Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umfjöllun: HK - Akureyri 21-22 Akureyri sigraði Íslandsmeistara HK í Digranesi 22-21 þar sem Oddur Gretarsson skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndu leiksins. Þjálfari og leikmenn HK var brjálaðir út afleita dómara leiksins í leikslok þar sem þeim fannst þeir yfirsjást línu og tvígrip á leikmenn Akureyrar. 13.10.2012 15:15
Sigrar hjá íslensku strákunum í danska körfuboltanum Íslendingaliðin BC Aarhus og Værlose unnu bæði leiki sína í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. BC Aarhus átti frábæran endasprett í sigri á Randers á heimavelli en Værloese vann sigur í framlengingu á útivelli. 13.10.2012 15:05
Rooney fór upp fyrir Shearer Wayne Rooney skoraði tvö mörk í 5-0 sigrinum á San Marínó í undankeppni HM í gær en þetta var í fyrsta sinn sem hann var fyrirliði enska landsliðsins í keppnisleik. Rooney skoraði fyrra markið úr vítaspyrnu en hann hefur nú skorað 31 mark í 77 landsleikjum með enska liðinu. 13.10.2012 14:30
Engir leikir hjá Eyjamönnum í dag Handknattleikssambandið hefur þurft að fresta tveimur leikjum í meistaraflokki karla og kvenna í dag þar sem ófært er frá Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HSÍ en vonir stóðu til að nóg væri að seinka leikjunum fram á kvöld. 13.10.2012 13:47
Danir kvarta við FIFA undan kynþáttafordómum í Búlgaríu Danir eru mjög ósáttir með þær móttökur sem varnarmaðurinn Patrick Mtliga frá búlgörskum áhorfendum í 1-1 jafntefli Búlgaríu og Danmerkur í undankeppni HM en leikurinn fór fram í Sofíu í gær. Danir ætlast til þess að málið fari inn á borð hjá FIFA. 13.10.2012 13:45
Ísland og Frakkland með bestan árangur af liðunum i 2. sæti Íslenska karlalandsliðið er í 2. sæti í sínum riðli eftir fyrstu þrjár umferðirnar í undankeppni HM. Íslenska liðið, sem vann 2-1 sigur á Albanía í gær, hefur náð í 6 stig af 9 mögulegum og er einu stigi á eftir toppliði Sviss. 13.10.2012 13:15
Víkingar byrja vel í 1. deild karla Víkingar hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína í 1. deild karla í handbolta og eru eina liðið með fullt hús eftir þrjár fyrstu umferðirnar. Víkingar unnu 25-24 útisigur á Gróttu í gærkvöldi. 13.10.2012 12:37
Ófært frá Eyjum - tveir leikir í dag í hættu Handknattleikssamband Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem kemur fram að tveimur leikjum í meistaraflokki í dag hefur verið seinkað til kl.18 vegna ófærðar frá Vestmannaeyjum. 13.10.2012 12:24
Messi og Falcao á skotskónum í nótt Lionel Messi og Radamel Falcao voru mennirnir á bak við sigra sinna landsliða í Undankeppni HM í nótt. Messi skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Argentínu á Úrúgvæ og Falcao skoraði bæði mörk Kólumbíu í 2-0 sigri á Paragvæ. Báðar þjóðir eru í góðum málum í tveimur efstu sætum Suður-Ameríku riðilsins. 13.10.2012 11:45
Aron Einar má ekki spila á móti Sviss Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, mun ekki spila með íslenska liðinu á móti Sviss á þriðjudaginn. Ástæðan er þó ekki agabann heldur leikbann. Aron Einar fékk sitt annað gula spjald í sigrinum í Albaníu í gær. 13.10.2012 11:00
Webber stal ráspól af Vettel í Kóreu Það var Mark Webber á Red Bull-bíl sem ók hraðast um Yeongam brautina í Kóreu í síðustu lotu tímatöku fyrir kappaksturinn þar. Hann stal ráspólnum af liðsfélaga sínum, heimsmeistaranum Sebastian Vettel, sem hafði verði lang fljótastur fyrstu tveimur lotum tímatökunnar. 13.10.2012 06:17
Besta byrjun Íslands frá upphafi Ísland er með sex stig af níu mögulegum í undankeppni HM 2014 og er það besta byrjun íslenska landsliðsins í undankeppni stórmóts frá upphafi. 13.10.2012 06:00
Hvernig var ekki hægt að verja þetta? | myndband Markvörður nígeríska U-17 ára landsliðs kvenna er orðin heimsfræg eftir að hafa slegið rækilega í gegn á Youtube. 12.10.2012 23:30
Þórsarar lögðu ÍR-inga í framlengdum leik | Myndir Þór frá Þorlákshöfn vann dramatískan sigur á ÍR-ingum í Hertz-hellinum í 2. umferð Domino's-deildar karla í körfuknattleik í kvöld. Lokatölurnar urðu 92-95 en jafnt var að loknum venjulegum leiktíma 81-81. 12.10.2012 23:21
