Fleiri fréttir Chesterfield - West Ham í beinni Nokkrir leikir fara fram í enska deildarbikarnum í kvöld og verður sjónvarpsstöðin Sýn með beina útsendingu frá leik Chesterfield og West Ham klukkan 18:30. West Ham hefur gengið afleitlega í síðustu leikjum og því er ekki laust við að öll augu beinist að Alan Pardew og félögum í kvöld. 24.10.2006 15:45 United að kaupa ungan Portúgala Heimildir Sky sjónvarpsstöðvarinnar herma að Manchester United sé við það að ganga frá kaupum á 15 ára gömlum portúgölskum sóknarmanni, Evandro Brandao hjá Walsall. Brandao þessi hefur búið á Englandi í níu ár og því er haldið fram að hann hafi þegar skrifað undir tveggja ára samning við úrvalsdeildarfélagið. 24.10.2006 15:15 Wright-Phillips orðaður við Atletico Madrid Talsmaður spænska stórliðsins Atletico Madrid segir ekkert til í þeim orðrómi að félagið ætli að bjóða í enska kantmanninn Shaun Wright-Phillips þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar, en félagið er nú að leita að manni í stað þeirra Maxi Rodriguez og Martin Petrov sem báðir verða lengi frá vegna meiðsla. 24.10.2006 14:47 Mascherano þykir Defoe sleppa vel Argentínski miðjumaðurinn Javier Mascherano hjá West Ham er mjög ósáttur við að Jermain Defoe skuli ekki hafa fengið harðari refsingu en gult spjald fyrir á bíta sig í leik grannaliðanna á sunnudag. 24.10.2006 14:14 Porato til reynslu hjá Chelsea Ensku meistararnir Chelsea eru nú með markvörðinn Stephane Porato til reynslu en ef hann stendur sig vel fær hann það hlutverk að leysa Petr Cech af hólmi. Þar eð félagaskiptaglugginn er lokaður, getur Chelsea ekki keypt samningsbundinn leikmann en Porato þessi er með lausa samninga. 24.10.2006 14:07 ÍR fer upp Áfrýjunardómstóll KSÍ komst í dag að niðurstöðu í leiðindamáli Þórs/KA og ÍR í 1. deild kvenna og var niðurstaðan sú að ÍR leikur í Landsbankadeild kvenna að ári en ekki Þór/KA. ÍR vann sér sæti í deildinni með sigri á norðanliðnu í umspili, en ÍR tefldi fram ólöglegum leikmanni og kærði Þór/KA það til KSÍ. Það var hinsvegar knattspyrnusambandið sem gaf grænt ljós á að leikmaðurinn spilaði og því standa úrslitin og ÍR fer upp um deild. 24.10.2006 14:00 Hannes Þór til Framara Hannes Þór Halldórsson gekk í gær frá tveggja ára samningi við Fram. Hannes Þór er markvörður sem lék með Stjörnunni í sumar en hann rifti á dögunum samningi sínum við Garðabæjarfélagið og var því frjálst að ræða við þau félög sem honum sýndist. 24.10.2006 09:00 Mega ekki ræða við Wise Enska knattspyrnufélagið Leeds United á sér marga aðdáendur á Íslandi en það hefur verið framkvæmdastjóra laust frá því í september. Leeds fékk á dögunum samþykki frá Swindon til að ræða við Dennis Wise, framkvæmdastjóra Swindon, um hugsanlega ráðningu hans til félagsins en í gær dró Swindon það samþykki til baka og hefur meinað Leeds að ræða við Wise. 24.10.2006 08:45 Benitez svarar fyrir sig Rafa Benitez, framkvæmdastjóri Liverpool, hefur verið harðlega gagnrýndur uppá síðkastið vegna gegni liðsins í deildinni heima fyrir, en Liverpool er sem stendur í ellefta sæti deildarinnar og hefur tapað fjórum af fyrstu níu leikjum tímabilsins. Benitez hefur einnig verið gagnrýndur fyrir að láta fyrirliða liðsins, Steven Gerrard, spila í stöðu hægri kantmanns en Benitez hefur nú varið þá ákvörðun sína. 24.10.2006 07:30 Eiður Smári fær slæma dóma Spænsku blöðin eru ekki hrifin af leik Barcelona gegn Real Madrid á sunnudaginn og Eiður Smári Guðjohnsen fær ekki góða dóma fyrir sína frammistöðu í leiknum. Talað er um að Barcelona sakni mjög Samuel Eto‘o og að Eiður sé ekki að standa undir þeim kröfum sem til hans eru gerðar. 