Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tryggvi negldi sig inn í sögubækurnar - myndband Íslenska futsal landsliðið vann sinn fyrsta sigur frá upphafi í gær þegar strákarnir fóru á kostum í seinni hálfleik í 6-1 sigri á Armenum. Þetta var annar leikur liðsins í Evrópukeppninni í Futsal en liðið á ekki möguleika á því að komast áfram því Lettar hafa unnið tvo fyrstu leiki sína og tryggt sér sæti í næstu umferð. 23.1.2011 13:00
Kristín Ýr með fimmu í fyrsta leik - Fylkir vann Fjölni 13-0 Kristín Ýr Bjarnadóttir skoraði fimm mörk í fyrsta mótsleik Íslands- og bikarmeistara Vals á árinu 2011. Valur vann 8-0 sigur á Þrótti sem eru nýliðar í Pepsi-deild kvenna næsta sumar. Þetta var fyrsti leikur Valsliðsins undir stjórn Gunnars Rafns Borgþórssonar. 23.1.2011 12:30
Selfoss lánar Jón Daði Böðvarsson til AGF Jón Daði Böðvarsson gekk í gær frá tveimur samningum. Hann endurnýjaði samning sinn við Selfoss til ársins 2014 og gekk svo frá lánsamningi við danska félagið AGF. Jón Daði mun spila með danska liðinu fram á vor. Þetta kom fram á á fréttavefnum Sunnlenska.is. 23.1.2011 12:00
Kewell tryggði Ástralíu sæti í undanúrslitum Asíubikarsins Harry Kewell, fyrrum leikmaður Leeds og Liverpool, var hetja Ástrala í átta liða úrslitum Asíubikarsins í gær. Ástralía og Suður-Kórea þurftu bæði framlengingu til þess að slá úr nágrannana í Írak og Íran. 23.1.2011 10:00
Sögulegt mark hjá Tryggva í 6-1 sigri á Armenum í Futsal Íslenska Futsal-landsliðið vann 6-1 sigur á Armeníu í öðrum leik sínum í forkeppni Evrópumótsins í Futsal sem fer fram á Ásvöllum. Þetta er fyrsti sigur íslenska landsliðsins frá upphafi í Futsal en liðið tapað 4-5 í fyrsta leiknum á móti Lettum. 23.1.2011 09:00
Messi með mark og stoðsendingu í 14. deildarsigri Barcelona í röð Barcelona vann fjórtánda deildarleikinn í röð í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær þegar liðið vann 3-0 sigur á Racing Santander á Nou Camp. Barcelona náði þar með sjö stiga forskoti á Real Madrid sem mætir Mallorca í kvöld. 23.1.2011 07:00
Darren Bent: Við vörðumst vel eftir markið Darren Bent fékk draumabyrjun í búningi Aston Villa því hann skoraði eina mark leiksins þegar Aston Villa vann 1-0 sigur á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Bent varð dýrasti leikmaður félagsins fyrir aðeins fjórum dögum. 22.1.2011 20:31
Gerard Houllier: Við vorum að vinna frábært lið Gerard Houllier, stjóri Aston Villa var að sjálfsögðu mjög ánægður með 1-0 sigur Aston Villa á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Þetta var aðeins fjórði deildarsigur liðsins síðan að hann tók við í september og liðinu lífsnauðsynlegur í fallbaráttunni. 22.1.2011 20:16
Darren Bent tryggði Aston Villa sigur á Manchester City Darren Bent byrjaði frábærlega með Aston Villa því hann tryggði liðinu 1-0 sigur á Manchester City í kvöld í sínum fyrsta leik með Villa síðan félagið keypti hann á 24 milljónir punda frá Sunderland. 22.1.2011 19:31
Dimitar Berbatov og Robin van Persie skoruðu báðir þrennu Manchester United vann 5-0 sigur á Birmingham í ensku úrvalsdeildinni í dag og er með tveggja stiga forskot á toppnum á Arsenal sem komst upp fyrir Manchester City með 3-0 sigri á Wigan. City getur endurheimt annað sætið þegar liðið mætir Aston Villa á eftir. Aaron Lennon tryggði Tottenham 1-1 jafntefli á móti Newcastle í uppbótartíma. 22.1.2011 16:58
Eggert og félagar unnu Rangers - bara fjórum stigum frá toppnum Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leikinn með Hearts þegar liðið vann 1-0 sigur á Rangers í skosku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Rangers-liðið hefði farið upp að hlið Celtic á toppnum með sigri. 22.1.2011 14:52
