Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Alan Smith í byrjunarliði Man Utd Leikur Manchester United og Roma hefst klukkan 18:45 og verður sýndur beint á Sýn. Búið er að tilkynna byrjunarliðin og þar vekur athygli að Alan Smith er í framlínu United og Darren Fletcher leysir Paul Scholes af hólmi á miðjunni. 10.4.2007 17:51
Hermann meiddist í jafntefli Charlton og Reading Íslendingaliðin Charlton og Reading gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem landsliðsmaðurinn Hermann Hreiðarsson þurfti að yfirgefa völlinn í fyrri hálfleik vegna meiðsla. Hermann haltraði af velli og virtist þjáður, en ekki er vitað hversu alvarleg meiðsli hans eru. 9.4.2007 21:45
Wenger sáttur en Roeder brjálaður Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er sannfærður um að lærisveinar sínir nái hinu dýrmæta fjórða sæti úrvalsdeildarinnar, sem gefur sæti í Meistaradeildinni, þrátt fyrir að liðið hafi ekki náð að sigra í síðustu fjórum deildarleikjum sínum. Glen Roeder, stjóri Newcastle, var æfur út í dómara leiksins fyrir að loka augunum fyrir því sem hann taldi augljósa vítaspyrnu. 9.4.2007 19:52
Liverpool mun sækja til sigurs Liverpool mun alls ekki vanmeta PSV og mun liðið sækja til sigurs í síðari viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudag, að því er knattspyrnustjórinn Rafael Benitez heldur fram. Liverpool hefur 3-0 forystu frá því í fyrri leiknum en Benitez minnir á slíkt forskot sé vel hægt að missa og bendir á úrslitaleik Liverpool og AC Milan fyrir tveimur árum. 9.4.2007 19:45
Hermann og Ívar byrja - Brynjar á bekknum Hermann Hreiðarsson er í byrjunarliði Charlton og Ívar Ingimarsson er á sínum stað í miðri vörn Reading en liðin eigast nú við í kvöldleik ensku úrvalsdeildarinnar. Brynjar Björn Gunnarsson þarf hins vegar að sætta sig við að sitja á varamannabekk Reading þrátt fyrir að hafa skorað og staðið sig vel gegn Liverpool á laugardaginn. 9.4.2007 19:21
Slagæð skarst og blóðið spýttist út James Vaughan, hinn ungi framherji Everton, varð fyrir því óláni að rífa slagæð í vinstri fæti í leiknum við Bolton í dag eftir tæklingu frá Abdoulaye Meite. Atvikið leit afar illa út enda spýttist blóðið hreinlega úr fæti leikmannsins í fyrstu. Hann var borinn af velli en verður þó ekki lengi frá, að því er stjórinn David Moyes segir. 9.4.2007 19:19
Valencia óttast Drogba og Shevchenko Varnarmaðurinn Emiliano Moretti hjá Valencia segir að framherjar Chelsea, þeir Andriy Shevchenko og Didier Drogba, séu þeir sem geta komið í veg fyrir að spænska liðið fari í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu. Moretti segir að leikmenn Valencia hafa góðar gætur á þeim félögum ef ekki á illa að fara í síðari leik liðanna á morgun. 9.4.2007 18:00
Vieira saknar Englands Patrick Vieira, hinn franski miðjumaður Inter á Ítalíu, hefur viðurkennt að hann sakni ensku úrvalsdeildarinnar. Fyrst og fremst er það ástríða stuðningsmanna ensku liðanna sem hann sér eftir, en Vieira segir hana ekki vera til staðar á Ítalíu. Vieira hefur þrívegis mætt á Emirates-leikvanginn og fylgst með sínum gömlu félögum. 9.4.2007 17:00
Newcastle og Arsenal skildu jöfn Arsenal náði aðeins jafntefli gegn Newcastle í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni og er nú búið að hleypa Bolton óþarflega nálægt sér í baráttunni um fjórða sæti deildarinnar, það síðasta sem gefur sæti í Meistaradeild Evrópu. Arsenal til happs náði Bolton sömuleiðis aðeins jafntefli gegn Everton í dag, en einu stigi munar á milli liðanna. 9.4.2007 15:47
Bjartsýni ríkir í herbúðum Real Madrid Leikmenn og forráðamenn Real Madrid segja að sjálfstraustið í herbúðum liðsins sé afar gott um þessar mundir og að menn hafi fulla trú á því að liðið geti komið í veg fyrir að Barcelona vinni spænska meistaratitilinn þriðja árið í röð. Sóknarmaðurinn Robinho og Ramon Calderon, forseti félagsins, eru mjög bjartsýnir. 9.4.2007 15:00
Heiðar byrjar hjá Fulham Heiðar Helguson er í byrjunarliði Fulham sem tekur á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Heiðar er í fremstu víglínu liðsins ásamt Bandaríkjamanninum Brian McBride. 9.4.2007 14:06
Zamora spilar sárþjáður Alan Curbishley hjá West Ham segir að leikmenn sínir séu að fórna sér fyrir félagið á þessum lokaspretti ensku úrvalsdeildarinnar. Margir þeirra séu sárþjáðir af meiðslum og þurfi á stífri meðferð að halda fyrir hvern leik en allir vilji þeir leggja sitt af mörkum til að bjarga liðinu frá falli. Curbishley nafngreindi Bobby Zamora sérstaklega í þessu samhengi. 9.4.2007 14:00
Watford lagði Portsmouth af velli Botnlið Watford lagði Portsmouth af velli, 4-2, í fjörugum markaleik á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Portsmouth komst yfir í upphafi leiksins en Watford sýndi mikinn karakter og svaraði með fjórum mörkum. 9.4.2007 13:53
Berger heillaði O´Neill upp úr skónum Martin O´Neill, stjóri Aston Villa, hefur viðurkennt að frammistaða Tékkans Patrik Berger í viðureign liðsins gegn Blackburn á laugardag hafi heillað hann upp úr skónum. Framtíð Berger hjá Villa hefur verið í mikilli óvissu en það má með sanni segja að hann hafi nýtt tækifærið sem hann fékk í byrjunarliðinu um helgina til fullustu. 9.4.2007 13:00
Mourinho: Pressan er á Man. Utd. Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur aðvarað kollega sinn hjá Manchester United, Sir Alex Ferguson, með því að segja að nú sé pressan öll á þeim rauðklæddu. Segja má að Mourinho sé formlega búinn að hefja sálfræðistríðið sem verður væntanlega í gangi næstu vikurnar. 9.4.2007 11:58
Leikurinn gegn Chelsea skiptir miklu máli Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að það geti vel farið svo að leikur sinna manna gegn Chelsea á Stamford Bridge í byrjun maí geti farið langt með að ráða úrslitum ensku úrvalsdeildinnar í ár. Aðeins þremur stigum munar á liðunum í dag en Man. Utd. hefur mun betri markatölu, sem getur skipt miklu máli þegar uppi er staðið. 9.4.2007 11:51
Maradona er alkohólisti Goðsögnin Diego Armando Maradona er alkohólisti og þarf á stífri meðferð að halda. Þetta segir yfirlæknir sjúkrahússins sem fyrrum argentínski landsliðsfyrirliðinn hefur dvalið á síðustu 10 daga. Maradona mun líklega útskrifast af sjúkrahúsinu í vikunni eftir að hafa verið lagður inn vegna óhóflegrar áfengisdrykkju. 8.4.2007 21:19
Tevez vill gera allt fyrir stuðningsmennina Argentínski framherjinn Carlos Tevez hefur gefið sterklega í skyn að hann vilji vera áfram í herbúðum West Ham á næsta tímabili. Tevez segir stuðningsmenn West Ham vera engum líkir og að þeirra vegna vilji hann vera hjá félaginu í mörg ár til viðbótar. 8.4.2007 21:03
Allt í járnum í spænsku úrvalsdeildinni Mikil spenna er hlaupin í spænsku úrvalsdeildina í knattspyrnu eftir að Real Madrid sigraði Osasuna í kvöld á sama tíma og Sevilla náði aðeins markalausu jafntefli gegn Racing Santander á heimavelli sínum. Barcelona er því enn á toppnum, með eins stigs forskot á Sevilla, en á tvö stig á Real Madrid. 8.4.2007 20:38
Ferguson: Chelsea mun misstíga sig Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur litlar áhyggjur af minnkandi forskoti sinna manna á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, en eftir tap liðsins gegn Portsmouth í gær munar aðeins þremur stigum á Man. Utd. og Chelsea. Ferguson býst fastlega við því að Chelsea eigi eftir að tapa stigum í þeim leikjum sem eftir eru. 8.4.2007 16:15
Beckham segir Ronaldo að vera áfram hjá Man. Utd. David Beckham hefur ráðlagt portúgalska vængmanninum Cristiano Ronaldo að fara ekki frá Manchester United þar sem hann sé með knattspyrnustjóra þar sem kann best allra að höndla leikmenn sem hafa lent í mótlæti, líkt og því sem Ronaldo varð fyrir eftir leik Englands og Portúgals á HM í sumar. 8.4.2007 14:45
Eiður kom inn á í tapleik Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen lék síðustu 25 mínúturnar fyrir Barcelona sem tapaði fyrir Real Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Zaragoza vann 1-0 en það var argentínski framherjinn Diego Milito sem skoraði eina mark leiksins. Barcelona er áfram með tveggja stiga forystu á Sevilla á toppi deildarinnar en síðarnefnda liðið á leik til góða. 7.4.2007 19:48
Neill: Eggert seldi mér hugsjón sína Lucas Neill, hinn ástralski varnarmaður West Ham, segir að ef hugsjón og áætlanir Eggert Magnússonar með West Ham gangi eftir muni ekki líða á löngu þar til stórliðin fjögur í Englandi munu fá einn keppinaut til viðbótar – West Ham. 7.4.2007 19:45
Man. Utd. tapaði óvænt fyrir Portsmouth Manchester United mistókst nú síðdegis að auka forystu sína á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í sex stig á ný en þá tapaði liðið óvænt fyrir Portsmouth á útivelli, 2-1. Aðeins þremur stigum munar nú á Man. Utd. og Chelsea og bendir margt til þess að um hálfgerðan úrslitaleik um titilinn verði að ræða þegar liðin mætast innbyrðis í næsta mánuði. 7.4.2007 19:31
Benitez hafði litla trú á Finnan í fyrstu Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur viðurkennt að hann hafði stórar efasemdir um að írski bakvörðurinn Steve Finnan væri nægilega góður fyrir Liverpool þegar hann tók við liðinu fyrir tæpum þremur árum. Benitez segir Finnan hafa sýnt gríðarlegar framfarir síðan þá og telur hann nú lykilmann í sínu liði. 7.4.2007 19:15
Wenger: Þetta er ótrúlegt Arsene Wenger, stjóri Arsenal, átti bágt með að skilja hvernig lærisveinar hans fóru að því að tapa á móti West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag eftir að hafa haft fádæma yfirburði nánast allan leikinn. Wenger segir úrslitin “ótrúleg” en Alan Curbishley, stjóri Charlton, hrósaði varnarleik sinna manna í hástert. 7.4.2007 17:28
Trezeguet vill vera áfram hjá Juve Franski framherjinn David Trezeguet hefur lýst yfir ánægju sinni í herbúðum Juventus á Ítalíu og vill helst af öllu vera áfram hjá liðinu á næsta tímabili. Trezeguet hefur þannig skipt um skoðun frá því í haust, en eftir að Juve var dæmt til að spila í B-deildinni á Ítalíu í ár vildi sá franski ólmur fara burt frá félaginu. 7.4.2007 17:00