24.10.2006 07:00 Jörundur kominn til Blika og Ásthildur á leiðinni? Jörundur Áki Sveinsson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Breiðablik um að þjálfa kvennalið félagsins. Skýrist eftir næstu helgi hvort Ásthildur Helgadóttir komi heim og spili fyrir Breiðablik. 24.10.2006 06:45 Beit Javier Mascherano 24.10.2006 06:30 Knattspyrnukappinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson: Skagamaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson fékk í gær samningstilboð frá sænska félaginu Norrköping en ÍA og Norrköping höfðu áður komist að samkomulagi um greiðslu og því er það undir Hafþóri komið hvort hann taki tilboðinu og fari utan eða spili áfram á Íslandi. 24.10.2006 06:15 Vill notast við tæknina 23.10.2006 15:15 Rosenborg með níu fingur á titlinum 23.10.2006 14:00 Real Madrid sigraði í risaslagnum Real Madrid hrósaði í gær 2-0 sigri á Barcelona í einum af stórleikjum tímabilsins í Evrópufótboltanum. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona en náði ekki að koma í veg fyrir sigur heimamanna. 23.10.2006 13:00 Liverpool yfirspilað á Old Trafford Manchester United endurheimti toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar í gær með því að verðskulduðum sigri, 2-0, á Liverpool. Paul Scholes og Rio Ferdinand skoruðu hvor í sínum hálfleik. 23.10.2006 12:45 Arsenal á sigurbraut Arsenal heldur áfram að elta efstu lið deildarinnar en í gær vannst fyrirhafnarlítill sigur á nýliðum Reading 4-0 á útivelli. „Við byrjuðum vel, spiluðum vel og tækni okkar gerði gæfumuninn. Við stjórnuðum þessum leik algjörlega. Einbeitingin hvarf síðustu tuttugu mínúturnar en á heildina litið er ég ánægður. 23.10.2006 10:30 Klára ferilinn á Íslandi og sest þar að 23.10.2006 10:00 Óskabyrjun Margrétar 23.10.2006 09:30 Matthías kominn heim 23.10.2006 09:00 Tilboð væntanlegt í dag 23.10.2006 00:01 Gerrard er óðum að ná sér á strik Rafa Benitez hefur látið í veðri vaka að leikurinn gegn Manchester United á Old Trafford á sunnudaginn muni marka nýtt upphaf fyrir Steven Gerrard, sem ekki hefur náð sér alveg á strik á leiktíðinni og hefur til að mynda enn ekki skorað mark í úrvalsdeildinni. 20.10.2006 21:15 Frá keppni í þrjár vikur í viðbót Sænski landsliðsmaðurinn Freddie Ljungberg hjá Arsenal getur væntanlega ekki spilað með liði sínu í að minnsta kosti þrjár vikur í viðbót eftir að kálfameiðsli hans reyndust alvarlegri en talið var í fyrstu. Talið er að það komi í hlut Alexander Hleb eða unglingsins Theo Walcott að leysa hann af hólmi gegn Reading á sunnudaginn. 20.10.2006 20:30 Vill ekki hugsa um að slá met Martin O´Neill segist ekki vera með hugann við metabækurnar þegar lið hans fær Fulham í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni á morgun, en Aston Villa er eina taplausa liðið í deildinni eftir átta leiki og er nú aðeins fjórum leikjum frá því að jafna félagsmet. 