Ragnar: Aron meinti ekki það sem hann sagði Ragnar Sigurðsson, leikmaður íslenska landsliðsins, sagði það hafa verið erfitt að spila í rigningunni í Albaníu í kvöld. 12.10.2012 23:19
Gylfi: Vildum stela sigrinum í lokin Gylfi Þór Sigurðsson reyndist hetja íslenska liðsins í kvöld, en hann tryggði Íslandi 2-1 sigur á Albaníu ytra með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum. 12.10.2012 22:52
Lagerbäck: Góður baráttusigur | Vona að Aron hafi lært af mistökunum Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, lofaði frammistöðu leikmanna íslenska liðsins eftir sigurinn gegn Albaníu ytra í kvöld. 12.10.2012 22:45
Birkir fagnaði með nuddaranum Birkir Bjarnason fagnaði marki sínu gegn Albaníu í kvöld með því að stökkva í fang Óðins Svanssonar, nuddara íslenska landsliðsins. 12.10.2012 22:33
Pedro skoraði þrjú og lagði upp það fjórða í sigri Spánverja Heims- og Evrópumeistarar Spánverja unnu 4-0 útisigur á Hvíta-Rússlandi í undankeppni heimsmeistaramótsins í kvöld. Pedro, leikmaður Barcelona, átti ógleymanlegt kvöld en hann skoraði sína fyrstu þrennu í meistaraflokki í knattspyrnu. 12.10.2012 22:11
Hangeland tryggði Norðmönnum stig gegn Sviss | Slóvenar lögðu Kýpverja Brede Hangeland var hetja Norðmanna sem gerðu 1-1 jafntefli gegn Svisslendingum í Bern í kvöld. Þá unnu Slóvenar 2-1 sigur á Kýpur en þjóðirnar fjórar eru í C-riðli ásamt Íslendingum og Albönum. 12.10.2012 21:55
Draumamark Bale tryggði Walesverjum sigur á Skotum Walesverjar syngja nafn Gareth Bale inn í nóttina en kantmaðurinn magnaði tryggði þjóð sinni stigin þrjú er liðið lagði Skota 2-1 að velli í Cardiff í kvöld. 12.10.2012 21:15
Risaurriðagangan frábæra á Þingvöllum á morgun Jóhannes Sturlaugsson verður á morgun, laugardag, með árlega fræðslugöngu sína á slóðir ísaldarurriðans i Öxará á Þingvöllum. 12.10.2012 20:19
Jakob með stórleik í sigri Drekanna Sundsvall Dragons vann sinn annan leik í röð í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta, í þetta sinn gegn Stockholm Eagles á heimavelli, 94-71. 12.10.2012 19:10
Ítalía sótti þrjú stig til Armeníu | Bendtner tryggði Dönum stig Ítalía vann góðan útisigur á Armeníu í undankeppni HM 2014 í kvöld, 3-1. Með sigrinum skellti Ítalía sér á topp B-riðils undankeppninnar með sjö stig. 12.10.2012 19:05
Aron Einar í leikbanni gegn Sviss Landsliðsfyriliðinn Aron Einar Gunnarsson verður í banni þegar að Ísland mætir Sviss í undankeppni HM 2014 á þriðjudagskvöldið. 12.10.2012 18:41
HSÍ færir bikarúrslitaleikina eftir að mótið er byrjað Stjórn Handknattleikssambands Íslands hefur ákveðið að færa bikarúrslitaleiki HSÍ frá 23. febrúar til 9.mars 2013 en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HSÍ. Bikarúrslitaleikurinn hefur farið fram í febrúar undanfarin ár en nú verður breyting á því. 12.10.2012 18:15
Þjóðverjar slátruðu Írum | Zlatan bjargaði Svíum gegn Færeyingum Færeyingar voru ekki langt frá því að ná óvæntum úrslitum gegn Svíum í undankeppni HM 2014. Þeir komust yfir í leiknum en urðu að lokum að sætta sig við naumt tap. Þá sofa Írar ekki vel í nótt eftir 6-1 tap á heimavelli gegn sjóðandi heitum Þjóðverjum. 12.10.2012 18:01
Justin Rose fyrsti "heimsmeistarinn" í golfi Justin Rose tryggði sér sigur á World Golf Final mótinu í Tyrklandi með því að vinna Lee Westwood í úrslitaleik. Þetta er í fyrsta sinn sem svona mót fer fram í lok tímabilsins en þangað var boðið átta af bestu kylfingum heims. 12.10.2012 17:45
Rúmenska kvennaliðið endurheimtir stórstjörnu Rúmenska landsliðskonan Christina Neagu spilaði langþráðan leik á miðvikudaginn þegar hún snéri aftur eftir eins árs og sjö mánaða fjarveru vegna meiðsla. Neagu spilaði sinn fyrsta leik í 605 daga þegar lið hennar Oltchim Valcea vann Brasov. 12.10.2012 17:15
Lagerbäck búinn að tikynna liðið - Alfreð byrjar Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands á móti Albaníu í undankeppni HM en leikurinn fer fram á Qemal Stafa leikvanginum í Tirana og hefst klukkan 17.00. 12.10.2012 16:38
Geir: Eins og að skora sjálfsmark fyrir leik "Við erum að reyna að tefla fram okkar sterkasta knattspyrnuliði á eftir. Aron Einar er hluti af því liði,“ sagði Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, við Vísi nú síðdegis. 12.10.2012 16:25
Pardew heldur örugglega ekki með Senegal á morgun Alan Pardew, knattspyrnustjóri Newcastle United, gæti misst báða aðalmarkaskorara sína í janúar takist landsliði Senegal að tryggja sér sæti í lokaúrslitum Afríkukeppninnar. Senegal mætir Fílabeinsströndinni um helgina í leik sem ræður til um hvort liðið verður með í Afríkukeppninni og Pardew heldur örugglega ekki með Senegal í þessum leik. 12.10.2012 16:00
Miðstöð Boltavaktarinnar - undankeppni HM á einum stað Fjölmargir leikir fara fram í undankeppni HM 2014 í dag og í kvöld og býður íþróttavefur Vísis lesendum sínum upp á að fylgjast með þeim öllum samtímis. 12.10.2012 15:49
Hvað sagði Aron um albönsku þjóðina? Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét alla í viðtali við Fótbolta.net í gær. 12.10.2012 15:40
Rose gæti misst af öllu NBA-tímabilinu Derrick Rose, leikstjórnandi Chicago Bulls, segir að það sé möguleiki á því að hann verði ekkert með liði sínu í NBA-deildinni í vetur. Rose sleit krossband í fyrsta leik úrslitakeppninnar í vor. 12.10.2012 15:15
Afsökunarbeiðni Arons Einars Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann harmar ummæli sín um albönsku þjóðina. 12.10.2012 15:10
Rússar byrja vel undir stjórn Capello - unnu Portúgali Rússar halda áfram góðri byrjun sinni í undankeppni HM undir stjórn Ítalans Fabio Capello en rússneska liðið vann 1-0 sigur á Portúgal á Luzhniki leikvanginum í Moskvu í dag. 12.10.2012 14:45
Löw: Wenger strax búinn að gera Podolski að betri leikmanni Joachim Löw, þjálfari þýska landsliðsins, er ánægður með þróun mála hjá Lukas Podolski sem kom til Arsenal frá Köln í sumar. Löw segir að Podolski sé strax búinn að bæta sig sem leikmann eftir aðeins nokkra mánuði hjá Arsene Wenger. 12.10.2012 14:30
Rooney og Welbeck með tvö gegn San Maríno | England í toppsætið Englendingar tylltu sér í efsta sæti H-riðils í undankeppni HM 2014 er liðið lagði San Marínó 5-0 á þéttsettnum Wembley-leikvanginum í kvöld. 12.10.2012 14:11
Doninger dæmdur fyrir líkamsárás Knattspyrnumaðurinn Mark Doninger, sem lék með Stjörnunni og ÍA, hefur fengið sinn annan dóm fyrir líkamsárás á Íslandi. Að þessu sinni fyrir að hafa í tvígang beitt fyrrverandi kærustu sína ofbeldi. 12.10.2012 13:45
Umfjöllun: Albanía - Ísland 1-2 | Gylfi skoraði sigurmarkið Ísland vann sögulegan sigur, 1-2, á Albaníu við fáranlegar aðstæður í Tírana í kvöld. Þetta var fyrsti sigur íslenska liðsins á Balkanskaganum. Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Íslandi sigurinn með algjöru gullmarki. Seinka varð seinni hálfleik vegna þrumuveðurs og völlurinn var á floti allan leikinn. 12.10.2012 13:22
Aron Einar biðst afsökunar Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson hefur beðist auðmjúklega afsökunar á óviðeigandi ummælum sem hann lét falla um Albana á vefsíðunni fótbolti.net. 12.10.2012 13:15
Red Bull-bílarnir fljótastir á æfingum í Kóreu Þeir Sebastian Vettel og Mark Webber hjá Red Bull í Formúlu 1 voru lang fljótastir á seinni æfingum keppnisliða fyrir kóreska kappaksturinn sem fram fór í nótt. Þeir óku þremur hundruðustu úr sekúntu hraðar en Fernando Alonso á Ferrari. 12.10.2012 13:10
Nóg af dramatík í leikjum Skallagríms og Njarðvíkur - myndir Skallagrímur og Njarðvík mættust í gær í 2. umferð Dominos-deildar karla í körfubolta og ekki var dramatíkin minni í þeim leik heldur en í fyrstu umferðinni þar sem bæði lið lentu í framlengdum leikjum. 12.10.2012 12:30
Framlínusveit Liverpool orðin þunnskipuð Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, hefur ekki úr miklu að velja þegar kemur að sóknarmönnum liðsins því eftir að Fabio Borini meiddist á æfingu með 21 árs landsliði Ítala þá er Luis Suarez eini þekkti framherji liðsins. 12.10.2012 11:45