Theódór Elmar kom ekkert við sögu Theódór Elmar Bjarnason, unglingalandsliðsmaður í knattspyrnu, sat á varamannabekknum hjá Celtic allan leiktímann og kom ekkert við sögu þegar liðið sigraði Motherwell í skosku úrvalsdeildinni í dag. 7.4.2007 16:45
West Ham lagði Arsenal á útivelli Íslendingaliðið West Ham vann frækinn og jafnframt gríðarlega mikilvægan útisigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag og er liðið nú aðeins tveimur stigum frá því að komast úr fallsæti. Brynjar Björn Gunnarsson skoraði mark Reading í 2-1 tapi liðsins gegn Liverpool en hann og Ívar Ingimarsson léku báðir allan leikinn fyrir lið sitt í dag. 7.4.2007 15:56
Mourinho ánægður með sigurgöngu Chelsea Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, er afar ánægður með hvernig lærisveinar sínir eru að spila um þessar mundir en með sigrinum á Tottenham í dag heldur liðið áfram að pressa á Man. Utd. í toppbaráttu úrvalsdeildarinnar. Mourinho segir Man. Utd. heppið að hafa sleppt við heimsókn til Stamford Bridge um næstu helgi. 7.4.2007 14:49
Ferguson: Örlögin eru í okkar höndum Alex Ferguson var á heimspekilegu nótunum á blaðamannafundi fyrir leik Man. Utd. og Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni í dag og sagði að örlög liðsins í ár væru í höndum síns og leikmanna liðsins. Ferguson fullyrðir að ef leikmenn náði að forðast það að fara á taugum á lokasprettinum sé meistaratitilinn þeirra. 7.4.2007 14:30
Munurinn kominn niður í þrjú stig Aðeins þremur stigum munar á Man. Utd. og Chelsea í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, en síðarnefnda liðið bar sigurorð af grönnum sínum og erkifjendum í Tottenham í dag, 1-0. Það var portúgalski varnarmaðurinn Richardo Carvalho sem skoraði sigurmarkið í síðari hálfleik. Man. Utd. á leik til góða gegn Portsmouth síðar í dag. 7.4.2007 13:33
Curbishley vill halda Tevez Knattspyrnustjóri West Ham, Alan Curbishley, hefur greint frá því að hann vilji halda argentínska sóknarmanninum Carlos Tevez í herbúðum liðsins á næsta ári, jafnvel þó að West Ham falli úr úrvalsdeildinni. Eftir erfiða byrjun hefur Tevez verið að spila mjög vel í síðustu leikjum liðsins. 7.4.2007 13:00
Ribery má fara frá Marseille Franski landsliðsmaðurinn Franck Ribery hefur greint frá því að hann hafi náð samkomulagi við stjórnarformann Marseille um að hann megi yfirgefa liðið í sumar. Talið er að fjölmörg lið munu beina sjónum sínum að Ribery í ljósi þessara yfirlýsinga leikmannsins, til dæmis Arsenal, Manchester United, Bayern Munchen og Real Madrid. 7.4.2007 12:00
Everton valtaði yfir Fulham Everton lögðu Fulham sannfærandi á Goodison Park í seinni leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni, 4-1. Carlos Bocanegra kom Fulham yfir snemma leiks en það varð ekki til annars en að kveikja duglega í Evertonmönnum sem settu þrjú mörk áður en hálfleikurinn var úti. Það voru Lee Carsley, Alan Stubbs og James Vaughan sem skoruðu mörkin. 6.4.2007 20:29
Charlton ekki lengur í fallsæti Charlton lyftu sér úr fallsæti með markalausu jafntefli gegn Manchester City í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Það var fátt um fína drætti í leiknum sem einkenndist af varnarleik á báða bóga. Hermann Hreiðarsson lék allan tímann í vörn Charlton. Charlton eru fyrir vikið með jafn mörg stig og Sheffield United og sama markamun en hafa skorað meira og eru því í sautjánda sæti en Sheffield í því átjánda. 6.4.2007 18:35