20.10.2006 19:30 Setur stefnuna á 90 stig Alex Ferguson hefur sett stefnuna á að ná í 90 stig í ensku úrvalsdeildinni í vetur og segir þann mikla stigafjölda líklega vera nauðsynlegan til að vinna deildina. Manchester United hefur ekki unnið titilinn í þrjú ár, en Ferguson og félagar setja stefnuna hátt í ár. 20.10.2006 18:30 Hargreaves byrjaður í endurhæfingu Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen er nú byrjaður í endurhæfingu eftir að hafa fótbrotnað í síðasta mánuði. Hargreaves er 25 ára gamall og er nú laus við plastspelku af fætinum, sem þýðir að hann er farinn að ganga um eðlilega. Vonir standa til um að hann geti farið að spila í lok næsta mánaðar. 20.10.2006 17:15 Cisse byrjaður að æfa á ný Franski landsliðsmaðurinn Djibril Cisse mætti á sína fyrstu æfingu hjá liði Marseille í Frakklandi í dag, þar sem hann er sem lánsmaður frá Liverpool. Cisse hefur ekkert geta æft með liðinu síðan hann fótbrotnaði upphitunarleik Frakka gegn Kínverjum í byrjun júní. 20.10.2006 16:15 Arnar og Bjarki semja við FH Tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir gerðu í dag eins árs samning við Íslandsmeistara FH í knattspyrnu. Bræðurnir eru 33 ára gamlir og léku sem kunnugt er með uppeldisfélagi sínu ÍA á síðustu leiktíð, þar sem þeir gegndu einnig þjálfarastarfi. 20.10.2006 16:02 Atli og Óskar til KR Eins og fyrst kom fram í Fréttablaðinu í morgun var haldinn blaðamannafundur hjá KR í dag þar sem tilkynnt var að félagið hefði gert þriggja ára samning við þá Atla Jóhannsson frá ÍBV og Óskar Örn Hauksson frá Grindavík. Þessir ungu leikmenn eiga vafalítið eftir að styrkja vesturbæjarliðið verulega fyrir átökin næsta sumar, enda voru þeir tveir eftirsóttustu leikmennirnir á markaðnum í haust. 20.10.2006 15:49 Cattermole semur við Boro Enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough hefur framlengt samning sinn við miðjumanninn unga Lee Cattermole til ársins 2010. Cattermole er aðeins 18 ára gamall en er orðinn fastamaður í liði Gareth Southgate eftir að hafa fengið sitt fyrsta tækifæri undir stjóri Steve McClaren á síðustu leiktíð. 20.10.2006 15:15 Tímamótaleikur hjá Paul Scholes um helgina Miðjumaðurinn magnaði Paul Scholes hjá Manchester United kemst í mjög sérstakan hóp manna í sögu Manchester United um helgina þegar liðið tekur á móti Liverpool, en þá verður hann aðeins níundi leikmaðurinn í sögu félagsins til að spila 500 leiki. 20.10.2006 15:02 Villa Park fær ekki nýtt nafn Forráðmenn enska úrvalsdeildarfélagsins Aston Villa hafa vísað fregnum breska sjónvarpsins á bug um að endurskíra eigi heimavöll liðsins, Villa Park, og fá honum nafn styrktaraðila. Heimildir breska sjónvarpsins gátu til um að Villa ætti von á tugum milljóna punda frá styrktaraðilum ef Villa Park fengi nýtt nafn að frumkvæði nýja eigandans, Randy Lerner. 20.10.2006 14:59 West Ham í viðræðum vegna Ólympíuleikvangsins Richard Caborn, íþróttamálaráðherra á Englandi, staðfestir í samtali við breska sjónvarpið í dag að úrvalsdeildarfélagið West Ham sé í alvarlegum viðræðum við Ólympíunefndina um að kaupa Ólympíuleikvanginn í London eftir leikana þar í borg árið 2012. 20.10.2006 14:30 Buffon ætlar ekki að fara til Chelsea Umboðsmaður ítalska markvarðarins Gianluigi Buffon segir skjólstæðing sinn ekki ætla að ganga í raðir Englandsmeistara Chelsea í janúar eins og breskir fjölmiðlar hafa haldið fram í dag. Umboðsmaðurinn segir Buffon ekki ætla að fara frá félaginu í janúar, enda hefði hann farið strax frá Juve eftir að liðið féll í B-deildina ef hann hefði ætlað sér það á annað borð. 20.10.2006 14:27 Serbía logar í kynþáttahatri Lögreglan í Belgrad í Serbíu hefur handtekið 152 stuðningsmenn fyrir kynþáttafordóma á leik Rad og Novi Pazar í annari deildinni þar í landi í gær, en þetta var í annað sinn á nokkrum dögum þar sem lögregla þarf að hafa afskipti af stuðningsmönnum vegna kynþáttafordóma í serbneska boltanum. 