Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ashley Cole: Besta tímabilið mitt hjá Chelsea Ashley Cole, nýkrýndur bikarmeistari í fimmta sinn á ferlinum, segir tímabilið 2008-09 hafi verið það besta hjá sér í herbúðum Chelsea. Cole hefur spilað með Chelsea frá árinu 2006 þegar hann kom frá Arsenal en það hann tók hann tíma að yfirvinna erfið meiðsli sem fylgdu honum yfir á Stamford Bridge. 31.5.2009 21:00
Ancelotti er hættur með AC Milan og Leonardo tekur við Carlo Ancelotti og AC Milan hafa náð samkomulagi um að segja um samningi hans við liðið en Ancelotti átti eftir eitt ár af sínum samningi. Mestar líkur eru á því að Carlo Ancelotti taki við stjórastöðunni hjá Chelsea en Brasilíumaðurinn Leonardo mun taka við stöðu hans hjá AC Milan. 31.5.2009 20:18
Sölvi og Gunnar Heiðar skoruðu - SønderjyskE bjargaði sér SønderjyskE náði að halda sæti sínu í dönsku úrvalsdeildinni þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Esbjerg í lokaumferðinni í dag. SønderjyskE þurfti að fá eitt stig í leiknum til að bjargar sér frá falli. 31.5.2009 17:30
AC Milan komst beint í Meistaradeildina - Torino féll AC Milan tryggði sér þriðja sætið í ítölsku deildinni í dag og þar með öruggt sæti í Meistaradeildinni á næsta ári. Torinó varð hinsvegar að sætta sig við að falla úr deildinni. Svíinn Zlatan tryggði sér markakóngstitilinn með tveimur mörkum í 4-3 sigri Inter. 31.5.2009 16:15
Fyrsti deildarsigur Djurgården síðan í apríl - Guðbjörg komin á bekkinn Djurgården vann 2-0 sigur á Sunnanå í sænsku kvennadeildinni í dag en þetta var fyrsti deildarsigur liðsins í sex leikjum eða síðan 13. apríl. Djurgården komst með þessum sigri upp í miðja deild. 31.5.2009 15:45
Ballack býst við að Ancelotti taki við Chelsea - gerði nýjan samning Michael Ballack, þýski landsliðsfyrirliðinn, er búinn að gera nýjan eins árs samning við enska úrvalsdeildarliðið Chelsea. Hann býst við því að Carlo Ancelotti verði næsti stjórinn á Stamford Bridge. 31.5.2009 14:30
Eigandi Newcastle segist hafa tekið skelfilegar ákvarðanir og vill selja liðið Mike Ashley, eigandi Newcastle er búinn að gefast upp á því að reka klúbbinn og vill nú selja félagið eins og fljótt og mögulegt er. Newcastle fékk eins og kunnugt er í ensku b-deildina á dögunum. 31.5.2009 13:45
Sölvi Geir: Yrði stærra fyrir mig en að vinna sænska titilinn Sölvi Geir Ottesen og félagar í danska liðinu SønderjyskE berjast fyrir lífi sínu í lokaumferð dönsku úrvalsdeildarinnar í dag. SønderjyskE tekur þá á móti Gunnari Heiðari Þorvaldssyni og Kára Árnasyni í liði Esbjerg og verður að ná í stig. 31.5.2009 12:00
Eiður vill fara aftur til Englands Eiður Guðjohnsen gerir ráð fyrir því að hann muni leika aftur í ensku úrvalsdeildinni þegar hann yfirgefur Barcelona. 31.5.2009 11:37
Torres: Liverpool á að reyna að kaupa Villa og Silva frá Valencia Fernando Torres hefur lagt mikla áherslu við yfirboðara sína hjá Liverpool að félagið muni kaupa landa hans David Silva og David Villa frá spænska liðinu Valencia. 31.5.2009 11:00
Eitt af stærstu afrekum Hiddink að vinna í Mekka fótboltans Guus Hiddink, stjóri Chelsea, fékk góða kveðjugjöf frá lærisveinum sínum í Chelsea sem tryggðu sér enska bikarinn í gær í síðasta leiknum undir hans stjórn. Hiddink hrósaði sínum leikmönnum í hástert fyrir að hafa komið sterkir til baka eftir martraðarbyrjun. 31.5.2009 10:00
