Fleiri fréttir

Ajax sigraði PSV Eindhoven 1-0

Ajax bar sigurorð af PSV Eindhoven í árlegum úrslitaleik um ofurbikarinn í Hollandi þegar liðin áttust við í Amsterdam í gær. Leikurinn jafnast á við góðgerðarskjöldinn á Englandi og markar upphaf keppnistímabilsins þar í landi en um þennan titil keppa ávalt ríkjandi Hollandsmeistarar og bikarmeistarar.

Toulouse lagði Frakklandsmeistara Lyon

Toulouse sem mætir Liverpool í forkeppni Meistaradeildarinnar í vikunni, gerði sér lítið fyrir og lagði Frakklandsmeistara Lyon þegar liðin mættust í frönsku úrvalsdeildinni í gær.

Arsenal innbyrði sigur á síðustu mínútunum

Nú rétt í þessu var að ljúka leik Arsenal og Fulham og Emirates vellinum í Norður-London. Arsenal sigraði 2-1 með tveimur mörkum á síðustu sex mínútum leiksins. Áður hafði David Healy komið Fulham yfir eftir slæm mistök Jen Lehman í marki Arsenal. Mörk Arsenal skoruðu Robin Van Persie úr vítaspyrnu á 83. mínútu og Aleksander Hleb á 89. mínútu

Chelsea vann Birmingham naumlega

Chelsea vann nú rétt í þessu nauman sigur á nýliðum Birmingham. Forsell kom Birmingham yfir áður en Malouda og Pizzaro svöruðu fyrir Chelsea. Kapo jafnaði þá fyrir Birmingham áður en Essien tryggði sínum mönnum sigur með góðu marki á 49. mínútu. Lokatölur 3-2

Gerrard tryggði Liverpool sigur

Litlu munaði að Liverpool tapaði tveimur stigum á Villa Park í dag eftir að Gareth Barry breytti stöðu leiksins í 1-1 skömmu fyrir leikslok. Það hefðu orðið afar ósanngjörn úrslit þar sem Liverpool stjórnaði leiknum lengst af og var mun betra liðið. Aðdáendur þeirra önduðu þó léttar skömmu síðar þegar Steven Gerrard tryggði sínum mönnum sigur með stórkostlegu skoti beint úr aukaspyrnu. Lokatölur því 2-1. Liverpool leiðir í hálfleik með einu marki gegn engu í leik sinum við Aston Villa sem nú fer fram fer á Villa Park í Birmingham. Það var Daninn Martin Laursen sem var svo óheppinn að koma Liverpool yfir með sjálfsmarki á 31. mínútu. Markið kom eftir fyrirgjöf frá Dirk Kuyt en skömmu áður hafi Fernando Torres látið verja frá sér í dauðafæri.

Stjórarnir um úrslit dagsins:

Sjáðu hvað knattspyrnustjórnarnir hafa að segja um leiki dagsins. Jol, Moyes, Redknapp, Sven og Sammy Lee á Vísi. Smelltu á meira hér fyrir neðan og fáðu að vita hvað gekk upp og hvað fór úrskeiðis í leikjum dagsins.

Nwosu ekki meira með Fram í sumar

Knattspyrnumaðurinn Henry Nwosu sem gekk til liðs við Fram í Landsbankadeildinni um síðustu mánaðarmót, leikur ekki meira með liðinu í sumar. Nwosu meiddist illa í leik Fram og ÍA á fimmtudagskvöld og hefur komið í ljós að leikmaðurinn er með slitið krossband.

Hvetur Eið til að leita á önnur mið

Yfirmaður knattspyrnudeildar hjá Barcelona hvetur Eið Smára Guðjohnsen til að leita á önnur mið. Hann segir ákvörðun Eiðs um að vera áfram hjá félaginu, slæma ákvörðun.

Úrslit dagsins í Enska

Manchester City vann góðan 2-0 sigur á West Ham rétt í þessu. Rolando Bianchi kom Man City yfir eftir 17. mínútna leik. Markið kom eftir frábæran einleik hjá Elano Gomer sem sendi hann svo fyrir markið á Bianchi sem potaði honum inn af stuttu færi. Bæði Gomer og Bianchi eru að leika sinn fyrsta leik fyrir Man City. West Ham reyndu hvað þeir gátu að jafna en City sló smiðshöggið á leikinn þegar Geovanni skoraði gott mark tveim mínútum fyrir leikslok.

Hermann í byrjunarliðinu - Heiðar á bekknum

Hermann Hreiðarsson er í byrjunarliði Portsmouth sem nú leikur á móti Derby County. Það blæs ekki byrlega fyrir Hermann og félaga því Matt Oakley kom Derby yfir eftir fimm mínútna leik. Heiðar Helguson situr á bekknum hjá Bolton sem leikur nú gegn Newcastle.

Sunderland sigraði Tottenham

Nú er nýlokið leik Sunderland og Tottenham. Honum lauk með 1-0 sigri nýliðana í Sunderland. Það var Michael Chopra sem skoraði sigurmarkið þegar þrjár mínútur voru komnar yfir venjulegan leiktíma.

Spáð í spilin: Middlesbrough v Blackburn

Hér er á ferðinni afar forvitnilegur leikur. Bæði liðin voru að berjast um miðja deild í fyrra og eru staðráðinn í að endurtaka ekki þann leik. Þau vilja stefna hærra. Af þessum tveimur liðum segja spekingar að Blackburn séu líklegri að ná takmarki sínu. Þeir hafa styrkt sig töluvert á meðan Gareth Southgate virðist eiga í vandræðum með að fóta sig á leikmannamarkaðnum.

Spáð í spilin: Everton v Wigan

Sparkspekingar eru á einu máli um að hlutskipti þessara liði verði ansi ólíkt á tímabilinu. Wigan rétt náði að bjarga sér frá falli í fyrra á meðan Everton tryggði sér Evrópusæti. Wigan hefur ekki styrkt sig nægilega í sumar til að geta átt von á öðru en fallbaráttu í vetur en Everton menn eru til alls líklegir.

Spáð í spilin: Derby County v Portsmouth

Veðmangarar í Englandi eru allir á einu máli um að Derby County verði það lið sem fái fæst stig í ensku deildinni í vetur. Það er reyndar þannig að Derby lítur á þetta tímabil sem tækifæri til að leiðrétta afar slæma fjárhagsstöðu klúbssins og bindur ekki miklar vonir við að halda sér uppi.

Spáð í spilin: Bolton v Newcastle

Á Reebok Stadium mætast liðin hans Sam Allardyce. Þó hann sé hættur að þjálfa Bolton og tekin við Newcastle velkist ekki nokkur maður í vafa um hversu mikilla áhrifa Allardyce enn gætir hjá hans gamla liði.

Spáð í spilin: West Ham v Man City

Á Upton Park í dag mætast tvö lið sem ætla sér mun stærri hluti á þessu tímabili eftir erfitt tímabil í fyrra. West Ham bjargaði sér ekki frá falli fyrr en í síðasta leik í fyrra og Man. City skoraði ekki mark á heimavelli eftir jól. En nú eru nýjir tímar. Bæði liðin hafa eytt grimmt í nýja leikmenn og ætla að verða í efri hluta deildarinnar í ár.

Spáð í spilin: Sunderland v Tottenham

Fyrsti leikur tímabilsins er á milli þeirra liða sem hvað mesta eftirvæntingu hafa vakið. Tottenham er það lið sem talið er eiga mestu möguleikana á að brjótast sér leið að efstu fjórum sætunum sem að öllu jöfnu virðast vera frátekin fyrir United, Chelsea Liverpool og Arsenal. Sunderland er svo það lið af nýliðunum sem talið er eiga mestu möguleikanan á að halda sér í úrvalsdeildinni.