19.10.2006 22:30 Chelsea kenndi okkur hvernig á að vinna Barcelona Fabio Cannavaro, varnarmaður Real Madrid, segir að liðið ætli sér að nota leik Chelsea í gær sem góða lexíu í því hvernig á að vinna Barcelona fyrir leik spænsku risanna á sunnudaginn, en sá leikur verður sýndur beint á Sýn. 19.10.2006 22:15 Arsenal lagði Breiðablik Arsenal vann í kvöld 4-1 sigur á Breiðablik í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu. Enska liðið vann fyrri leikinn 5-0 hér heima á dögunum og því eru Blikar úr leik. Það var Laufey Björnsdóttir sem skoraði mark íslenska liðsins í kvöld. 19.10.2006 21:16 Góður dagur hjá ensku liðunum Ensku liðin þrjú sem taka þátt í Evrópukeppni félagsliða áttu góðan dag þegar fyrstu leikirnir í riðlakeppninni fóru fram. Newcastle lagði Fenerbahce 1-0 á heimavelli í kvöld með marki frá Antoine Sibierski undir lok leiksins. 19.10.2006 20:55 Tottenham lagði Besiktas Enska liðið Tottenham vann í kvöld auðveldan útisigur á tyrkneska liðinu Besiktas í fyrsta leik liðanna í B-riðli Evrópukeppni félagsliða 2-0. Enska liðið fór afar illa með færi sín í leiknum og hefði sigurinn átt að vera mun stærri. 19.10.2006 18:54 McCarthy varð fyrir kynþáttafordómum Enska úrvalsdeildarliðið Blackburn hefur sent evrópska knattspyrnusambandinu kvörtun eftir leik liðsins við Wisla Krakow í dag eftir að suður-afríski framherjinn Benni McCarthy kvartaði yfir ítrekuðum kynþáttaníð mótherja sinna. Hann nafngreindi þar sérstaklega serbneska varnarmanninn Nikola Mijailovic í þessu sambandi. 19.10.2006 18:13 Gerrard verður með gegn United Rafa Benitez hefur staðfest að Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, verði með í stórleik liðsins gegn Manchester United á OldTrafford á sunnudaginn. Gerrard var ekki í liði Liverpool sem vann sigur á Bordeaux í Meistaradeildinni í gær vegna meiðsla á læri. Þá verður danski landsliðsmaðurinn Daniel Agger einnig klár eftir að hafa jafnað sig af meiðslum. 19.10.2006 17:34 Þarf í uppskurð á hásin Spænski landsliðsmaðurinn Asier del Horno hjá Valencia þarf að fara í uppskurð vegna meiðsla á hásin sem hafa haldið honum frá keppni allar götur síðan hann gekk í raðir liðsins frá Englandsmeisturum Chelsea í sumar. Þetta þýðir líklega að hann verði frá keppni í að minnsta kosti tvo mánuði til viðbótar. 19.10.2006 16:55 Blackburn hafði sigur í Póllandi Blackburn vann í dag mikilvægan 2-1 útisigur á Wisla Krakow frá Póllandi í fyrsta leik sínum í E-riðli Evrópukeppni félagsliða. Blackburn lenti undir snemma leiks þegar skot hrökk af Robbie Savage og í netið, en hann jafnaði metin á 56. mínútu og David Bentley skoraði svo sigurmark enska liðsins í blálokin. 19.10.2006 16:46 Wembley opnaður á næsta ári Enska knattspyrnusambandið hefur loksins bundið enda á deilur sínar við verktaka sem standa að byggingu nýja Wembley leikvangsins í Lundúnum og því hefur verið tilkynnt að þetta vandræðamannvirki verði loks opnað formlega í byrjun næsta árs. Sambandið er þó ekki tilbúið að lofa því að úrslitaleikurinn í enska bikarnum geti farið þar fram næsta vor. 19.10.2006 16:15 Sjá næstu 50 fréttir
Chesterfield - West Ham í beinni Nokkrir leikir fara fram í enska deildarbikarnum í kvöld og verður sjónvarpsstöðin Sýn með beina útsendingu frá leik Chesterfield og West Ham klukkan 18:30. West Ham hefur gengið afleitlega í síðustu leikjum og því er ekki laust við að öll augu beinist að Alan Pardew og félögum í kvöld. 24.10.2006 15:45
United að kaupa ungan Portúgala Heimildir Sky sjónvarpsstöðvarinnar herma að Manchester United sé við það að ganga frá kaupum á 15 ára gömlum portúgölskum sóknarmanni, Evandro Brandao hjá Walsall. Brandao þessi hefur búið á Englandi í níu ár og því er haldið fram að hann hafi þegar skrifað undir tveggja ára samning við úrvalsdeildarfélagið. 24.10.2006 15:15
Wright-Phillips orðaður við Atletico Madrid Talsmaður spænska stórliðsins Atletico Madrid segir ekkert til í þeim orðrómi að félagið ætli að bjóða í enska kantmanninn Shaun Wright-Phillips þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar, en félagið er nú að leita að manni í stað þeirra Maxi Rodriguez og Martin Petrov sem báðir verða lengi frá vegna meiðsla. 24.10.2006 14:47
Mascherano þykir Defoe sleppa vel Argentínski miðjumaðurinn Javier Mascherano hjá West Ham er mjög ósáttur við að Jermain Defoe skuli ekki hafa fengið harðari refsingu en gult spjald fyrir á bíta sig í leik grannaliðanna á sunnudag. 24.10.2006 14:14
Porato til reynslu hjá Chelsea Ensku meistararnir Chelsea eru nú með markvörðinn Stephane Porato til reynslu en ef hann stendur sig vel fær hann það hlutverk að leysa Petr Cech af hólmi. Þar eð félagaskiptaglugginn er lokaður, getur Chelsea ekki keypt samningsbundinn leikmann en Porato þessi er með lausa samninga. 24.10.2006 14:07
ÍR fer upp Áfrýjunardómstóll KSÍ komst í dag að niðurstöðu í leiðindamáli Þórs/KA og ÍR í 1. deild kvenna og var niðurstaðan sú að ÍR leikur í Landsbankadeild kvenna að ári en ekki Þór/KA. ÍR vann sér sæti í deildinni með sigri á norðanliðnu í umspili, en ÍR tefldi fram ólöglegum leikmanni og kærði Þór/KA það til KSÍ. Það var hinsvegar knattspyrnusambandið sem gaf grænt ljós á að leikmaðurinn spilaði og því standa úrslitin og ÍR fer upp um deild. 24.10.2006 14:00
Hannes Þór til Framara Hannes Þór Halldórsson gekk í gær frá tveggja ára samningi við Fram. Hannes Þór er markvörður sem lék með Stjörnunni í sumar en hann rifti á dögunum samningi sínum við Garðabæjarfélagið og var því frjálst að ræða við þau félög sem honum sýndist. 24.10.2006 09:00
Mega ekki ræða við Wise Enska knattspyrnufélagið Leeds United á sér marga aðdáendur á Íslandi en það hefur verið framkvæmdastjóra laust frá því í september. Leeds fékk á dögunum samþykki frá Swindon til að ræða við Dennis Wise, framkvæmdastjóra Swindon, um hugsanlega ráðningu hans til félagsins en í gær dró Swindon það samþykki til baka og hefur meinað Leeds að ræða við Wise. 24.10.2006 08:45
Benitez svarar fyrir sig Rafa Benitez, framkvæmdastjóri Liverpool, hefur verið harðlega gagnrýndur uppá síðkastið vegna gegni liðsins í deildinni heima fyrir, en Liverpool er sem stendur í ellefta sæti deildarinnar og hefur tapað fjórum af fyrstu níu leikjum tímabilsins. Benitez hefur einnig verið gagnrýndur fyrir að láta fyrirliða liðsins, Steven Gerrard, spila í stöðu hægri kantmanns en Benitez hefur nú varið þá ákvörðun sína. 24.10.2006 07:30
Eiður Smári fær slæma dóma Spænsku blöðin eru ekki hrifin af leik Barcelona gegn Real Madrid á sunnudaginn og Eiður Smári Guðjohnsen fær ekki góða dóma fyrir sína frammistöðu í leiknum. Talað er um að Barcelona sakni mjög Samuel Eto‘o og að Eiður sé ekki að standa undir þeim kröfum sem til hans eru gerðar. 24.10.2006 07:00
Jörundur kominn til Blika og Ásthildur á leiðinni? Jörundur Áki Sveinsson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Breiðablik um að þjálfa kvennalið félagsins. Skýrist eftir næstu helgi hvort Ásthildur Helgadóttir komi heim og spili fyrir Breiðablik. 24.10.2006 06:45
Knattspyrnukappinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson: Skagamaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson fékk í gær samningstilboð frá sænska félaginu Norrköping en ÍA og Norrköping höfðu áður komist að samkomulagi um greiðslu og því er það undir Hafþóri komið hvort hann taki tilboðinu og fari utan eða spili áfram á Íslandi. 24.10.2006 06:15
Real Madrid sigraði í risaslagnum Real Madrid hrósaði í gær 2-0 sigri á Barcelona í einum af stórleikjum tímabilsins í Evrópufótboltanum. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona en náði ekki að koma í veg fyrir sigur heimamanna. 23.10.2006 13:00
Liverpool yfirspilað á Old Trafford Manchester United endurheimti toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar í gær með því að verðskulduðum sigri, 2-0, á Liverpool. Paul Scholes og Rio Ferdinand skoruðu hvor í sínum hálfleik. 23.10.2006 12:45
Arsenal á sigurbraut Arsenal heldur áfram að elta efstu lið deildarinnar en í gær vannst fyrirhafnarlítill sigur á nýliðum Reading 4-0 á útivelli. „Við byrjuðum vel, spiluðum vel og tækni okkar gerði gæfumuninn. Við stjórnuðum þessum leik algjörlega. Einbeitingin hvarf síðustu tuttugu mínúturnar en á heildina litið er ég ánægður. 23.10.2006 10:30
Gerrard er óðum að ná sér á strik Rafa Benitez hefur látið í veðri vaka að leikurinn gegn Manchester United á Old Trafford á sunnudaginn muni marka nýtt upphaf fyrir Steven Gerrard, sem ekki hefur náð sér alveg á strik á leiktíðinni og hefur til að mynda enn ekki skorað mark í úrvalsdeildinni. 20.10.2006 21:15
Frá keppni í þrjár vikur í viðbót Sænski landsliðsmaðurinn Freddie Ljungberg hjá Arsenal getur væntanlega ekki spilað með liði sínu í að minnsta kosti þrjár vikur í viðbót eftir að kálfameiðsli hans reyndust alvarlegri en talið var í fyrstu. Talið er að það komi í hlut Alexander Hleb eða unglingsins Theo Walcott að leysa hann af hólmi gegn Reading á sunnudaginn. 20.10.2006 20:30
Vill ekki hugsa um að slá met Martin O´Neill segist ekki vera með hugann við metabækurnar þegar lið hans fær Fulham í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni á morgun, en Aston Villa er eina taplausa liðið í deildinni eftir átta leiki og er nú aðeins fjórum leikjum frá því að jafna félagsmet. 20.10.2006 19:30
Setur stefnuna á 90 stig Alex Ferguson hefur sett stefnuna á að ná í 90 stig í ensku úrvalsdeildinni í vetur og segir þann mikla stigafjölda líklega vera nauðsynlegan til að vinna deildina. Manchester United hefur ekki unnið titilinn í þrjú ár, en Ferguson og félagar setja stefnuna hátt í ár. 20.10.2006 18:30