Jose Mourinho: Ég er orðinn ástfanginn af Inter-liðinu Jose Mourinho er greinilega mjög sáttur með lífið og tilveruna í Mílanó en Portúgalinn er nýbúinn að framlengja samning sinn við Internazionale til ársins 2012. Inter-leikur lokaleik tímabilsins í dag og verður mikil sigurveisla á San Siro vellinum enda varð liðið ítalskur meistari fjórða árið í röð. 31.5.2009 08:00
Luis Figo spilar sinn síðasta leik á ferlinum í dag Luis Figo spilar í dag sinn síðasta knattspyrnuleik á ferlinum þegar Inter Milan mætir Atalanta á heimavelli í lokaumferð ítölsku úrvalsdeildarinnar. Figo hefur unnið fjóra meistaratitla með Inter eftir að hann kom þangað árið 2005 frá Real Madrid. 31.5.2009 07:00
Luis Boa Morte er kominn í portúgalska landsliðið Luis Boa Morte, miðjumaður enska úrvalsdeildarliðsins West Ham, hefur óvænt verið valinn í portúgalska landsliðið en Portúgal mætir Albaníu í undankeppni HM um næstu helgi og Eistlandi í vináttulandsleik vikuna á eftir. 31.5.2009 06:00
Atletico Madrid tryggði sér Meistaradeildarsæti Atletico Madrid tryggði sér í kvöld Meistaradeildarsæti á næsta tímabili þegar liðið vann 3-0 sigur á Almeria á Vicente Calderon leikvanginum í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar. 30.5.2009 21:30
Bordeaux franskur meistari í fyrsta sinn í áratug Girondins Bordeaux tryggði sér í kvöld franska meistaratitilinn í knattspyrnu eftir 1-0 sigur á Caen í lokaumferð frönsku úrvalsdeildarinnar. Bordeaux og Marseille áttu möguleika á því að vinna titilinn fyrir lokaumferðina en meistarar síðustu sjö ára í Lyon enduðu í 3. sæti níu stigum á eftir nýkrýndum meisturum Bordeaux. 30.5.2009 21:18
Eto'o jafnaði á lokamínútunni - Eiður Smári lék allan leikinn Eiður Smári Guðjohnsen lék allan leikinn með Barcelona þegar liðið gerði 1-1 jafntefli á móti Deportivo La Coruña í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Þetta var annar deildarleikurinn í röð þar sem Eiður Smári spilar allar 90 mínúturnar. 30.5.2009 20:57
Werder Bremen vann þýska bikarinn í sjötta sinn Werder Bremen tryggði sér þýska bikarinn í sjötta sinn í sögu félagsins þegar liðið vann 1-0 sigur á Bayer Leverkusen í úrslitaleik í Berlín í kvöld. Werder Bremen vann þýska bikarinn síðast fyrir fimm árum. 30.5.2009 20:28
John Terry: Tvö ár milli titla er alltof langur tími John Terry, fyrirliði Chelsea, viðurkenndi eftir sigurinn á Everton í bikarúrslitaleiknum í dag, að það hafi verið léttir fyrir Chelsea-liðið að vinna aftur titil. 30.5.2009 19:15
Selfoss vann HK í Kópavogi og er við hlið Hauka á toppnum Selfyssingar komust upp að hlið Hauka á toppi 1. deildar karla eftir 2-1 sigur á HK á Kópavogsvellinum í dag. Liðin voru í tveimur efstu sætum deildarinnar fyrir leiki umferðarinnar en Haukar komust í toppsætið í gær með góðum sigri í Ólafsvík. 30.5.2009 19:00
Sannfærandi sigur og þriggja stiga forusta Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson léku allan leikinn í vörn IFK Göteborg sem náði þriggja stiga forustu í sænsku úrvalsdeildinni eftir 4-0 heimasigur á IF Brommapojkarna í dag. 30.5.2009 18:45
Ashley Cole fyrstur í yfir hundrað ár til að vinna fimm bikartitla Ashley Cole átti mjög góðan leik með Chelsea í úrslitaleik enska bikarsins á móti Everton í dag og var í lok hans kosinn besti maður vallarsins. Cole varð þarna enskur bikarmeistari í fimmta sinn og það gerist ekki á hverri öld enda voru 118 ár síðan að einhver afrekaði það síðast. 30.5.2009 17:45