Nýtt blað um enska boltann

Í dag kom út nýtt eintak af íþróttablaðinu Sport sem fylgt hefur Fréttablaðinu mánaðarlega frá því í febrúar. Að þessu sinni er blaðið, sem er 24 síður, helgað enska boltanum.

Ecclestone tilbúinn að kaupa Arsenal

Formúlumógúllinn Bernie Eccelstone lýsir því yfir við The Times í dag að hann myndi kaupa Arsenal í dag ef það væri til sölu. Ecclestone hefur verið orðaður við yfirtöku en ljóst er að ekki verður af henni fyrr en í fyrsta lagi í apríl á næsta ári þar sem fimm stærstu hluthafar félagsins hafa komist að samkomulagi um að hreyfa ekki sinn hlut fyrr en þá. Ecclestone ásælist hlut fimmmenninganna enda vill hann ráða öllu þar sem er.

Dyer á leið til West Ham eftir allt

The Times heldur því fram að vef sínum að Kieron Dyer sé á leið til West Ham eftir allt en félagskipti hans til Íslendingaliðsins West Ham runnu út í sandinn í vikunni eftir að Newcastle hækkaði verðmiðann á honum um tvær milljónir punda á elleftu stundu. Útlit er fyrir að málamiðlun náist þar sem Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Newcastle, hefur lítil not af leikmanni sem vill komast burt af persónulegum ástæðum og er hataðaur af stuðningsmönnum liðsins.

W.B.A. kaupir Pele

West Bromwich Albion hefur keypt miðjumanninn Pele frá Southampton fyrir eina milljón punda. Pele skrifaði undir tveggja ára samning við félagið með möguleika á að bæta við þriðja árinu. Pele þótti standa sig mjög vel á sínu fyrsta ári hjá Southampton í fyrra.

Petit hefur áhyggjur af Arsenal

Emmanuel Petit, fyrrverandi miðjumaður franska landsliðsins og Arsenal, hefur áhyggjar af því lið Arsenal nái ekki meistaradeildarsæti á komandi leiktímabili. Hann segir að liðið sé búið að selja of marga leikmenn. Thierry Henry, Freddie Ljungberg og Jose Antonio Reyes hafa allir verið seldir á meðan stjórinn hefur aðeins keypt Eduardo da Silva og Bakari Sagna.

Taylor frá í mánuð

Varnarmaðurinn sterki hjá Birmingham, Matthew Taylor, mun missa af fyrsta mánuði tímabilsins vegna meiðsla. Taylor reif magavöðva í síðustu viku og mun gangast undir aðgerð á mánudaginn. Taylor spilaði stórt hlutverk fyrir Birmingham á síðasta tímabili þegar Birmingham vann sér inn sæti í ensku úrvalsdeildinni og hlaut að launum nýjan þriggja ára samning við félagið í apríl.

Wenger hefur trú á sínum mönnum

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er sannfærður um að lið hans hafi það sem þurfi til að berjast um efsta sætið í ensku úrvalsdeildinni sem hefst á morgun. „Við búum yfir miklum innri styrk. Ég hef það á tilfinningunni að við munum gera góða hluti, sama hvað aðrir segja,“ sagði Wenger.

Chelsea landar Alex

Chelsea hefur loksins náð að landa brasilíska varnarmanninum Alex frá PSV Eindhoven. Chelsea hefur lengi reynt að fá leikmanninn og eftir þrjú ár í Hollandi hefur hann loksins fengið atvinnuleyfi í Englandi. Alex hefur staðist læknisskoðun hjá félaginu og hefur skrifað undir þriggja ára samning.

