sem að ítalska liðið á enn eftir að greiða eftirstöðvar af kaupverði sænska landsliðsframherjans Zlatans Ibrahimovich. AC Milan skuldar Spánar og Evrópumeistaraliðinu rétt um 4 milljarða kr. og hafa Börsungar óskað eftir því að FIFA taki málið til meðferðar.

Sjá næstu 50 fréttir