Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eyjólfur skoraði í sjö marka leik FC Kaupmannahöfn tryggði sér í dag sæti í úrslitaleik dönsku bikarkeppninnar þrátt fyrir 4-3 tap fyrir SönderjyskE í síðari undanúrslitaviðureign liðanna í dag. 25.4.2012 19:30
Toppliðin unnu á Ítalíu | Cesena féll Fjölmargir leikir fóru fram í ítölsku úrvalsdeildinni í dag en toppliðin tvö, Juventus og AC Milan, unnu bæði sína leiki. 25.4.2012 19:16
Klopp brjálaður út í Bayern Þýskalandsmeistarar Dortmund hafa ekkert sérstaklega gaman af því þegar erkifjendurnir í FC Bayern pissa utan í leikmenn þeirra. 25.4.2012 19:15
Hazard fer frá Lille í sumar Michel Seydoux, forseti Lille, hefur viðurkennt að franska félagið muni ekki geta haldið framherjanum Eden Hazard áfram hjá félaginu. 25.4.2012 17:15
Juventus vill fá Cavani Það eru margar sögusagnir um Juventus þessa dagana enda er liðið talið ætla að styrkja sig umtalsvert í sumar. Nú er hermt að félagið ætli sér að næla í Edinson Cavani, leikmann Napoli. 25.4.2012 16:30
Fabio spenntur fyrir því að fara til Benfica Brasilíski bakvörðurinn hjá Man. Utd, Fabio, er spenntur fyrir því að leika með portúgalska liðinu Benfica á næstu leiktíð. United ætlar að lána leikmanninn næsta vetur. 25.4.2012 15:45
Hvidt fer ekki í leikbann Það er nú orðið endanlega ljóst að markvörðurinn Kasper Hvidt hjá AG mun ekki vera í leikbanni í seinni leik liðsins gegn Barcelona í Meistaradeildinni. 25.4.2012 15:00
Howard bíður eftir að komast frá Magic Dwight Howard gerði sitt besta til þess að komast frá Orlando Magic fyrir þessa leiktíð en hafði ekki erindi sem erfiði. Líkurnar á því að hann verði enn leikmaður Orlando eftir sumarið eru nánast engar. 25.4.2012 14:15
Stóraukin umfjöllun | Pepsi-mörkin í opinni dagskrá KSÍ, Ölgerðin og 365 miðlar undirrituðu í dag umfangsmikinn samning um Pepsi-deild karla og kvenna í knattspyrnu. Stöð 2 Sport mun bjóða uppá a.m.k. 23 beinar útsendingar frá Pepsi-deild karla á komandi keppnistímabili sem hefst 6. maí. Einnig verða beinar útsendingar frá völdum leikjum í Pepsi-deild kvenna, aðgengilegar öllum á Vísi.is. 25.4.2012 13:45
Ronaldo: Okkar tími er kominn Cristiano Ronaldo er sannfærður um að Real Madrid geti unnið upp 2-1 forskot Bayern München frá fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni en seinni leikurinn fer fram í kvöld. 25.4.2012 13:30
Terry bað stuðningsmenn Chelsea og leikmenn afsökunar John Terry fyrirliði Chelsea bað stuðningsmenn liðsins afsökunar á hegðun sinni í undanúrslitaleiknum gegn Barcelona í gærkvöld. Terry fékk rautt spjald í fyrri hálfleik fyrir brot gegn Alexis Sanchez og léku Englendingarnir því einum færri í um 55 mínútur. Chelsea náði með ótrúlegum hætti að tryggja sig áfram í úrslitaleik Meistaradeildarinnar með því að ná 2-2 jafntefli og sigra 3-2 samanlagt. 25.4.2012 12:00
Björn Bergmann framlengdi samningi sínum hjá Lilleström Norska staðarblaðið Romerikes Blad greinir frá því að Björn Bergmann Sigurðarson hafi framlengt samning sinn við Lilleström s.l. haust án þess að norskir fjölmiðlar hafi áttað sig á því. Íslenskir landsliðsframherjinn hefur vakið gríðarlega athygli það sem af er keppnistímabilinu í norsku úrvalsdeildinni og eru mörg stórlið að skoða Skagamanninn sem er 21 árs gamall. 25.4.2012 11:15