Fjórir leikir í fyrstu deild karla í kvöld

Fjórir leikir fara fram í 15 umferð 1. deildar karla í kvöld. Þróttur R. fer norður og mætir KA, Fjölnir heimsækir Leiknir, Stjarnan tekur á móti ÍBV og Víkingur Ó. tekur á móti Grindavík. Leikirnir hefjast allir klukkan 19:00.

Allardyce ætlar að vinna sína gömlu lærisveina á morgun

Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Newcastle, segir að uppbygging liðsins muni taka tíma, en hann vill að liðið vinni fyrsta deildarleik sinn á morgun gegn Bolton. Allardyce kom einmitt til Newcastle í sumar frá Bolton, en þar hafði hann verið við stjórnvölinn í sjö og hálft ár.

Tevez málið frá A til Ö

Carlos Tevez hefur fengið treyjunúmerið 32 hjá sínu nýja liði Manchester United. Þar með er einum flóknustu félagaskiptum í sögunni lokið, í bili alla vega. Hér fyrir neðan getur þú nú lesið þér til um hvernig málið þróaðist, frá upphafi til enda.

Íslensku atvinnumennirnir blogga á Vísi

Nú geta lesendur Vísis fengið enn betri innsýn í lífið í enska boltanum. Nokkrir af bestu knattspyrnumönnum þjóðarinnar ætla nefnilega að planta sér fyrir framan lyklaborðið og leyfa lesendum að fylgjast með því hvernig lífið í atvinnumennskunni gengur fyrir sig.

Sevilla hefur hafnað tveimur tilboðum í Alves

Forráðamenn Sevilla segjast hafa hafnað tveimur tilboðum í bakvörðinn eftirsótta Daniel Alves. Ástæðuna segja þeir vera að þeir séu að bíða eftir ásættanlegu tilboði. Talið er að Chelsea standi á bakvið tilboðin sem hljómuðu upp á 21,7 milljónir punda og 23,7 milljónir punda, en Chelsea hefur verið sterklega orðað við leikmanninn.

Aston Villa fær Carson út tímabilið

Aston Villa hefur tryggt sér enska landsliðsmarkvörðinn Scott Carson frá Liverpool á lánssamningi út tímabilið. Þar með hafði Aston Villa betur en Manchester City sem hafði mikinn áhuga á að fá markvörðinn í sínar raðir.

Joey Barton: Ég er bara mannlegur

Joey Barton, miðjumaður Newcastle, viðurkennir að hann hafi gert mörg mistök á ferlinum en hann vill að fólk viti að hann er góður strákur. „Ég er enginn pörupiltur,“ sagði Barton. „Fólk sem þekkir mig, fólk sem ég virði, veit hvernig persóna ég er.“ Eins og fram hefur komið gæti Barton átt allt að fimm ára fangelsi yfir höfði sér fyrir að berja fyrrverandi liðsfélaga sinn á æfingu.

Lampard segir að Robben verði saknað

Frank Lampard segir að leikmenn Chelsea muni sakna Hollendingsins Arjan Robben þegar hann yfirgefur félagið til að leita á vit ævintýranna í Madríd. Spænskir fjölmiðlar hafa haldið því fram að Robben sé búinn að samþykkja að ganga til liðs við Real Madrid en það hefur ekki verið staðfest opinberlega ennþá.

Birmingham fær Djourou að láni frá Arsenal

Birmingham hefur tryggt sér hinn unga Johan Djourou á láni frá Arsenal. Þessi tvítugi leikmaður gerði samning við Birmingham fram að árámótum, en möguleiki er að framlengja samninginn að þeim tíma loknum.

Tevez er löglegur með United

Sky Sports greinir nú frá því að félagaskipti Carlos Tevez hafi loksins verið samþykkt af enska knattspyrnusambandinu. Hann er því löglegur með Manchester United gegn Reading um helgina.