Terry segir að Chelsea geti enn unnið titilinn John Terry, fyrirliði Englandsmeistara Chelsea er sannfærður um að liðið eigi enn möguleika á að ná Manchester United og standa uppi sem Englandsmeistarar þriðja árið í röð. Chelsea er sem stendur sex stigum á eftir Manchester. Chelsesa mætir Tottenham á morgun en Tottenham hafa verið á mikilli siglingu undanfarið. 6.4.2007 10:07
Enskir stuðningsmenn enn til vandræða Enskir stuðningsmenn komust annan daginn í röð í fréttirnar fyrir ólæti sín á erlendri grundu í kvöld þegar fylgismenn Tottenham flugust á við óeirðalögreglu í Sevilla. Til harðra átaka kom á áhorfendabekkjunum á meðan leik stóð, en þeir höfðu reyndir verið með ólæti fyrir utan leikvöllinn nokkru áður en leikurinn hófst. 5.4.2007 20:51
Tottenham lá í Sevilla Tottenham tapaði 2-1 fyrir Sevilla í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Robbie Keane kom enska liðinu yfir eftir rúma mínútu, en fyrrum leikmaður Tottenham, Freddie Kanoute, jafnaði skömmu síðar. Alexander Kerzhakov skoraði sigurmark spænska liðsins eftir 36 mínútur. 5.4.2007 20:45
Grétar Rafn verður í banni í Þýskalandi Landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson verður í leikbanni í síðari leik AZ Alkmaar og Werder Bremen í Evrópukeppni félagsliða. Grétar fékk að líta gula spjaldið á 75. mínútu leiks í kvöld og fer því í bann vegna gulra spjalda. Staðan í leiknum er enn jöfn 0-0 en leikurinn hefur verið mjög skemmtilegur engu að síður. 5.4.2007 20:18
Sevilla yfir í hálfleik Sevilla hefur yfir 2-1 gegn Tottenham á heimavelli þegar flautað hefur verið til hálfleiks í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Robbie Keane kom gestunum yfir á 2. mínútu en fyrrum leikmaður Tottenham Freddie Kanoute jafnaði skömmu síðar. Það var svo Alexander Kerzhakov sem kom heimamönnum yfir á 36. mínútu. Leikurinn er sýndur beint á Sýn Extra og á VefTV hér á Vísi. 5.4.2007 19:31
Reyes fór úr axlarlið Spænski landsliðsmaðurinn Jose Antonio Reyes hjá Real Madrid fór úr axlarlið á æfingu liðsins í dag og því verður ekkert af endurkomu hans í liðið í bráð. Reyes hafði verið meiddur á hné og átti að snúa aftur í hóp liðsins um næstu helgi. Hann er lánsmaður frá enska liðinu Arsenal. 5.4.2007 18:23
Tottenham getur jafnað met í kvöld Fyrri leikirnir í fjórðungsúrslitum Evrópukeppni félagsliða fara fram í kvöld. Leikur Sevilla og Tottenham verður sýndur beint á Sýn Extra og þar getur enska liðið jafnað met Parma og Gladbach með níunda sigri sínum í röð í keppninni. Útsending frá leiknum hefst klukkan 18:30. 5.4.2007 14:31
United fordæmir ofbeldi rómversku lögreglunnar Forráðamenn knattspyrnufélagsins Manchester United hafa fordæmt vinnubrögð lögreglu á leik Roma og Manchester United í gærkvöldi og saka lögleglumenn á leikvanginum um að bregðast og hart við ólátum stuðningsmanna og beita þá ofbelti. Ellefu stuðningsmenn enska liðsins slösuðust í átökunum og þar af þurftu tveir að liggja á sjúkrahúsi í nótt. 5.4.2007 13:43
Scholes fær eins leiks bann Miðjumaðurinn Paul Scholes hjá Manchester United þarf að taka út eins leiks bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk að líta í leiknum gegn Roma í gær. Hann var þegar kominn í eins leiks bann vegna gulra spjalda þegar hann fékk fyrri áminninguna í gær, en hann verður enn einu gulu spjaldi frá banni þegar hann snýr til baka úr banninu eftir síðari leikinn við Roma. 5.4.2007 13:27