Mourinho er sannfærður um sigur Real Madrid gegn FC Bayern Jose Mourinho þjálfara spænska liðsins Real Madrid er sannfærður um að leikmenn liðsins standist prófið gegn FC Bayern München í kvöld í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Þýska liðið FC Bayern hafði betur í fyrri leiknum 2-1 sem fram fór í München en staða Real Madrid er alls ekki slæm eftir að hafa skorað mark á útivelli. 25.4.2012 10:48
Guardiola: Messi verður lengi að jafna sig Lionel Messi leikmaður Barcelona var miður sín eftir að lið hans féll úr keppni í Meistaradeild Evrópu í gær. Argentínumaðurinn klúðraði vítaspyrnu í síðari hálfleik í stöðunni 2-1 á Nou Camp gegn enska liðinu Chelsea og hann var ekki til staðar á fundi með fréttamönnum eftir leik. 25.4.2012 10:30
Heimsfriðurinn fékk sjö leikja bann | 45 milljóna kr. olnbogaskot Metta World Peace leikmaður LA Lakers var í gær úrskurðaður í sjö leikja keppnisbann af NBA deildinni. "Heimsfriður“ sem áður bar nafnið Ron Artest sló Jason Harden leikmann Oklahoma af miklu afli með olnboganum í leik sem fram fór s.l. sunnudag. Framherjinn Metta World Peace mun því missa af flestum leikjum LA Lakers í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. 25.4.2012 09:45
NBA: Utah í úrslitakeppnina og Phoenix sat eftir | Durant stigahæstur Utah tryggði sér áttunda sætið í Vesturdeildinni með 100-88 sigri gegn Phoenix í NBA deildinni í körfubolta í gær. Bæði lið áttu möguleika á því sæti fyrir leikinn. Þar með lauk átta leikja taphrinu Utah sem mætir líklega San Antonio í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem hefst um næstu helgi. Utah getur enn endað í 7. sæti ef Denver tapar báðum leikjum sínum sem liðið á eftir. 25.4.2012 09:00
Árangur Chelsea í Meistaradeildinni gæti bitnað á öðrum enskum liðum Svo gæti farið að fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni þetta tímabilið myndi ekki duga til að öðlast þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu. 25.4.2012 06:00
Meistaradeildarmörkin: Barcelona - Chelsea Chelsea tryggði sér sæti í úrslitum Meistaradeildar Evrópu með því að ná 2-2 jafntefli gegn Barcelona í ótrúlegum leik á Nývangi í kvöld. Þorsteinn J. og gestir hans fóru ítarlega yfir gang mála. 24.4.2012 23:42
Ótrúleg velgengni Chelsea undir stjórn Di Matteo Sjálfsagt höfðu ekki margir trú á því að Ítalinn Roberto Di Matteo myndi gera mikið úr tímabili Chelsea þegar hann tók við liðinu í upphafi marsmánaðar, eftir að Andre Villas-Boas var sagt upp störfum. 24.4.2012 23:08
Chelsea sló út Barcelona í óviðjafnanlegum leik Chelsea tókst hið ótrúlega í kvöld og tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu eftir 2-2 jafntefli gegn Barcelona á Nou Camp í hreint ótrúlegum knattspyrnuleik. 24.4.2012 17:40
Guardiola segir framtíð sína óráðna Pep Guardiola var eðlilega niðurlútur eftir að hans menn í Barcelona féllu úr leik í Meistaradeild Evrópu í kvöld. 24.4.2012 23:37
Vandræðaleg myndbirting á forsíðu spænsks dagblaðs Spænska íþróttadagblaðið Sport breytti um forsíðumynd á tölublaði dagsins eftir að það fór í prentun í gærkvöldi. Var það gert vegna óheppilegrar myndbirtingar á forsíðu. 24.4.2012 23:30
Rodman þarf mögulega að fara í fangelsi Bandarískir slúðurmiðlar greindu frá því í dag að frákastakóngurinn Dennis Rodman, fyrrum leikmaður Chicago Bulls, þurfi mögulega að fara í fangelsi vegna vangoldinna meðlagsgreiðsla. 24.4.2012 22:45
Drogba: Okkar bestu leikmenn missa af úrslitaleiknum "Við erum ánægðir með að hafa komist áfram en við verðum að halda ró okkar - vegna þess að okkar bestu leikmenn verða ekki með í úrslitaleiknum,“ sagði Didier Drogba, sóknarmaður Chelsea, eftir leikinn gegn Barcelona í kvöld. 24.4.2012 22:30
Lampard: Sjaldan liðið betur Frank Lampard segir að frammistaða Chelsea í kvöld hafi verið óviðjafnanleg og að tilfinningin eftir leikinn sé ein sú besta sem hann hafi upplifað á ellefu ára ferli sínum hjá Chelsea. 24.4.2012 22:20
Terry baðst afsökunar John Terry, fyrirliði Chelsea, bað liðsfélaga sína afsökunar fyrir að hafa brugðist þeim í leiknum gegn Barcelona í kvöld. 24.4.2012 22:10
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Stjarnan 39-23 | Valur í úrslitin Valur vann í kvöld öruggan sigur á Stjörnunni 39-23 og einvígið 3-0 og tryggði sér þar með sæti í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta gegn Fram. 24.4.2012 17:48
Bolton náði í dýrmæt stig Leikmenn Bolton unnu í kvöld afar dýrmætan sigur á Aston Villa, 2-1, og fengu þar með dýrmæt stig í fallslag ensku úrvalsdeildarinnar. 24.4.2012 17:43
Handtökuskipun gefin út á hendur Pienaar Lögreglan í Englandi hefur gefið út handtökuskipun á hendur knattspyrnumannsins Steven Pienaar þar sem hann kom ekki fyrir rétt í Essex á tilsettum tíma. 24.4.2012 17:30
Löwen gerði jafntefli við Lemgo Rhein-Neckar Löwen mátti sætta sig við jafntefli á heimavelli gegn Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 30-30. 24.4.2012 20:03
Mögulegt að Pearce velji EM-hóp Englands Enn hefur nýr landsliðsþjálfari Englands ekki verið ráðinn og því er mögulegt að Stuart Pearce muni velja landsliðshópinn sem fer á EM í sumar nú í byrjun næsta mánaðar. 24.4.2012 17:00
Tveir nýir leikmenn til Grindavíkur Guðjón Þórðarson hefur fengið tvo leikmenn frá Bretlandseyjum til Grindavíkur fyrir komandi átök í Pepsi-deild karla í sumar. 24.4.2012 16:30
Ecclestone: Formúla 1 keppir að nýju í Barein Bernie Ecclestone, alráður í Formúlu 1, segir að mótaröðin muni snúa aftur til Barein þrátt fyrir gríðarlegt fjaðrafok í kringum mótið í ár og í fyrra. 24.4.2012 15:45
Er stærð grasmottunnar á Nou Camp bara góð lygasaga? Margir fótboltasérfræðingar hafa skrifað um það á undanförnum dögum að það verði erfitt fyrir vörn Chelsea að halda aftur af sóknarþunga Barcelona á Nou Camp þar sem að heimavöllur Barcelona er mun breiðari en Stamford Bridge í London. 24.4.2012 15:00
Knattspyrnulið Bretlands í erfiðum riðli á ÓL í London Bretar leika gegn Úrúgvæ, Senegal og Sameinuu arabísku furstadæmunum í riðlakeppninni í fótbolta á Ólympíuleikunum sem fram fara í sumar. Bretar eru því í erfiðum riðli en þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1960 þar sem Bretland keppir í fótbolta á ÓL. Dregið var í riðla í dag á Wembley í London en fyrsti leikur Breta verður á Old Trafford gegn Senegal þann 26. júlí. 24.4.2012 14:15
Ellefu stuðningsmenn Genoa fengu fimm ára bann Ellefu stuðningsmenn ítalska fótboltaliðsins Genoa létu afar ófriðlega á áhorfendapöllunum gegn Siena s.l. sunnudag og ítalska knattspyrnusambandið tók afar hart á hegðun þeirra. Stuðningsmennirnir fá ekki að stíga fæti inn á áhorfendasvæðin á ítölskum fótboltavöllum næstu fimm árin 24.4.2012 13:30
Guardiola: Barcelona leikur til úrslita í München Barcelona og Chelsea eigast við í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld en Chelsea er 1-0 yfir eftir fyrri leikinn sem fram fór í London. Pep Guardiola þjálfari Barcelona býr yfir miklu sjálfstrausti og í hans huga kemur ekkert annað til greina en að Barcelona leiki til úrslita í þessari keppni. 24.4.2012 12:45
Torres telur að Chelsea eigi möguleika gegn Barcelona Fernando Torres framherji enska liðsins Chelsea segir að leikmenn liðsins ætli sér að komast í úrslit Meistaradeildar Evrópu. Spánverjinn verður væntanlega á varamannabekk Chelsea í kvöld gegn Barcelona á Nou Camp en Chelsea vann fyrri leikinn 1-0 í London. 24.4.2012 12:00
Fyrsti úrslitaleikur Grindavíkur og Þórs í heild sinni á Vísi Grindavík og Þór frá Þorlákshöfn léku fyrsta úrslitaleikinn í Iceland Express deild karla í körfuknattleik í gær. Grindavík hafði betur, 93-89, en það lið sem fyrr sigrar í þremur leikjum verður Íslandsmeistari. Leikurinn var æsispennandi og var hann í beinni útsendingu á Stöð 2 sport. Allur leikurinn er nú aðgengilegur á sjónvarpshluta Vísis. Næsti leikur fer fram í Þorlákshöfn á fimmtudaginn. 24.4.2012 11:15
Robin van Persie bestur að mati íþróttafréttamanna Robin van Persie fyrirliði Arsenal var í dag valinn leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni af samtökum íþróttafréttamanna sem skrifa eingöngu um fótbolta. Hinn 28 ára gamli Hollendingur hefur skorað 34 mörk á tímabilinu. Wayne Rooney leikmaður Manchester United varð annar, og liðsfélagi hans Paul Scholes endaði í þriðja sæti. Bandaríkjamaðurinn Clint Dempsey hjá Fulham varð fjórði. 24.4.2012 09:45
San Antonio tryggði sér efsta sætið | 76‘ers í úrslitakeppnina Fimm leikir fóru fram í nótt í NBA deildinni í körfubolta. Línur eru farnar að skýrast hvaða lið mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem hefst um næstu helgi. San Antonio Spurs tryggði sér efsta sætið í Vesturdeildinni með 124-89 sigri á heimavelli gegn Portland. Philadelphia 76‘ers leikur í úrslitakeppninni í Austurdeildinni eftir 105-87 sigur gegn New Jersey á útivelli. 24.4.2012 09:00
Reynir: Barcelona kemst í úrslitaleikinn Barcelona frá Spáni og enska liðið Chelsea mætast í kvöld í síðari viðureign þeirra í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. 24.4.2012 06:00
Heimsfriðurinn baðst afsökunar en má eiga von á þungri refsingu Metta World Peace, áður Ron Artest, sýndi gamalkunna takta þegar hann gaf James Harden svakalegt olnbogaskot í leik LA Lakers og Oklahoma City Thunder í NBA-deildinni í gær. 23.4.2012 23:45
Faðir Rooney verður ekki kærður Wayne Rooney eldri verður ekki kærður fyrir að hafa tekið þátt í að hagræða úrslitum knattspyrnuleikja í Skotlandi, eftir því sem lögfræðingur hans sagði í dag. 23.4.2012 23:30
Rossi spilar ekki aftur fyrr en á næsta ári Ítalski sóknarmaðurinn Giuseppe Rossi verður frá næstu tíu mánuðina þar sem hann þarf að gangast undir aðra aðgerð á skömmum tíma vegna krossbandsslita. 23.4.2012 22:45