Torres með tvö mörk í fyrsta sigri Liverpool undir stjórn Dalglish Liverpool vann 3-0 útisigur á Wolves í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni og hoppaði með því upp í 10. sæti deildarinnar. Þetta var fyrsti sigur liðsins undir stjórn Kenny Dalglish og aðeins annar útisigur liðsins á tímabilinu. 22.1.2011 14:43
Benitez: Þetta mun ganga betur hjá Liverpool með Dalglish Rafael Benitez, fyrrum stjóri Liverpool, segir gamla félagið sitt hafa tekið rétt ákvörðun með að ráða Kenny Dalglish sem stjóra eftir að Roy Hodgson var rekinn frá félaginu. 22.1.2011 13:30
Wenger: United er heppið að vera enn taplaust Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er á því að Manchester United liðið sé búið að hafa heppnina með sér það sem af er tímabilsins en United er enn taplaus í ensku úrvalsdeildinni. 22.1.2011 12:45
Valsmenn byrja vel undir stjórn Kristjáns Valur vann öruggan 4-1 sigur á Leikni í Reykjavíkurmóti karla í gærkvöldi í fyrsta mótsleik sínum undir stjórn Kristjáns Guðmundssonar. Keppni í B-riðli hófst með tveimur leikjum í gær. 22.1.2011 11:45
Harry Redknapp rændur á fótboltaleik í Madríd Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hefur sagt frá óskemmtilegri lífsreynslu sinni þegar hann fór til Spánar á fimmtudaginn til þess að fylgjast með nágrannaslag Real Madrid og Atletico Madrid í spænska bikarnum. Redknapp var nefnilega rændur á vellinum en hann var þar að fylgjast með Úrúgvæanum Diego Forlon. 22.1.2011 11:30
Ísland tapaði sínum fyrsta landsleik í futsal Ísland tapaði fyrir Lettlandi, 5-4, í fyrsta landsleik sínum í futsal eða innanhússknattspyrnu. Leikið var í forkeppni EM en riðill Íslands fer fram á Ásvöllum í Hafnarfirði. 21.1.2011 21:11
Blackpool hafnaði tilboði Liverpool í Charlie Adam Blackpool mun hafa hafnað tilboði upp á fjórar milljónir punda frá Liverpool í miðvallarleikmanninn Charlie Adam. 21.1.2011 20:26
Old Trafford leysir af Wembley í vor Old Trafford, heimavöllur Manchester United, tekur að sér að hýsa tvo leiki í úrslitakeppnnum neðri deildanna í vor þar sem að Wembley-leikvangurinn er upptekinn á sama tíma. 21.1.2011 17:45
Ryan Giggs er til í eitt ár til viðbótar Ryan Giggs er orðinn 37 ára gamall og búinn að vinna allt með Manchester United en hann er ekkert á því að fara að leggja skóna á hilluna. Giggs hefur nú gefið það út að hann hafi áhuga á því að spila eitt tímabil til viðbótar. 21.1.2011 17:15
Antonio Valencia gæti snúið aftur í lok febrúar Antonio Valencia meiddist illa á ökkla í Meistaradeildarleik á móti Rangers í september en endurhæfingin hefur gengið vel og nú vonast Manchester United menn að hann geti farið að spila á nýjan leik í lok febrúar. 21.1.2011 15:45
Jósef æfir með búlgarska liðinu Chernomorets Burgas Jósef Kristinn Jósefsson, bakvörður Grindvíkinga, er þessa dagana á reynslu hjá búlgarska liðininu PSFC Chernomorets Burgas. Þetta kemur fram á heimasíðu Grindvíkinga. 21.1.2011 14:45
Fyrsti Futsal-landsleikur Íslands í beinni á Haukar TV Íslenska Futsal-landsliðið leikur sinn fyrsta landsleik frá upphafi í kvöld þegar liðið mætir Lettum í forkeppni Evrópukeppninnar sem fer fram á Ásvöllum í Hafnarfirði. Leikurinn hefst klukkan 19.00 en áður mætast Grikkir og Armenar. 21.1.2011 14:15
Liverpool hefur áhuga á bæði Luis Suarez og Ashley Young Liverpool hefur staðfest áhuga sinn á leikmönnunum Luis Suarez og Ashley Young en Damien Comolli, yfirmaður knattspyrnumála, segir þó að það sé langt í það að félagið geti gengið frá samningum um kaup á leikmönnunum tveimur. 21.1.2011 12:15
KR-ingar skoruðu sex mörk í fyrsta mótsleik ársins 2011 KR vann 6-4 sigur á Fylki í fyrsta leik sínum á Reykjavíkurmótinu í fótbolta sem fram fór í Egilshöllinni í gærkvöldi en Víkingar unnu 3-2 sigur á ÍR í hinum leik kvöldsins. Öll þessi lið eru í A-riðli 21.1.2011 11:15
Sex bestu leikmenn deildarinnar að mati Sunnudagsmessunnar Þrátt fyrir að heimsmeistaramótið í handbolta sé í gangi í Svíþjóð þá verður leikið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Í Sunnudagsmessunni var farið yfir sex bestu leikmenn deildarinnar og þar koma leikmenn frá Tottenham, Arsenal, Manchester United, Manchester City við sögu. 21.1.2011 11:00
Stoke samþykkir tilboð Sunderland í framherjann Ricardo Fuller Stoke City hefur samþykkt 3 milljón punda tilboð Sunderland í framherjann Ricardo Fuller samkvæmt frétt á BBC. Þessi 31 árs gamli Jamaíkamaður hefur verið einn af þeim mönnum sem hefur haldið Eiði Smára Guðjohnsen aftarlega í goggunarröðinni hjá enska félaginu. 21.1.2011 10:19
Bruce er ósáttur við Houllier Steve Bruce knattspyrnustjóri Sunderland sendi Gerard Houllier knattspyrnustjóra Aston Villa kalda kveðju í enskum fjölmiðlum í gær eftir að Villa keypti framherjann Darren Bent frá liðinu. Bruce segir að Houllier beri enga virðingu fyrir starfsfélögum sínum þar sem hann hafi ekki haft samband við sig á meðan kaupin fóru fram. 21.1.2011 10:00
Wenger: Denilson og Fabregas eru mjög góðir vinir Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir ekkert vera til í því að leikmennirnir Cesc Fabregas og Denilson eigi í einhverjum innbyrðisdeilum. Viðtal við Denilson birtist í brasilsíkum netmiðlum þar sem Denilson sagði meðal annars að Fabregas væri enginn leiðtogi. 20.1.2011 18:00
FIFA: Ekki á dagskránni að halda HM 2022 í Katar um vetur Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, segir að það sé ekki á dagskrá á að færa til,heimsmeistarakeppnina í Katar 2022, þannig að hún verði spiluð um vetur. Alþjóðlegu leikmannasamtökin höfðu lagt þetta til þar sem hitinn er mikill í Katar yfir sumarið og margir úr knattspyrnuforustunni höfðu líka tekið vel í þessa hugmynd. 20.1.2011 16:15
Kenny Dalglish má eyða pening í nýja leikmenn Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, hitti eigendur félagsins í gær þar sem hann ræddi meðal annars leikmannamál félagsins. Dalglish fékk þar fullvissu sína um að hann fái pening til þess að kaupa leikmenn áður en félagsskiptaglugganum lokar. 20.1.2011 14:15
Jón Guðni vildi ekki fara til Grikklands - hafnaði AEK Framarinn Jón Guðni Fjóluson hefur hafnað tilboði frá gríska félaginu AEK Aþenu en Grikkirnir, sem eru með Arnar Grétarsson sem yfirmann knattspyrnumála, voru búnir að ná samkomulagi við Fram. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. 20.1.2011 13:45
Fer Konchesky aftur til Fulham? Paul Konchesky hefur ekki náð sér á strik með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni en Roy Hodgson keypti hann frá Fulham s.l. sumar fyrir um 750 milljónir kr. eða 4 milljónir punda. Í enskum fjölmiðlum er sagt frá því að forráðamenn Fulham hafi áhuga á að fá vinstri bakvörðinn að láni frá Liverpool út leiktíðina. 20.1.2011 11:30
Björn Bergmann samdi á ný við Lilleström Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson hefur samið við norska liðið Lilleström til þriggja ára en hinn 19 ára gamli framherji var samningsbundinn Lilleström fram til lok þessa árs. Björn hefur reynt fyrir sér hjá nokkrum liðum í Evrópu á undanförnum vikum en hann ákvað að semja á ný við Lilleström. 20.1.2011 10:45
Lampard meiddist á æfingu hjá Chelsea Frank Lampard leikmaður Chelsea meiddist á kálfa á æfingu liðsins í gær. Lampard, sem er 32 ára, hefur misst af fjórum mánuðum á þessu tímabili vegna meiðsla en ekki er vitað hvort meiðslin séu alvarleg að þessu sinni. 20.1.2011 10:30
Barcelona áfram í bikarnum þrátt fyrir tap Barcelona tapaði í kvöld sínum fyrsta leik í langan tíma er liðið mátti þola tap gegn Real Betis á útivelli, 3-1, í spænska konungsbikarnum. 19.1.2011 23:39
Arsenal sló Leeds út úr bikarnum á Elland Road Arsenal komst áfram í 4. umferð ensku bikarkeppninnar með 3-1 sigri á Leeds á Elland Road í kvöld. Þetta var endurtekinn leikur eftir að liðin gerðu 1-1 jafntefli á Emirates fyrir ellefu dögum. Arsenal mætir liði Huddersfield Town í næstu umferð. 19.1.2011 21:50
Messi: Myndi frekar hætta í fótbolta en að spila með Real Lionel Messi, Argentínumaðurinn í liði Barcelona og besti knattspyrnumaður heims síðustu tvö ár, segir að hann muni aldrei spila með erkifjendunum í Real Madrid. Hann ætlar því ekki að fylgja í fótspor þeirra Michael Laudrup og Luis Figo sem léku með báðum liðum á sínum ferli. 19.1.2011 18:00
Denilson: Fabregas er enginn leiðtogi Brasilíumaðurinn Denilson hjá Arsenal gefur ekki mikið fyrir leiðtogahæfileika Spánverjans Cesc Fabregas sem hefur verið fyrirliði liðsins undanfarin ár. Ummælum Denilson var slegið upp í The Sun í morgun. 19.1.2011 13:45
Fjögur félög búin að borga 9,9 milljarða fyrir Bent Darren Bent varð í gær dýrasti leikmaður Aston Villa í sögunni þegar félagið keypti hann á 24 milljónir punda frá Sunderland. Þetta er ekki í fyrsta sinn á ferlinum sem hinn 26 ára gamli Bent er keytpur fyrir stóra upphæð. 19.1.2011 12:45
Cantona orðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá New York Cosmos Eric Cantona, goðsögnin á Old Trafford, er kominn aftur í boltann því hann hefur tekið við stöðu yfirmann knattspyrnumála hjá bandaríska félaginu New York Cosmos. Cantona lagði á skónna á hilluna árið 1997 þáverandi Englandsmeistari með Manchester United. 19.1.2011 12:15
Willum Þór telur að Futsal geti bætt tæknifærni fótboltamanna á Íslandi Willum Þór Þórsson valdi í gær fimmtán leikmenn sem verða í fyrsta íslenska Futsal-landsliðinu sem tekur þátt í forkeppni EM. Mótherjar Íslands í riðlinum eru Grikkland, Lettland og Armenía og verður leikið á Ásvöllum 21. - 24. janúar. Hans Steinar Bjarnason íþróttafréttamaður Stöðvar 2 ræddi við Willum í gær. 19.1.2011 11:30
Fyrirliðinn yfirgefur Val Katrín Jónsdóttir fyrirliði íslands- og bikarmeistara Vals og íslenska landsliðsins hefur ákveðið að kveðja Val að sinni og ganga til liðs við sænska liðið Djurgården. Á vefsíðu Vals kemur fram að Katrín hyggi á framhaldsnám í læknisfræði í haust og þetta sé liður í þeim áformum. 19.1.2011 10:09
Eyjólfur samdi við SönderjyskE Eyjólfur Héðinsson samdi í gær við danska knattspyrnufélagið SönderjyskE til tveggja og hálfs árs, eða fram á sumarið 2013, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Eyjólfur er 26 ára gamall og hefur spilað í stöðu miðjumanns með GAIS í sænsku úrvalsdeildinni undanfarin fjögur ár. Samningur hans þar var útrunninnn og Eyjólfur hafnaði því að leika áfram með félaginu. Hjá SönderjyskE eru þegar Ólafur Ingi Skúlason og Arnar Darri Pétursson, markvörður 21 árs landsliðsins. 19.1.2011 10:02
Úrvalsdeildarliðin komust áfram í enska bikarnum Manchester City lagði Leicester 4-2 í síðari leik liðanna í 64-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld en liðin skildu jöfn í fyrri leiknum. Man City mætir Notts County í 32-liða úrslitum. Wolves vann Doncaster 5-0 og Stoke hafði betur gegn Cardiff eftir framlengingu 2-0. Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leikmannahóp Stoke. 18.1.2011 22:30