Didier Drogba: Frábært að enda tímabilið svona Didier Drogba hélt uppi venju sinni að skora í öllum úrslitaleikjum fyrir Chelsea þegar hann jafnaði bikarúrslitaleikinn á móti Everton í dag en Frank Lampard tryggði Chelsea síðan 2-1 sigur í seinni hálfleik. Drogba hefur nú skorað í öllum fimm úrslitaleikjum sem hann hefur spilað á Englandi. 30.5.2009 17:03
David Moyes: Lampard skorar alltaf mikilvæg mörk David Moyes, stjóri Everton, þurfti að horfa upp á tap sinna manna í bikarúrslitaleiknum í dag þrátt fyrir að komast yfir eftir aðeins 25 sekúndur. 30.5.2009 16:42
Aron með þriðja fallegasta mark enska bikarsins í ár Aron Einar Gunnarsson skoraði þriðja fallegasta bikarmark ársins í Englandi í ár en þetta kom fram í lok beinnar útsendingar frá enska bikarúrslitaleiknum á Stöð 2 Sport í dag. Aron skoraði markið fyrir Coventry á móti Blackburn. 30.5.2009 16:28
Lampard: Stjórnuðum leiknum algjörlega eftir að við jöfnuðum Frank Lampard kórónaði frábært tímabil hjá sér með því að tryggja Chelsea enska bikarinn í annað skiptið á þremur árum. Lampard skoraði sigurmarkið á klassískan Lampard-hátt. 30.5.2009 16:10
Varamaðurinn var fljótur að skora - Rangers bikarmeistari Rangers tryggði sér skoska bikarinn í dag með því að vinna 1-0 sigur á Falkirk í úrslitaleiknum á Hampden Park. Varamaðurinn Nacho Novo skoraði eina mark leiksins á upphafsmínútu seinni hálfleiks. 30.5.2009 16:03
Örebro að blanda sér í toppbaráttuna - níunda tapið í röð hjá Kristianstad KIF Örebro DFF vann glæsilegan 2-0 útisigur á AIK í sænsku kvennadeildinni í dag og komst fyrir vikið upp í þriðja sæti deildarinnar við hlið Linköping sem er áfram í 2. sætinu á betri markatölu. 30.5.2009 15:56
Frank Lampard tryggði Chelsea enska bikarinn Frank Lampard tryggði Chelsea enska bikarinn með því að skora sigurmarkið í bikarúrslitaleiknum á Wembley í dag. Chelsea vann þar 2-1 sigur á Everton en Everton fengu hálfgerða forgjöf því þeir komust í 1-0 eftir aðeins 25 sekúndur. 30.5.2009 15:51
Jafnt í hálfleik á Wembley - Drogba jafnaði Það er kominn í hálfleikur í enska bikarúrslitaleiknum á Wembley og staðan er 1-1. Louis Saha kom Everton yfir eftir aðeins 25 sekúndur en Dider Drogba jafnaði leikinn á 21. mínútu. Chelsea er búið að vera mun meira með boltann og miklu líklegri til að skora fleiri mörk. 30.5.2009 14:54
Franck Ribery er ekki til sölu eftir allt saman Þýska liðið Bayern Munchen hefur ekki í hyggju að selja aðalstjörnu sína, franska landsliðsmanninn Franck Ribery, þrátt fyrir stöðugan orðróm um að hann væri á leiðinni til stórliða á Englandi eða á Spáni. 30.5.2009 14:30
Louis Saha kom Everton 1-0 yfir eftir aðeins 25 sekúndur Það var heldur betur rétt ákvörðun hjá David Moyes að setja Louis Saha í byrjunarliðið því Frakkinn þurfti bara 25 sekúndur til þess að koma Everton í 1-0 í bikaúrslitaleiknum á móti Chelsea á Wembley. 30.5.2009 14:00
Middlesbrough-álögin á Everton-liðinu í dag Everton-menn munu reyna að brjóta hefð síðustu fjögurra ára þegar þeir mæta Chelsea í enska bikarúrslitaleiknum á Wembley í dag. Það hefur nefnilega ekki reynst liðum vel í bikarúrslitaleiknum að hafa slegið Middlesbrough út úr bikarnum. 30.5.2009 13:30
