Ólafur: Svæfðum okkur sjálfir Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 21. júní 2011 22:10 Ólafur Örn.
Ólafur Örn Bjarnason þjálfari Grindavíkur sagði ekkert annað skipta máli en að Grindavík væri komið áfram í bikarnum þó hann hafi óneitanlega vonast eftir auðveldari leik í ljósi þess að Grindavík komst snemma í 2-0 þegar Grindavík marði botnlið fyrstu deildar 2-1 á heimavelli í gær manni færri allan seinni hálfleikinn. „Við vissum að þeir voru að skipta um þjálfara og maður veit ekki alveg hvað það hefur að segja. Yfirleitt byrja menn vinna í að vera öryggir varnarlega eftir þjálfara skipti og ég bjóst við að þeir myndu bakka á okkur og við fengjum tíma með boltann,“ sagði Ólafur eftir leikinn en þrátt fyrir mörkin tvö var ekki leiftrandi sóknarbolti á boðstólnum hjá Grindavík í leiknum. „Þetta var of mikill göngubolti í byrjun en svo fáum við tvö fín mörk og þá dettum við aftur niður í göngubolta og svæfum okkur sjálfa og missum einbeitingu. Við hleypum þeim inn í leikinn með aula marki og svo með því að láta reka okkur útaf. Þá vitum við að seinni hálfleikurinn verður strembinn.“ „Þetta opnaðist í lokin þar sem bæði lið fá færi en ég er vanur að lesa ekki of mikið í þessa bikarleiki. Þeir snúast bara um eitt og það er að komast áfram og við komumst áfram.“ Grindavík freistaði þess að sækja hratt í seinni hálfleik þegar færi gáfust enda erfitt að halda boltanum lengi einum færri. „Við sátum í raun og veru ekki aftur. Þeir fá ekki færi fyrr en í lokin. Við spiluðum þetta ágætlega og vorum ógnandi þegar tækifærin gáfust en við eyddum meiri púðri í leikinn en ég vonaði þegar við komumst í 2-0 en svona er þetta þegar menn halda ekki einbeitingu og það hefur áhrif á allt liðið og liðinu var refsað grimmilega fyrri að sleppa inn marki og einn leikmaður fyrir að láta reka sig útaf.“ Í uppbótartíma hefði Grindavík átt að skora þrjú mörk því þrisvar komust framherjar liðsins einir gegn markverði en Ögmundur Ólafsson varði reyndar vel í tvígang á 96. mínútu. „Ég vil ekki kenna þreytu um að menn nýti ekki færin. Þegar menn eru komnir einir í gegn þá á það að enda í netinu og þegar menn eru komnir tveir gegn markverði þá á það að enda í markinu, mér er sama þó menn séu á hnjánum eða ekki,“ sagði Ólafur sem sér enga ástæðu til að láta menn æfa þessi færi á næstu æfingum. „Ég held það sé óþarfi að æfa þetta, þeir munu aldrei fá svona færi aftur, á ævinni.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira