Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mourinho fyrir Barcelona-leikina: Æfir liðið í að spila manni færri Það kunna fáir betur að vinna sálfræðistríð fótboltans en einmitt Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, og nú er kappinn byrjaður að undirbúa sig, liðið sitt og ekki síst knattspyrnuheiminn fyrir leikina á móti Barcelona. Real og Barcelona mætast fjórum sinnum á næstu vikum og þar af eru tveir leikir í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. 14.4.2011 13:00
Van Der Sar hljóp 64 metrum meira en Torres Það var ekki nóg með að Fernando Torres tækist ekki að skora í ellefta leiknum í röð í Chelsea-búningnum þá var ákefð hans ekki mikil í leiknum mikilvæga á móti Manchester United í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöldið. 14.4.2011 12:15
Redknapp vildi ekki gera Gomes að blóraböggli Harry Redknapp, stjóri Tottenham, neitaði að gagnrýna brasilíska markvörðinn Heurelho Gomes, þrátt fyrir að hann hafi fengið á sig mikið klaufamark í 0-1 tapi Tottenham á móti Real Madrid í gær í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. 14.4.2011 11:45
Tevez frá í þrjár til fjórar vikur - missir af United-leiknum Manchester City verður án fyrirliða síns Carlos Tevez í undaúrslitaleik enska bikarsins á móti Manchester United á Wembley á laugardaginn. Tevez tognaði aftan í læri 0-3 tapleiknum á móti Liverpool á dögunum og verður frá í þrjár til fjórar vikur. 14.4.2011 10:45
Fram átti tvo markahæstu leikmennina í úrslitaeinvíginu Valskomur tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í N1 deild kvenna í handbolta í gærkvöldi með því að vinna þriðja leikinn í röð á móti bikarmeisturum Fram. Leikurinn sem var frábær skemmtun og líkalega sá besti sem hefur farið fram í kvennahandbolta á Íslandi fór alla leið í vítakeppni eftir að það var búið að framlengja tvisvar. 14.4.2011 10:15
Rio Ferdinand: Engir fýlupúkar hjá Manchester United Rio Ferdinand skaut létt á vandamálin í herbúðum Manchester City í viðtali við Guardian í aðdraganda undanúrslitaleiks Manchester-liðanna í enska bikarnum á laugardaginn. Það hefur gengið hjá ýmsu hjá Roberto Mancini, stjóra City-liðsins, að reyna að halda sínum leikmönnum ánægðum og einbeittum. 14.4.2011 09:45
Þessi lið mætast í úrslitakeppni NBA-deildarinnar Í nótt fóru fram síðustu leikir deildarkeppninnar í NBA-deildinni í körfubolta og nú er því orðið endanlega ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni sem hefst um næstu helgi. 14.4.2011 09:15
NBA: Chicago Bulls endaði eitt á toppnum Chivago Bulls vann sinn 62. leik á tímabilinu og tryggði sér heimavallarrétt út úrslitakeppnina þegar síðustu leikir deildarkeppni NBA-deildarinnar í körfubolta fóru fram í nótt. San Antonio Spurs missti af tækifærinu á því að vera með Chicago í efsta sætinu þegar liðið tapaði fyrir Phoenix Suns. Los Angeles Lakers þurfti framlengingu til þess að vinna Sacramento Kings en tryggði sér með því annað sætið í Vestrinu. Miami Heat vann án þeirra LeBron James, Dwyane Wade og Chris Bosh og Boston Celtics vann New York Knicks í upphitun, án flesta aðalleikaranna, fyrir einvígi liðanna í fyrstu umferð. 14.4.2011 09:00
Fögnuður Valskvenna í myndum Valur varð í gær Íslandsmeistari kvenna í handbolta annað árið í röð. Valskonur sópuðu Fram í úrslitaeinvíginu, 3-0, eftir ótrúlegan leik í gær þar sem úrslit réðust ekki fyrr en í vítakastkeppni. 14.4.2011 08:00
Alexander getur ekki kastað sársaukalaust Alexander Petersson, leikmaður Füchse Berlin í Þýskalandi, hefur ekki getað æft af fullum krafti síðustu vikurnar. 14.4.2011 06:00
Valskonur meistarar eftir vítakastkeppni Valur er Íslandsmeistari í handbolta kvenna 2011 eftir hreint ótrúlegan þriðja leik við Fram í einvíginu um titilinn. Valskonur unnu einvígið 3-0 og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld eftir að hafa lagt Fram í sjaldséðri vítakastkeppni að loknum tvíframlengdum leik. 13.4.2011 21:44
Kobe sektaður um 11 milljónir króna Kobe Bryant var í dag sektaður um ellefu milljónir króna fyrir að hreyta fúkyrðum að dómara sem gaf honum tæknivillu í leik LA Lakers gegn San Antonio Spurs í gær. 13.4.2011 23:45
Hrafnhildur: Ég er gömul en aldrei hef ég séð svona "Ég hef aldrei lent í öðru eins og ég er orðin nokkuð gömul í þessum bransa,“ sagði Hrafnhildur Skúladóttir, leikmaður Vals, eftir leikinn í kvöld. Valur vann Fram 37-35 eftir tvíframlengdan leik og vítakastkeppni. Þetta var þriðji leikur liðanna og Valur vann einvígið því 3-0. 13.4.2011 23:29
Kristín: Mögnuð upplifun „Þetta var hreinlega geggjað og rosaleg upplifun,“ sagði Kristín Guðmundsdóttir, leikmaður Vals, eftir að Valur hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Valur vann Fram eftir tvíframlengdan leik, en eftir það var að grípa til vítakastkeppni. 13.4.2011 23:23
Anna: Vonandi jafn skemmtilegt fyrir áhorfendur og okkur "Þetta var algjör snilld og ég vona að þetta hafi verið jafn skemmtilegt fyrir áhorfendur og okkur leikmennina,“ sagði Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, leikmaður Vals, eftir að hún hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í N1-deild kvenna. 13.4.2011 23:17
Jenný: Aldrei upplifað svona spennu "Þetta var hörku leikur og gríðarleg spenna,“ sagði Guðný Jenný Ásmundsdóttir, markvörður Vals, eftir magnaðan sigur á Fram en leikur fór í vítakastkeppni þar sem Jenný varði eitt víti. 13.4.2011 23:11
Einar: Stoltur af stelpunum "Þetta var alveg hreint frábær handboltaleikur,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, eftir leikinn í kvöld. Fram tapaði fyrir Val í þriðja leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn , en Valsstúlkur tryggðu sér titilinn eftir vítakastkeppni. 13.4.2011 22:55
Stefán: Ekkert sem toppar þetta Það getur fátt toppað svona leik,“ sagði Stefán Arnarsson, þjálfari Vals, eftir að lið hans varð Íslandsmeistari í N1-deild kvenna eftir ótrúlegan þriðja leik sem endaði í vítakastkeppni“. 13.4.2011 22:46
Mourinho ver liðsval sitt Jose Mourinho segir að það hafi verið rétt hjá sér að stilla upp sínu sterkasta liði gegn Tottenham í Meistaradeild Evrópu í kvöld. 13.4.2011 21:30
Redknapp: Verðum að vera aftur með á næsta ári Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hvatti sína menn til að sýna hvað í þeim býr og tryggja sér þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu aftur fyrir næsta tímabil. 13.4.2011 21:21
Ágúst Björgvinsson hættur með Hamarsliðin Ágúst Björgvinsson verður ekki áfram í Hveragerði en hann hefur þjálfað meistaraflokka karla og kvenna hjá Hamar undanfarin tvö tímabil og var þar á undan með karlalið Hamars í tæp tvö tímabil. 13.4.2011 20:42
Beckham vill fá að spila á Ólympíuleikunum í London David Beckham hefur viðurkennt að honum langi mikið til að spila með breska landsliðinu á Ólympíuleikunum í London á næsta ári. Beckham spilaði ekki í Evrópu í vetur en er nú kominn á full á nýju tímabili með Los Angeles Galaxy liðinu. 13.4.2011 19:00
El Clásico fjórum sinnum á átján dögum Spænsku stórliðin Real Madrid og Barcelona munu á næstunni eigast við fjórum sinnum á aðeins átján daga tímabili. Óhætt er að segja um að veislu sé að ræða fyrir knattspyrnuunnendur víða um heim. 13.4.2011 18:45
Schalke sendi skýr skilaboð til Manchester Schalke komst áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu með miklum stæl í kvöld. Liðið lagði Evrópumeistara Inter á heimavelli, 2-1, og 7-3 samanlagt. 13.4.2011 18:15
Meistaradeildarævintýri Tottenham á enda Real Madrid vann í kvöld 1-0 sigur á Tottenham og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Real vann samanlagðan 5-0 sigur en Cristiano Ronaldo skoraði eina mark leiksins í kvöld, þökk sé skelfilegra mistaka Huerelho Gomes í marki heimamanna. 13.4.2011 17:54
Roberto Carlos fékk 368 milljóna króna bíl í afmælisgjöf Brasilíumaðurinn Roberto Carlos spilar þessa dagana með rússneska liðinu FC Anzhi Makhachkala og nýtur þar góðs af gjafmildi hins óhemju ríka olíubaróns Suleiman Kerimov, eiganda félagsins. Roberto Carlos fékk afar myndalega afmælisgjöf frá eigandanum þegar leikmaðurinn hélt upp á 38 ára afmælið sitt á dögunum. 13.4.2011 17:30
Spánverjar afþökkðu boðið í Suður-Ameríkukeppnina Heims- og Evrópumeistarar Spánverja verða ekki með í Suður-Ameríkukeppninni í fótbolta í sumar eftir að þeir afþökkuðu boðið um að taka sæti Japana í keppninni. Stjórn spænska sambandsins vildi ekki taka boðinu þar sem að það var ekki pláss fyrir keppnina á dagatalinu. 13.4.2011 16:45
Szczesny og Djourou verða með Arsenal á móti Liverpool Arsenal-mennirnir Wojciech Szczesny og Johan Djourou eru orðnir góðir af meiðslum sínum og verða klárir í slaginn þegar Arsenal tekur á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn kemur. 13.4.2011 16:00
Usmanov ætlar ekki að selja sinn hluta í Arsenal Milljarðamæringurinn Alisher Usmanov sem á 27 prósent í enska úrvalsdeildarfélaginu Arsenal ætlar ekki að selja Bandaríkjamanninum Stan Kroenke sinn hlut í félaginu. Stan Kroenke á nú 63 prósent í Arsenal og hefði eignast allt félagið ef að Rússin hefði verið til að selja honum sinn hluta. 13.4.2011 15:45
Rooney: Ég fattaði ekki hvað ég var búinn að gera Wayne Rooney, framherji Manchester United, hefur sætt sig við það að hafa fengið tveggja leikja bann fyrir að blóta í sjónvarpsvél um leið og hann fagnaði þrennu sinni á móti West Ham í ensku úrvalsdeildinni á dögunum. 13.4.2011 15:30
Mourinho: Tottenham verður að skora sex mörk til að slá út Real „Ég er mjög stoltur af því að við erum enn taplausir í Meistaradeildinni," sagði José Mourinho, þjálfari Real Madrid á blaðamannafundi fyrir seinni leik liðsins á móti Tottenham í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Real Madrid vann fyrri leikinn 4-0 og aðeins stórslys kemur í veg fyrir að liðið komist í undanúrslitin á móti erkifjendum sínum í Barcelona. 13.4.2011 14:45
Harry Redknapp: Kraftaverkin gerast Harry Redknapp, stjóri Tottenham, neitar að gefa upp vonina að Tottenham komist áfram í Meistaradeildinni þrátt fyrir að liðið hafi tapað 0-4 í fyrri leiknum á móti Real Madrid. Seinni leikur liðanna fer fram á White Hart Lane í kvöld. 13.4.2011 14:15
Ferguson flýgur til Þýskalands í dag Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, vill ekkert staðfesta það að félagið sé búið að ganga frá kaupum á David de Gea, markverði Atletico Madrid. Edwin van der Sar leggur skóna á hilluna í vor og margir bíða spenntir eftir því hver verði eftirmaður hans í marki félagsins. 13.4.2011 13:30
Verður krökkunum hans Baldurs bongó bannað að tromma í kvöld? Baldur Orri Rafnsson, tónlistarkennari í Grundarfirði, betur þekktur sem „Baldur bongó“, hefur boðað komu sína á þriðja leik Vals og Fram um Íslandsmeistaratitilinn í N1 deild kvenna í handbolta. Leikurinn hefst klukkan 19.30 í kvöld í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda og með sigri tryggir Valur sér Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð. 13.4.2011 13:00
Wilshere: Arsenal á mitt hjarta Jack Wilshere, miðjumaður Arsenal og enska landsliðsins, gefur lítið fyrir þær fréttir að hann sé á leiðinni til Manchester City í sumar. Þessi 19 ára strákur hefur slegið í gegn á Emirates á þessu tímabili og er orðinn byrjunarliðsmaður í enska landsliðinu. 13.4.2011 11:30
Sir Alex: Sá ekki hvernig þeir gátu byrjað með Torres á bekknum Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, sagðist hafa verið nokkuð viss um það að Fernando Torres yrði í byrjunarliði Chelsea í seinni leiknum á móti United í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. United tryggði sér sæti í undanúrslitunum með 2-1 sigri á Old Trafford í gær þar sem Torres var tekinn útaf í hálfleik. 13.4.2011 10:45
Giggs: Seinna markið kom á hárréttum tíma Ryan Giggs átti stóran þátt í því að Manchester United sló Chelsea út úr átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar og komst í undanúrslitin. Giggs lagði upp öll þrjú mörk United í leikjum þremur, sigurmarkið fyrir Wayne Rooney í fyrri leiknum og svo mörkin þeirra Javier Hernandez og Ji-Sung Park í gærkvöldi. 13.4.2011 10:15
Karlalandsliðið niður um eitt sæti - stelpurnar nú 100 sætum ofar Íslenska karlalandsliðið féll niður um eitt sæti á nýjum Styrkleikalista FIFA sem var gefinn út í morgun. Íslenska landsliðið situr nú í 116. sæti og er nú aðeins einu sæti frá því að jafna sína verstu stöðu frá upphafi. 13.4.2011 09:45
Rosberg: Erfið byrjun á tímabilinu Nico Rosberg og Michael Schumacher mæta á Sjanghæ Formúlu 1 brautina í Kína um helgina og keppa í þriðja Formúlu 1 móti ársins. Rosberg varð í þriðja sæti í mótinu í Sjanghæ í fyrra. 13.4.2011 09:32
Selfyssingar fóru illa með gamla þjálfara sinn Gumma Ben Selfyssingar hafa sýnt á sér ýmsar hliðar í Lengjubikarnum í ár en í gær voru þær sparihliðarnar sem voru í sviðsljósinu í 3-0 sigri á Íslandsmeisturum Breiðabliks í Kórnum. 13.4.2011 09:15
NBA: Chicago og San Antonio jöfn á toppnum fyrir síðasta leik Chicago Bulls komst upp að hlið San Antonio Spurs á toppi NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt eftir að Bulls-liðið vann New York Knicks og San Antonio tapaði fyrir Los Angeles Lakers. Verði liðin áfram jöfn eftir síðustu leikina í kvöld verður dregið um hvort liðið fær heimavallarrétt mætist þau í úrslitunum þar sem að innbyrðisárangur þeirra er jafn. Chicago tekur á móti New Jersey Nets í lokaleik sínum í nótt en San Antonio fer í heimsókn til Phoenix. 13.4.2011 09:00
Heidfeld ánægður með bronsið Nick Heidfeld tryggði Renault bronsið í kappakstrinum í Malasíu á sunnudaginn og lið hans náði þriðja sæti einnig í fyrsta móti ársins með Vitaly Petrov. Heidfeld er staðgengill Robert Kubica. 13.4.2011 08:30
Messi jafnaði 60 ára gamalt met Lionel Messi skoraði í gær sitt 48. mark á tímabilinu og jafnaði þar með 60 ára gamalt met á Spáni. 13.4.2011 06:00
McCarthy farinn frá West Ham Benni McCarthy hefur fengið sig lausann frá West Ham en samningur hans átti að renna út nú í sumar. Þessi 33 ára gamli sóknarmaður náði aldrei að skora fyrir félagið. 12.4.2011 23:30
Brighton í ensku B-deildina Brighton & Hove Albion tryggði sér í kvöld sæti í ensku B-deildinni með 4-3 sigri á Dagenham & Redbrigde. Knattspyrnustjóri liðsins er Gus Poyet. 12.4.2011 22:48