Ballack á Chelsea-bekknum og Louis Saha í byrjunarliði Everton Guus Hiddink, stjóri Chelsea, hefur ákveðið að láta Þjóðverjann Michael Ballack byrja á bekknum í bikaúrslitaleiknum á Wembley í dag en Jon Mikel Obi er á miðjunni í hans stað. Louis Saha er í byrjunarliði Everton sem kemur einnig á óvart. Byrjunarliðin eru klár. 30.5.2009 13:08
Chelsea menn verða gulir á Wembley í dag Chelsea-liðið mun spila í gulum búningum á móti Everton í enska bikarúrslitaleiknum á Wembley í dag því Everton vann hlutkestið og fær að spila í sínum bláu aðalbúningum. 30.5.2009 13:00
Bikarinn allur beiglaður eftir fögnuðinn í fyrra Hermann Hreiðarsson og félagar í Portsmouth fögnuðu því vel og lengi þegar þeir unnu enska bikarinn í fyrra eftir 1-0 sigur á Cardiff í úrslitaleiknum. Bikarinn fékk aðeins að finna fyrir því í öllum látunum og er nýkominn úr allsherjar yfirhalningu. 30.5.2009 12:45
Franska liðið Lyon hefur mikinn áhuga á Eiði Smára Eiður Smári Guðjohnsen gæti verið á leiðinni til franska liðsins Lyon í sumar en spænska Sport-blaðið segir í dag að Lyon sé í viðræðum við Eið og Barcelona um að kaupa hann. Lyon missti af franska meistaratitlinum í vetur eftir að hafa unnið hann sjö ár í röð. 30.5.2009 12:15
Makelele: Terry sá til þess að Mourinho var rekinn Claude Makelele, fyrrum leikmaður Chelsea, segir að rifildi milli John Terry og Jose Mourinho hafi verið aðalástæðan fyrir því að portúgalski stjórinn var rekinn frá félaginu. Rifildið snérist um form fyrirliðans sem Mourinho var ekki sáttur með. 30.5.2009 11:45
Haukar sóttu þrjú stig í Ólafsvík og fóru á toppinn Haukar eru komnir í efsta sæti 1. deildar karla í fótbolta efir 4-1 sigur á Ólafsvíkur-Víkingum á Snæfellsnesi í kvöld. Haukar fóru upp fyrir HK og Selfoss sem mætast á morgun. 29.5.2009 22:03
Kínverjar náðu jafntefli gegn Þjóðverjum Kínverjar náðu 1-1 jafntefli á móti Þjóðverjum í vináttulandsleik í dag en nokkra lykilmenn vantaði þó í þýska liðið. Þetta var fyrsti leikur kínverska landsliðsins undir stjórn þjálfarans Gao Hongbo. 29.5.2009 21:45
Fylkiskonur unnu sögulegan sigur í Frostaskjóli og fóru á toppinn Fylkiskonur unnu 1-0 sigur á KR á KR-vellinum í kvöld og tryggðu sér með því toppsætið í Pepsi-deild kvenna þar sem að Stjarnan tapaði óvænt í Grindavík. 29.5.2009 21:19
Reykjavíkur-Víkingar unnu fyrsta sigurinn sinn í sumar Reykjavíkur-Víkingar unnu í kvöld sinn fyrsta leik sinn í 1. deild karla undir stjórn Leifs Garðarssonar sem tók við liðinu fyrir tímabilið. Víkingur hafði aðeins náði í eitt stig út úr fyrstu þremur leikjunum sínum en vann nú 2-1 sigur á Þór Akureyri í Víkinni. 29.5.2009 20:45
Magnús Þórisson dæmdi umdeilda vítaspyrnu sem tryggði Wales sigur Magnús Þórisson dæmdi í kvöld vináttulandsleik Wales og Eistlands en leikið var á Parc y Scarlets í Llanelli í Wales. Heimamenn unnu leikinn 1-0 og sigurmarkið kom úr vítaspyrnu. 29.5.2009 20:25
Balotelli: Cristiano Ronaldo mun biðja um mína treyju einn daginn Mario Balotelli hefur slegið í gegn með ítölsku meisturunum í Inter á þessu tímabili en þessi 18 ára framherji hefur skorað 11 mörk í 32 leikjum í ítölsku úrvalsdeildinni. Hann hefur bæði mikla trú á sjálfum sér og háleit markmið. 29.5.2009 20:15
Elfsborg tapaði stigum og komst ekki á toppinn Helgi Valur Daníelsson og félagar í IF Elfsborg náðu aðeins 1-1 jafntefli á móti BK Häcken í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld en liðið hefði komist á toppinn með sigri. 29.5.2009 19:15