Hargreaves byrjaður í endurhæfingu Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen er nú byrjaður í endurhæfingu eftir að hafa fótbrotnað í síðasta mánuði. Hargreaves er 25 ára gamall og er nú laus við plastspelku af fætinum, sem þýðir að hann er farinn að ganga um eðlilega. Vonir standa til um að hann geti farið að spila í lok næsta mánaðar. 20.10.2006 17:15
Cisse byrjaður að æfa á ný Franski landsliðsmaðurinn Djibril Cisse mætti á sína fyrstu æfingu hjá liði Marseille í Frakklandi í dag, þar sem hann er sem lánsmaður frá Liverpool. Cisse hefur ekkert geta æft með liðinu síðan hann fótbrotnaði upphitunarleik Frakka gegn Kínverjum í byrjun júní. 20.10.2006 16:15
Arnar og Bjarki semja við FH Tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir gerðu í dag eins árs samning við Íslandsmeistara FH í knattspyrnu. Bræðurnir eru 33 ára gamlir og léku sem kunnugt er með uppeldisfélagi sínu ÍA á síðustu leiktíð, þar sem þeir gegndu einnig þjálfarastarfi. 20.10.2006 16:02
Atli og Óskar til KR Eins og fyrst kom fram í Fréttablaðinu í morgun var haldinn blaðamannafundur hjá KR í dag þar sem tilkynnt var að félagið hefði gert þriggja ára samning við þá Atla Jóhannsson frá ÍBV og Óskar Örn Hauksson frá Grindavík. Þessir ungu leikmenn eiga vafalítið eftir að styrkja vesturbæjarliðið verulega fyrir átökin næsta sumar, enda voru þeir tveir eftirsóttustu leikmennirnir á markaðnum í haust. 20.10.2006 15:49
Cattermole semur við Boro Enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough hefur framlengt samning sinn við miðjumanninn unga Lee Cattermole til ársins 2010. Cattermole er aðeins 18 ára gamall en er orðinn fastamaður í liði Gareth Southgate eftir að hafa fengið sitt fyrsta tækifæri undir stjóri Steve McClaren á síðustu leiktíð. 20.10.2006 15:15
Tímamótaleikur hjá Paul Scholes um helgina Miðjumaðurinn magnaði Paul Scholes hjá Manchester United kemst í mjög sérstakan hóp manna í sögu Manchester United um helgina þegar liðið tekur á móti Liverpool, en þá verður hann aðeins níundi leikmaðurinn í sögu félagsins til að spila 500 leiki. 20.10.2006 15:02
Villa Park fær ekki nýtt nafn Forráðmenn enska úrvalsdeildarfélagsins Aston Villa hafa vísað fregnum breska sjónvarpsins á bug um að endurskíra eigi heimavöll liðsins, Villa Park, og fá honum nafn styrktaraðila. Heimildir breska sjónvarpsins gátu til um að Villa ætti von á tugum milljóna punda frá styrktaraðilum ef Villa Park fengi nýtt nafn að frumkvæði nýja eigandans, Randy Lerner. 20.10.2006 14:59
West Ham í viðræðum vegna Ólympíuleikvangsins Richard Caborn, íþróttamálaráðherra á Englandi, staðfestir í samtali við breska sjónvarpið í dag að úrvalsdeildarfélagið West Ham sé í alvarlegum viðræðum við Ólympíunefndina um að kaupa Ólympíuleikvanginn í London eftir leikana þar í borg árið 2012. 20.10.2006 14:30
Buffon ætlar ekki að fara til Chelsea Umboðsmaður ítalska markvarðarins Gianluigi Buffon segir skjólstæðing sinn ekki ætla að ganga í raðir Englandsmeistara Chelsea í janúar eins og breskir fjölmiðlar hafa haldið fram í dag. Umboðsmaðurinn segir Buffon ekki ætla að fara frá félaginu í janúar, enda hefði hann farið strax frá Juve eftir að liðið féll í B-deildina ef hann hefði ætlað sér það á annað borð. 20.10.2006 14:27