Áskriftarsala á Sýn gengur frábærlega

“Staðan á áskriftarsölunni er betri en ég þorði að vona,” segir Hilmar Björnsson sjónvarpsstjóri Sýnar en enski boltinn byrjar að rúlla aftur á stöðinni um helgina eftir þriggja ára hlé. Hann segir mikinn fjölda búinn að tryggja sér áskrift þrátt fyrir að tímabilið sé enn ekki formlega hafið.

Rooney fetar í fótspor Eiðs Smára

Í nýrri auglýsingu sem nú er dreift á netinu bregður Wayne Rooney á leik með Dirty Sanchez genginu. Auglýsingin minnir um margt á atriði sem Eiður Smári tók upp í garðinum sínum með þeim Sveppa, Audda og Pétri.

Luque að yfirgefa Newcastle

Spánverjinn Albert Luque virðist staðráðinn í að enda árs langa martröð sína hjá Newcastle. Tvö lið vilja fá hann að láni út næsta tímabil. Luque var keyptur til Newcastle í fyrra á 9.5 milljónir punda frá Deportiva La Coruna en hann hefur átt í miklum erfiðleikum á Englandi og ekki fest sig í sessi hjá Newcastle.

Voronin valinn bestur á undirbúningstímabilinu

Andriy Voronin, Úkraínumaðurinn sem gekk til liðs við Liverpool í sumar frá Bayer Leverkusen, hefur verið valinn besti leikmaður Liverpool á undirbúningstímabilinu. Kosning fór fram á heimasíðu liðsins og vann Voronin með 68% greiddra atkvæða.

Heiðar gæti spilað á laugardag

Heiðar Helguson, sem í sumar gekk til liðs við Bolton, gæti leikið með sínum nýju félögum á laugardag þegar liðið tekur á móti Newcastle. Heiðar er óðum að jafna sig á smávægilegum meislum sem hann hlaut í æfingaleik gegn Colchester.

Lampard vill bíða með nýjan samning í ár

Enski landsliðsmaðurinn Frank Lampard vill bíða í eitt ár með að skrifa undir nýjan samning við Chelsea þar sem hann ætlar að einbeita sér að því að vinna ensku úrvalsdeildina með félaginu. Hann segir við breska götublaðið The Sun að það sé ástæða þess að samningaviðræður á milli hans og forráðamanna Chelsea hafi siglt í strand. Enginn ágreiningur sé um peninga líkt og haldið hefur verið fram.

Quinn fer ef Keane hættir

Niall Quinn, stjórnarformaður Sunderland, hefur lýst því yfir að hann standi 100% á bak við Roy Keane, knattspyrnustjóra liðsins. Hann hefur varað stuðningsmenn liðsins við því að ef Keane fari þá muni hann fylgja honum burt frá félaginu.

Beckham spilaði í gærkvöldi

David Beckham spilaði í gærkvöld fyrsta leik sinn í bandarísku MLS deildinni fyrir Los Angeles Galaxy. Beckham hefur átt við meiðsli að stríða á ökkla og hefur aðeins leikið fáeinar mínútur í vináttuleik við Chelsea síðan hann gekk til liðs við Galaxy.

Landsbankadeild kvenna: KR sigraði Fjölni

Einn leikur fór fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld. KR sigraði Fjölni á útivelli með fjórum mörkum gegn tveimur. Þar með helst áfram mikil spenna á toppi deildarinnar þar sem Valur og KR eru að stinga af, bæði lið með 28 stig eftir 10 leiki. Valsstúlkur eru þó með betri markatölu. Fjölnir er í sjötta sæti með 11 stig eftir níu leiki.

Eggert óánægður með vinnubrögð Newcastle

Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, hefur greint frá óánægju sinni með vinnubrögð Newcastle eftir að félagið hætti við að selja Kieron Dyer til West Ham á síðustu stundu nema kaupverðið yrði hækkað um tvær milljónir punda. Eggert segist furðu lostinn yfir því að Newcastle hafi hækkað verðið á síðustu stundu.

Sjá næstu 50 fréttir