Serbía logar í kynþáttahatri Lögreglan í Belgrad í Serbíu hefur handtekið 152 stuðningsmenn fyrir kynþáttafordóma á leik Rad og Novi Pazar í annari deildinni þar í landi í gær, en þetta var í annað sinn á nokkrum dögum þar sem lögregla þarf að hafa afskipti af stuðningsmönnum vegna kynþáttafordóma í serbneska boltanum. 19.10.2006 22:30
Chelsea kenndi okkur hvernig á að vinna Barcelona Fabio Cannavaro, varnarmaður Real Madrid, segir að liðið ætli sér að nota leik Chelsea í gær sem góða lexíu í því hvernig á að vinna Barcelona fyrir leik spænsku risanna á sunnudaginn, en sá leikur verður sýndur beint á Sýn. 19.10.2006 22:15
Arsenal lagði Breiðablik Arsenal vann í kvöld 4-1 sigur á Breiðablik í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu. Enska liðið vann fyrri leikinn 5-0 hér heima á dögunum og því eru Blikar úr leik. Það var Laufey Björnsdóttir sem skoraði mark íslenska liðsins í kvöld. 19.10.2006 21:16
Góður dagur hjá ensku liðunum Ensku liðin þrjú sem taka þátt í Evrópukeppni félagsliða áttu góðan dag þegar fyrstu leikirnir í riðlakeppninni fóru fram. Newcastle lagði Fenerbahce 1-0 á heimavelli í kvöld með marki frá Antoine Sibierski undir lok leiksins. 19.10.2006 20:55
Tottenham lagði Besiktas Enska liðið Tottenham vann í kvöld auðveldan útisigur á tyrkneska liðinu Besiktas í fyrsta leik liðanna í B-riðli Evrópukeppni félagsliða 2-0. Enska liðið fór afar illa með færi sín í leiknum og hefði sigurinn átt að vera mun stærri. 19.10.2006 18:54
McCarthy varð fyrir kynþáttafordómum Enska úrvalsdeildarliðið Blackburn hefur sent evrópska knattspyrnusambandinu kvörtun eftir leik liðsins við Wisla Krakow í dag eftir að suður-afríski framherjinn Benni McCarthy kvartaði yfir ítrekuðum kynþáttaníð mótherja sinna. Hann nafngreindi þar sérstaklega serbneska varnarmanninn Nikola Mijailovic í þessu sambandi. 19.10.2006 18:13
Gerrard verður með gegn United Rafa Benitez hefur staðfest að Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, verði með í stórleik liðsins gegn Manchester United á OldTrafford á sunnudaginn. Gerrard var ekki í liði Liverpool sem vann sigur á Bordeaux í Meistaradeildinni í gær vegna meiðsla á læri. Þá verður danski landsliðsmaðurinn Daniel Agger einnig klár eftir að hafa jafnað sig af meiðslum. 19.10.2006 17:34
Þarf í uppskurð á hásin Spænski landsliðsmaðurinn Asier del Horno hjá Valencia þarf að fara í uppskurð vegna meiðsla á hásin sem hafa haldið honum frá keppni allar götur síðan hann gekk í raðir liðsins frá Englandsmeisturum Chelsea í sumar. Þetta þýðir líklega að hann verði frá keppni í að minnsta kosti tvo mánuði til viðbótar. 19.10.2006 16:55
Blackburn hafði sigur í Póllandi Blackburn vann í dag mikilvægan 2-1 útisigur á Wisla Krakow frá Póllandi í fyrsta leik sínum í E-riðli Evrópukeppni félagsliða. Blackburn lenti undir snemma leiks þegar skot hrökk af Robbie Savage og í netið, en hann jafnaði metin á 56. mínútu og David Bentley skoraði svo sigurmark enska liðsins í blálokin. 19.10.2006 16:46
Wembley opnaður á næsta ári Enska knattspyrnusambandið hefur loksins bundið enda á deilur sínar við verktaka sem standa að byggingu nýja Wembley leikvangsins í Lundúnum og því hefur verið tilkynnt að þetta vandræðamannvirki verði loks opnað formlega í byrjun næsta árs. Sambandið er þó ekki tilbúið að lofa því að úrslitaleikurinn í enska bikarnum geti farið þar fram næsta vor. 19.10.2006 16:15
Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Körfubolti